Morgunblaðið - 24.08.1995, Qupperneq 12
JNtogmilRlftMfr
VIDSKIPTIAIVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995
Fólk
Eimskip
breytír
MKRISTJÁN Jóhannsson, kynn-
ingarstjóri Eimskips, hefur verið
ráðinn forstöðumaður innanlands-
deildar fyrirtækisins. Hann tekur við
starfinu 1. sept-
ember nk., en þá
verða gerðar
breytingar á
verksviði, skipu-
lagi og þjónustu
innlandsdeild-
arinnar. Lögð
verður áhersla á
að efia þjónustu
og ráðgjöf fyrir
flutninga og nýja
vörugeymslu- og dreifíngarþjónustu
fyrir viðskiptavini Eimskips á inn-
iendum markaði. Þá verður veitt þjón-
usta vegna búslóðaflutninga, hrað-
og smápakkasendinga ásamt al-
mennri flutningatæknilegri ráðgjöf.
Kristján lauk prófí frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1981. 1984-
1887 lagði hann stund á nám í við-
skiptafræðum við Viðskiptaháskól-
ann í Árósum í Danmörku. Þaðan
lauk hann meistaraprófí í rekstrar-
hagfræði áricL 1989. Kristján starf-
aði við forritun og kerfisfræðistörf
1981-1984. Með námi í Danmörku
jtarfaði hann hjá ráðgjafar- og hug-
búnaðarfyrirtækinu PLS-Consult.
Krislján vann að Evrópumálum hjá
Vinnuveitendasambandi íslands
1989-1992 þegar hann hóf störf sem
kynningastjóri Eimskips.
■ Guðmundur Pedersen gegnir
áfram starfi forstöðumanns innan-
landsflutninga Eimskips. Hann mun
hafa yfirumsjón með rekstri áætlana-
flutninga Eimskips innanlands og
samskiptum við skrifstofur og umboð
félagsins innanlands.
Breytingar
hjá Olís
Auður Ósk Þórisdóttir hefur verið
ráðin forstöðumaður bókhaldsdeildar
Olís. Auður lauk viðskiptafræðiprófí
frá Háskóla íslands árið 1987 á
endurskoðunar-
sviði og hlaut
löggildingu sem
endurskoðandi
árið 1991. Hún
starfaði hjá End-
urskoðun hf.
frá árinu 1987
fram til 1. júní
sl. Meðal fyrstu
verkefna hennar
verður þátttaka í uppsetningu nýs
upplýsingakerfís hjá Ölís. Auður er
34 ára, gift Eyjólfi Jónssyni prent-
smið og eiga þau einn son.
Einar Ólafsson hefur verið ráðinn
forstöðumaður söludeildar Olís og
mun hann hefja störf 15. ágúst nk.
Söludeildin mun annast yfirstjóm
allra bensínstöðva félagsins, þ.m.t.
innflutning og
sölu á smávöru.
Einar er við-
skiptahagfræð-
ingur að mennt
og hefur meist-
aragráðu í end-
urskoðun og við-
skiptastjómun
frá háskólum í
Bandaríkjunum.
Hann var
verslunarstjóri hjá Kjörbúðinni í
Hólagarði í fímm ár og rak sæl-
gætisgerðina Opal hf. í Reykjavík
frá árinu 1981 til 1987. Síðastliðin
ár hefur hann með námi sínu rekið
eigið fyrirtæki í Bandaríkjunum.
Einar er 43 ára gamall, kvæntur
Önnu Lty'u Gunnarsdóttur hjúkr-
DIT ræstivagninn er léttur og meöfærilegur með tveimur fötum.
Alltaf er skúrað með hreinu vatni þar sem sópuvatn og skolvatn
er aðskilið í tveimur 13 Itr. fötum. Pressan vindur moppuna 95%
og ekki þarf að taka moppuna af til að vinda hana.
SKIPTIMARKAÐUR Á R&STIVÖGNUM
Með allt á hreinu !
REKSTRARVÖRUR Ry
RÉTTARHÁLSI 2*110 REYKJAVÍK • SÍMI: 587 5554 _
fyrir:
RÆSTINGUNA?
unarfræðingi og eiga þau tvo syni.
Ólafur J. Ólafsson hefur verið
ráðinn förstöðumaður fjárreiðudeiid-
ar Olís og hóf hann störf þann 1.
júní sl. Ólafur er 44 ára gamall og
lauk Verslunarprófi árið 1971.
Hann starfaði við endurskoðun hjá
Endurskoðun-
arskrifstofu
Kolbeins Jó-
hannssonar á
árunum 1971-
1986, og síðan
sem skrifstofu-
stjóri hjá Eggert
Kristjánssyni
hf. fram til 1.
júní á þessu ári.
Ragnheiður
Björk Guðmundsdóttir, forstöðu-
maður þjónustudeildar tók tímabund-
ið að sér að veita söludeild Olís for-
stöðu. Verkefni Ragnheiðar Bjark-
ar munu breytast á þessum tímamót-
um- og mun hún hér eftir sjá um
markaðsmál, markaðsathuganir,
kynningarmál, auglýsingar, útgáfu-
mál, söluátök og þróunarverkefni á
markaðssviði.
Kynningar-
fulltrúi
GARÐAR Guðjónsson hefur verið
ráðinn í starf kynningarfulltrúa
Rauða kross íslands. í starfínu felst
umsjón með út-
gáfu á vegum
RKÍ, tengsl við
fjölmiðla og
kynning á starf-
semi félagsins.
Garðar útskrif-
aðist frá Norsk
journalisthög-
skole árið 1989
og hefur starfað
að blaðamennsku, kynningar- og rit-
störfum á undanfömum árum. Hann
var blaðamaður á Þjóðviljanum
1985-1987 og 1990-1991. Hann rit-
stýrði Neytendablaðinu og gegndi
jafnframt starfi kynningarfulltrúa
Neytendasamtakanna á árunum
1991-1994 og var ritsjóri Skaga-
blaðsins 1994-1995.
Þorsteinn
til OECD
MÞORSTEINN Þorgeirsson hag:-
fræðingur hefur verið ráðinn til
starfa hjá OECD í París. Starf hans
mun felast í gerð árlegra skýrslna
um stöðu, horfur og efnahagsstjóm
í Finnlandi og Noregi. Hagfræðideild
OECD hefur 84 hagfræðingum frá
hinum 25 aðildarríkjum á að skipa
og starfar einn íslenskur hagfræð-
ingur þar fyrir, Sveinbjörn Blönd-
al. Þorsteinn starfaði sem hagfræð-
ingur EFTA í Genf á árunum 1993
til 1995. Þar áður hafði hann starfað
hjá Seðlabanka íslands 1991-1992
og hjá DRI/McGraw-Hill, Inc. í San
Franisco frá 1986-1990. Þorsteinn
lauk stúdents-
prófi frá
Menntaskól-
anum við
Hamrahlíð árið
1976 og B.A.
prófi í hagfræði
frá The Americ-
an University í
Washington D.C.
árið 1-979. M.A.
prófi lauk hann frá Vanderbildt
University í Nashville árið 1988.
Nú hefur hann lokið prófum til dokt-
orsgráðu í hagfræði, með láði, frá
the New School for Social Rese-
arch í New York og vinnur að dokt-
orsritgerð sinni við sama skóla. Eig-
inkona Þorsteins er Ásta Karen
Rafnsdóttir íslenskufræðingur og
eiga þau tvö böm, Ástu Sólhildi og
Ásgeir Þór.
Nýtt nám í vetur í
vátryggingamiðlun
PRÓFNEFND vátryggingamiðlara
mun í vetur standa fyrir tveggja
anna námi fyrir þá sem hyggjast fá
leýfi til vátryggingamiðlunar. Námið
er skyldunám fyrir þá sem ekki upp-
fylla skilyrði um þekkingu sem sett
era fyrir ieyfi til vátryggingamiðlun-
ar og skiptist það í þrjá hluta. Áætl-
að er að kennsla hefjist í fyrsta hluta
þann 13. september næstkomandi,
samkvæmt fréttatilkynningu frá
prófnefndinni. Gert er ráð fyrir því
að prófað verði úr fyrstu tveimur
hlutunum í desember og að náminu
ljúki síðan í apríl með prófi úr þriðja
og síðasta hluta. Fyrsti hluti nám-
skeiðsins snýr að almennum rekstri,
annar hluti að lögfræði og sá þriðji
að einstökum tegundum trygginga.
Innritun fer fram hjá Endur-
menntunarstofnun Háskólans fram
til 5. september og nema námskeiðs-
gjöld fyrir námið í heild 198.000
krónum miðað við að þátttakendur
verði 15 eða færri. Verði þátttakend-
ur fleiri en 15 getur heildargjaldið
hins vegar lækkað um allt að 15%.
Hafi þátttakendur viðskipta- eða lög-
fræðimenntun er hægt að fá hana
metna og sleppa viðkomandi hlutum
námskeiðsins.
Ólafur
Torgið
Álmarkaður í jafnvægi
MEÐAN enn virðast ýmiss Ijón í
vegi þess að gengið verði frá
samningum um stækkun álversins
í Straumvík, er greinilegt að mikil
uppbygging er að hefjast í áliðnaði
víða annarsstaðar í heiminum.
Samkvæmt Reuters-frétt sem
segir frá hér í blaðinu í dag eru
Ástralir nú að byrja að opna ál-
bræðslur sínar á ný eftir að sam-
komulag var gert milli sex helstu
álframleiðsluríkja á síðasta ári að
draga úr framleiðslunni um 10%.
Alls féllust Ástralir þá á að draga
úr afkastagetu álbræðlna sinna um
141 þúsund tonn. Fyrsta álbræðsl-
an sem tekur til starfa af þessu
sökum er í Nýja SuðurWales með
15 þúsund tonna afköstum í byrjun
en ofnar hennar verða síðan gagn-
settir hver af öðrum uns 150 þús-
und tonna framleiðslu er náð fyrir
árslok. í Queensland er verið að
stækka annað álver sem á að auka
afkasta getu þess úr 219 þúsund
tonnum í 479 þúsund tonn.
I nýlegu The Financial Times er
síðan greint frá því að í S-Afríku
sé fyrirtækið Alusaf að Ijúka við
byggingu stærsta álvers allra tíma
sem reist í einu lagi en áætlað er
að afköst þess verði alls um 466
þúsund tonn, þegar það verðu
komið í fulla starfsemi 1997 og
verður það þá stærsta álbræðsla
heims utan samveldisríkjanna
rússnesku. Þegar framleiðsla þess
bætist við afkastagetu Bayside-
bræðslunnar sem Alusaf á fyrir,
verður því heildarframleiðsla fyrir-
tækisins því um 636 þúsund tonn
eða um 4% af áætlaðri framleiðslu
vesturlanda.
Greinilegt er þannig að framboð
á áli mun aukast til muna á næstu
misserum og árum, sem einhverjir
myndu ætla að yrði til að álverð
gæti fallið á nýjan leik. Blaðið hef-
ur hins vegar eftir Fred Roux, aðal-
forstjóra Alusaf, að álmarkaður
heimsins muni haldast í jafnvægi
að minnsta kosti næstu tvö til þrjú
árin og meðalverðið haldast rétt
undir 2000 dollurum tonnið. Sam-
kvæmt spám Alusaf er síðan gert
ráð fyrir að meðalverð á áli mjakist
upp í 2025 dollara tonnið árið 1989
og að árið 2000 verði það um 2095
dollara.
Roux heldur því fram að það sé
ekki heillavænlegt fyrir vöxt áliðn-
aðarins til lengri tíma ef verðið
yrði lengi yfir 2000 dollurum tonn-
ið en á hinn bóginn megi það ekki
fara mikið niður fyrir 1800 dollara
ef það eigi að standa undir fjárfest-
ingu í nýjum álverum.
Alusaf áætlar að eftirspurnin
eftir fullunnu áli hafi aukist um
10% á síðasta ári og hún verði
áfram mikil á yfirstandi ári, eða
alls um 18 milljónir tonna, þar af
um 14,8 millj. tonn framleidd af
vestrænum álbræðslum.
Á næstu árum gefur Alusaf sér
að árleg auking á eftirspurn á áli
á vesturlöndum verði um 3%.
Alusaf spáir t.d. að eftirspurn vest-
rænna ríkja eftir áli aukist í 18,7
milljónir tonna árið 1997 en þar
af komi 16,8 milljónir tonna frá
átbræðslum á vesturlöndum og
innflutningur frá rússneska sam-
veldinu nemi um 1,8 milljón tonna.
Birgðir á málmmarkaðinum í Lond-
on ætti þá að falla í um 250 þús-
und tonn ef þessi áætlun er rétt
á móti liðlega 560 þúsund tonnum
um þessar mundir.
Samkvæmt þessum áætlunum
eru því vart horfur á neinu því
bakslagi á álmarkaði sem geri
stækkun álversins í Straumsvík að
lakari kosti en nú blasir við.
Hugsanlegar framkvæmdir við
stækkun álversins með því að
byggja þriðja kerskálann og lengja
þá tvo sem fyrir eru, þannig á fram-
leiðslugetan á ári aukist úr 100
þúsund tonnum á ári í 200 þúsund
tonn eru ekki af þeirri stærðargr-
áðu að þær muni valda usla á al-
þjóðlegum álmarkaði, a.m.k. ef
miðað er við þá aukningu sem að
framan er talin. Hitt er eins Ijóst
að það lag sem nú gefst getur
auðveldlega gengið mönnum úr
greipum ef þeir láta ekki fljótlega
af karpi um keisarans skegg.
BVS