Morgunblaðið - 23.08.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.08.1995, Qupperneq 1
1 BRANPARAR\ Heimilisfang: MYNDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík | ÞRAUTIRl PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 23. AGUST 1995 D BLAÐ Brandarabanki Myndasagnanna! HÆSTU mögulegir vextir: Gleði og bros svo að skín í endajaxlana ef þeir eru þá komnir í Ijós — Ef þið akið ykkur í spiki, leyfið því að gutla svolítið og hristast af ykkur með lestri Brandara- bankans — Brandarabank- inn; besta heilsubót sem völ er á — Mesta og besta ávöxt- unin Jæja, jæja, jæja þá. Var ein- hver að tala um einhvern Moggaverðlaunabrandara- bankamyndasagnapott? Nei, 'alls enginn, enda eins gott, þetta langa orðskrípi sem fór hér á undan á engan rétt á sér. Svona orð eru ekki hæf til notkunar í íslensku máli. Við eigum svo mörg, mörg falleg orð, að svona langloka er ekkí hæf í munni nema þá til átu, með salati, skinku eða rækju eða túnfiski, sósu og svo framvegis. EN - það var minnst á verðiauna- og vaxta- pottinn fyrir einni eða tveimur vikum! Þið hafið verið alveg ofsa- lega dugleg að senda okkur brandara og munum við birta þá svona í áföngum. Örfáa brandara hefur þurft að leggja til hliðar - þeír eru ekki alveg hæfir til birtingar í blaði sem vill ekki láta bendla sig við - tja, já, hreint út sagt dóna- skap. Myndasögur Moggans eru hluti af Morgunblaðinu - blaði allra landsmanna - og það blað er vant að virðingu sínni, sem þýðír að við birtum ekki brandara ef þeir eru dóna- legir. Og hananú! Allir sem senda inn til okkar brandara eru, eins og hefur komið fram áður, í Moggapottin- um. Nú hefur verið dregið úr honum í fyrsta sinn ... OG verð- launahafarnir eru: Morgunblaðstaska: Bjarney I. Sigurðardóttir Holtsgötu 13 101 Reykjavík Morgunblaðsbolur: Tinna H. Smáradóttir Skólavegi 88a 750 Fáskrúðsfjörður Morgunblaðshandklæði: Unnur Bjamadóttir Gnitaheiði 5 200 Kópavogur Morgunblaðshúfa: Viktor P. Hannesson Bjarkarhlíð 5 700 Egilsstaðir Högnabolur: Fanney Friðriksdóttir Dvergholti 13 270 Mosfellsbær '1! Morgimblaðið/Kristinn Myndasögur Moggans og mark- aðsdeild Morgunblaðsins þakka ykkur fyrir þátttökuna og óska verðlaunahöfunum til hamingju. Og nú er bara að halda áfram að senda inn brandara í bankann góða. Næst verður dregið að þrem- ur eða fjórum vikum liðnum. Verðlaunahafarnir fá Mogga- verðlaunin send á hæstu dögum. xXx Hérna koma nokkrir góðir: Vitið þið af hveiju Hafnfirðingar fara alltafút. þegarþað eni þrum- ur og eldingar? Af því að þeir halda að Guð sé að taka myndir. Það var hún Marta Maria Frið- riksdóttir, 8 ára, Vesturbrún 18, 104 Reykjavík, sem sendi þennan. xXx Kæra Morgunblað! Ég sendi hér einn. Einu sinni var eitt blátt tyggjó og annað gult tyggjó í bíó. Þar hittu þau kjöt sem var að gráta. Gula tyggjóið spurði af hverju það væri að gráta. Þá sagði kjötið: Af því að mig langar svo í tyggjó. Elva Hrund Þórisdóttir, Jörund- arholti 134, 300 Akranesi. xXx Þessa tvo sem hér fylgja sendi Unnur Bjarnadóttir, Gnitaheiði 5, 200 Kópavogur. Hún sendi fleiri, en þeir verða að biða birtingar eins og fleiri brandarar frá ykkur, skemmti- legu börn. Tveir Hafnfirðingar fóru til Afríku. Þar sem þeir höfðu fengið óskir um að þeir kæmu til baka með krókódílastígvél fyrir konurnar sfriar og erfitt reyndist að fá slík stígvél í búðum, brugðu þeir á það ráð, að reyna sjálfir að veiða krókó- díla. Eftir viku spurðist næst til þeirra þar sem þeir voru bus- landi í straumþungri á og á bakkanum voru hrúgur af krókódílum. Skyndilega beygði annar Hafnfírðingurinn sig niður, greip enn einn krókódílinn upp úr vatninu, henti honum upp á bakkann og tautaði þurrlega: Ef sá næsti er ekki í skóm þá er ég farinn heim. xXx Hafnfuðingur var á feið í mið- bænum þegar tveir þjófar ivðust á hann. Hafnfnðingurinn baiðist hetjulega en svo fór að þeir höfðu hann undir og ætluðu aðræna hann. En þeír fundu bara hundmðkall. - Hva, slæstu svona fvrir hundr- aðkall? - Nei, ég hélt bara að þið ætluð- uð að ræna fimmtíuþúsundkallin- um mínum, sem ég geymi í öðrum sokknum. Að brosa er gott ÞAÐ eru prinsar og prinsessur, hjörtu og blóm og margt fleira á hinni stórglæsilegu mynd sem hér fylgir. Listamaðurinn eða öllu heldur listakonan heitir Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, 4 ára - verður 5 ára í desember, Birkihlíð 32, 105 Reykjavík. Hvað er svo gott að sjá á myndinni? Já, alveg rétt, það sem er svo gott að sjá er brosið á andlitun- um. Myndasögurnar þakka Mel- korku Þöll fyrir. Spegilmynd ÞIÐ sjáið fjórar myndir hérna, sem í fljótu bragði virðast eins. En sú er ekki raunin, þær snúa ekki allar á sama hátt og nú eigið þið að finna hvaða mynd er spegilmynd myndarinnar efst til hægri. Til Lausna getið þið leitað ef þið eruð ekki alveg viss um svarið. Lausnir eru á öðrum stað í blaðinu. Hafið gaman af. Sjálfsmyndir systranna VIÐ systurnar teiknuðum myndir af okkur sjálfum í fínum fötum. Við heitum Ásdís Eva Lárusdóttir, 6 ára, og Sara Björk Lár- usdóttir, 4 ára. Við búum í Jörfabakka 18, 109 Reykjavík. Svo mörg voru þau orð frá systrunum drátthögu. Þið'enið ekki neitt smáræðis fínar, einhveijir mundu segja dúllulegar. Hjartans þakkir fyrir sendinguna, kæru systur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.