Morgunblaðið - 06.09.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 B 5
Meira af hnúfubak
o g hrefnu en áður
MEIRA virðist vera um
Talning- hvala tókst vel
þrátt fyrir erfið skilyrði h;g"n8;
samkvæmt lauslegu mati vísindamanna á gögnum sem safnað var í hvala-
talningarleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar í sumar. Það kom vísinda-
mönnunum mest á óvart hvað mikið var um hnúfubak, einkum við norðan-
vert landið, og tengja þeir það útbreiðslu smáloðnu á þessum tima. Þá
benda upplýsingar til að hrefnu hafi fjölgað við landið síðastliðin átta ár.
Sex vikna hvalatalningarleiðangri
Hafrannsóknastofnunarinnar á
rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni
og Strák (áður vitaskipið Árvakur)
lauk í byijun mánaðarins. Leitað var
á svæðinu milli Grænlands og ís-
lands, allt suður fyrir 58 gr. N og
djúpt og grunnt í kringum landið,
allt norður undir ísröndina og Jan
Mayen í norðri og suðaustur að mið-
línu milli íslands og Færeyja. Liðlega
40 menn voru við störf í skipunum.
Þess má geta að með í för voru þrír
kanadískir vísindamenn. Hrefnur á
grunnslóð allt í kringum landið voru
taldar úr flugvél.
Hvalatalningin er samstarfsverk-
efni íslendinga, Norðmanna, Græn-
lendinga og Færeyinga og er skipu-
lögð af vísindanefnd Sjávarspendýr-
aráðs Norður-Átlantshafsins
(NAMMCO). Talningu íslendinga er
ætlað að varpa ljósi á útbreiðslu og
fjölda einstakra tegunda hvala við
strendur landsins, einkum iang- og
sandreyðar, og hrefnu, sem stundað-
ar voru reglubundnar atvinnuveiðar
á allt til ársins 1985.
Veður harnlaði starfi
Jóhann Sigurjónsson, aðstoðarfor-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, segir
að leiðangurinn hafi tekist vel. Að
vísu hafi veður nokkuð hamlað starfi,
bæði slæmt sjólag og frekar lélegt
skyggni á stórhvalaslóð vestan lands-
ins og á Grænlandshafí, en ís og
þokur útí fyrir Norðurlandi og Aust-
fjörðum. „Engu að síður virðist hafa
verið nokkuð meira um stórhvali en
á sambærilegum svæðum árin 1987
og 1989, þó ekki verði úr því skorið
hvort um raunverulega aukningu
hafi verið að ræða fyrr en nákvæm-
ari greiningu gagna er lokið,“ segir
Jóhann. „Eins og vænta mátti var
langmestrar stórhvalagengdar vart
vestan við landið, einkum langreyð-
ar, en annars varð vart hvala um
allt leitarsvæðið. Mest á óvart kom
mikill fjöldi hnúfubaka, einkum við
norðanvert landið, sem líklega má
tengja útbreiðslu smáloðnu á þessum
tíma. Hin mikla hnúfubakagengd í
ár er vel í samræmi við niðurstöður
rannsókna Hafrannsóknastofnunar-
innar, sem sýnt hafa að minnsta
kosti 10% aukningu á ári síðastliðinn
aldarfjórðung eða svo.
Lausleg athugun úr gögnum úr
flugtalningu á hrefnu bendir til þess
að henni hafi fjölgað við landið sl.
átta ár, enda engar veiðar verið
leyfðar frá lokum vertíðar árið 1985.
Ekki fæst þó endanlega úr þessu
skorið fyrr en öll gögn hafa verið
skoðuð nánar,“ segir Jóhann.
Flækingur að vestan
Eins og fram hefur komið urðu
leitarmenn varir við íslandssléttbak
sem er afar fágætur á Norðaustur-
Atlantshafi. Jóhann segir að hér
hafi verið um að ræða stakt dýr,
hugsanlega flæking að vestan, líkt
og staðfest hafí verið um þau dýr
sem sáust í fyrri leiðangrum. „Ljóst
er að þó þessa tegund sé enn að finna
á þessu hafsvæði, þá er hún enn
afar fágæt,“ segir Jóhann.
„ Stórhættulegt kerfi“
STJÓRN Landssambands smábáta-
eigenda sendi frá sér ályktun að lokn-
um stjórnarfundi í Stykkishólmi í
ágústmánuði síðastliðnum. Þar eru
breytingar á fískveiðilöggjöf þeirri
sem samþykkt var á Alþingi í júní
sl. harðlega gagnrýndar.
í ályktuninni segir að löggjöfín
um veiðar smábátaflotans hafí enn
og aftur valdið því að sátt um veiði-
stýringu þeirra sé hvergi í sjónmáli
og reglugerð sú sem fylgdi í kjölfar
laganna hafi verið sem olía á ófrið-
arbál það sem þau tendruðu.
Jafnframt segir í ályktuninni að í
einum vetfangi hafí verið samin og
samþykkt lög frá Alþingi sem ger-
breyta og umturna afkomu og verð-
mæti eigna þúsunda einstaklinga og
heilu byggðarlaganna í landinu. Nú
þegar sé ljóst að 680 krókabátar sitji
eftir í stórkostlega gölluðu og bein-
línis stórhættulegu róðrardagakerfí
sem þvingi sókn minnstu bátanna
yfír á harðasta vetrartímann. Þeir
megi gera sér að góðu að hafa 6.900
tonn til skiptanna.
Útgerðarforminu
útrýmt með lánum
„Hveijum sem er má vera ljóst
að sá afli hrekkur engan veginn til
og darraðardansinum um fiskveiði-
stefnuna er hvergi nærri lokið. Ofan
á allt saman eru róðrardagar svo
naumt skammtaðir að skilaboðin sem
útgerðaraðilar krókabáta fá í gegn-
um löggjöfína eru að forgangsverk-
efni sé að taka háifan milljarð að
láni erlendis í þeim tilgangi einum
að útrýma útgerðarforminu hratt og
öruggiega án tillits til afleiðinga.
Stórútgerðaraðallinn hefur til
margra ára átt sér þann draum
stærstan að knésetja smábátaflotann
og er sú umræða sem skotið hefur
upp kollinum þess eðlis að fiskvinnsl-
an færist út á haf út af þeim meiði,“
segir í ályktuninni. Slíkri þróun mót-
mælir Landssamband smábátaeig-
enda harðlega og bendir á að íslensk
fiskimið séu fyrir íslendinga en ekki
norska banka.
Endurskoðunar krafist
Stjórn landssambandsins bendir
stjórnvöldum á í lok ályktunarinnar
að nýsett lög séu meingölluð og ekki
verði við þau unað. Öllum megi vera
ljóst að ekki verður umflúið að taka
þau mál til endurskoðunar strax á
haustdögum.
Stjórn landssambandsins hvetur
smábátaeigendur til að taka virkan
og lifandi þátt í réttindabaráttunni
sem framundan er.
RÆKJUBA TAR
Nafn StwrA Afll Flskur Sjðf Löndunarst.
DALAHÚSTÁRea 104 1 5 2 Þorlókshöfn \
FREYRÁR 102 185 1 23 1 Þorlákshöfn
FRÓDÍ ÁR 33 103 1 4 2 Þorlókshöfn
JÓN KLEMENZ ÁR 313 149 1 2 3 Þorlákshöfn
JÓN TRAUSTIIS 78 53 t 3 2 Þorlókshöfn
ELDHAMAR GK 13 38 10 0 2 Grindavík
[ FENGSÆLl. GK262 56 6 0 1 Grindovík
VÖRÐUFELL GK 205 30 3 0 2 Grindavík
\ ÓLAFUR GK 33 51 7 0 1 Grindavík j
DAGFARI GK 70 299 11 0 1 Sandgerði
\ GUÐFINNUR K£ 19 30 23 0 5 Sandgerði
REYNIR GK 47 71 11 0 2 Sandgerði
ÞORSTEINN KE 10 28 ' 9 0 3 Sondaorfti 1
ERLING KE 140 179 21 4 1 Keflavík
[ JÓHANNES tVÁR KÉ 8S 105 17 0 1 Keflavík
SANDVÍK GK 326 64 5 0 2 Keflavík
[ LÖMUR HF 177 295 20 2 i Hafnarfjörður j
HAMAR SH 224 235 18 21 2 Rif
\ RIFSNESSH M 226 11 7 1 Rif
SAXHAMAR SH 50 128 10 8 2 Rif
[ GARÐAR II SH 164 143 9 3 1 Ólafsvík
FANNEY SH 24 103 16 4 2 Grundarfjörður
[ GRUNDFIRÐINGOR SH 12 103 20 3 .2 Grundarfjörður
SÓLEYSH 124 144 14 4 1 Grundarfjörður
| GRETTIR SH 104 148 12 1 1 Stykkishólmur j
HAMRASVANUR SH 201 168 11 3 i Stykkishólmur
i KRISTINN FRIDRIKSSON SH 3 104 12 22 1 Stykkishólmur j
SVANUR SH 111 138 16 8 2 Stykkishólmur
\ ÁRSÆU.SH88 103 9 3 1 StykkishQlmur |
ÞÓRSNES II SH 109 146 11 8 1 Stykkishólmur
[ EMMAVE219 82 18 0 1 Bolungarvik
HAFBERG GK 377 189 20 0 1 Bolungarvik
i HEIÐRÚN1$ 4 294 23 0 1 Bolungarvfk
HUGINN VE 55 348 21 0 1 Bolungarvík
SÚLAN EA 300 391 18 0 1 Bolungarvfk
VINUR Is 8 257 13 0 1 Bolungarvík
l'vlmOERG GK 1 328 37 0 1 Bolungorvik j
BERGUR VE 44 266 11 0 1 ísafjörður
[ STURLA GK 12 297 2 0 1 ísafjörður |
STYRMIR KE 7 190 20 2 2 ísafjöröur
\ SÆFEU.ISR20 162 10 0 1 (safjörður
BESSI Js 410 807 27 Ó 1 Súðavík
l HAFFARIIS 430 227 23 0 1 Súðavík 'j]
KOFRI ts 41 301 17 0 1 Súðavik
HAFSÚLAST 11 30 1.., 0 1 Hólmavík
SIGURBORG VE 121 220 16 1 1 Hvammstangi
[ GUNNVÖR $T 39 20 4 : 0 1 Sauðárkrókur i
HAFÖRNSK 17 149 18 0 1 Sauðárkrókur
JÖKULL SK 33 68 13 0 1 Sauðárkrókur
RÆKJUBA TAR
Nafn KROSSANES SU 5 Stærð 137 Afli 9 Flskur 0 SJÓf. 1 Löndunarst. Sauðárkrókur
HELGA RE 49 mwj 29 0 1 Siðlufjöröur
SIGLUVIK Sl 2 ”450*’ 22 0 1' Siglufjöröur
i SIGÞÓRÞH 100 169 liii 0 1 SiglufiiWur
SNÆBJÖRG ÓF4 47 9 0 1 Siglufjörður
STÁLVlK Sl 1 364 23 0 1 Siglufjörður
UNA i GARÐI GK 100 138 18 0 1 Siglufjörður
ÞINGANES SF 25 162 23 0 1 Siðlufjörður :: j
GUÐMUNDUR ÖLÁFUR ÓF 91 294“ ié“ 0 1 Ölafsfjörður
{ ARNÞÓREA 16 illll 24 1....°... i " ÖSiÖt ’ ' " j
HAFÖRN EA 955 142 “22" 0“ 1 Dalvík
í naustavTkea >SI 28 4 0 1 "l)aiv8r ' ]
OTUR EA 162 58 12 ”0 “ 1 Dalvík
\ STEFÁN RÖGNVALDS. EA 34S 68 19 0 Dalvfk
STOKKSNES EA 4 10 451 30 0 1 Daivfk
! SVANUR EA 14 218 19 0 1 Dsivik
SÆÞÓREA 1OÍ 150 27 0 1 Dalvik
. SÓLRÚN EA 361 w: 19 1 Dalvtk j
VlÐIR TRAUSTIEÁ 517 62 13 0 “ 1 Daivík
INGIMUNDUR GAMLI HU 66 103 12 0 1 Aki'reyri
ÞÓRÐUR JÖNÁSSÖN TA 350 324“ 18 0 r Akureyri
, SJÖFNÞH142 199 21 0 1 GreriWfk
ALDIYÞHUO BJÖRG JÓNSDÖrtm IIÞH 320 101 273 20 J±\ 0 ... «1 1 1 Húsavík Húsavík
BJÖRG JÓNSDÓTTÍR ÞH 321 316 20 0 1 Húsavíic
EYBORGEAS9 ' \ 155 ■W .... 9... 1 Húsavik
GISSUR HVtn l'ilJ 38 165 11 0 ‘ 1' Húsavík
IIRÓNN8A99 104' 16 0 1 Húsavík
KRISTBJÖRG ÞH 44^ 187* 24 ö 1 Húsavík
SLáTTUNÚPUR ÞH 272 138 13 0 1 Húsavík ö -j
ÁTLÁNÚPÚR ÞH 270 214 31 0 2 Raufarhöfn
í GESTURSU1S9 138 13 0 1 EskíflÖrður " ~j
SÆUÓNSU 104 256 26 0 i Eskifjörður
ÞÓRIRSF77 125 i? .....9.. 1 Eskifjöröur |gj
SKELFISKBA TAR
Nafn Stasrð Afll SJ6f. Löndunarst.
| HAUKABERG SH 20 104 47 5 Brjánslækur ;
VlSIR BA 343 83 30 5 Brjánslækur
S HAFÖRN HU 4 20 4 . 3 Hvammstangi
| HUMARBÁTAR
Nafn Stoorð Fiskur SJ6f Löndunarst.
r JÓN GUNNLAUGS GK 444 105 5 2 Sondgerði
ÞÓR PÉTURSSON GK 504 143 ... 1 21 3 ' Sandgerði
Morgunblaðið/Gísli Víkingsson
HNÚFUBAKUR rennir sér í kaf á hvalaslóð norðan við land
eftir að hafa endurnýjað súrefnisbirgðirnar. Nafn hans má
væntanlega rekja til hornsins á bakinu.
Morgunblaðið/Sverrir D. Halldórsson
TALNINGARMAÐUR að störfum um borð í Árna Friðrikssyni.
%
Morgunblaðið/Sverrir D. Halldórsson
HÁHYRNINGAVAÐA á ferðinni vestan við land.
YAMAHA
DÍSELVÉLAR MEÐ HÆLDRIFI
Gerð ME 420, 6 strokka, 240 hö.
Frábært verð.
Aðeins kr. 1.495 þús. án vsk.
Hér er boðin nýjasta kynslóð hældrifsvéla,
hlaðin nýjungum þ.ám. vökvatengsli, sem tryggir mýkri
og hljóðlátari skiptingu en áður hefur þekkst.
Leitið upplýsinga!
Skútuvogi 12A, sími 581-2530.