Morgunblaðið - 05.09.1995, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 B 5
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Laun erfiðisins
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
SIGRÚN Óttarsdóttir, t.v. og Ásthildur Helgadóttlr halda hér fast í islandsbikarinn sem þær unnu
á sunnudaginn eftir sannfærandi sigur á Stjörnunni. Báöar léku þær vel í sumar, Sigrún varð
næst markahæst í deildinni með 12 mörk og Ásthildur sem lék sitt fyrsta tímabil með Breiðbliki
eftir að hún skipti úr KR í vor. Hún átti hvern stórleikinn í sumar á fætur öðrum og undirstrikaði að
hún er ein besta knattspyrnukona landsins þrátt fyrir ungan aldur.
Fimmti meistara-
titill Blikastúlkna
ásexárum
„ÞETTA íslandsmót hefur verið skemmtilegra en ífyrra. Keppnin
í deildinni hefur verið mun jafnari og þar af leiðandi verið meiri
spenna. í fyrra vorum við búnar að tryggja okkur titilinn þegar
nokkrir leikir voru eftir en nú var spenna fram í síðasta leik,"
sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, en
á sunnudaginn tryggðu þær sér fimmta íslandsmeistaratitilinn
á sex árum. Þær luku keppni með 38 stig úr 14 ieikjum og marka-
töluna 67:5.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Ilokaumferðinni þurftu Breiða-
bliksstúlkur nauðsynlega að ná
a.m.k. einu stigi úr leik sínum við
Stjörnuna til þess að
tryggja sér titilinn.
Þær gerðu gott betur
því þær fóru með
sigurorð af andstæð-
ingum sínum með tveimur mörkum
gegn engu. Á sama tíma sigruðu
Valsmenn KR-inga með sömu
markatölu en urðu eigi að síður að
gera sér annað sætið að góðu, tveim-
ur stigum á eftir Breiðabliki, eftir
harða baráttu í allt sumar. Mörk
Vals gerðu Ásgerður Ingibergsdóttir
og Sirrý Haraldsdóttir.
Leikmenn Breiðabliks réðu lögum
og lofum á leikvellinum gegn Stjörn-
unni í fyrri hálfleik og voru þær
greinilega staðráðnar í að gera út
um leikinn strax. En þeirri gekk illa
að skora úr góðum færum sem þær
fengu á fyrsta stundarfjórðungi
leiksins. En það var loks á 25. mín-
útu að Helga Osk Hannesdóttir skor-
aði eftir fallega sendingu frá Ást-
hildi Helgadóttur. Rétt undir lok
fyrri hálfleiks bætti Kristrún Daða-
dóttir við öðru marki Breiðabliks
eftir laglega sókn.
Dauft var yfir síðari hálfleik og
fátt um færi. Breiðabliksstúlkur
höfðu leikinn í hendi sér án þess að
Garðabæjarstúikur næðu að setja
neitt strik í reikninginn. Fleiri urðu
mörkin ekki og Blikastúlkur fögnuðu
að vonum að leikslokum.
„Það er alltaf jafngaman að vinna
og við vorum staðráðnar í að ekkert
annað en sigur kæmi til greina í
dag. Við erum með góðan hóp og
margar jafnar stelpur og ég tel að
við séum með jafnsterkara lið en í
fyrra," sagði Margrét Ólafsdóttir,
leikmaður Breiðabliks og marka-
kóngur Islandsmótsins að þessu
sinni með 13 mörk. „Þetta íslands-
mót var erfiðara og jafnara en í
fyrra,“ bætti hún við. t
Verð áfram með
„Markatalan er betri hjá okkur
núna en í fyrra, þrátt fyrir að við
höfum misst markahæsta leikmann-
inn í deildinni í fyrra úr liði okkar.
En það koma bara aðrar í staðinn
og mörkin hafa dreifst á stærri hóp.
Við í Breiðabliki þekkjum ekkert
annað en sigur í kvennaboltanum,"
sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálf-
ari. „Kvennaboltinn verður betri og
betri með ári hveiju og ég held að
það sé enginn vafi að hann var betri
í sumar en i fyrra. Ég ætla mér að'
vera áfram á fullu næsta sumar og
geri það á meðan ég hef gaman af
þessu,“ bætti Vanda við að lokum,
en þetta er annað árið sem hún þjálf-
ar liðið og þriðji stóri titilinn sem
liðið vinnur undir hennar stjórn á
þessum tveimur árum.
■ Úrslit / B6 *
■ Staða / B6
Ivar
Benediktsson
skrifar
Blikarnir
færðust
af hættu-
svæðinu
LEIKMENN Breiðabliks gerðu
það sem þeir þurftu á að
halda til að tryggja sér öll þrjú
stigin í viðureign sinni við
neðsta lið deildarinnar í Kópa-
vogi á föstudaginn. Þeir léku
af varfærni og skynsemi og
tóku litla áhættu, uppskáru
þó tvö mörk og lánlausir FH-
ingar áttu erfitt uppdráttar
þrátt fyrir að þeir reyndu.
Lokatölur leiksins voru 2:1 og
þar með komu Blikar af mesta
hættusvæðinu, en líklega get-
ur ekkert nema kraftaverk
aðstoðað FH-liðið úr þessu.
BLIKAR hófu leikinn af miklum
krafti og sóttu stíft og fengu
nokkur marktækifæri. Þeir voru
sterkari í flestum
stöðum og miðjan
var þeirra. Því var
opnunarmark á 18.
mínútu í samræmi
við gang hans til þess tíma.
Nokkuð hýmaði yfir FH-liðnu
eftir að það hafði fengið á sig
mark og leikmenn liðsins börðust
betur og reyndu að skapa sér
færi, en illa gekk gegn sterkri
vörn Kópavogsbúa. Það var svo
loks eftir að Jón Erling Ragnars-
son kom inn á 34. mínútu að auk-
inn þungi kom í sókn Hafnfirðinga
og átti hann m.a. skot framhjá
úr teig skömmu eftir að hann kom
til leiks. Annars var fátt um fína
drætti og jöfnunarmark Harðar
Magnússonar á 41. mínútu og
dauðafæri Anthonys Karls Greg-
ory hinum megin á vellinum
skömmu fyrir hálfleik með því fáa
sem gladdi augað.
Kópavogsmenn hófu stórsókn í
byijun síðari hálfleiks en gekk illa
að fá knöttinn til að ganga alla
leið. Ingi Björn Albertsson, þjálf-
ari FH, gerði breytingar á liði sínu
þegar líða tók á. Skipti Lúðvík
Arnarsyni inn fyrir Arnar Viðars-
son og við það færðist aukinn
þungi í sóknir FH-inga. En tals-
vert iánleysi var yfir þeim í leikn-
um og var sem þeim félli allur
ketill í eld.
Blikar skoruðu annað mark sitt
og síðan var varnarmanni FH,
Petr Mrazek, vísað af leikvelli fyr-
ir að stöðva knöttinn með hendi á
82. mínútu. Þrátt fyrir það sóttu
FH-ingar ákaft á lokamínútunum,
en allt kom fyrir ekki.
„Leikurinn var svipaður og ég
bjóst við. Hann var erfiður og
ekkert sérlega vel spilaður. Mikil
barátta og hann tók á taugarnar
hjá mér. Fyrir lokahrinuna vorum
við efstir í botnslagnum og okkar
markmið er að halda okkur þar
og þrátt fyrir sigurinn í dag eru
við ekki úr allri hættu,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, að leikslokum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
RASTISLAW Lazorik lelkmaður Brelðbliks skoraði bæðl mörk liðslns á laugaradginn gegn FH og hefur gert tíu mörk í deildinni í sumar.
Hér er það seinna í uppsiglingu án þess að FH-ingarnir Auðun Helgason og Petr Mrazek fá rönd við reist.
Eyjamenn fögn-
uðu með dansi
og látbragðsleik
„ÞETTA var erfitt íbyrjun, en eftirað við vorum búnirað
skora okkar anriað mark var aldrei spurning hvernig færi,“
sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari Eyjamanna, sem unnu sinn
sjötta sigur í röð — fórnarlömb þeirra á laugardaginn voru
Leiftursmenn, 4:0. Eyjamenn stefna nú hraðbyri að UEFA-
sæti, eftir nokkur mögur ár í 1. deildar keppninni. Tryggvi
Guðmundsson var hetja Eyjamanna, skoraði þrjú mörk og
sína aðra þrennu ísumar.
stórsókn að marki andstæðing-
anna, sem oft er erfitt að verjast.
Tryggvi Guðmundsson lék mjög
Vel, einnig Ingi Sigurðsson og
Leifur Geir Hafsteinsson, en ann-
ars stóðu flestir leikmenn Eyjal-
iðsins vel fyrir sínu. Páll Guð-
mundsson var besti maður Leift-
urs.
LEIKURINN byrjaði strax vel
og skiptust liðin á að sækja.
Eyjamenn beyttu hröðum skyndi-
sóknum, en sóknir
Leiftursmanna
voru öllu lengri og
gátu verið þungar.
Eyjamenn náðu að
koma knettinum í
netið eftir aðeins átta mín., þegar
Tryggvi Guðmundsson skoraði úr
vítaspyrnu, og í kjölfarið kom
þeirra tjáning við að fagna mörk-
Sigfús G.
Guömundsson
skrifar
1m J%Arnar Grétarsson fékk boltann á miðjum vallarhelmingi FF
■ 18. mínútu og sendi stutt tii RastsJaws Lazoriks sem
staddur var hægra megin fyrir utan vítateigslínuna. Lazorik lék á einn
varnarmann FH og lék knettinum inn í teiginn og skaut föstu skoti
sem hafnaði upp við vinkilinn á marki FH, glæsiiegt mark og óveij-
andi fyrir Stefán Arnarson markvörð.
1m Óiafur H. Kristjánsson sendi knöttinn fyrir mark Breiða-
■ I bliks frá vinstri á 41. mínútu. Inni f teignum skallaði Petr
Mrazek boltann niður fyrir fætur Harðar Magnússonar sem staddur
var við markteig og hann skaut með vinstri fæti f markið.
2m 4| Gústaf Ómarsson lék með knöttinn rétt fyrir utan miðjan
■ I vítateig FH og skaut knettinum í vamarmann. Rastslaw
Lazorik kom aðvífandi og náði frákastinu af varnarmanninum og
skaut rakleitt í netið vinstra meginn.
um. Tryggvi var nær búinn að
bæta marki við síðar — þegar
hann komst einn inn fyrir vörn
Leifturs, en Þorvaldur Jónsson
markvörður sá við honum. Stein-
grímur Jóhannesson fékk tvö góð
færi, sem hann nýtti ekki —
seinna skot hans hafnaði á utan-
verðri stönginni á marki Leifturs.
Páli Guðmundsson fékk besta
tækifæri Leifturs — skaut rétt
framhjá marki Eyjamanna.
Eyjamenn voru sem kóngar á
vellinum í seinni hálfleik, léku á
köflum frábærlega — knötturinn
gekk hratt á millis manna. Leift-
ursmenn þurftu að hirða knöttinn
þrisvar úr netinu hjá sér á átján
mínútna kafla og stórsigurinn var
staðreynd. Eftir hvert mark
skemmtu leikmenn ÍBV sér og
áhorfendum með látbragðsleik og
dansi.
Það virðist henta Eyjaliðinu vel
að leika með fimm leikmenn á
miðjunni og einn frammi. Miðju-
mennirnir berjast vel og þegar
þeir ná að vinna knöttinn, hefst
Stemmn-
ingin er mikil
hjá okkur“
EYJAMENN sækja KR-inga
næst heim og verður það leik-
ur sem skiptir miklu í barátt-
unni um annað sætið í 1. deild.
„Stemmningin er mikil hjá
okkur og leika strákarnir af
skynsemi. Leikurinn gegn KR
verður ekki úrslitaleikurinn
um annað sætið, því það eru
níu stig eftir í pottinum,"
sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari
Eyjamanna, sem leika án
Dragan Manojlovic gegn KR,
þar sem hann tekur út leik-
bann. „Það hefur sýnt sig að
þegar við höfum misst leik-
menn í bann kemur maður í
manns stað.“
1 -n
I iv>
iRútur Snorrason sendi knött-
inn inn í vítateig, þar sem
Tryggvi Guðmundsson tók við honum, lék
að marki, en var felldur af Sverri Sverris-
syni — vítaspyrna var dæmd, 8 mín.
Tryggyi tók sjálfur spyrnuna og skoraði
— sendi knöttinn í homið hægra megin,
Þorvaldur Jónsson, markvörður Leifturs,
kom rétt við knöttinn með hendi.
2«^%Eyjamenn fengu aukaspyrnu
■ Whægra megin, út við vitateig
Leifturs á 63 mín. Ingi Sigurðsson sendi
knöttinn hátt að fjærstöng, þar sem Her-
mann Hreiðarsson skallaði knöttinn út í
teig — Leifur Geir Hafsteinsson skaut að
marki, í varnarmann og af honum barst
knötturinn til ívars Bjarklind, sem sendi
knöttinn í netið.
3m f\Tryggvi Guðmundsson tók
■ Waukaspyrnu á 64. mín. og sendi
knöttinn til Inga Sigurðssonar, sem lék
með knöttinn að endamörkum, sendi hann
síðan fyrir mark Leifturs, þar sem
Tryggvi var á réttum stað og þrumaði
knettinum í netið.
4B^fcSteingrímur Jóhannesson átti
■ ^rskot að marki Leifturs á 71.
mín., Þorvaldur Jónsson varði, en hélt
ekki knettinum sem barst til Tryggva
Guðmundssonar, sem hamraði knöttinn
í netið.
Amaraftur
með þrennu
Skagamenn lögðu Grindavík örugglega, 4:0
ARNAR Gunnlaugsson náði
sinni annari þrennu þegar
Skagamenn lögðu Grindvík-
inga örugglega, 4:0, á Skipa-
skaga á sunnudaginn — Arnar
hefur skorað tíu mörk í fimm
leikjum. Leikmenn ÍA komu
mjög ákveðnir til leiks og
greinilega staðráðnir í að ýta
tapinu gegn KR til hliðar og
komast á sigurbraut að nýju.
„Eftir tapið gegn KR vorum við
ákveðnir í að gera engin mi-
stök í dag og settum okkur
það mark að leika vörnina af
öryggi og sjá svo til með fram-
haldið. Ekki gleyma okkur í
sóknaraðgerðunum eins og á
KR-vellinum á fimmtudaginn,"
sagði Sigursteinn Gíslason,
leikmaður ÍA.
Strax í byijun sýndu leikmenn
ÍA að þeir ætluðu sér sigur
og ekkert annað og á fimmtu mín-
útu átti Arnar
Gunnlaugsson fal-
lega sendingu á
Harald Ingólfsson
og hann skaut
þrumuskoti á nærstöng en Albert
Sævarsson í marki Grindavíkur
varði meistaralega. Nokkrum mín-
útum síðar átti Bjarki Gunnlaugs-
son fallega sendingu fyrir markið,
Haraldur renndi sér fyrir knöttinn
en rétt missti af honum fyrir opnu
marki.
Eftir hálftíma leik fengu leik-
menn ÍA besta færi leiksins er
Haraldur og Arnar pijónuðu sig
skemmtilega upp vinstri vænginn
og Arnar renndi knettinum á ðlaf
Þórðarson fyrir opnu marki, en
Ólafur hitti knöttinn illa og fram-
Sigþór E.
Eiríksson
skrifar frá
Akranesi
hjá fór boltinn. Sveinn Guðjónsson
bjargaði á marklínu Grindavíkur-
marksins á 33. mín. skoti frá
Bjarka.
Það segir sína sögu að Grindvík-
ingar áttu sitt fyrsta skot á mark
á 39. mínútu, en þá átti Ólafur
Örn Bjarnason þrumuskot sem
Þórður Þórðarson varði, en hélt
ekki knettinum, en Zoran Milkjovic
bjargaði í horn á elleftu stundu.
Skagamenn gerðu út um leikinn
á fyrstu mínútu síðari hálfleiks
með marki Dejans Stojic. Eftir það
færðist ró yfír leikinn og hann
jafnaðist. Liðin fengu þó ágætis
færi.
Undir lokin gerði Logi Ólafsson,
þjálfari ÍA, tvær breytingar á liði
sínu, setti Bjarka Pétursson og
Stefán Þórðarson inn á og við það
hljóp líf í leik heimamanna að nýju.
Það var einmitt Bjarki Pétursson
sem átti heiðurinn af fjórða og síð-
asta marki leiksins.
„Ég tel þetta vera okkar besta
leik um tíma í deildinni, eftir örlít-
ið hikst í síðustu leikjum,“ sagði
Sigursteinn Gíslason, varnaijaxl
Skagamanna, en hann fékk dauða-
færi í fyrri hálfleik en missti af
möguleikanum á að skora sitt
fyrsta mark í sumar.
Eins og fyrr sagði léku heima-
menn þennan leik mjög vel og
sýndu allar sínar bestu hliðar, eink-
um í fyrri hálfleik, en í þeim síð-
ari þegar munurinn var orðin þijú
mörk dofnaði yfir leik þeirra.
Grindvíkingar voru að mörgu leyti
óheppnir að lenda í Skagamönnum
í þessum ham. Þeir komust lítt
áfram gegn sterkri vörn heima-
manna.
1|AÁ 16. mín. léku tvíburamir glæsilega fram völlinn og Bjarki
■ %#spændi sig í gegnum vörn Grindavíkur og renndi knettinum
á bróður sinn, Arnar Gunnlaugsson, sem lék snyrtilega framhjá ein-
um vamarmanni og vippaði sfðan boltanum yfir Albert markvörð, sem
kom á móti, og í netið, frábært mark.
2"dEftir hornsPyrnu að rr>arki Grindavíkur á 27. mín. barst
■ %Fknötturinn tií Bjarka Gunnlaugssonar, hann átti þrumuskot
á markið, en bjargað var á línu og knötturinn barst til baka til Am-
ars Gunnlaugssonar og hann afgreiddi knöttinn viðstöðulaust upp í
þaknetið.
3" f%Strax og síðari hálfleikur hófst geystust Skagamenn í sókn
■ ^#og Grindvíkingar björguðu í horn. Arnar Gunnlaugsson tók
homspyrnuna og sendi beint á kollinn á Dejan Stojic sem skallaði
af öryggi í netið. Þegar þetta mark kom voru aðeins 34 sekúndur liðn-
ar af síðari hálfleik.
4*^\Bjarka Péturssyni var brugðið innan vítateigs og umsvifa-
■ \#laust dæmdi Guðmundur Stefán Maríasson vítaspyrnu.
Arnar Gunnlaugsson tók spymuna og skoraði af öryggi.
Fylkir í toppsætinu
FYLKISMENN sitja einir á toppi
2. deildar eftir sigur á Víkingi,
1:2, á sama tíma og Stjörnumenn
urðu aðsætta sig viðjafntefli 1:1
gegn Þór á heimavelli.
ÍJAÐ VAR ekki rishá knattspyrna
®sem leikmenn Víkings og Fylkis
sýndu og skoruðu Víkingar mark sitt
í fyrri hálfleik, Arnar Arnarson var
þar að verki. Fylkismenn náðu að
jafna í upphafí seinni hálfleiksins úr
vítaspyrnu, sem var dæmd á Svein-
björn Allansson, markvörð Víkinga,
sem felldi Þórhall Dan Jóhannsson.
Kristinn Tómasson skoraði úr víta-
spyrnunni. Það var svo Aðalsteinn
Víglundsson sem tryggði Fylki sigur-
inn með fallegu marki — með skoti
utan vítateigs; knötturinn hafnaði í
horninu fjær.
Þórsarar fengu óskabyijun gegn
Stjörnunni er Andri Marteinsson skor-
aði eftir sex mín. leik. Þórsarar gátu
bætt mörkum við, en Bjarni Sigurðs-
son, sem lék mjög vel í marki Stjörn-
unnar, sá við þeim. Stjörnumenn komu
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik, en
þeir náðu aðeins að skora eitt mark
— Goran Micic, þannig að jafntefli var
staðreynd.
ÍR-ingar og Skallagrimsmenn
gerðu markalaust jafntefli í miklum
baráttuleik. ÍR-ingar eru á hættu-
svæði ásamt Þrótti R. og Víkingi, sem
er með 16 stig. Víðir og HK eru í
neðstu sætunum þegar tvær umferðir
eru eftir, með 15 og 13 stig.
Botnlaus hörmung
Þrátt fyrir sól og logn mættu að-
eins örfáir knattspyrnuáhuga-
menn til að horfa á leik KA og HK á
Akureyri sl. sunnudag. Sjálfsagt hafa
margir farið í beijamó
Stefán Þór sem reyndist vera mun
Sæmundsson skynsamlegra þegar
skrifarfrá gangur leiksins er
Akureyri skoðaður. Niðurstaðan
var markalaust jafntefli og hugurinn
hvarflaði iðulega til beija meðan setið
var yfir þessari hörmung. Þetta var
ákaflega lélegur leikur, sendingar
ónákvæmar úr hófi, engin skemmtileg
tilþrif fyrir utan nokkra spretti hjá
Dean Martin KA-manni.