Morgunblaðið - 26.08.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
Jigliwgnttfrtobtti
■ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST
BLAÐ
FRJALSIÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Mutola
bætti fimm
áramet
MARIA Mutola frá Mósambík hafði
ríka ástæðu til að brosa út að eyrum
eins og hún gerir á myndinni hér
til hliðar, en í gærkvöldi setti hún
heimsmet í 1.000 metra hlaupi á
„gullnu" fijálsíþróttamóti í Brussel
í Belgíu. Tími stúlkunnar var 2 mín-
útur 29,33 sekúndur en gamla met-
ið átti Christine Wachtel frá fyrrum
A-Þýskalandi, en hún hljóp vega-
lengdina á 2.30,67 í Berlín í ágúst-
mánuði árið 1990.
Veður var mjög hagstætt fyrir
langhlaupara í Brussel í gær og fleiri
náðu góðum árangri en Mutola.
Kenýjamaðurinn MosesKiptanui,
sem varð fyrstur til að hlaupa 3.000
metra hindrunarhlaup undir átta
mínútum í Zúrich á dögunum, hljóp
frábærlega í gær. tími hans var
7.59,52 mínútur en heimsmet hans
er 7.59,18. „Síðasti hringurinn var
ekki nógu góður hjá mér, ég fór
ekki nógu hratt yfír hindranirnar og
missti því af heimsmetinu," sagði
hann eftir hlaupið og bætti svo við:
„En ég er samt ánægður með árang-
urinn og sigurinn.“
Linford Christy gerði sér lítið fyr-
ir og varð á undan kanadíska heims-
meistaranum Donovan Bailey í 100
metra hlaupi og var þetta í annað
sinn á tíu dögum sem Christy hefur
betur í viðureign sinni við Bailey.
Christy hljóp á 10,08 en Bailey á
10,22 sekúndum.
ÍA og KR duttu í lukkupottinn er dregið var í Evrópukeppninni
Ætlum okkur áfram
SKAGAMENN og KR-ingar voru
nokkuð heppnir þegar dregið var í
fyrstu umferð Evrópukeppninnar í
knattspyrnu í gær. Islandsmeistarar
ÍA mæta skoska liðinu Raith Rovers
og KR-ingar enska liðinu Everton.
Eg held menn séu þokkalega ánægðir
með þetta því liðin í grúbbunni okk-
ar voru svona og svona,“ sagði Sigurður
Jónsson hjá ÍA í samtali við Morgunblað-
ið í gær. Hann sagði að auðvitað hefðu
Skagamenn getað verið heppnari og feng-
ið eitthvert lið sem hefði gefið peninga,
en til að komast áfram í keppninni hefði
þetta verið ágætur kostur.
„Ég veit að þetta verður erfitt fyrir
okkur, en vel yfirstíganlegt. Það er gott
að eiga fyrri leikinn á útivelli því þá get-
um við leikið þéttan varnarleik og átt svo
heimaleikinn til góða, en við verðum að
spila eins og menn til að komast áfram,
en það ætlum við okkur,“ sagði Sigurður.
Skagamenn tóku sér tveggja vikna frí
á síðasta ári þannig að þó þeir verði að
í Evrópukeppninni eitthvað fram eftir
hausti breytir það engu fyrir leikmenn
að sögn Sigurðar. „Ég held að þetta hafi
verið einn vænlegasti kosturinn, svona til
að eiga raunhæfa möguleika á að komast
áfram,“ sagði Sigurður. Hann sagðist
ekki vita neitt um þetta félag en að Logi
Ólafsson þjálfari myndi fá spólu með leik
liðsins og hún yrði skoðuð gaumgæfilega.
Everton ágætur kostur
„Ég held menn séu bara þokkalega
sáttir við að fá Everton. Þetta var bara
fínn dráttur held ég. Everton er ágætur
kostur," sagði Þormóður Egilsson fyrirliði
KR í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Við gerum okkur ekki miklar vonir
um að komast áfram en það væri gaman
að ná góðum úrslitum, sérstaklega hérna
heima. Félagið hefði getað verið heppnara
hvað varðar peningahliðina held ég, en
fyrir okkur leikmennina er gaman að fá
að leika við þá menn sem maður þekkir
úr beinum útsendingum í sjónvarpinu
þannig að það verður gaman að fá saman-
burðinn," sagði Þormóður.
■
Met hjá Eydísi
í 100 m flugsundi
EYDÍS Konráðsdóttir hélt áfram keppni á Evr-
ópumeistaramótinu í sundi í Vínarborg. í gær
keppti hún í 100 metra flugsundi og setti nýtt
íslandsmet er hún synti á 1.03,87 en gamla metið
átti Bryndís Ólafsdóttir, 1.03,99 og setti hún það
á síðasta Evrópumeistaramóti sem fram fór í
Sheffield árið 1993. íslandsmet Eydísar kom henni
þó ekki langt því hún hafnaði í 23. sæti af 34
keppendum.
Guðni færist nær
stöðunni sinni
GUÐNI Bergsson mun í dag leika með liði sínu,
Bolton Wanderers, gegn meisturum Blackburn
og verður Guðni í varnarhlutverkinu, en þó ekki
sem aftasti maður eins og til stóð. Alan Stubbs
meiddist lítillega í læri á dögunum og var talið
að hann gæti ekki leikið með en í gær stóðst
hann læknisskoðun og verður því með og Guðni
verður því ekki aftasti maður í vörn.
„Ég mun væntanlega leika fyrir framan hann
þannig að það má segja að ég sé að nálgast mína
stöðu, sem aftasti maður. Þetta verður erfiður
leikur en við verðum að standa okkur eins og
menn því það er orðið tímabært að við krækjum
okkur í stig,“ sagði Guðni i samtali við Morgun-
blaðið í gær, en Bolton tapaði fyrstu tveimur leikj-
unum í deildinni. Guðni fékk raunar mjög góða
dóma fyrir frammistöðuna í leiknum gegn New-
castle á mánudaginn en þar gerði hann eina
mark Bolton, sem tapaði 1:3.
Kanchelskis
til Everton
ANDREIJ Kanchelskis, knattspyrnumaðurinn
spjalli frá Úkraínu sem leikið hefur með Manc-
hester United undanfarin ár, gekk í gær frá samn-
ingi við Everton, mótherja KR-inga í Evrópu-
keppninni. Kaup Everton á honum hafa staðið
fyrir dyrum i nokkra daga en það tókst ekki að
ganga frá þeim fyrr en í gær.
„Þetta er mikill léttir fyrir mig því ég er knatt-
spyrnumaður og ég vil bara fá að leika knatt-
spyrnu, ekki vera í einhveijum deilum,“ sagði
kappinn eftir að samningar voru í höfn. Kaupverð-
ið var tæpar 500 milljónir og kappinn getur leik-
ið með Everton gegn Southampton um helgina.
Strákarnir slakir
á EM í golfi
ÞAÐ var slæmur dagur í gær hjá íslensku kylfing-
unum á Evrópumóti áhugamanna i golfi sem fram
fer á Spáni. Björgvin Sigurbergsson lék á sama
skori og fyrsta daginn, kom inn á 77 höggum í
gær eins og i fyrradag, en Birgir Leifur Hafþórs-
son náði sér alls ekki á strik, lék á 81 höggi.
„Þetta var alveg ömurlegt og ég kann enga
skýringu á þessu, en það gekk ekkert upp hjá
mér. Það var allt í mínus,“ sagði Birgir Leifur i
samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að
þeir félagar væru ekki of bjartsýnir á að komast
áfram og fá að leika síðasta daginn, en þá verður
hópnum skipt til helminga. Keppendur eru 140
talsins og helmingurinn heldur áfram eftir þrjá
daga ogleika fjórða daginn líka, en hinir eru úr
leik. „Ætli við verðum ekki að leika þriðja hring-
inn á einum sjö undir pari til að vera með á sunnu-
daginn," sagði Birgir Leifur.
Örebro var með
ólöglegt lið
KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu komst að því
í gær að „íslendingaliðið" í Svfþjóð, Örebro, hefði
verið með ólöglega skipað lið er það lék síðari
leikinn í UEF A-keppninni gegn Beggen frá Lúx-
' emborg. Þar gerðu liðin 1:1 jafntefli og gerði
Hlynur Birgisson jöfnunarmark Örebro, en það
kom sem sagt fyrir lítið og mark Hlyns fæst ekki
skráð í sögubækurnar.
KNATTSPYRNA: ALLT UM BIKARÚRSUTALEIK KR OG FRAM / D2, D3