Morgunblaðið - 13.09.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER1995 B 7
FRETTIR
Túnamót á nýjum stað
hjá SH í Frakklandi
ís. MorfirunDlaðið.
Tvöfalt fleiri íslenskir
fiskar í franska maga
París. Morgunb
„BEST er að vera í slagtogi
með þeim sem vegnar vel,
við getum verið kátir yfir
auknum hlut íslendinga á
markaðnum." Alain Prunet
og Francois Richard voru í síðustu viku meðal gesta við opnun nýrrar
söluskrifstofu Icelandic France, dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Frakklandi. Þeir voru fulltrúar Carigel, sem er öflugt
dreifingarfyrirtæki fisks til franskra veitingahúsa. Þangað, í veitingahús
og mötuneyti, fara 2A hlutar þess fisks sem Icelandic France flytur inn
til Frakklands, en þriðjungurinn sem endar á diskum í heimahúsum er
seldur undir vörumerki Icelandic France í stórmörkuðum, frystibúðum og
heimsendingum. Smásalan fer raunar vaxandi, vöruúrval sömuleiðis og
áhersia er lögð á ýmiss konar unna fiskrétti.
Heildarsala fyrirtækisins hefur
ríflega tvöfaldast á þeim sjö árum
sem liðin eru síðan starfsemin hófst
í Frakklandi. Stórt stökk var tekið
fram á við fyrir íjórum árum með
fækkun milliliða og minni einingum
í sölu. Samstarf hófst þá til dæmis
við fyrirtæki sem selja frystan fisk
í heimahús, en fimmta hvert fisk-
flak í Frakklandi fer þá leið upp á
disk.
Eldhús vlð hraðbraut
Fyrst hafði Icelandic France
bækistöðvar í hafnarborg í Norður-
Frakklandi en flutti fljótlega til
Parísar. Fimm síðustu ár var fyrir-
tækið í Massy, sunnantii í borg-
inni, en breytingar og aukin umsvif
kölluðu á rýmri og betur búna að-
stöðu. Ákveðið var að kaupa 400
fermetra nýbyggt skrifstofuhús-
næði í Evry, nokkru lengra suður
af París, nærri Oriy-flugvelli og
hraðbr^utinni til Lyon og Marseille.
I<jórðungur þessa húsnæðis verð-
ur leigður út til að bytja með, en
nóg pláss er eftir fyrir»ellefu spá-
menn um íslenskan fisk. Þeir hafa
komið sér fyrir á hentugri vinnustað
en áður og geta nú til dæmis boðið
kaupendum inn í tilraunaeldhús að
smakka á fiskréttum fyrirtækisins.
Þegar hafa samningar um kaup á
góðmetinu tekist við matarborðið,
en það var fært fram í skrifstofu á
fimmtudaginn var og hlaðið óvenju
íjölbreyttu úrvali sjávarrétta í til-
efni af formlegri opnun húsnæðis-
ins. Uppáhalds viðskiptavinir hittu
þarna starfsfólk Icelandic France
og stjórn Sölumiðstöðvarinnar, sem
fundaði í París daginn eftir.
Fiskréttir frá Bretlandi
Lúðvík Börkur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri skrifstofunnar í
Frakklandi, segir að athygli hafi
vakið á fundinum að 13% vörunnar
sem hans fólk bjóði séu keypt frá
öðrum en SH á íslandi. Aðallega
reyndar af verksmiðju SH í
Grimsby, sem hafi um árabil unnið
fiskrétti úr íslenskri blokk sem ekki
nýtist í flök og flakabita, en einnig
sé fiskur keyptur frá Da.imörku,
Noregi og Chile. Samstarfið við
verksmiðjuna í Bretlandi hafi gefist
mjög vel og eftirspurn reynst mikil
eftir fiski sem hafi verið tilreiddur
þannig að eldunin sé auðveld.
Næstu mánuði reyni svo á viðtökur
við sælkeraréttum eins og reyktum
laxi og fiskikæfum frá íslensk-
franska eldhúsinu.
Sölumiðstöðin fékk íslenskt-
franskt til liðs við sig fyrr á þessu
ári og Friðrik Pálsson forstjóri SH
segir það í samræmi við stefnuna
að auka úrval unninnar vöru. Bæði
til að mæta óskum almennra neyt-
enda, sem hafi ekki tíma til flókinn-
ar eldamennsku, og stórra kaup-
enda sem leggi ekki lykkju á leið
sína nema fjölbreyttur varningur
bjóðist. Við þetta bætist sjónarmið
um nýtingu hráefnis eða það sem
kallað sé virðisaukandi framleiðsla.
Þróun nýrra afurða tekur tíma
en Friðrik segir mikið starf í verk-
smiðjunni í Grimsby nýtast vel með
sölureynslunni í París. Þannig sé
langur vegur frá upphafinu í Bou-
logne-sur-Mer 1988 þegar vörurnar
á Frakklandsmarkaði voru frekar
einfaldar, mestmegnis fiskblokkir
ætlaðar til vinnslu í frönskum verk-
smiðjum. Síðan hafi flök og flaka-
bitar orðið aðalsöluvaran, smá-
pakkningum fjölgað og síðasta vet-
ur verið byijað að selja fiskréttina
frá Bretlandi.
Stærsti seljandinn
Nær allur fiskur frá Icelandic
France er frosinn, helmingurinn
þorskur og karfi, en heilmargt ann-
að líka, skelfiskur til dæmis í vax-
andi mæli. Friðrik segir Frakka líkj-
ast Japönum að því leyti að þeir
séu alætur á fisk og miklir sælker-
ar. Þess vegna seljist næstum allar
vörutegundir fyrirtækisins í Frakk-
landi og í Belgíu sömuleiðis, mark-
aðurinn þar sé svipaður. Skrifstofan
í París þjóni Belgum, Spánveijum
og Portúgölum auk Frakka, en þeir
síðastnefndu kaupi þó rúmlega z/s
af magninu. Icelandic France sé
enda einn stærsti seljandi frystra
fiskflaka í Frakklandi.
Alls selur fyrirtækið um 15 þús-
und tonn af fiski á ári til landanna
ijögurra, fýrir nærri 260-70 millj-
ónir franka. Þetta eru 2-3% af fisk-
útflutningi íslendinga og 12% af
því sem SH flytur út. Lúðvík Börk-
ur segir að boðnar séu um 40 mis-
munandi pakkningar fyrir smásölu
og þar skiptist markaðurinn fyrir
frystan fisk í þrennt. Stórverslanir
eins og Monoprix og Auchan selji
65%, búðir sem eingöngu selji frys-
tivörur 15% og heimsendingarfyrir-
tæki 20%. Icelandic France skipti
við nær allar frystibúðir og heim-
sendingarfyrirtæki og hafi vörur í
fyrrnefndum stórverslunum. Hvað
veitingahúsin varðaði sé fyrst og
fremst selt gegnum heildsala sem
síðan dreifi giska víða. Verktakar
annist jafnan geymslu og dreifingu.
Um mun milli landa segir Lúð-
vík, líkt og Friðrik, að Frakkar
borði allan fisk, nema helst harð-
fisk. Mikið seljist af heilfrystum
karfa til Portúgal og heilum humri
til Spánar. Annars séu hverslags
fiskréttir í uppsveiflu og ekkert að
gera þegar væntanlegir kaupendur
komi í heimsókn nema bregða sér
inn í eldhús og skipta jakka út fyr-
ir svuntu. Því næst fái viðstaddir
vatn í munninn og þannig gerist
kaupin á eyrinni.
Hestui' íyrir frysta síld
„Ef þú nærð 1.200 tonnum á
árinu skal ég gefa þér hest,“ sagði
Friðrik Pálsson við síldarinnflytj-
andann Jean-Pierre Boussemaere
frá Boulogne-sur Mer á norðuströnd
Frakklands. Svo liðu nokkrir mán-
uðir og viti menn, tonnin urðu 1.500
og Friðrik varð að efna loforðið.
Það gerði hann þegar þeir Bous-
semaere, báðir forfallnir hesta-
menn, hittust i nýjum húsakynnum
Icelandic France í liðinni viku.
„Þetta verður fyrsti íslenski hestur-
inn minn,“ sagði fransmaðurinn og
Friðrik benti honum á reykta síld
sem fóður.
STARFSFÓLK Icelandic France er flutt inn í nýtt og betra hús-
næði. Fjórir íslendingar vinna hjá fyrirtækinu: Lúðvík Börkur
Jónsson, Hjörleifur Ásgeirsson, Magnús Scheving Thorsteinsson
GÓÐMETIÐ mátti meðal annars þakka Eric Calmon frá íslensk-
frönsku eldhúsi í Reykjavík og verksmiðju SH í Grimsby.
Alain Prunet og Francois Richard annast dreifingu á frosnum
íslenskum fiskflökum til grúa veitingahúsa í Frakklandi.
Feðginin Jean-Pierre og Caroline Boussemaere eru stærstu
frönsku síldarkaupendurnir og selja til lítilla reykhúsa á víð og
dreif um landið.
Reyndar er ekkert grín að kaupa
þvílíkt magn af frystum síldarflök-
um og selja til reýkhúsa. Boussema-
ere segir það erfiðara en áður af
því fiskurinn hafi verið lítill síðustu
2 til 3 ár. En hann hafi skipt við
Icelandic France frá upphafi vegna
gæða síldarinnar og hentugra
pakkninga og kringum 15% sinnar
vöru komi frá íslendingum. Hlut-
fallið hafi raunar hækkað mikið og
hann þiggi glaður hest fyrir flökin.
Góður gangur í veitingahúsum
Carigel heitir eitt öflugasta dreif-
ingarfyrirtæki Frakklands á fiski
til heildsala fyrir veitingahús og
mötuneyti af stærri sortinni. Það
kaupir árlega frystan fisk af SH í
Frakklandi fyrir 35 milljónir franka.
Sú tala er á uppleið að sögn Alain
Prunet, innkaupastjóra, enda fram-
farir hjá Icelandic France.
I staðinn fyrir heilan fisk kaupir
Carigel nú flök frá Islandi, heil og
í bitum, og sex gerðir meira unninn-
ar vöru úr verksmiðju SH í Grimsby.
Þessu er síðan dreift til 30 heild-
sala, sem skipta við 50 þúsund veit-
ingahús, og 40.000 mötuneyta og
stóreldhúsa. Svo mikið magn krefst
skipulags langt fram í tímann, að
sögn Prunet, svo erfitt væri að
breyta skyndilega um kúrs. Fisk-
réttir að hætti sælkera séu til dæm-
is heldur dýrir til að ná öruggri
útbreiðslu. Annars sé lítil ástæða
til breytinga meðan allt gangi vel.
RAÐAUGÍ YSINGAR
ATVINNAÍBOÐI
Vélstjóra
vantar í allar stöður á frystitogara frá Reykja-
víkursvæðinu.
Þurfa að hafa full réttindi.
Umsóknir, merktar: „B - 16171", sendist til
afgreiðslu Mbl.
BÁTAR-SKIP
KVIilTABANKINN
Þorskur, varanlegur,
til sölu.
Vantar þorsktil leigu.
ÝMISLEGT
Svalbarði!
Þeir, sem hafa áhuga á að taka þátt í að
koma af stað útgerðarfélagi á Svalbarða,
geta haft samband í síma 85 32 900 fram
eftir kvöldi næstu daga.