Morgunblaðið - 31.08.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995 B 5
VIÐSKIPTI
G. J. Fossberg vélaverslun hf.
fagnar nú þeim tímamótum að
þrjátíu ár eru liðin síðan fyrir-
tækið flutti úr kjallaranum að
Vesturgötu 3 í núverandi hús-
næði að Skúlagötu 63.
Fyrirtækið var stofnað
árið 1927 af Gunnlaugi
j. Fossberg, vélstjóra.
Eftir andlát hans, árið
1949, gegndi Bjarni R.
Jónsson forstjórastarfi
allar götur til 1989 en
þá tók núverandi for-
stjóri, Einar Örn
Thorlacius, við. Núver-
andi eigendur fyrir-
tækisins eru annars veg-
ar afkomendur Gunn-
30 ár á
Skúlagötunni
G. J. Fossberg vélaverslun við Skúlagötu
laugs J. Fossbergs og hins vegar
Bjarni R. Jónsson, stjórnar-
formaður.
G. J. Fossberg hefur lagt
áherslu á að þjóna málmiðnaði
og starfa nú tólf manns hjá
fyrirtækinu. Helstu vörumerkin
eru Stahlwille-verkfáeri, Flexo-
vit-slípivörur, Walker-pakkn-
ingarefni, Presto-borar og snitt-
verkfæri, Tungaloy-renniverk-
færi og Rocol-olíur.
í frétt frá fyrirtækinu
segir að 23,7% söluaukn-
ing hafi orðið hjá því í
fyrra og það sem af er
þessu ári sé hún rúm 17%.
I tilefni af þrjátíu ára
„staðarafmæli" býður G.
J. Fossberg öllum við-
skiptavinum sínum sér-
stakan 10% staðgreiðslu-
afslátt vikuna 4.-8. sept-
ember.
Þá fá aðilar, sem eru í
föstum viðskiptum og hafa
þannig afslátt fyrir, aukalega
5% viðbótarafslátt.
S-'-'fe.,
sé eðlilegast að kaupmenn sjái
sjálfir um þessi mál. „I Danmörku
eru þetta t.d. einkum kaupmenn
sem reka þessi dreifingarfyrirtæki
og ef þeir standa ekki í rekstrinum
sjálfir þá eru þeir yfirleitt rækilega
hnýttir við ákveðin vöruhús. Þannig
gera þeir samninga um að einhver
tiltekin prósenta af veltu þeirra
renni til hússins burtséð frá því
hvort þeir kaupa af dreifingarfyrir-
tækinu eða ekki. Því meira sem
þeir kaupa þar, því hagkvæmara
verður það fyrir þá sjálfa. Við höf-
um hins vegar ekki orðið varir við
að kaupmenn hér á landi vilji binda
sig með þessum hætti.“
Vörudreifing óháð
heildsölum
Þó svo að lítið hafi þokast í þá
átt að heildsalar komi sér upp sam-
eiginlegri dreifingarmiðstöð þá
hafa aðrir aðilar komið þar að og
telja - greinilega að markaður sé
fyrir slíka þjónustu hér á landi.
Þannig hefur Tollvörugeymslan um
nokkurt skeið boðið upp á slíka
þjónustu og mun meðal annars
vera að búa sig undir frelsið í heild-
verslun með áfengi, en ný lög þar
að lútandi taka gildi 1. desember
næstkomandi.
Þá hafa Samskip hf. einnig verið
að fikra sig áfram
á þessari braut að
undnanfömu og
fyrir réttu ári
setti fyrirtækið á
fót vörudreifing-
armiðstöð þar
sem boðið er upp
á lagergeymslu
og dreifingu á
vömm. Með þessum hætti þarf
heildsali í raun ekki á lagerhús-
næði að halda og séð er um flutn-
ing vörunnar allt frá hafnarbakka
til endanlegs kaupanda. Pétur Már
Halldórsson, sem veitir þessari
þjónustu forstöðu, segir þetta hafa
farið vel af stað og séu viðskipta-
vinir fyrirtækisins allt frá smærri
verktökum til stærri heildsala með
yfir eitt þúsund vörunúmer á skrá.
Hann segist þó verða var við
ákveðna tregðu hjá eldri fyrirtækj-
um við að nýta sér þessa þjónustu.
„Þetta er byllingarkennd nýjung
á flutningamarkaðnum hér á landi.
Menn hafa hingað til verið í því
fari að byggja og koma sér upp
gríðarlegri fjárfestingu í lagerhús-
næði og þannig er til alveg gífur-
legt framboð af slíku húsnæði í
Reykjavík. Það er því ljóst að það
verða engar stórar breytingar á
mjög skömmum tíma. Maður sem
í dag á sitt lagerhúsnæði sem hann
er búinn að borga að verulegu leyti
sér það ekki beint sem fýsilegan
kost að söðla um og stökkva inn í
svona starfsemi. Hvað á hann að
gera við húsnæðið og tækin og
mannskapinn? Þetta er hins vegar
mjög góður kostur fyrir innflytj-
anda sem er að fara af stað í dag
og stendur frammi fyrir því að
ákveða hvort hann eigi að fara að
taka sér lagerhúsnæði á leigu og
veit ekkert hvernig hans rekstur
kemur til með að haga sér. Hans
hag væri betur borgið inni í svona
starfsemi þar sem hann er bara
að greiða fyrir þá þjónustu sem
hann fær hvetju sinni og hans fjár-
magni er þá einfaldlega betur varið
annars staðar.“
Þjónusta innlenda
framleiðendur
Innflytjendur eru hins vegar ekki
einu aðilarnir sem eru að selja vör-
ur í matvöruverslanir. Þarna koma
innlendir framleiðendur einnig að
sem og allur landbúnaðargeirinn.
Nú virðist það vera að færast í
vöxt að heildsölur séu að dreifa
vörum fyrir innlenda framleiðend-
ur, eða taka jafnvel yfir starfemi
þeirra eins og kaup Natans og Óls-
en á Sápuverk-
Færist í vöxt að
heildsölur dreifi
vörum fyrir innlenda
framleiðendur
smiðjunni Frigg
eru dæmi um. Þá
hefur íslensk-
ameríska gert
samning við Vik-
ing-brugg um
dreifingu á fram-
leiðslu verk-
smiðjunnar og
fleiri dæmi er að finna um slíka
samninga heildsala við innlenda
framleiðendur.
Flestir þeir sem Morgunblaðið
ræddi við virtust vera sammála um
að miklar breytingar ættu eftir að
eiga sér stað á þessum markaði á
næstunni. „Það á eftir að verða
mjög mikil sameining hjá öllum
þessum litlu framleiðendum því
þeir eiga engan veginn eftir að lifa
samkeppnina af öðruvísi. Mér
finnst heldur ekkert ólíklegt að
heildsölur eigi hugsanlega eftir að
kaupa upp eitthvað af þessum fyrir-
tækjurn," segir Ingvar.
Það sér því ekki enn fyrir endann
á þeim hræringum sem verið hafa
á heildsölumarkaðnum á undan-
förnum misserum enda kannski
ekki nema von þar sem þróun og
breytingar liggja í sjálfu eðli mark-
aðsbúskaparins.
EVROPUFLUG
Með reglubundnum vöruflutningum
Cargolux frá 34 helstu iönaðar- og
verslunarborgum Evrópu, tengiflugi
frá helstu löndum Asíu til Luxem-
borgar og síðan beinu, vikulegu
fraktflugi til íslands opnast betri
kostir fyrir íslenska farmflytjendur en
áður hefur þekkst:
• Hagkvæmari heildarfarmgjöld
frá upphafsstað til íslands.
• Farmbókanir sem hægt er
að reiða sig á.
• Betri vörumeðferð með B-747
breiðþotum.
AMERÍKUFLUG
Cargolux býður nú vikulegt flug frá
Keflavík til New York og Houston
ásamt vikulegu flugi frá Detroit og
New York til Keflavíkur. Frá
þessum stöðum bjóðast góðir
tengiflutningar um öll Bandaríkin.
Ráðstefnuskrifstofa Isfands
Sími 562 6070 - Fax 562 6073
SAMKEPPNI í
FRAKTFLUTNINGUM
Með komu Cargolux á
flutníngamarkaðinn bjóðast lægri
farmgjöld og betri þjónusta en
áður. Reynslan sýnir íslend-
ingum, að samkeppni í frakt-
flutningum í lofti er nauðsyn.
Þetta ættu farmflytjendur að hafa
í huga við val á
flutningsmöguleikum.
Allar frekari upplýsingar
CARGOLUX Á ÍSLANDI:
Söluskrifstofa og vöruafgreiðsla
Héðinsgötu 1-3:
Sími 588 1747 - Fax 588 2747
Afgreiðsla
Keflavíkurflugvelli:
Sími 425 0700 - Fax 425 0707
cargolux
-fagmenn í flugfrakt