Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
191. TBL. 83.ARG.
FÖSTUDAGUR 25. AGUST 1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Frakkar vefengja
niðurstöðu sænsku
lögreglunnar
Deneche
enn grun-
aður
París, Stokkhólmi. Reuter.
FRANSKA lögreglan telur enn að
Alsírbúinn, sem var handtekinn í
Stokkhólmi, sé sekur um sprengjutil-
ræðið í París 25. júlí og vefengir þá
niðurstöðu sænsku lögreglunnar að
hann hafi þá verið í Svíþjóð.
Sænska lögreglan komst að þeirri
niðurstöðu að Alsírbúinn, Abdelkrim
Deneche, sem er 39 ára, hefði verið
í einu úthverfa Stokkhólms daginn
sem sprengja varð sjö manns að
bana og særði 86 í neðanjarðarlest
í París. Heimildarmenn í frönsku lög-
reglunni sögðu þó að franski rann-
sóknardómarinn Laurence Le Vert
hefði gefið út alþjóðlega handtökutil-
skipun á hendur Deneche þar sem
því væri haldið fram að hann hefði
tekið þátt í tilræðinu. Franskir emb-
ættismenn væru að undirbúa beiðni
um að fá Deneche framseldan.
Kveðst hafa séð Deneche
Frakkar telja að Deneche sé einn
forsprakka herskáustu hreyfingar
múslimskra strangtrúarmanna í Als-
ír, GIA. Hann er eini maðurinn sem
hefur verið bendlaður við tilræðið í
júlí og annað sprengjutilræði í París
fyrr í þessum mánuði.
Heimildarmenn innan rannsókn-
arlögreglunnar í París segja franskan
lögreglumann fullvissan um að hafa
séð Deneche og annan mann hand-
leika tösku í neðanjarðarlestinni
skömmu áður en sprengjan sprakk.
Leifar af töskunni hafi fundist á brot-
um úr sprengjunni eftir tilræðið.
Sænska öryggislögreglan er hins
vegar sannfærð um að Deneche geti
ekki hafa verið í París 25. júlí.
"Mikil spenna er sögð milli franskra
og sænskra embættismanna vegna
þessa máls, þótt því sé haldið fram
opinberlega að samvinna þeirra sé
góð. Frönsku embættismennirnir
saka Svía um að vera ósamvinnu-
þýða, en sænsku embættismennirnir
segja Frakka hafa óeðlileg afskipti
af afgreiðslu málsins.
Reuter
KÍNVERSKA ríkissjónvarpið greindi frá réttarhöldunum í kvöldfréttatíma og sýndi
myndir af Harry Wu niðurlútum í stúku sakbornings þegar dómur var kveðinn upp.
Sprenging
í miðborg
Helsinki
BÍLASPRENGJA sprakk í miðborg
Helsinki klukkan hálf eitt í morgun
að staðartíma. Lögregluþjónn særð-
ist lítillega í sprengingunni, sem
skildi eftir sig stórt gat í jörðinni,
að sögn Tommis Melenders, frétta-
manns finnsku fréttastofunnar STT.
Melender sagði í samtali við Morg-
unblaðið að bíllinn hefði sprungið í
tætlur og ekki verið þekkjanlegur.
Sprengjan sprakk í hverfinu Pasila,
um tvo km frá hjarta Helsinki, og
urðu miklar skemmdir á lögreglu-
stöð, dómshúsi og ríkisútvarpinu.
Enginn lét lífið í sprengingunni.
Lögregla lokaði stóru svæði og beindi
umferð annað eftir sprenginguna.
„Þetta var mjög mikil sprenging
og drunurnar heyrðust í 15 km fjar-
lægð,“ sagði Melender. Hann tók
fram að ekki hefðu borist neinar
hótanir áður en hún varð og sagði
að lögregla hefði engar vísbendingar.
Kínveijar höggva á hnút-
inn og vísa Wu úr landi
Bandaríkjamenn neita að samið hafi verið um lausn andófsmannsins
Peking, Jackson, Wyoming. Reuter.
KÍNVERJAR vísuðu kínversk-
bandaríska andófsmanninum og
mannréttindafrömuðinum Harry Wu
úr landi í gær, aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að hann hafði
verið dæmduy i 15 ára fangelsi fyrir
njósnir, og var sagt að hann væri á
leið til San Francisco. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti fagnaði þessari
ákvörðun Kínveija og sagði að með
henni hefði hindrun fyrir bættum
samskiptum Bandaríkjamanna og
Kínveija verið rutt úr vegi.
Talsmaður forsetans, Ginny Terz-
ano, sagði að þetta væri aðeins eitt
mál af mörgum, sem þyrfti að taka
til athugunar áður en ákveðið yrði
Reuter
Ostro borinn til grafar
HANS Christian Ostro var bor-
inn til grafar í Tonsberg í Nor-
egi í gær. Aðskilnaðarsinnar í
Kasmír á Indlandi rændu Ostra
í byijun júlí og myrtu hann með
grimmilegum hætti um miðjan
þennan mánuð. Tveir Bretar,
Bandaríkjamaður og Þjóðverji
eru enn á valdi mannræningj-
anna.
hvort Hillary Clinton forsetafrú sækti
kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Peking í september. Hún myndi
tilkynna ákvörðun sína innan tíðar.
Bandaríkjamenn neituðu því að
gert hefði verið samkomulag við Kín-
veija um að forsetafrúin færi til
Peking ef Wu yrði hleypt úr landi.
Michael McCurry, blaðafulltrúi for-
setans, sagði dagblaðinu Los Angeles
Times á miðvikudag að svo gæti
farið að Wu yrði dæmdur með hraði
og sendur úr landi. Þessi ummæli
gátu af sér miklar vangaveltur um
það hvort ráðamenn í Peking og
Washington hefðu samið um Wu.
Eiginkona Wus, Ching Lee Wu,
sagði blaðamönnum í heimabæ sín-
um Milpitas, sem er skammt frá San
Francisco, að hún væri í sjöunda
himni yfir því að maður sinn væri á
leið heim.
„Ég er of hamingjusöm til að geta
lýst tilfinningum mínum,.“ sagði hún.
20 ár í gúlaginu
Wu hefur löngum verið Kínvetjum
óþægur ljár í þúfu. Hann var hneppt-
ur í varðhald 19. júní eftir að hann
reyndi að laumast inn í Xinjiang-hér-
að frá Kazakstan og síðar sakaður
um njósnir. Samskipti Bandaríkja-
manna og Kínveija hafa verið mjög
stirð frá því að Wu var handtekinn.
Wu er 58 ára verkfræðingur og í
19 ár var hann fangi í kínverska
gúlaginu, sendur fram og til baka á
sjöunda og áttunda áratugnum.
Hann var upprunalega handtekinn í
herferð kommúnista á hendur
hægrisinnum og mönnum með borg-
aralega fortíð.
Hann var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir „ámælisverða afstöðu" sína
eða að neita að játa sekt sína og
látinn vinna á búgörðum, í kolanám-
um og efnaverksmiðjum.
Deng Xiaoping lét hann lausan
árið 1979 þegar hinir svokölluðu
hægrisinnar voru náðaðir.
Arið 1985 fékk hann að fara frá
Kína til að stunda rannsóknir við
Kalifomíuháskóla í Berkeley. Hann
tók sér bandarískan ríkisborgararétt
og hóf mikla herferð gegn þrælkun-
arbúðakerfinu í Kína. Hann skrifaði
bók um gúlagið og milli 1991 og
1994 sneri hann nokkrum sinnum
aftur undir fölsku flaggi til að safna
upplýsingum um mannréttindabrot i
kínverskum fangelsum.
Heimildakvikmynd um
fangelsin
Afraksturinn var heimildakvik-
mynd með efni, sem hann tók á laun
í fangabúðum og var sýnd bæði í
Bandaríkjunum og á Bretlandi.
Wu hugðist safna meira efni um
fangabúðirnar þegar hann var hand-
tekinn.
Eiginkona Wus sagði að réttar-
höldin yfir honum hefðu verið óréttl-
át og málflutningur aðeins tekið fjór-
ar klukkustundir. Þau fóru fram í
Wuhan-héraði.
„Hann ritaði kínverskum yfirvöld-
um bréf og viðurkenndi að allt sem
honum væri gefið að sök væri sann-
leikanum samkvæmt og lýsti iðrun
sinni. Hann bað sjálfur um að sér
yrði vísað úr landi eins fljótt og
mögulegt væri,“ sagði Xu Deyuan,
lögfræðingur Wus.
Deyuan sagði hins vegar að réttar-
höldin hefðu verið sanngjörn og að
Wu hefði verið hress þrátt fyrir að
vera enn í sömu fötum og hann var
í þegar hann var handtekinn.
Króatar bíða með
að beita hervaldi
Vín, Bonn. Reuter.
MATE Granic, utanrikisráðherra
Króatíu, sagði í gær að Króatar
væru reiðubúnir að beita ekki her-
valdi í grennd við Dubrovnik við
Adríahaf um sinn meðan Banda-
ríkjastjórn reyndi að koma á friði
í löndum gömlu Júgóslavíu. Hann
sagði þó að Króatar myndu grípa
til hernaðaraðgerða ef Bosníu-Ser-
bar hæfu stórsóknar á svæðinu.
Granic sagði þetta eftir fund
með Wolfgang Schussel, utanrík-
isráðherra Austurríkis, í Vín.
Muhamed Sacirbey, utanríkis-
ráðherra Bosníu, sagði á miðviku-
dag að Bandaríkjastjórn fengi allt
að tvo mánuði til að koma á friði
í löndum gömlu Júgóslavíu. Eftir
það yrði að beita valdi til að knýja
Serba til samninga.
Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna hafa sakað Króata um að
eyðileggja hús serbneskra flótta-
manna í Krajina á skipulegan hátt.
Þýskt dagblað skýrði frá því í gær
að Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, hefði sent Granic bréf
þar sem hann varar við því að
íkveikjur og gripdeildir Króata í
Krajina muni skaða samskipti
þeirra við Þýskaland og Vestur-
Evrópu.