Morgunblaðið - 30.08.1995, Page 1
I
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
Sigurpáll
fór holu
i hoggi
SIGURPÁLL Geir Sveins-
son, kylfingxir úr GA, varð
í gær þriðji kylfingurinn á
einni viku sem fer holu í
höggi á átjándu braut á golf-
vellinum á Akureyri.
í síðustu viku fóru tveir
þátttakendur á Unglinga-
meistaramóti íslands í golfi
átjándu brautina I einu
höggi og í gær endurtók
Sigurpáll leikinn á brautinni
sem er 147 m löng. Sigur-
páll notaði átta járn og kúlan
hafnaði rétt fyrir ofan hol-
una en skrúfaðist niður und-
an hallanum og beint ofan í.
Alls hafa sjö kylfingar
farið holu í höggi á golfvell-
inum á Akureyri í sumar,
einn á fjórðu braut, tveir á
sjöttu braut, einn á fjórt-
ándu og þrír á þeirri átj-
ándu.
Úlfar og
Sigurjón
fara til
Jamaíku
SIGURJÓN Amarsson og
Úlfar Jónsson héldu í gær
til Jamaíku þar sem þeir
félagar taka þátt í undan-
keppni heimsmeistaramóts
atvinnumanna.
Komist þeir félagar áfram
úr keppninni á Jamaíku
verða þeir meðal keppenda
í úrslitakeppninni sem að
þessu sinni fer fram í Kína.
íslendingar hafa nokkrum
sinnum tekið þátt í þessu
móti og þeir Ragnar Ólafs-
son og Sigurður Pétursson
komust í gegnum undan-
keppnina árið 1984 og léku
með þeim bestu í heiminum
í úrslitakeppninni, meðal
annars Nick Faldo.
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST
GOLF
BLAÐ
C
Rússi til Fram
FRAM, sem leikur handknattleik í 2. deild-
inni, hefur fengið til liðs við sig tveggja
metra rússneskan leikmann, Oleg Titov.
Hann lék áður með Krasnodar, meðal annars
með Dimitrij Filippov, Dimitry Karlov og
markverðinum Andrej Lavarov, varð Evr-
ópumeistari með liðinu 1990 og spilaði 25
landsleiki fyrir Samveldin árið eftir. Titov,
sem er 28 ára, spilar á línunni í sókninni en
þykir frábær varnarmaður og var kosinn
besti varnarmaðurinn á æfingamóti á Akur-
eyri um helgina þar sem tóku þátt FH, Sel-
foss, KA og Fram. „Þetta var gott mót, hann
á samt eftir að aðlagast liðinu en fellur vel
inní hópinn,“ sagði Guðmundur Guðmunds-
son þjálfari Fram, „við munum leggja mikla
áherslu á varnarleikinn í vetur og verður
Titov lykilmaður í því dæmi en það er kom-
inn timi til að íslensk félög fari að sinna
þeim hluta.“
COLIN Montgomerle hefur tvisvar áður lelkið í Rayder-liðl Evrópu gegn Bandaríkjamönnum.
Ryderlið
Evrópu
SÍÐASTA mótið sem máli skiptir
við val á Ryder-liði Evrópu fór
fram um helgina í Stuttgart. Þar
sigraði Colin Montgomerie og
var þetta fyrsti sigur hans á ár-
inu. Að loknu mótinu var Ijóst
hvaða kylfingar skipuðu Ryder-
liðið: Colin Montgomerie frá
Bretlandi, Bernhard Langer frá
Þýskalandi, Sam Torrance frá
Bretlandi, Costantino Rocca frá
Italíu, Seve Ballesteros frá Spáni,
David Gilford frá Bretlandi,
Mark James frá Bretlandi, Ho-
ward Clark frá Bretlandi, Per-
Ulrik Johansson frá Svíþjóð og
Philip Walton frá írlandi. Síðan
valdi fyrirliðinn, Bernhard Gall-
agher, tvo kylfinga í liðið — Nick
Faldo frá Bretlandi og Jose Mar-
ia Olazabal frá Spáni. Ryder-liðið
mætir Bandaríkjamönnum á Oak
Hill í Rochester 22. til 24. septem-
ber.
Tveir nýliðar eru í liði Evrópu
að þessu sinni, Per-Ulrik Johans-
son, 28 ára Svíi, og Philip Wal-
ton, 33 ára gamall íri. Árangur
annarra liðsmanna úr fyrri við-
ureignum við Bandaríkjamenn
er æði misjafn. Colin Montgo-
merie, sem er 32 ára, hefur tví-
vegis verið í Ryder-liðinu, 1991
og 1993.
HANDKNSATTLEIKUR
Þorbjöm velur
tvo nýliða
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs-
þjálfari, tilkynnti í gær fyrsta
landsliðshóp sinn, en landsliðið
fór utan í morgun til keppni á
fjögxirra landa móti í Austurríki.
I hópnum að þessu sinni eru tveir
nýliðar, Valsmaðurinn Ingi Rafn
Jónsson og Leó Örn Þorleifsson,
línumaður úr KA.
Aðrir leikmenn eru: Bergsveinn
Bergsveinsson, UMFA, Guð-
mundur Hrafnkelsson, Val, Páll
Þórólfsson, UMFA, Valdimar
Grímsson, Selfossi, Patrekur Jó-
hannesson, KA, Einar Gunnar
Sigurðsson, Selfossi, Jón Krist-
jánsson, Val, Dagur Sigurðsson,
Val, Ólafur Stefánsson, Val, Ja-
son Ólafsson, Brixen, Róbert
Sighvatsson, UMFA og Júlíus
Jónasson, Gumersbach.
Geir Sveinsson gaf ekki kost
á sér að þessu sinni vegna anna
hjá félaginu sem hann Ieikur með
í Frakklandi, Montpellier, og
Bjarki Sigurðsson gefur ekki
kost á sér að þessu sinni vegna
þess að hann og kona hans bíða
eftir að annað bam þeirra komi
í heiminn.
Á mótinu í Austurríki leikur
íslenska landsliðið fyrst á föstu-
daginn gegn Noregi, síðan verð-
ur spilað gegn Austurríki á
laugardag og loks mæta íslensku
piltarnir ítölum á sunnudag.
Komið verður heim á sunnudags-
kvöldið.
KAPPAKSTUR: ÍSLENDINGUR FÉLL Á160 KM HRAÐA í ENGLANDI / C2