Morgunblaðið - 31.08.1995, Qupperneq 2
2 C FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR VIKUNNAR
SJÓNVARPIÐ
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER
m QQ nc ►Flökkulíf (The Battl-
Itl. ít.öli ers) Áströlsk sjón-
varpsmynd í tveimur hlutum sem ger-
ist í kreppunni miklu árið 1934. Hún
Ijallar um fólk sem gefst ekki upp
þótt á móti blási. Síðari hlutinn er
sýndur næsta kvöld.
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER
|f| 01 nn ►F|ökku|íf (The Battl-
lll. 4 1.1111 ers) Síðari hluti ástr-
alskrar sjónvarpsmyndar sem gerist í
kreppunni miklu árið 1934 og fjallar
um fólk sem gefst ekki upp þótt á
móti blási.
M 99 4(i ►Ran (Ran)
■ LLm'iv Frönsk/japönsk bíó-
mynd frá 1985 byggð á leikriti Shake-
speares um Lé konung.
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER I
Hnn 1 C ►Wendemi (Wendemi
.44.19 - L’ Enfant du bon
dieu) Frönsk bíómynd frá 1993 sem
gerist í Afríku og spannar 20 ár í lífí
piltsins Wendemi. Myndin var valin
til sýningar á kvikmyndahátíðinni í
Cannes 1993.
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER
|f| n 1 nr ►( sólskinsskapi (The
M. 4 I.U9 Sunshine Boys)
Bandarísk gamanmynd frá 1975.
Tveir gamlir grínleikarar og óvinir úr
fjöllistaheiminum lenda saman í sjón-
varpsþætti.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER
W91 Ijl^ Uppinn (Out on a
. 4 I ■ IU Limb) Gamanmynd
um kaupsýslumanninn BiII Campbell
sem er að ganga frá milljóna dala
samningi þegar hann fær neyðarkall
frá systursinni. Billfellst á aðskreppa
til smábæjarins Buzzsaw til að hugga
systu en upp til sveita er ekkert sem
sýnist og dreifbýlislífið er meira en
margur ræður við.
j ►Rappararnir CB4
(CB4) Gamansöm
mynd um æðið í kringum rapp og hip-
hop-tónlistina. Hér segir af þremur
vinum sem dreymir um frægð og
frama. Einn þeirra verður óvart valdur
að því að bófaforingjanum Gusto er
stungið í steininn og ákveður að taka
upp nafn hans og siði. Strákamir eru
allt í einu orðnir alræmdir og vinsæld-
imar láta ekki á sér standa. En það
versnar í því þegar hinn sanni Gusto
er látinn laus.
Kl. 22.35'
STÖÐ TVÖ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER
W91 9 C ► Vilji er allt sem þarf
. 4 1.49 (Wild Hearts Can’t
Be Broken) Merkileg saga Sonoru
Webster sem dreymdi um að komast
burt frá heimabæ sínum í Georgiu og
sótti um að fá að leika áhættuatriði
í farandsýningu. Hún svaraði auglýs-
ingu þar sem auglýst var eftir stúlku
til að stökkva á hestbaki ofan af 40
feta háum palli ofan í vatn. Þegar til
kom þótti engum hún vera rétta mann-
eskjan í starfið en Sonora var ekki
af baki dottin og átti eftir að sýna
hvað í henni bjó.
►Jerikó-veikin (Jeric-
Kl. 22.55
spennandi mynd um hóp hryðjuverka-
manna sem hefur sýkst af áður
óþekktri en banvænni veiki. Fautamir
myrða samningamenn Palestínuaraba
og Israela í Mexíkóborg og flýja síðan
yfír landamærin til Bandaríkjanna.
Smám saman breiðist veikin út um
Suðvesturríkin og allt kapp er lagt á
að hafa upp á hryðjuverkamönnunum
svo koma megi í veg fyrir bráðdrep-
andi faraldur. Stranglega bönnuð
bömum.
Ifl II Cfl ►Einn á móti öllum
III. U.9U (Hard Target) Há-
spennumynd með Jean-Claude Van
Damme um sjóarann Chance sem
bjargar ungri konu úr klóm blóð-
þyrstra fanta en þeir gera sér leik að
því að drepa heimilislausa í New Orle-
ans. Stranglega bönnuð bömum.
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER
W9fl CC ►Saitbragð hörunds-
. 4U.99 ins (Salt on our Skin)
Rómantísk og hrífandi mynd um sjóð-
heitt ástarsamband frönsku mennta-
konunnar George McEwan og skoska
sjómannsins Gavins McCall. Samband
þeirra stóð í tæpa þrjá áratugi en var
þó aldrei annað en holdlegt. Stéttar-
staða þeirra og hugarfar stíaði þeim
í sundur.
VI 9Q QC ►Sjónarvotturinn
Hl. 49.99 (Fade to Black)
Spennumynd um Del Calvin sem skrá-
ir athafnir nágranna sinna á mynd-
band. Kvöld eitt kveikir hann á töku-
vélinni sem er beint að íbúð snoturrar
ljósku. Del bregður þegar hann sér
karlmann myrða ljóskuna en þegar
hann kallar til lögregluna er lítill trún-
aður lagður á sögu hans. Bönnuð börn-
um.
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER |
VI 9Q QC ►Myrkar minningar
™ í. 49.99 (Fatal Memories)
Sannsöguleg mynd um Eileen Frankl-
in-Lipsker sem hefur snúið baki við
hrikalegri æsku sinni og lifir nú ham-
ingjusömu lífi ásamt eiginmanni sínum
og tveimur börnum. Hún hefur lokað
á myrkar minningar úr fortíðinni og
leiðir aldrei hugann að bamæsku sinni.
Fjölskyldu hennar gengur allt í haginn
þar til minningabrot koma upp á yfir-
borðið. Bönnuo börnum.
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER
VI 9Q 9(1 ►Farþegi 57 (Passen-
III. 49.4U ger 57) Hversdagsleg
flugferð snýst upp í mikla háskaför
þegar Charles Rane, hryðjuverkamað-
ur sem verið er að flytja frá Flórída
til Los Angeles, sleppur úr vörslu lög-
reglumanna og nær yfirráðum um
borð í vélinni. Eini maðurinn sem get-
ur komið í veg fyrir djöfulleg áform
Ranes er John Cutter en hann er sér-
þjálfaður í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum. Stranglega bönnuð
bömum.
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER
B9Q Qn ►Tango og Cash
• 49.9U Gamansöm kvikmynd
um rannsóknarlöggurnar Ray Tango
og Gabe Cash. Það sem þeir eiga sam-
eiginlegt er að telja sig bestu löggur
sem völ er á og helsti óvinur þeirra
er eiturlyfjabaróninn Yves Perret sem
er valdur að því að þeir em í fang-
elsi. Til að sleppa lifandi frá fangelsis-
vistinni bijótast þeir út til að hreinsa
mannorð sitt og það gengur á ýmsu.
Stranglega bönnuð börnum.
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER
W99 nn ►Vítavert athæfi
• 44.UU (Gross Misconduct)
Háskólaprófessorinn Justin Thome
nýtur mikillar virðingar meðal nem-
enda sinna og það er ekki laust við
að starfsbræður hans öfundi hann.
En ferli Justins og fjölskyldu er ógnað
þegar draumórar ungrar stúlku í nem-
endahópnum breytast í þráhyggju.
Freistingin verður mönnum að falli.
Stranglega bönnuð börnum.
W9Q ill ►SólstingurfSunstro-
■ 49.*»U kojSpennumynd
meðJane Seymoun hlutverki ungrar
konu sem á ferð sinni tekur puttaling
upp í bílinn sinn. Þegar hann finnst
myrtur daginn eftir beinist gmnur
lögreglunnar að henni en þar með em
ekki öll kurl komin til grafar. Bönnuð
börnum.
BIOIN I BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Englendingurinn sem fór upp
hæðina en kom niður fjallið ir k
Tveir Englendingar kynnast smábæ-
jarlífi í Wales sem er um margt skrýt-
ið og skemmtilegt. Myndin notarleg
en átakalaus og minnir um of á sjón-
varpsefni.
Að eilífu Batman k * k
Dökk en ekki dmngaleg og mun
hressilegrí en forverarnir. Auðgleymd
en bráðfjömg á meðan á henni stend-
ur.
Meðan þú svafst k k
Ósköp sæt gamanmynd um óvenjuleg
ástarmál piparmeyjar. Einkennist
fullmikið af almennu dáðleysi til að
komast uppúr meðalmennskunni.
BÍÓHÖLLIN
Kongó k/2
Brellurnar eru flottar, sömuleiðis kvik-
myndatakan og tónlistin. Metsölubók-
in hans Crichtons um demantanámur
og náttúmhamfarir í Afríku hefur
myndast illa og leikhópurinn er afleit-
ur.
Skriðdrekaskvísan 'A
Vita vonlaus framtíðargamantryllir um
unga stúlku og skriðdrekann hennar.
Konungur Ijónanna k-k-k
Frábærlega gerð Disneyteiknimynd
um ljónsunga á hrakningi. Gamal-
kunnir Disneytöframir sjá um að
skemmta ungum sem öldnum.
HÁSKÓLABÍÓ
Kongó k/i
Brellumar em fiottar, sömuleiðis kvik-
myndatakan og tónlistin. Metsölubók-
in hans Crichtons um demantanámur
og náttúmhamfarir í Afríku hefur
myndast illa og leikhópurinn er afleit-
ur.
Franskur koss k k'h
Kaflaskipt rómantísk gamanmynd þar
sem Kevin Kline heldur hlutunum á
floti. Aðrir fá bragðminni texta í þess-
ari nýjustu mynd Lawrence Kasdans,
sem ömgglega gerir meiri lukku hjá
konum en körlum.
Jack og Sara k k
Bretum gengur ekki hótinu skár en
Bandaríkjamönnum að endurskapa
sorgir og gleði mannlífsins á raun-
sannan hátt. Myndin snertir áhorfand-
ann furðu lítið þrátt fyrir hádrama-
tískt efnið.
Tommy kallinn k k
Tilþrifalítil gamanmynd sem gerir út
á heimskupör í anda Veraldar Waynes.
Brúðkaup Muriel kkk
Oft sprenghlægileg áströlsk gaman-
mynd um stelpu sem vill giftast og
telur lykilinn að lífsgátunni felast í
Abbasöngvum. Góða skemmtun.
Skógardýrið Húgó k k
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum vomm og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og ýndisauka
en hinum fullorðnu mest til angurs og
armæðu.
LAUGARÁSBÍÓ
„Major Payne“ k'A
Damon Wayans er oft spaugilegur í
mynd um nk. Rambó sem tekur að
sér að þjálfa drengjaflokk og allir sigra
að lokum.
Johnny Mnemonic k k
Sendlar framtíðarinnar nota á sér
heilabúið eins og harðan disk í þess-
ari vísindaskáldskaparmynd sem
byggð er á góðri hugmynd en er lang-
dregin og innantóm. Grafíkin vel unn-
in.
Don Juan DeMarco k k'A
Johnny Depp fer á kostum í hlutverki
elskhugans mikla Don Juan í smellinni
og grátbroslegri mynd um ástina.
Marlon Brando kryddar myndina en
þáttur hans og Faye Dunaway er held-
ur til baga.
Heimskur heimskari kkk
Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á
langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og
Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífið.
REGNBOGINN
Dolores Claiborne kkk
Kathy Bates fer á kostum í spennu-
mynd byggðri á sögu Stephen Kings
um móður sem sökuð er um morð.
Leikstjórinn, Taylor Hackford, leggur
ekki síst áherslu á feminíska þætti
sögunnar af konum í karlrembusamfé-
lagi. Veikasti hlekkurinn er Jennifer
Jason Leigh í hlutverki dótturinnar.
Gleymum París kk'A
Skemmtileg rómantísk gamanmynd
um raunir hjónalífsins í nútímanum.
Ófáir brandarar stytta manni stundir
og efnistökin eru alltaf geðþekk.
Geggjun Georgs konungs kkk
Nigel Hawthorne fer á kostum sem
Georg III í skemmtilega kaldhæðnis-
legri úttekt á erfiðu tímabili bresku
konungsfjölskyldunnar fyrr á tímum.
Merkilegt hvað lítið hefur í raun breyst
í þessum dularfulla konungsgarði.
Raunir einstæðra feðra k
Þrír fráskildir feður gera upp sín mál
í amerískri fjölskylduvellu.
Eitt sinn stríðsmenn k k k'A
Raunsæ og vægðarlaus lýsing á fjöl-
skyldulífí í fátækrahverfi á Nýja-Sjá-
landi. Ofbeldi, óregla og aðrir lestir
eru ekki teknir neinum vettlingatök-
um, björtu hliðarnar gleymast heldur
ekki.
SAGABÍÓ
Tveir með öllu k k'A
Líklega besta svertingjahasarmynd
sem komið hefur hingað í langan tíma.
Formúluafþreying að sönnu en
skemmtigildið er ósvikið.
„Die Hard 3“ kkk
Hörkugóður hasartryllir sem segir í
þriðja sinn af Bruce Willis í gengdar-
lausum eltingarleik' við illmenni.
Samuel L. Jackson ómetanlegur sem
félagi hans og Jeremy Irons er höfuðó-
þokkinn. Fínasta sumarbíó.
STJÖRNUBÍÓ
Einkalíf kk
Þráinn Bertelsson gerir unglinga-
menningunni, kynslóðabilinu og gam-
ansögum af íslendingum skil í brota-
kenndri gamanmynd, sem á að höfða
mest til unglinga.
Fremstur ríddara kkk
Ævintýrið um konungshjónin í Came-
lot fært í glæsilegan Hollywoodbúning
þar sem afþreyingargildið er sett ofar
öllu. Sean Connery og Juiia Ormond
frábær í hlutverkum sínum. Lífleg
skemmtun.
Æðri menntun k'A
John Singleton lýsir lífinu í fjölþjóðleg-
um háskóla en hefur ekki erindi sem
erfiði því myndin er klisjukennd og
óspennandi.
Litlar konur kkk'A
Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg
mynd um fjölskyldulíf á Nýja-Eng-
landi á öldinni sem leið. Winona Ryder
fer fremst í flokki afburðaleikara.