Morgunblaðið - 29.08.1995, Page 1

Morgunblaðið - 29.08.1995, Page 1
Ittorguttfelrötii 1995 ÞRIÐJUDAGUR 29. AGUST BLAD KNATTSPYRNA KIMATTSPYRIMA: NEWCASTLE OG LEEDS TAPLAUS í ENGLANDI / B8 f ------------------------------------------------------------------- Ingi Björn tekur við FH-liðinu ÓLAFUR Jóhannessou sagði I gær upp starfi sem þjálfari 1. dejldar liðs FH í knattspyrnu karla. Við starfi Ólafs tók Ingi Björn Alberts- son og stjórnaði hann sinni fyrstu æfingu síð- degis í gær. Nú þegar fimm umferðir eru eft- ir á íslandsmótinu er FH-liðið í neðsta sæti deildarinnar með átta stig. Þetta voru fjórðu þjálfaraskiptin í 1. deildinni í sumar, en áður hafði Inga Birni verir sagt upp hjá Keflavík, Marteini Geirssyni hjá Fram og Herði Hilmars- syni hjá Val. f tilkynningu sem barst frá knattspyrnudeild FH í gærkvöldi og er undirrituð af formanni deildarinnar, Þóri Jónssyni, og Ólafi Jóhannes- syni þjálfara, segir að við skilnaður Ólafs við knattspyrnudeild FH sé með samþykki beggja aðila og 1 fullri vinsemd og sátt. Leó Örn í hópinn í stað Geirs? ÍSLENSKA landsliðið i handknattleik heldur til Austurríkis á morgun þar sem það tekur þátt í æfingamóti. Þorbjörn Jensson landsliðs- þjálfari hafði í gærkvöldi ekki gengið frá vali á landsliðinu fyrir ferðina en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gefa Geir Sveins- son og Patrekur Jóhannesson ekki kost á sér til ferðariimar. Geir á ekki heimangent frá liðið sínu Montpellier I Frakklandi og Patrekur á við meiðsli að stríða og fær ekki grænt ljós frá liði sínu KA. Samkvæmt sömu heimildum mun línumaðurinn knái úr KA, Leó Örn Þor- leifsson, taka sæti Geirs. Verður það í fyrsta skipti sem Leó er í íslenska landsliðinu í hand- knattleik. Guðni og félagar lögðu meistara Blackburn GUÐNI Bergsson og samheijar í Bolton fögnuðu 2:1 sigri gegn meisturum Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Óvíst var hvort fyrirliðinn Alan Stubbs gæti leikið vegna meiðsla en hann var með, stóð sig vel og gerði sigurmarkið 10 mín- útum fyrir leikslok. Guðni Bergsson „Það var ánægjulegt að sigra meistarana,“ sagði Guðni við Morgunblaðið. „Við vissum að við höfðum tapað fyrstu tveimur leikjunum klaufalega og gerðum okkur grein fyrir að meira býr í liðinu. Eins áttum við von á því að geta sigrað meistarana á góðum degi, stemmn- ingin var mikil og góð og þetta var mjög gaman.“ Morten Olsen rekinn frá Köln MORTEN Olsen, fyrrum fyrirliði danska lands- liðsins, þjálfari hjá Köln, var rekinn frá liðinu á sunnudaginn, eftir að Köln hefði mátt þola tap, 3:4, í vítaspyrnukeppni fyrir áhugamanna- liðinu Beckum. Olsen varð að yfirgefaleikvöll Beckum undir lögregluvernd, þar sem æstir stuðningsmenn Köln veittust að honum. „ Við töpuðum fyrir áhugamannaliði sem er í fjórða gæðaflokki,“ sagði Bernd Cullmann, fram- kvæmdastjóri liðsins. Ekki er búið að ráða nýjan þjálfara, en Stephan Engels mun stjórna liðinu til að byrja með — fyrst gegn Hamburger í kvöld. Forráðamenn liðsins eru að reyna að frá Christoph Daum frá Besiktas í Tyrklandi til að taka við liðinu, en hann var þjálfari hjá Köln fyrir nokkrum árum. Þeir gerðu mörkin Morgunblaðið/RAX MIHAJLO Blbercic og Hllmar Björnsson tryggðu KR-ingum bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu á sunnudaginn en þá unnu Vesturbæingar llö Fram 2:1. Hllmar gerðl fyrra markið en Biberclc það síðara undir lok leiksins. ■ Bikarúrslitin / B4,B5 HANDKNATTLEIKUR Rússar til liðs við Gróttu og KR Handknattleikslið Gróttu, sem leikur nú í 1. deild, er komið með Rússa i herbúðir sínar og mun hann leika sem leikstjórnandi og skytta. Hann heitir Juri Sapowski og Iék með Krasnotas, sama liði og stjörnumaðurinn Dimitij Filipov. Hann er 198 sentimetrar á hæð, 26 ára gamall og lék 20 landsleiki fyrir Rússland á árunum 1992 til 1994. Grótiumenn voru í keppnisferð í Noregi fyrir mánuði og kom Sapowski þangað til að Seltirningar gætu metið hann. „Við vorum búnir að leita lengi enda annaðhvort að.sitja með hend- ur í skauti eða finna góðan mann,“ sagði Páll Gíslason, formaður deildarinnar. KR-ingar eru nú með Rússa til reynslu og ræðst á fimmtudaginn hvort verður af samningi, því liðið fer þá utan í æfinga- búðir. Hann heitir Ewgeni Dudkin, er 29 ára og spilaði síðastliðinn fjögur ár með Granada á Spáni en hefur ekki spilað með rússneska landsliðinu. Dudkin er 195 sentimetrar á hæð og spilar í stöðu skyttu hægra megin en virðist geta spilað alls staðar að sögn Guðmundar Albertssonar, aðstoðarþjálfara liðsins. „Við höfum séð hann spila og líst vel á,“ sagði Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.