Morgunblaðið - 30.08.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
GREIIMAR
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995 B 7
Opið bréf til Arthurs
Bogasonar, formanns LS
„FIMM BRAUÐ og
tveir fiskar“ nefnist
viðtal við okkur í ver-
inu. 16. ágúst á bls.
2. Viðtalið fjallar um
ágreining okkar um
lausn á erfiðri deilu
um aðgang smábáta
að fiskimiðunum.
Ég vil jöfnuð með
aflatopp á hvern bát
og burt með bannda-
ga. Þú vilt áframhald-
andi kapphlaup út í
hvaða veður sem er
með tilheyrandi slys-
um, við að ná bita af
kökunni frá munni
barna náungans. Þú leggur vopn
í hendur þeirra hópa andsamfé-
lagslegra manna sem vilja hina
sameiginlegu auðlind sem einka-
eign fáeinna fjölskyldna í landinu
með því að segja að skrif mín séu
ekki svaraverð. Þú segir að tillaga
mín sé ekki nógu vel útfærð, því
þú skilur hana ekki vegna þess
að hún er svo sáraeinföld.
Þú veldur verkefninu
ekki lengur
Arthúr minn, þú ert góður
strákur, og vel upp alinn og þú
hefur staðið þig vel og átt þakkir
fyrir að hafa haldið okkur saman,
en öllum mönnum eru takmörk
sett. Þú veldur verkefninu ekki
lengur, svo sem lesa má út úr til-
vitnun þinni í hið heilaga orð, þar
sem þú segir mig hafa mikla trú.
Það er rétt. Ég trúi á réttlætið og
mun verða að trú minni. Ég lés
kannski Biblíuna með öðurm hætti
en þú, því ég álít að Jesú hafi
mettað áheyrendur sína í eyði-
mörkinni með því að fá fjöldann
til að draga fram nestið sitt og
neyta þess á samfélagslegan hátt
og sú aðferð hafi gefið svo góða
raun að afgangurinn hafi fyllt tólf
körfur.
Það er einmitt þetta sem ég er
að gera. Ég er að hvetja fólk til
að koma auga á þá staðreynd að
til að þjóðin geti lifað saman í
sátt og samlyndi þá
verðum við að nýta
þau tækifæri sem guð
gefur okkur, í þágu
þjóðarheildar, á sam-
félagslegan hátt. Art-
húr. Tillaga mín um
aflatopp á smábáta er
fyrsta skrefið í löngu
ferli, því núverandi
kvótakerfi ætla ég að
láta víkja fyrir mann-
eskjulegri fiskveiði-
stýringu framtíðar-
innar í þágu þjóðar-
heildar.
Endanleg útfærsla
á næstunnl
í Gamla testamentinu bls. 122,
Jóhannes 8 segir: ,jSannleikurinn
gerir þig fijálsan.“ Ég trúi á sann-
leikann. Ég trúi að Biblían sé
merkilegasta og trúverðugasta rit-
verk veraldarsögunnar. Ef þú lifir
með Guði þínum í sannleikanum
þá fjötra þig engin lög sem samin
eru af misvitrum mönnum, bijóti
þau í bága við trú þína og sannfær-
ingu. Arthúr minn. Ég vil biðja
þig að gera það aldrei oftast að
saurga hið heilaga orð með því
að setja það í samhengi við sví-
virðu þá sem landsfeður vorir
nefna lög nr. 83, 15. júní 1995.
Arthúr, á næstunni kemur til-
laga mín endanlega útfærð. Ásamt
úrfærslu á samhjálp, hinu nýja
tryggingafélagi, sem við smáút-
gerðarmenn munum stofna í kjöl-
far fyrsta áfanga að fiskveiði-
stjórnun framtíðarinnar. Arthúr,
svo vil ég vekja athygli þína á
þeirri staðreynd að við trillukarlar
höfum átt fullt í fangi með að
veija okkur fyrir ofbeldi því sem
forysta LIU fjarstýrir stjórnvöld-
um til að hamra á okkur með í
nafni lagasetninga.
Á færibandi í útrýmingarbúðir
Og nú er svo komið að úrelding-
arsjóður borgar krókabátaeigend-
um 45% af matsvirði báta þeirra
ef þeir vilja eyðileggja þá og fara
„Tillaga mín um afla-
topp á smábáta er
fyrsta skrefið í löngu
ferli,“ skrifar Garðar
Björgvinsson og held-
ur áfram, „því núver-
andi kvótakerfi ætla ég
að láta víkja fyrir
manneskjulegri fisk-
veiðistýringu framtíð-
arinnar í þágu þjóðar-
heildar.“
sjálfir á atvinnuleysisbætur. Við
erum ekki lengur bornir til grafar,
heldur erum við fluttir á færibandi
í útrýmingarbúðirnar. Vegna of-
sókna á hendur okkur hefur sjón-
deildarhringur okkar ekki náð til
þeirrar staðreyndar að fiskurinn í
sjónum er sameign þjóðarinnar
samkvæmt stjórnarskránni og lög-
um um stjórn fiskveiða frá 1990.
í Ijósi þess mun ég leggja tillögu
mína um aflatopp til handa smá-
bátum fyrir þjóðina í skoðana-
könnun. Það eru hvorki þú né for-
ysta LÍU sem eigið síðasta orðið
í þessari deilu. Ég treysti á dóm-
greind íslendinga í þessu máli. Ég
mun fara með sigur af hólmi á
fundinum í haust til bjargar hinu
hijáða smáútgerðarfólki á lands-
byggðinni, sem þó er svo mikil-
vægur liður í góðum þjóðarhag.
Að síðustu, Arthúr minn, látum
ekki skaðleg orð líða okkur af
munni hvor til annars, heldur það
eitt sem er gott og til uppbygging-
ar þar sem þörf gerist, til þess að
það verði til góðs þeim sem heyra
og sjá.
Höfundur er útgerðarmaður og
bátasmiður
Garðar
Björgvinsson
Vinnslustöðin eykur
aflaheimildir sínar
milli fiskveiðiára
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
til birtingar eftirfarandi athuga-
semd frá Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum
Fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar
hf. í Vestmannaeyjum langar mig
til þess að koma á framfæri eftir-
farandi leiðréttingu við frétt ykkar
um kvótahæstu útgerðarfélögin
1995-1996.
í fréttinni kemur fram að bol-
fiskkvóti Vinnslustöðvarinnar hf.
sé alls 5.615 þorskígildi og hafi
minnkað frá fyrra ári. Hið rétta
er að aflahlutdeild félagsins skipt-
ist á eftirfarandi hátt á skip félags-
ins sem hér segir:
Breki VE 61 2.629 þíg.
Drangavík VE 80 1.493 þíg.
Kristbjörg VE70 1.389 þíg.
Kap VE 4 1.305 þig.
Sighv. Bjamas. VE 81 1.582 þíg.
Samtals: 8.398 þíg.
Aflahlutdeild Vinnslustöðvar-
innar fyrir fískveiðiárið 1994/1995
var tæp 8.000 þ.ígildi, þannig að
í þorskígildum hafa heimildir fé-
lagsins aukist nokkuð á milli ára.
Þegar dregin hafa verið frá
þorskígildi síldar-, loðnu-, humars-
og rækjuaflahlutdeildar félagsins
þá er aflahlutdeild í botnfiski um
6.340 þ.ígildi. Auk þessa á félagið
80 þ.ígildi sem vistuð eru á öðrum
skipum. Hlutdeild Vinnslustöðvar-
innar hf. í heildaraflahlutdeildum
í þorskígildum talið hefur því
skerst lítið á milli ára.
Verðmætastúðiar brengla
hlutföllin
Benda má á að hlutföll útgerða
hafa brenglast verulega vegna
þess að verðmætastuðlar hinna
ýmsu tegunda hafa einhverra hluta
vegna breyst umtalsvert á milli
ára. Má þar nefna, að verðmæti
karfa hefur vaxið úr 0,46 í 0,85
en karfi er stór hluti í aflahlut-
deild Granda hf., sem dæmi. Laus-
lega virðist sem aflahlutdeild
Granda væri ríflega 4.000 þ.ígild-
um lægri ef gamli karfastuðullinn
0,46 væri notaður en ekki 0,85.
Svipaða sögu er að segja af Ut-
gerðarfélagi Akureyringa sem á
mikið af grálúðu en stuðullinn fyr-
ir þá tegund var hækkaður veru-
lega í sumar.
Fjárfest í aflaheimildum
Verðmæti ýsu hefur minnkað
úr 1,22 í 1,10 á milli ára en
Vinnslustöðin hf. á í dag ríflega
1400 tonna aflahlutdeild í ýsu eft-
ir skerðinguna sem varð í sumar.
Vinnslustöðin hf. á ennfremur
verulegar hlutdeildir í humarkvót-
anum en hann var skertur um
þriðjung auk þess sem verðmæt-
astuðullinn var lækkaður verulega,
við þetta skertust aflahlutdeildir \
félagsins í þorskígildum talið um
250. Auk þessa hafa stuðlar í loðnu
og síld lækkað á milli ára. Vinnslu-
stöðin hf. hefur fjárfest nokkuð í
aflaheimildum á síðastliðnu ári
umfram það sem selt hefur verið,
þannig að hlutfallslegur samdrátt-
ur félagsins skýrist af breyttum
verðmætastuðlum.
Líkleg skýring
Mér þætti vænt um ef leiðrétt-
ingu yrði komið á framfæri um -
málið, en líkleg skýring er að
Drangavík VE 80 hefur ekki verið
þinglýst á okkur og Frigg VE er
enn skráð á okkur þrátt fyrir að
skipið hafi verið selt og muni verða
afhent nú þann 31. ágúst nk.
- kjarni málsins!
WtJKOAUGLYSINGAR
A TVINNUAUCL ÝSINGAR KVÓTI KVttTABANKINN
Vélavörður
Vélavörð vantar á 200 lesta línuskip frá
Grindavík sem rær með beitingarvél.
Upplýsingar í síma 426-8755.
Baader-maður
óskast á frystitogara sem gerður er út
frá Norðurlandi.
Upplýsingar í síma 468 1111.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á frystiskip. Starfið er fyrsta
vélstjórastaða og afleysingar sem yfirvél-
stjóri. Við leitum að framtíðarmanni með
full réttindi, sem hefur áhuga á að takast á
við krefjandi starf hjá kraftmiklu fyrirtæki.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „V - 15511“.
Kvóti
Eigum 23 tonn af þorski til leigu á 80 kr. kg.
Karfi til sölu 10-20 tonn. Ýsa 30-40 tonn.
Ufsi 200 tonn. Rækja 118 tonn.
Vantar varanlega síld, karfa og 45 tonn af
kola.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Tryggvagötu 4,
sími 562 2554, fax 552 6726.
Fiskiskip
Höfum góða kaupendur að 25-40 tonna eik-
ar- eða stálbátum og 80-300 tonna stálbátum.
Höfum ávallt kaupendur og leigjendur að
öllum tegundum kvóta.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Tryggvagötu 4,
sími 562 2554, fax 552 6726.
Aðeins tveir dagar eftir
Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson.
Höfum fengið f einkasölu á íslandi
nóta- og togskipið
mv. „LUNAR BOWM,
smfðað 1987
Lengd 49,28 m, breidd 8,90 m, dýpt 4,30 m.
Aðalvél 2200 HP. Tog- og snurpuspil 25 tn.
Fiskilest 890 cbm. í 9 RSW kælitönkum.
Vakumdæla MMC. Hliðarskrúfur 250 og 400
HP. Nótaveiðiskip í topp-klassa.
Allar frekari upplýsingar á skrifstofu okkar.
B.P. SKIP HF.,
Borgartúni 18, 105 Reykjavík,
sími 551-4160, fax 551-4180.