Morgunblaðið - 30.08.1995, Side 2

Morgunblaðið - 30.08.1995, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hitt og þetta Pólverjar úr Hnetuholunni í Okhotskhafi • ALLIR pólsku togararnir 28, sem voru að veiðum í „HnetuhoIunni“, alþjóðlega hafsvæðinu i Okhotskhafi, eru nú farnir til veiða innan fisk- veiðilögsögu Rússa. Þetta gerðist í kjölfar samninga milli þjóðanna, en samkvæmthon- um hætta Pólverjar veiðum í Hentuholunni og fá í staðinn kvóta innan lögsögu Rússa. Samkvæmt samkomulaginu verður um heildarkvóta að ræða, en Qöldi togara verður ekki takmarkaður. Talið er að með þessu móti verði auðveld- ara fyrir Rússa að hafa sljórn á veiðum á þessu mikla inn- hafi sínu, en séu þær stundað- ar á alþjóðlega svæðinu í miðju þess. Rússneskur fiskiðnaður á nú við mikinn rekstrarvanda að etja og hefur því minni þörf en áður fyrir hráefni til vinnslu, en í Okhotskhafi veið- is mest af svokölluðum al- askaufsa. Pólveijar óttast, að svo kunni að fara að Rússar skeri kvóta fyrir erlend fiski- skip á svæðinu alveg niður, þegar fiskiðnaðurinn hefur náð sér á strik á ný, og verður fær uni að vinna meira af ufs- anum. Heimild: Eurofísh Report. Norðmenn fá minna fyrir saltfiskinn • ÚTFLUTNINGUR Norð- manna á söltuðum þorski hef- ur dregizt verulega saman á þessu árí miðað við sama tima I fyrra og verð á fiskinum hefur einnig lækkað. Mest af saltfiskinum fer tíl Portúgal, en þar fæst lægra verð fyrir hann en á Spáni og Ítalíu. Sam- dráttur í magni er 16,6% og verðmætið hefur dregizt sam- an um 20,6% miðað við sama tíma í fyrra. Samdráttur á útflutningi á söltuðum þorski frá áramótum til loka júlíraánaðar neraur nærri 8.000 tonnum, en nú hafa Norðmenn flutt út um 38.000 tonn. Verð á saitaða •þorskinum hefur að meðaltali lækkað um 22 krónur á kíló og er nú um 230 krónur. Fyrir vikið hefur heildarverðmætí útfíutningsins lækkað um ná- lægt 2,3 milljarða króna, en alls er útflutningsverðmætið um 8,8 miiljarðar. Verðið niður í 220 krðnur Nokkur aukning var á útí flutningi Norðmanna á söltuð- um þorski frá haustmánuðum í fyrra ogfram til marzmánað- ar og komst verðið þá hæst í um 250 krónur á kíló að meðal- tali. Síðan þá hefur útflutning- urinn dregizt mikið saman og verð fór lægst í 220 krónur. 90% til Portúgal í júlímánuði í ár fóru 90% af saltfiskinum til Portúgal á tæplega 200 krónur kílóið. Aðrir stærstu markaðir Norð- maniia fyrir saltaðan þorsk eru Spánn, en þangað hafa 5.600 tonn farið í ár og Ítalía, en þangað hafa aðeins 618 tonn farið þetta árið. Hvað Spán varðar er útflutning- urinn 900 tonnum minni en í fyrra en þá höfðu 1.453 tonn af saltfiski farið til ítalfu. Verð á Spáni nú er rúmlega 250 krónur og hefur það hækkað um 9 krónur milli ára. Verð á Ítalíu er hins vcgar um 310 krónur á hvert kíló. FRETTIR Morgunblaðið/Þorkell OSKAR Bjarnason og Eiríkur Eiríksson, starfsmenn Seifs hf., við stóra seiðaskilju sem fer væntanlega í rækjuskip innan tíðar. Ný og léttari seiðaskilja SEIFUR hf. Netagerð hefur hannað nýja seiðaskilju fyrir rækjuskip. Það er Eiríkur Eiríksson sem hefur hannað skiljuna. Hann segist hafa veitt því eftirtekt að margir rækju- sjómenn kvörtuðu undan seiðaskilj- unum sem var lögleidd nú í sumar. Eiríkur segir að sjómenn hafi kvartað mikið yfir allt of þungum skiljum og margir kallað þær „dauðagildrur", því þær hafi viljað slást til í brælum og ekki virkað sem skyldi. Það hafi verið eftir þessa umræðu sem hann smíðaði seiða- skilju fyrir minni rækjubáta sem var aðeins um þrjátíu kíló eða um tutt- Sólstein segir í samtali við fær- eyksa blaðið Dimmalætting, að hentifánaskipin hafi fiskað um 10% af heildarafla í Barentshafinu og ugu kílóum léttari en hinar hefð- bundnu skiljur. Eiríkur segir að upphaflega hafi hann eingöngu haft í huga skiljur fyrír minni rækjubáta en nú séu einnig komnar skiljur frá þeim í nokkur stærri rækjuskip. Sklljurnar mlnnka afla Eiríkur segir að hér séu á ferð- inni veigamestu breytingar á seiða- skiljum frá því að Norðmenn hófu að smíða þær. „Skiljurnar sem not- aðar hafa verið hingað til hafa ekki virkað nægilega vel og margir segja aflann minni vegna þeirra. Þær fyrir vikið hafi Færeyingar misst um 10% af kvóta sínum þar. Afli íslendinga hafi einnig haft sín áhrif, því Rússar miði við heildarveiðina, hafa þótt þungar og ómeðfærilegar en þar að auki hefur skiljan gert það að verkum að trollið fer oft óklárt. Það hefur sérstaklega viljað brenna við á skipum sem toga með tveimur trollum. Einnig virðist eins og það mynd- ist einhvers konar straumpúði í troll- inu og rækjan hreinlega fljóti upp. Við teljum okkur hafa komist fyrir þessi vandamál, m.a. með því að minnka yfirborðsflatarmál á teinum og minnka gegnumflæði til muna,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir að tólf skiljur hafi verið seldar á þessu ári, bæði í lítil og stór rækjuskip. þegar þeir ákveði hve miklar heim- ildir þeir veiti öðrum þjóðum. Tómas Arabo, fyrrum þingmaður í Færeyjum, segir iandanir henti- fánaskipa í Færeyjum hafa kostað Færeyinga 2.000 tonna kvótaskerð- inu í Barentshafi. Sólstein er ekki alveg á sama máli: „Salan á þessum afurðum hefur ekki skaðað markað- inn, en hvort hún hefur dregið úr möguleikum okkar til að fá veiði- heimildir í Barentshafi, er verra að meta. Veiðar íslendinga á svæðinu hafa hins vegar öruggiega vaidið miklu um kvótaskerðinguna." Sérstakar handbækur Samherja ALLT FRÁ því Baldvin Þorsteins- son EA kom til landsins árið 1992 hefur Samheiji hf. á Akureyri ver- ið að þróa handbækur fyrir skip- veija á skipum útgerðarinnar. í handbókunum er að finna almenn- ar upplýsingar auk sérhæfðra upp- lýsinga um skipin. Þorsteinn Vilhelmsson hjá Sam- heija hf. segir að skipveijar á Baldvini Þorsteinssyni hafi fengið sérhannaðar handbækur þegar að skipið kom nýtt til landsins og síð- an þá hafi handbækurnar verið í þróun. í þeim sé að finna almenn- ar upplýsingar um umgengni í skipunum, þrifnað og öryggi auk almennra upplýsinga um skipin. Hann segir að gefin sé út handbók fyrir hvert og eitt skip vegna þess að engin skip séu alveg eins og þessvegna þurfi sérhæfðar upplýs- ingar fyrir hvert þeirra. Öryggisreglur og fleira Auk Baldvins hafi skipveijar á Margréti og Akureyri fengið slíkar handbækur í hendur og ætlunin sé að útbúa bæklinga fyrir hin skipin í framtíðinni. „Þetta er hugsað sem upplýsingabæklingur um þær reglur sem gilda á skipun- um. Þarna eru líka öryggisreglur, til dæmis hvernig menn eiga að bera sig að við hífingar, að nota hjálma, flotbúninga, öryggislínur og svo framvegis," segir Þorsteinn. Ýmsar kynningaraðferðir Guðfinnur G. Johnsen, tækni- fræðingur LÍU, segist ekki vita til þess að fieiri útgerðir á landinu hafi þennan háttinn á upplýsingum og fræðslu sjómanna. I öllum skip- um flotans séu hinsvegar leiðbein- ingar og reglur um öryggisbúnað kynntar. Hann segir að það sé þó mjög mismunandi hvaða háttur er hafður á slíkri fræðslu. Aukin nýliðafræðsla „Það eru æfingar um borð í flestum skipum hálfsmánaðarlega. Þá hefur nýliðafræðsla aukist til muna um borð í skipum og er það einkum fyrir tilstilli Slysavarna- skóla sjómanna og á hann heiður skilinn fyrir það innlegg í öryggis- mál sjómanna.“ Hann segir að einnig séu um borð í öllum skipum handbækur frá Fiskistofu um með- ferð og frágang afla. „Það er ábyggilega eins misjafnt og skipin eru mörg hvernig þessi mál eru kynnt, það er einungis spurning um form,“ segir Guðfinnur. Færeyingar fá um 2.0001. minni kvóta í Barentshafi mmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmm veiðar Kenna veiðum íslendinga íLSiíV:;' um skerðinguna að hluta til h,tj valdið því að Færeyingar hafa orðið af 2.000 tonna veiðiheimildum í Barentshafi að sögn Jákups Sólstein, formanns Samtaka færeyskra út- vegsmanna. Hann segir að þó Föroya Fiskasöla hafi selt afla skipanna, hafi það ekki haft áhrif á afkomu færeyskrar útgerðar, missir veiðiheim- ilda skipti mestu. Smávægileg bilun getur orðið að miklu vandamáli HELGI Laxdal, formaður Vél- stjórafélags íslands, segir að rekja megi mörg þeirra óhappa sem verða á smábátum til þess að sjó- mennina skorti þekkingu á vélbún- aði bátanna. Oft þekki menn ekki undirstöðuatriði og smávægilegar bilanir geti skapað mikil vandræði. Vélstjórafélagið heldur eigin skrá yfir óhöpp sem verða að fréttaefni og reynir að leita sér frekari upplýsinga um ástæður þeirra. Þannig hefur félagið skráð 31 óhapp smábáta undir 12 tonn- um frá 14. mars á síðasta ári til 7. ágúst sl. Af þeim er nærri þriðj- ungur, eða 9 óhöpp, rakinn til beinnar vélarbilunar. Helgi segir að bilanir komi við sögu í mörgum öðrum tilvikum, bendir til dæmis á að í sjö tilvikum hafi bátar sokk- ið á sjó vegna leka og í jafnmörg- um tilvikum hafi bátar sokkið i höfn. Bilun af einhveiju tagi hljóti oft að hafa komið við sögu í þess- um óhöppum og fleirum. Svipuð niðurstaða er úr saman- tekt um þau tilvik sem björgunar- báturinn Sæbjörg í Sandgerði hef- ur komið til aðstoðar. Þriðjungur tilvika, eða 12 af 36, er bátar sem dregnir voru í land vegna bilana. Þarf að fræða sjómenn Helgi segir að oft séu bilanir tiltölulega litlar en þær verði að stóru vandamáli þegar mennirnir geti ekki gert við. Oft kunni menn ekki einföldustu undirstöðuatriði, eins og til dæmis að skipta um sigti. Ekki sé hægt að jafna því saman þegar vélknúið tæki stöðv- ast í landi og á sjó, menn iendi í miklum vanda 'ef slíkt gerist á sjónum. Og það kosti oft leit og björgun. „Ef við viljum fækka þessum óhöppum þarf að fræða smábátasjómenn um vélbúnað- inn,“ segir Helgi. í lögum um atvinnuréttindi vél- stjóra o.fl. er það gert að skilyrði að smábátasjómenn hafi farið á vélgæslunámskeið til að geta róið. Verið er að undirbúa þessi nám- skeið og segir Helgi að reynt verði að hafa þau þannig úr garði gerð að þau komi að sem mestum not- um. Bátar undir 12 brl. sem hafa orðið frénaefni vegna óhappa JÉUSWIUJ.'I f LEKIÁ SJÓ (bátur sekkur^ 7 SÖKKÍHÖFN |7 §3 HAKÍLAND lllll 2 OFHLEÐSLA 33 1 ÁSIDLING Ql ELDUR í VÉLARRÚMI n 1 STRANDAÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.