Morgunblaðið - 05.09.1995, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
BARÁTTAN A ENGLANDI
li
1 992
1 993
1995
1996
■ LANDSLIÐIÐ í handknattleik
varð sigurvegari á fjögurra liða móti
í Austurríki um helgina — vann alla
leiki sína. Valdimar Grímsson skor-
aði átta mörk í sigurleik, 29:19, gegn
Austurríki og níu mörk í sigurleik,
23:20, gegn Ítalíu. Áður höfðu
Norðmenn verið lagðir að velli,
27:23.
■ MIKE Marsh, fyrrum leikmaður
með Liverpool og Coventry, sem
gekk til liðs við Galatasary, ílengd-
ist ekki í Tyrklandi. Hann var þar
aðeins í fímm vikur — hefur gengið
til liðs við Southend.
■ GRAEME Souness, þjálfari Gal-
atasary, keypti bandaríska landsl-
iðsmarkvörðinn Brad Friedel frá
Bröndby á föstudaginn.
■ ÞÓRÐVR Guðjónsson og félagar
hans hjá Bochum áttu að leika um
helgina gegn Zwickau en leiknum
var frestað vegan mikiliar bieytu á
leikvellinum.
■ / ÞÝSKA blaðinu Bild um helgina
er greint frá því að forráðamenn liðs
Eyjólfs Sverrissonar, Hertha Berl-
in, hafi mikinn áhuga á að fá Chri-
stoph Daum sem þjálfara næsta
tímabiii, en hann þjálfar nú Besiktas
í Tyrklandi. Ef af verður yrði það
þriðja liðið sem Daum þjálfar Eyjólf
hjá, en Eyjólfur var hjá honum í
herbúðum Besiktas í fyrravetur og
þar áður hjá Stuttgart þegar Eyjólf-
ur varð meistari þar.
■ KIEL sigraði Lemgo 27:24 í ár-
legum leik meistaranna og bikar-
meistaranna í þýska handknattleikn-
um um helgina. Leikurinn var jafn
og spennandi en leikmenn meistara-
liðs Kiel knúðu fram sigur eftir fram-
lengdan leik. Þýskir handboltamenn
fara síðan á fullt um næstu helgi en
þá hefst deildarkeppnin.
■ HELGI Bragason og Leifur
Garðarsson alþjóðadómarar í körfu-
knattleik hafa verið tilnefndir til að
dæma leiki í Evrópukeppninni. Helgi
verður á leik Thames Tigers frá
Englandi og New Wave frá Svíþjóð
í Evrópukeppni bikarhafa 5. septem-
ber og á leik London Towers og
Racing Baskets í Evrópukeppni
félagsliða tveimur dögum síðar.
■ LEIFUR Garðarsson dæmir hins
vegar leik Exide Manchester gegn
franska liðinu Asvel 13. september
og daginn eftir vlðureign Sheffield
Sharks og Residence Helmsange
frá Lúxemborg.
■ ÁHANGANDI enska knatt-
spyrnufélagsins Millwall, sem kast-
aði skrúflykli inn á völlinn í leik gegn
Reading á dögunum, hefur verið
settur í lífstíðarbann frá leikvangi
félagsins. Um er að ræða 15 ára
dreng. Skrúflykillinn lenti við hlið
Simons Sheppards, markvarðar
Reading sem var í þann mund að
spyma frá marki sínu.
■ ENGLAND mætir Kólumbíu í
landsleik í knattspyrnu á Wembley
á morgun. Meiðsli hafa heijað á
enska hópinn og í gær bættust tveir
á sjúkralistann — Stuart Pearce,
bakvörður frá Nottingham Forest
og framheijinn Peter Beardsley frá
Newcastle. Áður höfðu fyrirliðinn
David Platt frá Arsenal, Stan
Collymore framheiji frá Liverpool
og varnarmaðurinn Gary Pallister
dregið sig í hlé vegna meiðsla.
GLEDI
Ahangendum Eyjaliðsins í
knattspyrnu hefur ekki
leiðst undanfarnar vikur. Á þess-
um tíma undanfarin ár hafa þeir
ekki haft ástæðu til að kætast
neitt sérstaklega, þar
sem það hefur loðað HH
við leikmenn liðsins
að dregið hefur úr
krafti þeirra eftir
Þjóðhátíð, en nú er
öldin önnur.
Leikmenn ÍBV
tóku sig saman í andlitinu í sum-
ar og ákváðu að afsanna þá
kenningu að liðið gæti lítið sem
ekkert eftir Þjóðhátíð og það
hefur sannarlega gengið eftir.
Síðasta tap liðsins í deildinni var
20. júlí gegn Akumesingum í
Eyjum, en síðan hafa Vest-
mannaeyingar fagnað sigri í sjö
leikjum í röð, þar af fímm eftir
Þjóðhátíð.
Undirritaður minntist á það á
þessum vettvangi í byijun júlí
að knattspyrnan væri gleðileik-
ur. Knattspyrnumennirnir ættu
fyrst og fremst að vera skemmti-
kraftar því fólk kæmi á völlinn
í þeim tilgangi að skemmta sér
en ekki til að láta sér leiðast.
Þrátt fyrir aukið áiag og.pressu
yrði að finna leið til að auka
leikgleðina — það væri lykilatriði
að menn hefðu gaman af því sem
þeir væru að fást við.
Óhætt er að taka ofan fyrir
Eyjamönnum því þeir hafa sann-
arlega fengið fólk til að brosa
upp á síðkastið. Þeir hafa leikið
af miklum krafti, verið iðnir við
að skora og rúsínan í pylsuend-
anum er svo hvernig þeir fagna
mörkunum. Það er eftirminnilegt
hvernig Tiyggvi Guðmundsson
„skaut“ félaga sína hvern af
öðrum í Hafnarfirði, hvernig
þeir hafa dansað, hoppað og
trallað! Þeir leyfa ímyndunarafl-
inu að njóta sín, koma sífellt á
óvart og gleðin eykst með hveij-
um leik. Gleði leikmanna smitar
út frá sér og áhorfendur bíða
Leikgleði Eyjamanna
á knattspyrnuvell-
inum er aðdáunarverð
spenntir eftir næstu viðureign.
Og nú stefnir liðið hraðbyri á
Evrópusæti. Sannarlega glæsi-
ieg frammistaða og Atli Eðvaids-
son, sem þjálfar liðið í fyrsta
skipti í sumar, á hrós skilið.
Vestmannaeyingar eru anná-
laðir fyrir gott skopskyn, hvort
sem þar er um að ræða meðlimi
Hrekkjalómafélagsins eða aðra
góða Eyjapeyja. Undirritaður
fékk upphringingu frá manni í
Eyjum fyrir nokkrum misserum,
sem var að kanna hvort ég hefði
hringt í hann deginum áður og
tekið við hánn langt viðtal um
ensku knattspyrnuna. Hann er
mikill áhugamaður um hana, og
hafði svarað „rnér“ af mikilli
samviskusemi. Ég hafði reyndar
ekki rætt við manninn, en hann
hafði þó greinilega gaman af
öllu saman. „Ég“ í Eyjum hafði
lagt mikla vinnu í það að stríða
umræddum knattspyrnuáhuga-
manni og allir höfðu gaman af.
Það hefur verið aðdáunarvert
að fylgjast með Eyjamönnum
síðustu vikumar. Aðrir knatt-
spyrnumenn landsins — og raun-
ar allir aðrir íþróttamenn — ættu
að taka þá sér til fyrirmyndar.
Það kostar ekkert að brosa.
Skapti
Hallgrímsson
Stefnir Eyjapeyinn TRYGGVIGUÐMUNDSSON á að hreppa gullskóinn?
Ekki tapað leik
eftir Þjóðhátíð
LIÐ ÍBV hefur farið mikinn í undanförnum leikjum og lagt hvern
andstæðing sinn á fætur öðrum. Mikif stemmning er í liðinu og
hverju marki hefur verið fagnað á eftirtektarverðan hátt. Marka-
hrókur Eyjaliðsins er hinn 21 árs gamli Tryggvi Guðmundsson,
en hann er markahæstur f 1. deild með tólf mörk. Tryggvi gerði
þrjú mörk á laugardaginn gegn Leiftri og var það önnur þrenna
hans í sumar. Tryggvi er borinn og barnfæddur Eyjamaður. í
fyrra lék hann með KR og varð þar bikarmeistari, en sneri í vor
til átthaganna til félaga sinna.
Tryggvi lék sitt fyrsta „alvöru“
keppnistímabil með meist-
araflokki árið 1993, fram að þeim
tíma hafði hann
Eftir komið inn á í
l'var nokkrum ieikjum í
Benediktsson nokkrar mínútur.
Það ár gerði hann tólf mörk og
var markahæsti leikmaður liðsins.
En hefur Tryggvi alitaf verið
markheppinn?
„Já, ég hef alltaf átt gott með
að fínna lyktina af martækifærun-
um frá því að ég byijaði að leika
knattspyrnu. Ég lék alltaf sem
fremsti maður og það hjálpaði
eflaust eitthvað til einnig."
Nú leikur þú ekki sem fremsti
maður í sókn hjá ÍBV?
„Nei, það geri ég ekki, Fyrir
tveimur árum, þegar ég lék með
ÍBV og skoraði tólf mörk, var ég
fremstur en síðan breytti ég um
í fyrra. Fór út á vinstri kantinn
og kann vel við þá stöðu.“
Stefnir þú á að verða marka-
hæstur í deildinni þegar upp verð-
ur staðið og tryggja þér gullskó-
inn?
„Aðalatriðið er að liðið skori
mörk og tryggi sér sæti í Evrópu-
keppninni. Hver það er sem skor-
ar mörkin skiptir engu máli svo
lengi sem þau eru skoruð. Hins
vegar væri gaman að geta verið
svo heppinn að halda efsta sæt-
inu, en það er ekkert aðalatriði."
Það hefur verið mikil stemmn-
ing í Eyjaliðinu í sumar og hverju
marki hefur verið fagnað á sér-
stakan og óvenjulegan hátt,
hvernig kom það til?
„Allt hófst þetta með stórsigr-
inum á Val í fyrstu umferð, þá
var mikil gleði í hópnum og hveiju
marki fagnað á sérstakan hátt. í
framhaldi af því var ákveðið að
halda því áfram. Nú er það fyrir-
fram ákveðið fyrir hvern leik hvað
við gerum þegar við skorum. Við
^Jizrinc
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
TRYGGVI Guömundsson hvílist hér í stofunnl heima hjá sér
í Eyjum áöur en hann tók flugið tll Reykjavíkur á sunnudags-
kvöldið þar sem hann ætlar að sltja á skólabekk í vetur.
tölum saman rétt fyrir leik og
leggjum á ráðin. Þetta hefur lyft
upp andanum í hópnum.“
Nú byrjuðuð þið Eyjamenn með
látum í vor, síðan fatast ykkur
flugið, en í undanförnum leikjum
hafið þið verið á fullu gasi og lagt
hvern andstæðinginn af öðrum.
„Já, það datt botninn úr hjá
okkur á kafla, en við höfum sigr-
að í öllum leikjum í seinni umferð-
inni og stefnan er sett á annað
sæti í deildinni og þátttökurétt í
Evrópukeppninni. Það er engin
spurning. Það hefur lengi farið
það orð af okkur í ÍBV liðinu að
við værum alltaf slakir eftir Þjóð-
hátíð en nú var ákveðið að af-
sanna það í eitt skipti fyrir öll.“
Nú ertu nýfluttur til Reykjavik-
ur, hvað ætlar þú að gera þar?
„Ég ætla að setjast á skólabekk
og klára stúdentsprófíð, en ég hef
látið námið sitja svolítið á hakan-
um.“
Ertu ekkert hræddur um að
botninn detti úr hjá þér þegar þú
æfír ekki lengur með liðinu?
„Nei, það held ég ekki. Við erum
sex úr liðinu hér í bænum í skóla
og fáum að æfa hjá Ómari Jó-
hannssyni hjá HK og síðan hittum
við hina í liðinu í tíma fyrir hvern
leik svo þetta á ekki að breyta
neinu fyrir leikina sem eftir eru.“
Ætlar þú að 'leika áfram með
ÍBV?
„Já, ég stefni að því og taka
þátt í Evrópukeppninni með ÍBV
næsta sumar. Ég sleppti Evrópu-
keppni í sumar með því að skipta
úr KR og ég ætla ekki að láta
annað tækifæri mér úr greipum
ganga."