Morgunblaðið - 24.08.1995, Page 1
D
1995
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST
BLAD
Kaiserslautern
reyndi að múta
Uli Stein
ÞÝSKA knattspyrnusambandið ætlar að rann-
saka hvort Kaiserslautern hafi boðið Uli Stein
fé fyrir að tapa leik er hann lék í marki HSV
árið 1987. Stein, sem er fertugur og leikur með
Arminia Bielefeld í 2. deildiiini, sagði í samtali
við Sport Bild í gær að Kaiserslautern hafi boð-
ið honum fé fyrir að tapa leik með HSV undir
lok timabilsins 1987 en þá þurfti Kaiserslautern
nauðsynlega að fá stig I leik gegn HSV til að
komast í UEFA keppnina. Hann segist hafa hafn-
að boðinu og HSV sigraði 4:0 í leiknum.
Reynist Stein sannorður er þetta í fyrsta sinn
síðan árið 1971 að mútumál kemur upp í þýsku
knattspyrnunni, en þá voru rúmlega 50 leikmann
og tveir þjálfarar sektaðir fyrir að ákveða úr-
slit leikja fyrirfram.
„Ég vil ekki nefna nein nöfn í þessu sambandi
en skömmu fyrir leik kom einn af forráðamönn-
um Kaiserslautern og bauð mér greiðslu fyrir
að tapa Ieiknum og sagði að einn af félögum
mínum i liðinu ætlaði að aðstoða mig við að fá
á mig mark,“ sagði Stein I gær.
Fyrrum foráðamenn Kaiserslautern segja
ásakanir Steins út í hött og eru að hugsa um
að kæra hann. „Ef til vill þarf Stein á athygli
að halda, hann er ekki mikið I sviðsljósinu i 2.
deildinni,“ sagði Rainer Geyer framkvæmda-
stjóri Kaiserslautern.
Rush og Southall
aðstoða Gould
BOBBY Gould, hinn nýji landsliðsþjálfari Wales,
hefur beðið gömlu refína Neville Southall og Ian
Rush umað aðstoða sig við að undirbúa liðið
fyrir vináttulandsleik gegn Moidavíu þann 6.
september. Gould segist vilja rífa Walse upp úr
þeim öldudal sem það hafi verið í undanfarin
ár og treystir þeim Southall og Rush til að miðla
af gríðarlegri reynslu sinni.
1.000 vínflöskur
J verðlaun
SÁ leikmaður sem verður fyrstur til að skora
mark í ítölsku 1. deildarkeppninni, sem hefst á
sunnudaginn, fær 1.000 flöskur af gómsætu létt-
víni í verðlaun. Undanfarin ár hefur vínfyrir-
tæki gefið þessi verðlaun og hafa leikmenn eins
og Paolo Rossi, Pólveijinn Zbigniew Boniek og
Þjóðveijinn Rudi Völler þurft að höndla góða
upptakara eftir að hafa skorað fyrsta markið.
Finninn
Sievinen
sprækur
FINNAR eru ánægðir með
frammistöðu sinna manna á Evr-
ópumeistaramótinu í sundi sem
fram fer í Vín, sérstaklega þó
framgang Jani Sievinen, sem
hefur verið til mikillar fyrir-
myndar. í gær varð hann Evr-
ópumeistari í 400 metra fjór-
sundi, synti á 4.14,75 og á þriðju-
daginn kom hann öllum á óvart
með því að sigra í 200 metra
skriðsundi. Hann hefur því feng-
ið tvenn gullverðlaun í fyrstu
tveimur sundgreinum sínum og
er að vonum ánægður með það.
Á myndinni hér að ofan má sjá
hann á flugsundssprettinum í
fjórsundinu í gær.
■ EM í sundi / D4
KNATTSPYRNA
Örebro líklega úr leik
- notaði fjóra erlenda leikmenn í Evrópuleiknum gegn Beggen á þriðjudaginn
ÖREBRO komst á þriðjudagskvöldið áfram í 1. umferð UEFA
keppninnar í knattspyrnu eftir að hafa náð jöfnu 1:1 á útivelli
gegn Luxemburgska liðinu Avenir Beggen. Leik liðanna íSvíþjóð
lauk með markalsusu jafntefli. Það var Hlynur Birgisson sem
gerði markið á 87. mínútu með skoti af stuttu færi eftir skalla
frá Mathias Jonsson. Bjargaði Hlynur sem kom inná á 76. mín-
útu þar með liði sínu frá þeirri sneypu að verða slegið út af liði
frá Luxemburg. í Örebro blaðinu Nerikes Allehanda er slegið
upp fyrirsögninni: Birgisson bjargaði Örebro frá fíaskói.
Blaðið fjallar einnig um Hlyn og bært. Ég vona að þetta gefí mér
segir m.a. að honum hafi geng- aukið sjálfstraust fyrir framhaldið".
ið illa að sýna styrk sinn það sem Bæði Arnór Guðjohnsen og Hlynur
af sé keppnistímabil- . Stefánsson léku með Örebro og
GrétarÞór inu, en á þriðjudag fengu mjög góða dóma fyrir leik
Eyþórsson hafi hann gert mikil- sinn. Arnór lék að þessu sinni inn á
skrifar frá vægasta mark ársins miðjunni í stað kantsins og hafði það
Sviþjóö fyrjr Hð sitt. Hlynur góð áhrif á leik Örebro. Sven Da-
segir í samtali við blaðið: „Mér hefur hlkvist þjálfari sagði eftir leikinn að
gegnið afar treglega hjá Örebro, en Arnór, sem lék hálfmeiddur, hafi
að geta gert út um leikinn er frá- komið sér skemmtilega á óvart.
í lok leiksins þegar Örebro tefldi
fram öllu sínu til að jafna var Hlyn
Stefánssyni skipt fram í sóknina í
stað Matthias Jonsson og er það nú
varla á hveijum degi! En ekki er
sopið kálið þó í ausuna sé komið.
Þegar sigurreifir leikmenn Örebro
voru á leið í rútu út á flugvöll eftir
leikinn kom orðsending sem þaggaði
snarlega niður í fagnaðarlátunum.
Avenir Beggen hafði kært leikinn!
Örebro notaði nefnilega fjóra útlend-
inga í leiknum, íslendingana þrjá og
pólveijann Kubisztal og slíkt er ekki
leyfilegt í Evrópukeppni.
Eftirlitsmaður UEFA á leiknum
taldi að kæran væri unnin og Örebro
því úr leik. Eina hálmstrá Órebro í
málinu virðist því vera sú staðreynd
að útlendingarnir voru ekki notaðir
samtímis, en Hlynur Birgisson kom
inn fyrir Kubisztal. Sænska útvarpið
greindi frá því í gær að fyrir því
væru dæmi frá sambærilegum mál-
um að leikurinn væri endurtekinn.
Allt er þó enn á huldu um málalok,
en víst er að hjá Örebro bíða menn
með öndina í hálsinum, nagandi á
sér handabökin.
Dalkvist sagði í gær að eftir að
hafa skoðað málið vandlega teldi
hann ljóst að lið hans hefði verið
ólöglega skipað og því væri leikurinn
því miður líklega tapaður. „Ég tek
alla sökina á mig, en ég hafði sam-
band við sænska knattspyrnusam-
bandið áður en vi fórum í leikinn
og fékk þær upplýsingar að ég
mætti vera með fjóra erlenda leik-
menn, en bara þijá inná í einu. Þetta
er ekki rétt, því miður," sagði hann.
KNATTSPYRNA: STÓRSIGUR SKAGAMANNA EN FH-INGAR FÉLLU ÚR KEPPNI / D2, D3