Morgunblaðið - 30.08.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.1995, Blaðsíða 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hver er hún? HÚN litar svo fallega mynd - en hver er hún þessi unga listakona sem mundar vaxlitina og setur Iiti á blað - og ekkert meira til upplýsinga en Margrét Sif? Þessi mynd og ein önnur eru birtar til þess að minna ykkur á að hafa allt efni sem þið sendið til Mynda- sagna Moggans merkt ykkur með fullu nafni, aldri og heimilisfangi. Bestu kveðjur til ykkar allra að áliðnu sumri. -J FINNIÐ hvaða tölustafur á að vera í efri reit neðri þríhym- ingsins. Þið þurfið að leggja höfuðið í bleyti og er ekki neitt athugavert við það. Nú er skól- inn alveg að byija hjá flestum ykkar og gangi ykkur vel bæði með þrautina og í skólanum. Notið þríhymingana sem em alveg útfylltir til þess að átta ykkur á hvaða aðferð er notuð til þess að fylla út efri reitina. Það er sama aðferðin við þá alla. Reynið nú á þolrifin og ekki leita að lausninni fyrr en í fulla hnefana. Megið þið njóta til hins ýtrasta. Úr undirdjúpunum HJÁLPIÐ nú þessari brosmildu loðnu að finna leiðina til vinar síns, kolkrabbans. Leiðirnar eru fjórar, merktar A, B, C og D, en aðeins ein þeirra er fær, hinar eru lokaðar einhvers staðar á leiðinni og það geta sennilega leynst hættur þar. Þess vegna er mikilvægt að þið komið litlu loðnunni til aðstoðar og forðið henni frá hættum undirdjúpanna. Til staðfestingar á að þið hafið fundið réttu og öruggu leiðina fínnið þið Lausnir ann- ars staðar í blaðinu. Lausnir ÞAÐ er nú það, já. Hvaða leið var það nú aftur aem loðnan átti að fara - æi, það hefur bara alveg gleymst! Nei, annars, enga stæla, leið B er rétta leiðin. oOo Talan sem ieitað er að er fjórir. Hún finnst þannig að ef þið leggið tölumar í neðri röð saman í hveijum þrihymingi fyrir sig og deilið með fjórum í útkom- una fáið þið út töluna sem er í efri linu hvers þríhymings: 1. þríhymingur er 7+5=12:4=3. 2. þríhymingur er 6+14=20:4=5 og 3. þríhymingurinn er: 10+6=16:4=4. oOo Höfundurinn segir að litimir séu ellefu talsins í húðflúrinu. oOo Konan í dansinum á skrautlegu myndinni heitir Ragnheiður. wmm I Ef? TiMl TIL KO/VHNxJjP AE> þÚ VINNIR FVRiR MAT þÍNUAá Ml i í (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.