Morgunblaðið - 02.09.1995, Blaðsíða 1
• Pilturinn þótti efnilegur/2
• Magnaðar kolldýfur/4
• Ævintýrahöllin/8
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
BLAÐ
1 1
f j T 1' 2
Verðlaunahöfundur afhjúpaður
Endurminningar
föðurins upp-
spuni frá rótum
Sydney. Reuter.
ENGINN gerði sér
grein fyrir því
hversu metnaðar-
fullt verk Helen
Demidenko hafði
skapað - ekki einu
sinni dómnefndin
sem veitti henni ein
af þremur virtustu
bókmenntaverðlaun-
um Ástrala. Höfund-
urinn, sem er 24 ára,
sagði endurminning-
ar föður hennar,
úkraínsks k leigubíl-
stjóra, hafa verið
kveikjuna að bókinni
„The Hand That
Signed the Paper“,
sem er frásögn af Helförinni, séðri
með augum Úkraínumanna sem
studdu grimmdarverk nasista gegn
gyðingum. Nú hefur komið í ljós
að verkið var skáldskapur frá upp-
hafi til enda og á höfundurinn yfir
höfði sér ákæru um ritstuld.
Sumir lesendur höfðu reyndar
kvartað yfir sögulegri ónákvæmni
í bókinni, öðrum þótti ósmekklegt
hversu mikla samúð höfundur
hafði með fólki sem framið hafði
stríðsglæpi, að því er segir í nýj-
asta hefti Newsweek. Demidenko
svaraði því til að hún hefði verið
eins trú efninu og mögulegt væri,
atburðir og viðhorf sem lýst væri
í bókinni, væru byggð á sögum sem
sagðar hefðu verið í fjölskyldunni.
I síðustu viku fór höfundurinn
hins vegar í felur og Ástralir sem
ekki höfðu lesið bók-
ina, þyrptust í bóka-
búðir til að kaupa ein-
tak. Dóttir hins ólæsá
úkraínska innflytj-
anda, Markovs
Demidenkos, hafði
reynst heita Helen
Darville og vera af
ensku foreldri. Hinn
vinhneigði faðir
hennar, leigubíllinn
hans og uppvöxtur
hennar í sárri fátækt
voru uppspuni frá rót-
um. Bróðir höfundar-
ins, Ian, lýsti máiinu
öllu sem „mikilli
markaðstilraun“.
Sjálf bað Darville úkraínska inn-
flytjendur í Ástralíu afsökunar og
sagðist aldrei hafa ætlað að afsaka
helförina. Ólíklegt þykir að hún
muni halda bókmenntaverðlaunun-
um, þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra
sem verðlaunin veittu um að „bók-
in hefði hlotið verðlaunin á eigin
verðleikum".
Bókaútgáfan, Allen & Unwin,
hefur frestað endurútgáfu á bók-
inni, sem birtast átti undir réttu
nafni höfundar, þar til málið hefur
skýrst en ástralskt dagblað birti á
fimmtudag frétt þess efnis að Dar-
ville hefði stolið köflum úr þremur
bókum og birt í verki sínu; „The
Black Deeds of the Kremlin", „The
Demon Lx>ver“ eftir Robin Morgan
og „Gossip in the Forest" eftir
Thomas Keneally.
Helen Darvllle
Norskir gagnrýnendur hrifnir af Hinum helgu véum Hrafns Gunnlaugssonar
Hlý og fyndin lýsing barns
„MYNDINA skortir ekki spennu þótt blóðið renni ekki.“
Skáldað í
mannlífíð
EINN af áhrifamestu ljósmyndur-
um þessarar aldar, Alfred Eis-
enstaedt lést í síðustu viku 97 ára
gamall. Hann myndaði um ára-
tuga skeið fyrir LiTe-tímaritið og
tókst með Leica-vél sinni að draga
upp einstæðar mannlífsmyndir.
Eisenstaedt var fæddur í Dirsc-
hau í Prússlandi, þar sem nú er
Pólland. Hann flýði ofríki Hitlers
og settist að í Bandaríkjunum og
hóf störf þjá Life árið 1936. Hann
lagði alla tíð frumáherslu á sam-
skiptin við þá sem hann myndaði,
sagði að aldrei mætti ráðskast
með þá. Gott samband við fólk
væri brýnna en að ná mynd. Þyk-
ir ein þekktasta mynd hans, sem
er tekin á Times-torgi í New York
á friðardaginn 1945, dæmi um
þessa afstöðu hans, en Eisenstaedt
kaus að ljúka stríðinu, sem hafði
hrakið hann frá heimahögum sín-
um, með kossi.
KVIKMYND Hrafns Gunnlaugs-
sonar Hin helgu vé hefur hlotið
góða dóma í norskum dagblöðum.
Thor Ellingsen gagnrýnandi á Dag-
bladet segir að mynd Hrafns sé hlý
og fyndin lýsing bams. Fyrirsögn
umsagnar hans er „Islensk perla".
í dómnum segir m.a.; „Kraftur ís-
lenskrar náttúru leikur stórt hlut-
verk í myndinni. Hún sameinar ergi
og fyndni í djarfri og innilegri lýs-
ingu á fyrstu kynnum bams af hin-
um dýpstu sálarkröftum mannsins,
kærleika og albrýðisemi, sælu og
vonbrigðum.“ í lok dómsins segir
Ellingsen að myndin sé „lítil perla
á bíósumrinu“.
Mildari Hrafn
Edel Bakkemoen gagnrýnandi
Aftenposten segir það spennandi
að sjá sjálfsævisögulega mynd
mannsins sem er eins og persónu-
gervingur eldfjalls á íslandi, fjalls
sem hefur spúið blóði og eldi í hin-
um athyglisverðu myndum Hrafn-
inn flýgur og í skugga hrafnsins.
Gagnrýnandinn segir að form og
inntak myndarinnar sé einfalt og
flókið í senn. Segir hann að sömu
eiginleikar eigi við um aðalpersón-
una sjálfa, „leikstjóranum tekst á
fágaðan hátt að breyta ásýnd og
sjónarhorni myndarinnar eftir því
hvort það er veruleiki, fantasía eða
draumur sem drengurinn lifir í.“
Niðurstaða gagnrýnandans er
þessi: „Myndin er djörf og um leið
erótísk, skemmtileg, innihaldsrik
og falleg. Þetta er Hrafn Gunn-
laugsson í eilítið mildari útgáfu en
við eigum að venjast, þrátt fyrir
það tekst honum vel upp. Myndina
skortir ekki spennu þótt blóðið
renni ekki. Hrafn hefur frá nógu
að segja þótt þessi mynd henti
ekki sjö ára gömlum börnum frek-
ar en aðrar myndir hans.“