Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 35
AÐSENDAR GREINAR
Lýðskrum lækk
ar ekki iðgjöld
VÁTRYGGINGAFÉLÖG verða að
sjálfsögðu að haga rekstri sínum
á þann veg, að hinir vátryggðu fái
tjón það bætt, er þeir eru tryggðir
fyrir. Tekjur vátryggingarfélag-
anna eru einkum iðgjöld og fjár-
munatekjur. Útgjöldin eru á hinn
bóginn tjónabætur og
rekstrarkostnaður.
V átryggingarfélögin
verða að ákveða ið-
gjöldin þannig, að þau
standi a.m.k. undir
tjónakostnaði, þ.e.
bótagreiðslum og til-
heyrandi útgjöldum,
auk almenns rekstrar-
kostnaðar félaganna.
Bifreiðatryggingafé-
lögin á Islandi hafa
markvisst unnið að því
að hagræða í rekstri í
því skyni að lækka
rekstrarkostnað, m.a.
með sameiningu fé-
laga. Er rekstrar-
kostnaður íslensku bifreiðatrygg-
ingafélaganna nú hlutfallslega
lægri heldur en hjá vátrygging-
arfélögum í flestum þeim ná-
grannaríkjum, er íslendingar bera
sig gjaman saman við. Verður það
að teljast ágætur árangur, þar sem
rekstrareiningar hér á landi era
almennt miklu minni en víðast er-
lendis. Þótt rekstrarkostnaður vá-
tryggingafélaga skipti nokkra
máli um afkomu þeirra, og þar
með íjárhæð iðgjalda, vegur tjóna-
kostnaður félaganna stórum
þyngra í því efni. Tjónakostnaður
bifreiðatryggingafélaga ræðst af
tíðni umferðaróhappa, verðlagi á
bílum, varahlutum og verkstæðis-
vinnu og þeim skaðabótareglum,
sem í gildi eru, verði slys á fólki.
Á þennan þátt iðgjaldsins, þ.e.
áhættuþáttinn, geta vátryggingar-
félög í raun haft takmörkuð áhrif.
Hér skiptir máli hæfni og árvekni
ökumanna og gerð og ástand um-
ferðarmannvirkja, svo að fátt eitt
sé nefnt.
Iðgjöld eru mismunandi
milli ríkja
Það eru engin ný sannindi að
iðgjöld í ökutækjatryggingum era
afar mismunandi milli landa. Sé lit-
ið til ríkja á Evrópska efnahags-
svæðinu einu sést þetta afar glöggt.
Ástæðan fyrir þessum mun milli
ríkja er mismunandi tíðni bóta-
skyldra tjóna, mismunandi verðlag
og oft gjörólíkar uppgjörsreglur
milli landa, einkum á skaðabóta-
reglum í sambandi við slys á fólki.
Meðal vátryggjenda innan Evrópu-
sambandsins hefur því verið litið
svo á, að einfaldur iðgjaldasaman-
burður í ökutækjatryggingum á
milli einstakra aðildarríkja ESB á
borð við þann, sem FÍB. hefur haft
í frammi, hafi takmarkaða þýðingu.
í þessu sambandi er rétt að ítreka
að mörg þessara evrópsku vátrygg-
ingarfélaga eru með starfsemi á
sviði ökutækjatiygginga í mörgum
Evrópuríkjum. Þau iðgjöld, sem
þessi félög bjóða erlendis taka að
sjálfsögðu mið af aðstæðum í
heimaríki ökutækisins en ekki í
heimaríki vátryggingarfélagsins.
Um gagnrýni FÍB
á bifreiðatryggingaiðgjöld
hér á landi
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur borið saman iðgjöld í öku-
tækjatryggingum á Norðurlöndum.
Kemur þar fram, sem íslenskum
vátryggingamönnum var raunar
kunnugt, að mikiil munur er á ið-
gjöldum milli þessara frændþjóða.
I þeim dæmum, sem tekin vora,
eru iðgjöldin lægst í Svíþjóð en
hæst á Islandi. Af hálfu vátrygging-
arfélaganna var strax bent á, að
ástæður fyrir hærri iðgjöldum hér
á landi væri stóram meiri tjóna-
kostnaður. Bæði væri tíðni tjóna
meiri hérlendis og bótagreiðslur í
sumum tilvikum hærri. Einkum
ætti þetta þó við um slys á fólki.
Opinberar tölur sýndu þetta svart
á hvítu, en þar kæmi fram að slys
hér á landi væra allt
að tvisvar til þrisvar
sinnum tíðari hér á
landi heldur en í ná-
grannalöndum okkar.
Fyrirsvarsmenn FÍB
vildu ekkert með þess-
ar upplýsingar gera.
Opinberar tölur hefðu
enga þýðingu í þessu
efni, einu tölumar sem
segðu eitthvað í sam-
anburði milli landa
væru tölur um látna í
umferðinni. Tiltölulega
fáir létust í umferðar-
slysum á íslandi og því
væri engin ástæða til
að ætla annað en slys
almennt væra einnig tiltölulega fá.
Þessi röksemdafærsla er hins vegar
út í hött.
Fjöldi slysa á íslandi
og í öðrum ríkjum
Sambandi íslenskra trygg-
ingafélaga hefur borist upplýs-
ingar um fjölda bótaskyldra slysa,
þ.m.t. dauðaslysa, frá vátrygging-
arfélögum í Svíþjóð og Frakklandi
og borið þær upplýsingar saman
við tölur vátryggingarfélaganna
hér á landi. Miðað við 100.000 bíla
Fyrirsvarsmenn FÍB.
hafa lítinn áhuga á
raunástæðu hárra ið-
gjalda, segir Sigmar
———r—_______________
Armannsson, og
skella skolleyrum
við skýringum.
í þessum þremur ríkjum urðu
dauðaslys í umferð á árinu 1994
um 9 á íslandi, um 13 í Svíþjóð
og um 28 í Frakklandi. Sé litið
almennt til fjölda bótaskyldra slysa
í þessum ríkjum kemur fram gjör-
breytt mynd. Þannig varð fjöldi
slasaðra miðað við 100.000 bíla
árið 1994 tæp 2.000 á íslandi, tæp
1.000 í Svíþjóð, en einungis rúm
600 í Frakklandi. Meðfylgjandi
töflur sýna þetta glögglega.
Skrum og svigurmæli
Fyrirsvarsmenn FÍB virðast hafa
lítinn áhuga á raunveralegum
ástæðum þess að iðgjöld hér á landi
eru svo há sem raun ber vitni. Án
nokkurs rökstuðnings kreQast þeir
að iðgjöld hér á landi lækki og skella
skolleyrum við skýringum og tölu-
legum upplýsingum þess efnis, að
svigrúm til þess sé takmarkað. Það
er út af fyrir sig fagnaðarefni, að
FÍB hefji opinbera umræðu um ið-
gjöld í ökutækjatryggingum hér á
landi. Hér er um að ræða kostnað-
arlið, sem einstaklingar og_ fyrir-
tæki fínna vissulega fyrir. Á hinn
bóginn vekur furðu hversu ómál-
efnaleg þessi umræða hefur verið
af FÍB hálfu. Að undanfömu hafa
þó ástæðumar verið að koma í ljós.
FÍB stendur nefnilega fyrir átaki
um þessar mundir til að fjölga fé-
lagsmönnum. Hótanir og svigur-
mæli í garð íslensku vátryggingar-
félaganna ásamt óljósum loforðum
um lækkuð iðgjöld til félagsmanna
FÍB virðist eiga að vera agnið fyrir
nýja félaga.
Höfundur er lögfræðingur og
framkvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga.
Sigmar
Ármannsson
Elite Model Look
Ctirtn íxo Wartin
Spxm ■
Ho'ianc
A?:cé Dodð
USA
Uaír-e trwio
USA
NAtalw Seniaoova
Ru&sia
kxrer- Muidér
liol'and
S®
ÉCEOH
Marion-n Mofskj
USA,
:Heíái Afheitvíh
liomerfítmo .
USÁ
U»CMMt
Slsp-h.iriA Seymo'j?
USÁ
Germany
Wendy yMOhttt
Hoftand
Hvort sem þú vilt
verða módel eða ekki
þá tekur þú þann
lærdóm sem þú færð
í skóla John Casa-
blancas með þér út í
lífið, hvert sem þú
ferð eða hvað sem þú
gerir.
Látum verkintala!!
Innritun og allar
nánari upplýsingar
í síma 588 7799
daglega
kl 13.00-18.00
d'( John Casablancas
MODELING & CAREER CENTER
ORÐABÆKURNAR
tilboð
ftpÝRAR -
Þýsk
íslensk
íslensk
þýsk
orðabók
orðabók
ítölsk
orðabók .
orðnbók
orðobók
íslensk
ensk
orðabók
Uelanðit’lns'hk
OUlionory
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann.
á skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
<$>/C
9f- .
%%
W