Morgunblaðið - 31.08.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995 C 7 '
SUNIMUDAGUR 3/9
Zhivago
læknir
þrítugur
Á SÍÐARI helmingi
6. áratugarins var
handriti Boris Past-
emak að Zhivago
lækni smyglað frá
Sovétríkjurium til
Vesturlanda, þar sem
skrifin vöktu almenna
ánægju almennings
og gagmýnenda.
Bókin, sem var um
margt Ijóðrænt til-
brigði við stóru rúss-
nesku skáldsöguna á
19. öld, lýsti vel
valdatöku bolsévikka
og margvíslegu harð-
ræði sem þegnamir
vom beittir undir
stjóm kommúnjsta. Hún var því bönn-
uð í Sovétríkjunum en þjónaði vel sem
áróðurstæki Vesturveldanna á köld-
ustu tímum kalda stríðsins.
Leiður á körlum
Pastemak fékk Nóbelsverðlaunin
1958 en neitaði að taka við þeim,
þökk sé þrýstingi stjómarherra í
Kreml. Breski stórmyndaleikstjórinn
David Lean sá margvíslega möguleika
í sögunni, þótt menn hafi stundum
velt því fyrir sér afhveiju læknirinn
ágæti varð fyrir valinu eftir vinsældir
Brúarinnar yfir Kwaifljótið og Arabíu-
Lawrence. Það var alls ekki árennilegt
verk að kvikmynda Zhivago, en
kannski var það einmitt áskorunin sem
sannfærði Lean um að þessi bók ætti
að birtast á hvíta tjaldinu.
„Ég hef gett tvær kvikmyndir sem
vom eingöngu um karlmenn og _er
orðinn frekar leiður á körlunum. Ég
vil snúa mér aftur að konunum," sagði
Lean og meðhöndlaði efnið eins og
um ástarsögu væri að ræða. Þokkadís-
jmar Julie Christie og Geraldine Chapl-
in urðu þess heiðurs aðnjótandi að
gæða myndina nægjanlegum kven-
leika. Bob O’Brien, þáverandi forseti
MGM-kvikmyndaversins reyndi að
vísu að sannfæra Lean um að ítalska
gyðjan Sophia Loren ætti að leika á
móti lækninum, ekki síst þar sem hún
var eiginkona Cárlo'
Ponti, framleiðanda
myndarinnar. Loren
stóð þá á þrítugu og
var tálkvendið upp-
málað. Lean sagðist
þó ráða hana í hlut-
verkið án nokkurs
hiks, „að því tilskildu
að þú sannfærir mig.
um að hún geti leikið
sautján ára gamla
jómfrú.“ Christie var
ráðin.
Lean bað handrits-
höfundinn Richard
Bolt að breyta skáld-
sögunni í nothæft
kvikmyndahandrit.
Eftir nokkra yfírlegu taldi Bolt að
væri sögunni leyft að halda sér í smá-
atriðum, myndi kvikmyndin verða um
45 klukkustundir að lengd. Það var
ekki fýsilegur kostur og því tók Bolt
upp tálgunarhnífínn, breytti persónum,
bætti við atriðum, skar niður og gerði
annað það sem nauðsyn krafði, sem
var meðal annars að sýna verki Past-
emak hóflega virðingu.
„Ekki sérlega spennandi"
Lean vildi að Peter O’Toole léki
Júrí Zhivago, enda hafði samstarf
þeirra borið góðan ávöxt í Arabíu-
Lárusi, en leikarinn hafnaði boðinu og
lýsti handritinu sem „þvælu“. Lean
og O’Toole töluðustu ekki við í tvo
áratugi eftir þessa ákvörðun og um-
mæli leikarans, þótt svo að leikstjórinn
viðurkenndi síðar að kannski hefði sá
síðamefndi haft nokkuð til síns máls.
Hann varði verkið þó hetjulega en
skrifaði að „stærsta vandamálið í sam-
bandi við Zhivago var að aðalpersónan
var ekki sérlega spennandi". Omar
Sharif hreppti aðalhlutverkið í mynd-
inni sem gagnrýnendur kölluðu Á
hverfandi hveli á ísbreiðu, henni til
háðungar.
„Myndin er varla annað en sápu-
ópera í skrautbúningi," sagði Judith
Christ, gagnrýnandi The Herald Tri-
bune þegar myndin var fmmsýnd i
Meðfullum
trúnaði við sög-
una hefði mynd-
in orðið 45
klukkustundir
að lengd
New York í desember 1965. Almenn-
ingur tók myndinni hins vegar opnum
örmum, eftir nokkurt hik og gríðarlega
auglýsingaherferð, og minnast margir
hennar með hlýhug. Hún hlaut fimm
Oskars-verðlaun og gróðinn var ríflega
200 milljónir dala á heimsvísu. For-
stjórar MGM-kvikmyndaversins önd-
uðu léttar og Lean uppskar sjálfur 10
milljónir dala fyrir vikið, þökk sé ein-
stæðum samningi sem umboðsmaður
hans hafði gert. Þegar haft er í huga
að myndin kostaði 15 milljónir dala,
á verðlagi þess tíma, voru það ekki
slæm iaun og ágætar sárabætur fyrir
kuldalegar móttökur gagnrýnenda.
Tónaflóð drekkti lækninum
Lean var þó lengi vel svo sannfærð-
ur um ágæti myndarinnar að við Ósk-
ars-verðlaunaafhendinguna var hann
risinn úr sæti sínu áður en tilkynnt
var hver fengi verðlaun fyrir bestu
leikstjóm — verðlaun sem hann hafði
hreppt tvívegis áður. Hann var þó fljót-
ur að tylla sér aftur þegar í ljós kom
að Robert Wise bæri sigur úr býtum
fyrir Tónaflóð þar sem Julie Andrews
hljóp um svissnesku Alpanna syngj-
andi vandaða lyftutónlist.
Utvarp
RÁS 1
FM 92,4/93,5
8.07 Morgunandakt: Séra Tómas
Guðmundsson flytur.
8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni.
— Konsert í a-moll fyrir piccolo-
flautu, strengi og fylgirödd eftir
Antonio Vivaldi. Hans Wolfgang
Dunschede, Wolfgang Guttler
og Miyuki Motoi leika með Fíl-
harinóníu - kvartettinum.
— Konsert í B-dúr fyrir seiló og
strengjaaveit eftir Luigi Bocc-
herini. Yuli Turovsky leikur á
selló með I Musiei kammersveit-
inni í Montreal.
— Sinfónía nómer S í C-dúr eftir
Carl Pbilipp Emanrrei Baeh.
JEpglish Cpncerl svoitin leikuj';
Trevor Pinnpds leikur á sembaL
og stjórnar.
9.03 Stuhdarkorn J dúr og moll.
Þáttur Knúts "R. Magnússonar
(Einnig útvarjiað að loknum
fréttum á miðnætti).
10.03 Veðurfregnir.
10.20 Að skapa og endurskapa.
Ljóðaþýðingar eftir seinni
heimsstyrjöld. Annar þáttur: Jón
úr Vör og Einar Bragi. Umsjón:
Gunnar Stefánsson. Lesari: Val-
gerður Benediktsdóttir.
11.00 Messa í Patreksfjarðar-
kirkju Séra Hannes Björnsson
prédikar.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.45 Veðurfregnir, auglýsingar
og tónlist.
13.00 TónVakinn 1995. Tónlistar-
verðlaun Ríkisútvarpsins Fjórði
keppandi af sex: Jón Rósmann
Mýrdal söngvari. Ólafur Vignir
Albertsson leikur meðá píanó.
Kynnir: Finnur Torfi Stefánsson
Umsjón: Dr. Guðmundur Emils-
son.
14.00 „Flýttu þér uppá miðjan
Vatnajökul, þá geturðu orðið
skáld" Þáttur um Þórunni Elfu
Magnúsdóttur, rithöfund. Um-
sjón: Soffía Auður Birgisdóttir.
15.00 Þú, dýra list. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. (Endurflutt nk.
miðvikudagskvöld kl. 20.00)
16.05 Svipmynd af Katrfnu Briem.
-Umsjón: Anna Ólafsdóttár
Björnsson.
17X0 Setningarathöfn RúRek
19145. 'Bein útsending fr'á Ráð-
-húsi Reýkjavíkur. Kynnir: Vem-
hayður -Linnet -Umsjón: Dr .
Guðmundur Emiisson.
18.00 Smásaga, Ævintýri Anders-
ens. Svanhildur Óskarsdóttir les
Önnu Lfsbet eftir H. C. Anders-
en í fslenskri þýðingu Steingrims
Thorsteinssonar. (Áður á dag-
skrá sl. föstudag.)
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.30 Veðurfregnir.
19.40 Æskumenning. Svipmyndir
af menningu og lífsháttum ungl-
inga á ýmsum stöðum. 7. þátt-
ur: Ungur í borg. Umsjón: Gest-
ur Guðmundsson. (Aður á dag-
skrá í maí 1994).
20.20 Hljómplöturabb. Þorsteins
Hannessonar.
21.00 Út um græna grundu. Þátt-
ur um náttúruna, umhverfið og
ferðamál. Umsjón: Steinunn
Harðardóttir. (Áður á dagskrá í
gærmorgun)
22.10 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.15 Tónlist á síðkvöldi.
— Sónata í D-dúr ópus 94 fyrir
flautu og pianó eftir Sergei Pro-
kofiev. Manuela Wiesler leikur
á flautu og Roland Pöntinen á
píanó.
— Sónata númer 2 ópus 36
— Prelúdía í gís-moll,ópus 32
númer 12 eftir Sergei Rachman-
inov. Héléne Grimaud leikur á
píanó.
23.00 RúRek 1995. Bein útsend-
ing frá tónleikura í Iieikhúskjall-
aranum. Jesper Tliilo/Bent J»d-
ig kvintettinn leikur Kynnir:
Vernharður Linnet. Um^jöiK.Dr.
Guðniuhdur Emilsson.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni).
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns Veðurspá.
Fréttir á RÁS 1 kl. 8, 9. 10, 12.20,
16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.07 Morguntónar fyrir yngstu
börnin. 9.03 Sunnudagsmorgunn
með Svavari Gests. 11.00 Urval
dægurmálaútvarps liðinnar viku.
13.00 Til sjávar og sveita. Fjalar
Sigurðsson. 15.00 Gamlar syndir.
Umsjón: Árni Þórarinsson. 17.00
Tengja. Umsjón: Kristján Sigur-
jónsson. 19.32 Milli steins og
sleggju. 20.30 Úr ýmsum áttum.
Andrea Jónsdóttir. 22.10 Meistara-
taktar. Umsjón: Guðni Már Henn-
ingsson. O.lOSumartónar. 1.00
Næturútvarp á samtengdum rásum
til morguns. Veðurspá. Næturtón-
ar.
Fréttir RÁS 2 kl. 8, 9. 10, 12.20,
16, 19, 22 og 24.
NJETURÚTVMtPW
2.00 Fréttir. 2.05 Fimm á fjórðu.
Djass í umsjón Lönu Kolbrúnar
Eddudóttur. 3.00 Næturtónar. 4.30
Veðurfregnir. 4.40 Næturtónár.
5.00 Fréttir. 5.05 Stund með Pink
Floyd. 6.00 Fréttir, Veður, færð og
Jlugsamgöngur. 6.05 Hehnúr
harmónikkunnar. Úmsjón-; Reynir'
Jónasson. -6.45 Veðurfréttir.
ADÁLSTÖBIN
FM 90,9 / 103,2
10.00 Rólegur sunnudagsmorgun.
12.00 Bjarni Arason. 16.00 Inga
Rún. 19.00 Magnús Þórsson. 22.00
Lífslindin. 24.00 Ókynnt tónlist.
BYLGJAN
FM 98,9
10.00 Morgunkaffi. 12.15 Hádeg-
istónar 13.00 Sunnudagsfléttan.
Halldór Bachman. 17.00 Við hey-
garðshornið. Bjarni Dagur Jóns-
son. 19.19 19:19 20.00 Sunnu-
dagskvöld með Jóhanni Jóhanns-
syni. 1.00 Næturhrafninn flýgur.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BROSIÐ
FM 96,7
3.00 Ókynntir tónar. 10.00 Tónlist-
arkrossgáta Jóns Gröndals. 12.00
Gylfi Guðmundsson. 17.00 Ókynnt-
ir tónar. 20.00 Lára Yngvadóttir.
22.00Helgi Helgason. 3.00
Ókynntir tónar.
KLASSÍK
FM 106,8
lO.OOTónlist og spjall. Hinrik Ól-
afsson. 12.00 Blönduð tóolist.
16.00 Ópera vikunnar. Randver
Þorláksson, llinrik ÓlafSson. 18.30
Blönduð tónliet.
UNDIN
CM 702,9 ' .
3.00 Tóhlist. 9.00 Iöfkjpdagskrá.
11.00 TónMst. '13.00. lUrkjudag-
skrá. 15.00 Tónliet. jý.OO JÍirkju-
dagskrá. 19.00 Tónlist. 21.00 Ró-
legt og fræðandi.
SÍGILT-FM
FM 94,3
9.00Sunnudagstónleikar. ,12.00
Sígilt í hádeginu. 13.00 Sunnu-
dagskonsert. 16.00 íslenskir tónar.
18.00 Ljúfir tónar. 21.00 Tónleik-
ar. 24.00 Næturtónar.
FM 957
FM 95,7
10.00 llelga Sigrún Harðardóttir.
13.00 Ragnar Bjarnason. 16.00-
Sunnudagssíðdegi með Jóhanni
Jóhannssyni. 19.00 Ásgeir Kol-
beinsson. 22.00 Þórhallur Guð-
mundsson.
Raggi Bjarna mætir til leiks kl.
13 í dag ó FM957. Gestur Ragnars
er Þórhallur Guémundsson miiili.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Siggi Sveins. 17.00 Hvita
tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00 Súr-
mjólk. 1.00 Næturdagskrá.