Morgunblaðið - 31.08.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 31.08.1995, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR VIKUNNAR SJÓNVARPIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER m QQ nc ►Flökkulíf (The Battl- Itl. ít.öli ers) Áströlsk sjón- varpsmynd í tveimur hlutum sem ger- ist í kreppunni miklu árið 1934. Hún Ijallar um fólk sem gefst ekki upp þótt á móti blási. Síðari hlutinn er sýndur næsta kvöld. LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER |f| 01 nn ►F|ökku|íf (The Battl- lll. 4 1.1111 ers) Síðari hluti ástr- alskrar sjónvarpsmyndar sem gerist í kreppunni miklu árið 1934 og fjallar um fólk sem gefst ekki upp þótt á móti blási. M 99 4(i ►Ran (Ran) ■ LLm'iv Frönsk/japönsk bíó- mynd frá 1985 byggð á leikriti Shake- speares um Lé konung. SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER I Hnn 1 C ►Wendemi (Wendemi .44.19 - L’ Enfant du bon dieu) Frönsk bíómynd frá 1993 sem gerist í Afríku og spannar 20 ár í lífí piltsins Wendemi. Myndin var valin til sýningar á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1993. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER |f| n 1 nr ►( sólskinsskapi (The M. 4 I.U9 Sunshine Boys) Bandarísk gamanmynd frá 1975. Tveir gamlir grínleikarar og óvinir úr fjöllistaheiminum lenda saman í sjón- varpsþætti. Stöð tvö FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER W91 Ijl^ Uppinn (Out on a . 4 I ■ IU Limb) Gamanmynd um kaupsýslumanninn BiII Campbell sem er að ganga frá milljóna dala samningi þegar hann fær neyðarkall frá systursinni. Billfellst á aðskreppa til smábæjarins Buzzsaw til að hugga systu en upp til sveita er ekkert sem sýnist og dreifbýlislífið er meira en margur ræður við. j ►Rappararnir CB4 (CB4) Gamansöm mynd um æðið í kringum rapp og hip- hop-tónlistina. Hér segir af þremur vinum sem dreymir um frægð og frama. Einn þeirra verður óvart valdur að því að bófaforingjanum Gusto er stungið í steininn og ákveður að taka upp nafn hans og siði. Strákamir eru allt í einu orðnir alræmdir og vinsæld- imar láta ekki á sér standa. En það versnar í því þegar hinn sanni Gusto er látinn laus. Kl. 22.35' STÖÐ TVÖ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER W91 9 C ► Vilji er allt sem þarf . 4 1.49 (Wild Hearts Can’t Be Broken) Merkileg saga Sonoru Webster sem dreymdi um að komast burt frá heimabæ sínum í Georgiu og sótti um að fá að leika áhættuatriði í farandsýningu. Hún svaraði auglýs- ingu þar sem auglýst var eftir stúlku til að stökkva á hestbaki ofan af 40 feta háum palli ofan í vatn. Þegar til kom þótti engum hún vera rétta mann- eskjan í starfið en Sonora var ekki af baki dottin og átti eftir að sýna hvað í henni bjó. ►Jerikó-veikin (Jeric- Kl. 22.55 spennandi mynd um hóp hryðjuverka- manna sem hefur sýkst af áður óþekktri en banvænni veiki. Fautamir myrða samningamenn Palestínuaraba og Israela í Mexíkóborg og flýja síðan yfír landamærin til Bandaríkjanna. Smám saman breiðist veikin út um Suðvesturríkin og allt kapp er lagt á að hafa upp á hryðjuverkamönnunum svo koma megi í veg fyrir bráðdrep- andi faraldur. Stranglega bönnuð bömum. Ifl II Cfl ►Einn á móti öllum III. U.9U (Hard Target) Há- spennumynd með Jean-Claude Van Damme um sjóarann Chance sem bjargar ungri konu úr klóm blóð- þyrstra fanta en þeir gera sér leik að því að drepa heimilislausa í New Orle- ans. Stranglega bönnuð bömum. SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER W9fl CC ►Saitbragð hörunds- . 4U.99 ins (Salt on our Skin) Rómantísk og hrífandi mynd um sjóð- heitt ástarsamband frönsku mennta- konunnar George McEwan og skoska sjómannsins Gavins McCall. Samband þeirra stóð í tæpa þrjá áratugi en var þó aldrei annað en holdlegt. Stéttar- staða þeirra og hugarfar stíaði þeim í sundur. VI 9Q QC ►Sjónarvotturinn Hl. 49.99 (Fade to Black) Spennumynd um Del Calvin sem skrá- ir athafnir nágranna sinna á mynd- band. Kvöld eitt kveikir hann á töku- vélinni sem er beint að íbúð snoturrar ljósku. Del bregður þegar hann sér karlmann myrða ljóskuna en þegar hann kallar til lögregluna er lítill trún- aður lagður á sögu hans. Bönnuð börn- um. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER | VI 9Q QC ►Myrkar minningar ™ í. 49.99 (Fatal Memories) Sannsöguleg mynd um Eileen Frankl- in-Lipsker sem hefur snúið baki við hrikalegri æsku sinni og lifir nú ham- ingjusömu lífi ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Hún hefur lokað á myrkar minningar úr fortíðinni og leiðir aldrei hugann að bamæsku sinni. Fjölskyldu hennar gengur allt í haginn þar til minningabrot koma upp á yfir- borðið. Bönnuo börnum. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER VI 9Q 9(1 ►Farþegi 57 (Passen- III. 49.4U ger 57) Hversdagsleg flugferð snýst upp í mikla háskaför þegar Charles Rane, hryðjuverkamað- ur sem verið er að flytja frá Flórída til Los Angeles, sleppur úr vörslu lög- reglumanna og nær yfirráðum um borð í vélinni. Eini maðurinn sem get- ur komið í veg fyrir djöfulleg áform Ranes er John Cutter en hann er sér- þjálfaður í baráttunni gegn hryðju- verkamönnum. Stranglega bönnuð bömum. MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER B9Q Qn ►Tango og Cash • 49.9U Gamansöm kvikmynd um rannsóknarlöggurnar Ray Tango og Gabe Cash. Það sem þeir eiga sam- eiginlegt er að telja sig bestu löggur sem völ er á og helsti óvinur þeirra er eiturlyfjabaróninn Yves Perret sem er valdur að því að þeir em í fang- elsi. Til að sleppa lifandi frá fangelsis- vistinni bijótast þeir út til að hreinsa mannorð sitt og það gengur á ýmsu. Stranglega bönnuð börnum. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER W99 nn ►Vítavert athæfi • 44.UU (Gross Misconduct) Háskólaprófessorinn Justin Thome nýtur mikillar virðingar meðal nem- enda sinna og það er ekki laust við að starfsbræður hans öfundi hann. En ferli Justins og fjölskyldu er ógnað þegar draumórar ungrar stúlku í nem- endahópnum breytast í þráhyggju. Freistingin verður mönnum að falli. Stranglega bönnuð börnum. W9Q ill ►SólstingurfSunstro- ■ 49.*»U kojSpennumynd meðJane Seymoun hlutverki ungrar konu sem á ferð sinni tekur puttaling upp í bílinn sinn. Þegar hann finnst myrtur daginn eftir beinist gmnur lögreglunnar að henni en þar með em ekki öll kurl komin til grafar. Bönnuð börnum. BIOIN I BORGINNI Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson BÍÓBORGIN Englendingurinn sem fór upp hæðina en kom niður fjallið ir k Tveir Englendingar kynnast smábæ- jarlífi í Wales sem er um margt skrýt- ið og skemmtilegt. Myndin notarleg en átakalaus og minnir um of á sjón- varpsefni. Að eilífu Batman k * k Dökk en ekki dmngaleg og mun hressilegrí en forverarnir. Auðgleymd en bráðfjömg á meðan á henni stend- ur. Meðan þú svafst k k Ósköp sæt gamanmynd um óvenjuleg ástarmál piparmeyjar. Einkennist fullmikið af almennu dáðleysi til að komast uppúr meðalmennskunni. BÍÓHÖLLIN Kongó k/2 Brellurnar eru flottar, sömuleiðis kvik- myndatakan og tónlistin. Metsölubók- in hans Crichtons um demantanámur og náttúmhamfarir í Afríku hefur myndast illa og leikhópurinn er afleit- ur. Skriðdrekaskvísan 'A Vita vonlaus framtíðargamantryllir um unga stúlku og skriðdrekann hennar. Konungur Ijónanna k-k-k Frábærlega gerð Disneyteiknimynd um ljónsunga á hrakningi. Gamal- kunnir Disneytöframir sjá um að skemmta ungum sem öldnum. HÁSKÓLABÍÓ Kongó k/i Brellumar em fiottar, sömuleiðis kvik- myndatakan og tónlistin. Metsölubók- in hans Crichtons um demantanámur og náttúmhamfarir í Afríku hefur myndast illa og leikhópurinn er afleit- ur. Franskur koss k k'h Kaflaskipt rómantísk gamanmynd þar sem Kevin Kline heldur hlutunum á floti. Aðrir fá bragðminni texta í þess- ari nýjustu mynd Lawrence Kasdans, sem ömgglega gerir meiri lukku hjá konum en körlum. Jack og Sara k k Bretum gengur ekki hótinu skár en Bandaríkjamönnum að endurskapa sorgir og gleði mannlífsins á raun- sannan hátt. Myndin snertir áhorfand- ann furðu lítið þrátt fyrir hádrama- tískt efnið. Tommy kallinn k k Tilþrifalítil gamanmynd sem gerir út á heimskupör í anda Veraldar Waynes. Brúðkaup Muriel kkk Oft sprenghlægileg áströlsk gaman- mynd um stelpu sem vill giftast og telur lykilinn að lífsgátunni felast í Abbasöngvum. Góða skemmtun. Skógardýrið Húgó k k Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön- um, elskulegum frændum vomm og vinum, um Húgó hinn hressa sem syngur og dansar og hoppar og hlær smáfólkinu til ánægju og ýndisauka en hinum fullorðnu mest til angurs og armæðu. LAUGARÁSBÍÓ „Major Payne“ k'A Damon Wayans er oft spaugilegur í mynd um nk. Rambó sem tekur að sér að þjálfa drengjaflokk og allir sigra að lokum. Johnny Mnemonic k k Sendlar framtíðarinnar nota á sér heilabúið eins og harðan disk í þess- ari vísindaskáldskaparmynd sem byggð er á góðri hugmynd en er lang- dregin og innantóm. Grafíkin vel unn- in. Don Juan DeMarco k k'A Johnny Depp fer á kostum í hlutverki elskhugans mikla Don Juan í smellinni og grátbroslegri mynd um ástina. Marlon Brando kryddar myndina en þáttur hans og Faye Dunaway er held- ur til baga. Heimskur heimskari kkk Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífið. REGNBOGINN Dolores Claiborne kkk Kathy Bates fer á kostum í spennu- mynd byggðri á sögu Stephen Kings um móður sem sökuð er um morð. Leikstjórinn, Taylor Hackford, leggur ekki síst áherslu á feminíska þætti sögunnar af konum í karlrembusamfé- lagi. Veikasti hlekkurinn er Jennifer Jason Leigh í hlutverki dótturinnar. Gleymum París kk'A Skemmtileg rómantísk gamanmynd um raunir hjónalífsins í nútímanum. Ófáir brandarar stytta manni stundir og efnistökin eru alltaf geðþekk. Geggjun Georgs konungs kkk Nigel Hawthorne fer á kostum sem Georg III í skemmtilega kaldhæðnis- legri úttekt á erfiðu tímabili bresku konungsfjölskyldunnar fyrr á tímum. Merkilegt hvað lítið hefur í raun breyst í þessum dularfulla konungsgarði. Raunir einstæðra feðra k Þrír fráskildir feður gera upp sín mál í amerískri fjölskylduvellu. Eitt sinn stríðsmenn k k k'A Raunsæ og vægðarlaus lýsing á fjöl- skyldulífí í fátækrahverfi á Nýja-Sjá- landi. Ofbeldi, óregla og aðrir lestir eru ekki teknir neinum vettlingatök- um, björtu hliðarnar gleymast heldur ekki. SAGABÍÓ Tveir með öllu k k'A Líklega besta svertingjahasarmynd sem komið hefur hingað í langan tíma. Formúluafþreying að sönnu en skemmtigildið er ósvikið. „Die Hard 3“ kkk Hörkugóður hasartryllir sem segir í þriðja sinn af Bruce Willis í gengdar- lausum eltingarleik' við illmenni. Samuel L. Jackson ómetanlegur sem félagi hans og Jeremy Irons er höfuðó- þokkinn. Fínasta sumarbíó. STJÖRNUBÍÓ Einkalíf kk Þráinn Bertelsson gerir unglinga- menningunni, kynslóðabilinu og gam- ansögum af íslendingum skil í brota- kenndri gamanmynd, sem á að höfða mest til unglinga. Fremstur ríddara kkk Ævintýrið um konungshjónin í Came- lot fært í glæsilegan Hollywoodbúning þar sem afþreyingargildið er sett ofar öllu. Sean Connery og Juiia Ormond frábær í hlutverkum sínum. Lífleg skemmtun. Æðri menntun k'A John Singleton lýsir lífinu í fjölþjóðleg- um háskóla en hefur ekki erindi sem erfiði því myndin er klisjukennd og óspennandi. Litlar konur kkk'A Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg mynd um fjölskyldulíf á Nýja-Eng- landi á öldinni sem leið. Winona Ryder fer fremst í flokki afburðaleikara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.