Morgunblaðið - 01.09.1995, Side 1
104 SÍÐUR B/C/D
197. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
NATO segist hafa valdið serbneska hernum í Bosníu miklu tjóni
Árásunum verður hætt
þegar umsátrínu linnir
Sar^jevo, Belgrad, Brussel, Kaupmannahöfn. Reuter.
Reuter
FLUGSKEYTI sett í herþotu á bandaríska flugvélamóðurskipinu
Theodore Roosevelt. Meira en 60 herþotur hafa gert árásir á
serbnesk skotmörk í Bosníu frá skipinu og flugvöllum á Italíu.
HERÞOTUR Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) héldu áfram árásum á
serbnesk skotmörk í Bosníu í gær.
Bandalagið sagði að loftárásunum
yrði ekki hætt fyrr en Serbar afléttu
umsátrinu um Sárajevo og flyttu
þungavopn sín frá borginni. Leighton
Smith, yfírmaður herafla NATO í
Suður-Evrópu, sagði að árásirnar
hefðu valdið Serbum miklu tjóni og
þeim myndi ekki linna fyrr en tryggt
væri að Sarajevo og öðrum griða-
svæðum stafaði ekki lengur hætta
af þeim.
Embættismenn NATO í Brussel
vildu ekki skýra frá því hvar loftárás-
irnar í gær voru gerðar. Fréttastofa
Bosníu-Serba, SRNA, sagði að her-
þoturnar hefðu varpað sprengjum á
skotmörk norðaustan við Sarajevo.
Leighton Smith skýrði frá því í gær-
morgun að herþotur bandalagsins
hefðu farið í 300 árásarferðir frá því
á miðvikudag.
Flugmanna leitað
Sjónvarp Bosníu-Serba sýndi
myndir af fimm eftirlitsmönnum
Evrópusambandsins, sem áður voru
sagðir hafa fallið í loftárásunum.
Serbneskur embættismaður sagði að
þeim hefði verið leyft að fara af yfir-
ráðasvæði Serba.
Serbnesk yfirvöld í Bosníu létu
einnig lausa fjóra fréttamenn, sem
höfðu verið í haldi þeirra í sólar-
hring. Þau sögðu að mennirnir hefðu
verið handteknir vegna misskilnings.
NATO hefur hafið viðamikla leit
að tveim frönskum flugmönnum her-
þotu, sem Serbar skutu niður á mið-
vikudag. Varnarmálaráðherra
Frakklands sagði að þeir hefðu lent
í fallhlíf og Serbar ekki fundið þá.
Holbrooke vongóður um frið
Richard Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, sagði að líkurnar
á því að friðarumleitanir tækjust
hefðu aukist verulega eftir að
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
tilkynnti að Bosníu-Serbar hefðu
veitt honum neitunarvald yfir skil-
málum friðarsamkomulags fyrir
þeirra hönd. Muhamed Sacirbey, ut-
anríkisráðherra Serbíu, lét hins vegar
í ljós efasemdir um að Bosníu-Serbar
væru í raun reiðubúnir að semja um
frið og hvatti NATO til að halda
ioftárásunum áfram.
Svo virtist sem kominn væri upp
ágreiningur milli Frakka og Breta
um hvert lokamarkmið loftárásanna
væri. Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sagði að NATO ætti ekki að
sætta sig við að Serbar flyttu aðeins
þungavopn sín frá Sarajevo. Binda
þyrfti enda á umsátur þeirra í eitt
skipti fyrir öll.
Michael Portillo, varnarmálaráð-
herra Bretlands, kvaðst ekki geta
tekið undir þetta. „Markmið okkar
er að tryggja öryggi Sarajevo og það
getum við gert annaðhvort með því
að eyðileggja stórskotavopnin eða
knýja Serba til að fjarlægja þau.“
Utanríkisráðherrar Norðurland-
anna gáfu í gær út sameiginlega
yfirlýsingu þar sem þeir létu í ljós
stuðning við loftárásirnar.
Rússneska utanríkisráðuneytið
hvatti hins vegar NATO til að hætta
árásunum þar sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hefði ekki heimilað
þær. Áður hafði hátt settur embætt-
ismaður í ráðuneytinu látið svo um
mælt að Serbar gætu sjálfum sér
um kennt þar sem þeir hefðu „farið
yfir mörkin" með sprengjuárásinni á
Sarajevo á mánudag sem kostaði 37
manns lífið.
■ Sakaður um leynisamning/18
■ Friðargæslu SÞ er lokið/26
Tíbetar á kvennaráðstefnunni í Kína
„Hættuferð inn
á óvinasvæði“
Huairou. Reuter.
ANDRÚMSLOFTIÐ var lævi
blandið á óopinberu kvennaráð-
stefnunni í Huairou í Kína í gær
þegar hópur tíbetskra kvenna, sem
fylgja Dalai Lama að málum, sýndi
myndband til stuðnings málstað
sínum. Kínversk yfirvöld minntust
þess í gær að 30 ár eru liðin frá
því að Kínveijar tóku sér alræðis-
vald í Tíbet. Hétu þau því að bijóta
á bak aftur allar tilraunir fylgis-
manna Dalai Lama, hins útlæga
trúarleiðtoga Tíbeta, til að öðlast
sjálfstæði. Hafði ríkissjónvarpið
þetta eftir Wu Bangguo, varafor-
seta Kína.
Aðeins níu af 26 tíbetskum kon-
um, sem óskuðu eftir vegabréfs-
áritun til Kína, fengu hana. Þegar
við komuna til landsins fundu þær
fyrir óvild yfirvalda en allur farang-
ur þeirra var grandskoðaður og
fyigst hefur verið grannt með ferð-
um þeirra.
Konurnar sýndu í gær myndband
fyrir troðfullum sal, þar sem m.a.
er rætt við tíbetskar konur og
brugðið upp myndum af Dalai
Lama. Myndbandið var sýnt á hót-
eli og um leið og því var lokið þustu
hótelstarfsmenn til og fjarlægðu
það úr tækinu. Lá við handalögmál-
um vegna þessa. „Þetta er hættu-
ferð inn á óvinasvæði og okkur líð-
ur ekki vel hér,“ sagði Yodon
Thonden, ein kvennanna.
■ Amnesty mótmælir/19
Lengsta hetju-
Ijóðsins minnst
ALDRAÐUR Kirgísi ríður hesti
og heldur á gullerni á hátíð sem
haldin er í Kirgisíu í tilefni af
þúsund ára afmæli Manas, lengsta
hetjuljóðs heims. Ljóðið fjallar um
kirgíska þjóðlietju sem lést árið
23 fyrir Krist. Kirgísar eru ísl-
amskir mongólar og tala tyrkn-
eskt mál. Þeir stunduðu lengst af
hjarðmennsku og þóttu snjallir
hestamenn en hafa nú flestir sest
að á akuryrkjusvæðum.
Reuter
Georgía
Vopn gerð
upptæk í
þinghúsi
Tbilisi. Reuter.
LÖGREGLA í Tbilisi hefur handtek-
ið aðstoðarmann eins af andstæðing-
um Edúards Shevardnadzes, leið-
toga Georgíu, og gerði jafnframt
upptæk vopn og lyf. Saksóknari í
borginni upplýsti þetta í gær. Vopn-
in fundust á skrifstofu þingmannsins
Jaba Ioseliani þegar gerð var leit í
þinghúsinu í von um vísbendingar
vegna sprengjutilræðisins við Shev-
ardnadze á þriðjudag.
Ioseiiani var eitt sinn samhetji
Shevardnadzes en er nú harður and-
stæðingur hans og fer fyrir vopnuð-
um sveitum sem nefnast Mkhedri-
oni. Að sögn talsmanns saksóknar-
ans eru ekki uppi nein áform um
að handtaka þingmanninn. Á skrif-
stofu hans fundust 28 sjálfvirkir
rifflar, fjórar skammbyssur, hand-
sprengjur og mikið magn skotfæra.
Þá voru gerðar upptækar kódeintöfl-
ur, morfínhylki, önnur deyfilyf og
reiðufé.
Tengist tilræðið
glæpastarfsemi?
Shevardnadze sagði í samtali við
georgíska sjónvarpsmenn að ætlunin
hefði verið að ryðja honum úr vegi
vegna baráttu hans gegn glæpum,
en hann hefur sakað samtök Iosel-
ianis um að standa að skipulagðri
glæpastarfsemi. Mkhedrioni-sam-
tökin áttu ríkan þátt í því að velta
Zviad Gamsakhurdia úr leiðtogastóli
árið 1992 og koma Shevardnadze
til valda áður en leiðir skildu.
„Trabba“
oftast
stolið
Bonn. Reuter.
ÞÓTT eigendur austur-þýsku
Trabant-bifreiðanna hafi mátt
þola háðsglósur virðist sem
margir Þjóðveijar vilji komast
í þeirra hóp. Að minnsta kosti
er Trabant sú bifreiðategund,
sem oftast er stolið í Þýska-
landi.
Samkvæmt tölum, sem
samtök þýskra tryggingafé-
laga birtu í gær, var 17 af
hveijum þúsund Trabant-bif-
reiðum á tryggingaskrá stolið
í fyrra. Er það nokkuð minna
en árið áður en þá var 18,1
bifreið af þúsund stolið.
I öðru sæti eru rússnesku
Lada-bifreiðirnar en 11 Lödum
af þúsund var stolið í fyrra.
Wartburg, önnur austur -þýsk
bílategund, er í þriðja sæti.
Þó að Porsche-bifreiðir séu
ekki nema í fjórða sæti listans
et' kostnaður tryggingafélaga
vegna Porsche-stulda veruleg-
ur. Þeir sem verða fyrir því
að Trabant þeirra sé stolið
fara að meðaltali fram á 2.200
marka bætur en Porsche-eig-
endur heil 50 þúsund mörk.