Morgunblaðið - 12.09.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 12.09.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER BLAÐ Woosnam í stað Olazabals BERNARD Gallacher, liðsstjóri Ryderliðs Evr- ópu, sem mætir sveit Bandaríkjanna á Oak Hill í Rochester 22. til 24. september, hefur ákveðið að velja Ian Woosnam í liðið í stað Jose Maria Olazabal. Olazabal tók þátt í móti um helgina til að athuga hvort hann treysti sér í Ryderkeppnina, en hann hefur átt við meiðsli að stiða. Hann var ekki ánægður með framfarirnar og ákvað að gefa ekki kost á sér og var Woosnam þá valinn í staðinn. Woosnam hefur leikið í síðustu sex Ryder- mótum og var sigursælasti leikmaður liðs Evrópu þegar það vann bikarinn síðast, á Belfry fyrir tveimur árum. Olazabal hefur einnig verið sigursæll í Ryder og hann og landi hans Seve Ballesteros hafa sigrað 11 sinnum og gert tvö jafntefli í þeim 15 fjórmenningum og fjórleikjum sem þeir hafa leikið. Kvenna- landsliðið valið KRISTINN Björnsson hefur valið 18 stúlkur í Iandsliðshóp- inn fyrir landsleikinn gegn Rússum 17. september nk. á Laugardalsvelli. Markverðir eru Sigríður F. Pálsdóttir úr KR og Sigfríður Sophusdóttir úr Breiðabliki. Aðrir leikmenn eru: Guðlaug Jónsdóttir, KR, Ásgerður Ingibergdsdóttir, Guðrún Sæ- mundsdóttir og Kristbjörg Ingadóttir úr Val, Auður Skúladóttir, Ragna Lóa Stef- ánsdóttir og Katrín Jónsdóttir úr Stjömunni, Laufey Sigurð- ardóttir, Jónína Víglundsdótt- ir og Ingibjörg H. Olafsdóttir af Skaganum og Blikastúlk- urnar Margrét Olafsdóttir, Helga Ósk Hannesdóttir, _ Vanda Sigurgeirsdóttir, Ást- hildur Helgadóttir, Sigrún Óttarsdóttir og Erla Hend- riksdóttii'. Bartova með heimsmet TÉKKNESKA stúlkan, Dani- ela Bartova, setti í gær enn eitt heimsmet í stangarstökki kvenna, er hún stökk 4,22 m í Salgotaijan í Ungveijalandi — gamla metið hennar var 4,21 m, sett í Linz í Austur- ríki 22. ágúst. Bartova hefur sett niu heimsmet á árinu, síðan hún stökk 4,10 m í Ljubljana í Slóveníu í maí. „Gammur- inn“ skoraði í Mexíkó EMILIO Butragueno, fyrrum miðherji Real Madrid, eða „Gammurinn" eins og hann er kallaður, skoraði sín fyrstu mörk fyrir Celaya. Lið hans var undir, 0:2, þegar hann skoraði bæði mörkin, 2:2, og tryggði að Celaya er enn tap- laust eftir þijár umferðir. Annar kunnur kappi sem fagnaði einnig í Mexíkó — Osvaldo Ardiles, sínum fyrsta sigri, sem þjálfai Guadalaj- ara. TORFÆRA Hörkuslagur á Hellu Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson TORFÆRUJEPPI Akureyringsins Einars Gunnlaugssonar siglir yfir á af miklum krafti. Hann sigraði í lokamóti Islandsmótsins í torfæru, eftir harða keppni í flokki sérútbúinna jeppa. Hann varð samt að láta íslandsmeistaratitilinn, sem hann vann í fyrra, af hendi til Haraldar Péturssonar. Gunnar Guðmundsson tryggði sér meistaratitilinn í flokki götujeppa með slgri í lokamótinu, eftir hnífjafna keppni. KNATTSPYRNA Raith með þvjá menn í framlínunni gegn ÍA Raith Rovers átti ekki möguleika gegn Rangers í skosku úrvals- deildinni og tapaði 4:0 á Ibrox í Glasgow á laugardag. I.ogi Ólafs- son, þjálfari lslandsmeistara ÍA, fylgdist með leiknum en Raith Rov- ers og ÍA mætast í 1. umferð Evr- ópukeppni félagsliða og verður fyrri leikurinn á heimavelli skoska fé- lagsins í dag. „Liðið lék ágætlega fyrstu tutt- ugu til tuttugu og fimm mínúturnar en síðan var Rangers miklu betra enda klassamunur á Rangers og öðrum liðum í Skotlandi,“ sagði Logi við Morgunblaðið. Hann sagði virðingarvert að lið Raith hefði reynt að sækja gegn Rangers. „Það spilaði 4-4-2 og reyndi alltaf að spila fótbolta." Hann sagði ljóst að Skotarnir gerðu sér grein fyrir því að til að komast áfram yrðu þeir að sækja á heitnavelli og því benti allt til þess að liðið yrði með þtjá menn i framlínunni. „Það verða væntanlega Rogier, Crawford og Graham, sem eru hættulegustu menn liðsins og þeir menn sem við þurfum að stöðva.“ Skagamenn æfðu ytra í fyrradag og tvívegis í gær en seinni æfingin var í flóðljósum á leikvangi Raith Rovers. Logi sagði að allir leikmenn ÍA virtust klárir í slaginn. Reyndar hefði Bjarki Gunnlaugsson tekið því rólega en hann virtist vera í lagi og Þórður Þórðarson spilaði þrátt fyrir að hafa verið veikur síðan hann kom til Skotlands. Gengið yrði út frá því að Skagamenn spil- uðu eins og venjulega en sérstak- lega yrði lögð áhersla á að byija varlega. „Við verðum að fara var- lega í upphafi en á góðum degi eig- um við ágætis möguleika og við getum farið kinnroðalaust í leik- inn,“ sagði Logi. TENNIS: NÍTJÁNDISIGUR STEFFIGRAF Á STÓRMÓTI / B12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.