Morgunblaðið - 24.08.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 24.08.1995, Síða 1
NÝSKÖPUN Hugvit aö veöi í stað steypu /4 HUGBÚNADUR |||g T Pflir's i LÁNTÖKUR Grýtt leið Louis Ríkið leitar víða á markaðinn/6 B M S fanga/10 IMtripmM&M®) Mjódd Stórmarkaði Kjöts og fisks í Mjódd hefur verið lokað vegna fjárhagserfiðleika. Eigandinn, Björn Sveinsson, segir lokunina tímabundna en ekki sé ljóst hvort hann haldi rekstrinum áfram eða annar aðili taki við. Stórverslanir ;á höfuðborgarsvæðinu fylgjast vel með stöðu mála í Mjódd. Reykjavík Skuldabréfaútboð Reykjavíkur- borgar hefst á næstu dögum og mun Handsal hafa umsjón með því. Útboðið er að fjárhæð 700 miHjónir og eru bréfin til 24 ára. Vextir verða fastsettir þegar út- boðið hefst en ljóst er að ávöxtun- arkrafan verður 12 punktum yfir ávöxtunarkröfu húsbréfa. Þetta er stærsta skuldabréfaútboð á ár- inu ef ríkissjóður er frá talinn. Atvinnutekjur Atvinnutelq'ur á mann hækkuðu um 2,2% frá 1993-1994 skv. skatt- framtölum að því er fram kemur í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar. Tekjur voru að meðaltali 98.600 krónur á mánuði 1993 en 100.700 kr. í fyrra. Meðalatvinnutekjur hjóna voru 222 þúsund á mánuði 1993 en 227 þúsund í fyrra. Hlutabréfaeign nýja Hlutabréfasjóðsins Hf. Yfirlit yfir hlutabréfaeign Hlutabréfasjóðsins hf. eftir sameiningu Hlutabréfasjóðsins hf og Hlutabréfasjóðs VÍB hf. þann 30. júní 1995, en sameiningin miðast við þá dagsetningu. Hlutafélag Eimskipafélag íslands hf. Flugleiðir hf. Grandi hf. íslandsbanki hf. Hampiðjan hf. Þormóður rammi hf. Skeljungur hf. Útgerðarfélag Akureyringa hf Haraldur Böðvarsson hf. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Oliuverslun íslands hf. Sæplast hf. Skagstrendingur hf. Síldarvinnslan hf. S3 Marel hf. Önnur félög , V, , rtff- [ 3»! *—JhOrB U - liíiu* v i« Nafnverð, þús. kr. 33.275 54.175 33.454 40.925 18.559 16.444 10.677 8.839 10.490 2.370 5.791 3.566 3.084 1.964 1.203 6.991 Markaðsverð, þús. kr. 159.720 108.349 67.242 46.246 42.685 38.808 33.099 23.776 21.924 13.508 12.335 10.169 6.939 5.342 3.489 9.842 Hlutfallaf hlutabréfaelgn Hlutabréfasjóðsins hf. 26.5% 18,0% 11,1% 7,7% 7,1% 6,4% 5,5% 3,9% 3,6% 2,2% 2,0% 1,7% 1,1% 0,9% 0,6% 1,6% Samtals: 251.808 603.473 100,0% Eignarhlutfall Hlutabr.sjóðsins af heildarhlutafé viðkomandi fyrirt. 2,0% sk 2,6% . 3,1% ÍÉ 1,1% 5,6% 3,9% 1,6°MðÉ 1,2% 2,6% 0,7% 0,8% 3,9% 2,0% 0,7% 1,1% Hlutabréfasjóðurinn hf. og Hlutabréfasjóður VÍB hf. sameinast Heildareignir 1.200 milliónir HLUTABRÉFASJÓÐURINN hf. og Hlutabréfa- sjóður VIB hf. hafa sameinast undir nafni Hluta- bréfasjóðsins hf., samkvæmt samningi sem var undirritaður í gær. Hið nýja sameinaða félag verður langstærsti hlutabréfasjóður landsins með heildareignir upp á um 1.200 milljónir króna. Markaðshlutdeild verður nálægt 45%. Á fjórða þúsund hluthafar eru í nýja félaginu og heildarhlutabréfaeign um 600 milljónir að markaðsvirði. Mikil meirihluti, eða yfír 90%, þess- ara hlutabréfa, eru í félögum sem skráð eru á Verðbréfaþingi. Útundan í jólaösinni „Hlutabréfasjóðurinn hf. er elsti hlutabréfasjóð- urinn. Hann hefur alla tíð staðið einn, utan verð- bréfafyrirtækjanna og með tímanum hefur hann að hluta til lent til hliðar,“ sagði Baldur Guðlaugs- son, sem verið hefur stjórnarformaður Hlutabréfa- sjóðsins hf., í samtali við Morgunblaðið. „Þannig hefur jólaösin í hlutabréfaviðskiptum verið meiri í hlutabréfasjóðum í eigu hefðbundinna verðbréfa- fyrirtækja. Það hefur því legið fyrir í nokkurn tíma að marka þyrfti stefnu varðandi framtíð Hlutabréfasjóðsins þó staða hans og árangur af rekstri sé mjög góð.“ VÍB með reksturinn Baldur sagði að það hefði því verið ákveðið að leita eftir möguleikum á samstarfi eða samruna við einhyern af þeim hlutabréfasjóðum sem fyrir væru. „Hlutabréfasjóðurinn hf. er í raun að gera tvennt, koma sér betur fyrir á markaðnum og ná fram hagræðingu í rekstri með sama hætti og Hlutabréfasjóður VÍB. Sú hagræðing skilar sér til hluthafa eins og sjá má á því að það hefur þegar tekist að hækka ávöxtun hluthafa um ríf- lega 0,5% árlega vegna lægri rekstrarkostnaðar eftir sameininguna. Verðbréfamarkaður íslandsbanka, VÍB, mun hafa umsjón með rekstri hins sameinaða félags og verður umsjónarþóknun sem hlutfall af eignum 0,5% á ári, eða innan við helmingur af kostnaði hvors hlutabréfasjóðs um sig fyrir sameiningu. Hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum hf. verða eftir sem áður skráð á Verðbréfaþingi íslands og VÍB verð- ur viðskiptavaki. Kristján Oddsson, sem verið hefur stjórnarfor- maður Hlutabréfasjóðs VÍB hf. sagðist mjög ánægður með sameininguna. Markmiðið hefði verið að ná hagræði stærðarinnar og betri ávöxt- un fyrir hluthafa. „Þetta verður sterkt félag, það langstærsta á þessum markaði. Áhættudreifingin verður góð og það mun skila sér til hluthafa." Fimm menn skipa nýja stjórn Hlutabréfasjóðs- ins, en ekki hefur verið ákveðið hveijir það verða. Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraðilum afar hagstætt að fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár. aðhugsa utn að j)atfes£<z? Gfltnirhf DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10. Út er komið upplýsíngarit um Kjörleiðir Glitnis. Þar er á elnfaldan hátt fjallað um ólíkar gerðir fjármögnunar. Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn og spjallaðu við ráðgjafa okkar. Hafðu samband og fáðu að vita meira um flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að binda rekstrarfé í tækjakosti. Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.