Morgunblaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
208. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússnesk
leyndarmál
afhjúpuð
MARKUS Wolf, fyrrverandi
yfirmaður leyniþjónustu Aust-
ur-Þýskalands, kynnir hér
fjórðu bók sína. I þetta sinn
afhjúpar hann rússnesk leynd-
armál í bók sem heitir „Leynd-
ardómar rússneskrar matar-
gerðar".
I henni eru uppskriftir að
rússneskum réttum og stuttar
sögur um hvar þeir voru born-
ir fram fyrir höfundinn.
Wolf er 72 ára og var dæmd-
ur í sex ára fangelsi fyrir
Dollar
styrkist
Tókýó, London. Reuter.
GENGI Bandaríkjadollara hækkaði
í kauphöllinni í Tókýó í gær og hef-
ur ekki verið jafn hátt í tæpa 15
mánuði.
Gengi dollars fór um tíma yfir
102 jen í fyrsta sinn frá því í júní
í fyrra. í kauphöllinni í London var
gengi dollarsins 102,63 jen.
Fjármálamenn í Tókýó segja að
gengi dollarans eigi eftir að hækka
smám saman á næstu dögum. Marg-
ir telja þó að það iækki aftur 20.
september, þegar japanska stjórnin
tilkynnir nýjar aðjgerðir til að blása
lífi í efnahaginn. Olíklegt þykir samt
að dollarinn fari niður fyrir 100 jen.
Fjármálamennimir sögðu ástæðu
gengishækkunarinnar þá að menn
væru orðnir sannfærðir um að jap-
anska stjórnin væri staðráðin í að
draga úr styrk jensins, sem hefur
skaðað japönsk útflutningsfyrirtæki
og haldið hagvexti niðri.
Reuter
Króatar og stjórnarher Bosníu hefja stórsókn
Mikilvægir serb-
neskir bæir falla
föðurlandssvik eftir samein-
ingu Þýskalands. Hæstiréttur
landsins hnekkti hins vegar
dómnum þar sem hann taldi
ekki réttlætanlegt að dæma
njósnaforingja fyrir starfsemi
sem var lögleg samkvæmt aust-
ur-þýskum lögum.
50.000 Serbar leggja á flótta
Zagreb, Sarajevo, Washington. Reuter, The Daily Telegfraph.
KRÓATAR og stjórnarher Bosníu hertu sókn sína í mið- og vesturhluta
landsins og náðu mikilvægum bæjum á sitt vald í gær. Allt að 50.000 serb-
neskir íbúar á svæðinu lögðu á flótta til norðurs. Bandaríkjastjóm hvatti
Króata og stjóm Bosníu til að láta af hernaðaraðgerðunum til að stefna
ekki friðarviðræðum í hættu. Sóknin er sögð mikið áfall fyrir Bosníu Serba,
sem hafa átt í vök að verjast vegna loftárása Atlantshafsbandalagsins.
Allt að 50.000 serbneskir íbúar
flúðu frá fimm bæjum við þjóðveg
sem tengir Bihac í norðvesturhlutan-
um við Zenica á yfirráðasvæði stjórn-
arhersins í miðhlutanum. Flótta-
mennirnir stefndu að bænum Banja
Luka í norðurhlutanum, en þar eru
fyrir 50.000 flóttamenn frá Krajina-
héraði sem Króatíuher náði á sitt
vald í síðasta mánuði.
Reuter
Notfæra sér loftárásirnar
Króatar og stjórnarher Bosníu em
að notfæra sér glundroðann meðal
Bosníu-Serba vegna loftárása
NATO. Haldi sókn þeirra áfram verð-
ur erfítt fyrir NATO að réttlæta frek-
ari loftárásir, þar sem túlka mætti
þær þannig að Atlantshafsbandalag-
ið hefði í reynd tekið afstöðu gegn
Serbum í stríðinu.
Sókn Króata og stjómarhersins
virðist einnig renna stoðum undir
staðhæfingar Bosníu-Serba um að
þeir yrðu varnarlausir gagnvart
stjórnarhernum ef þeir yrðu við kröf-
um NATO og flyttu þungavopn sín
á brott.
Loftárásirnar sæta vaxandi gagn-
rýni í Moskvu og jafnvel meðal
NATO-ríkja. Yfirmenn bandalagsins
og friðargæsluliðs Sameinuðu þjóð-
anna gætu því staðið frammi fyrir
tveim slæmum kostum, að gefa enn
einu sinni eftir eða að halda loftárás-
unum áfram í von um að Serbar féll-
ust á kröfurnar.
Nokkrir fréttaskýrendur telja að
sóknin geti valdið Bosníu-Serbum
svo miklum skaða að Rússar kunni
* að neyðast til að skerast í leikinn.
■ Loftbrú þjálpargagna/18
Sprengju skotið á bandaríska sendiráðið í miðborg Moskvu
ljósritunarvél
Moskvu, Washington. Reuter.
# Reuter
RÚÐUR brotnuðu, gluggakista skemmdist og hola myndaðist á
vegg sendiráðs Bandaríkjanna í Moskvu vegna sprengju í gær.
SPRENGJU var skotið í gegnum
vegg bandaríska sendiráðsins í
Moskvu í gær en hún stöðvaðist við
stóra ljósritunarvél og olli ekki
miklu tjóni. Ekki er vitað hveijir
vom að verki og bandarískir emb-
ættismenn sögðu ekkert benda til
þess að tilræðið tengdist óánægju
Rússa með loftárásir Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á víghreiður
Serba í Bosníu.
Talsmenn rússnesku iögreglunn-
ar sögðu að enginn hefði særst og
þeir tjáðu sig ekki um hugsanlegar
ástæður verknaðarins. Sendiráðs-
menn sögðu að búnaður til að skjóta
sprengjum, hanskar, svört gríma
og poki hefðu fundist í garði hand-
an götunnar.
Embættismenn í Hvíta húsinu í
Washington sögðu að sprengjan
hefði lent á sjöttu hæð byggingar-
innar, sem er við innri hringveginn
í miðborginni.
Misvísandi fregnir voru um hvað-
an sprengjunni var skotið. Itar-Tass
sagði að henni hefði verið skotið
úr bíl sem ók hjá, en fréttastofan
Interfax hafði eftir rússneskum
leyniþjónustumönnum að skotið
hefði verið frá bogahliði handan
götunnar.
Öryggisgæslan hert
Lögreglustjóri Moskvu gaf mönn-
um sínum fyrirmæli um að vera á
varðbergi vegna hættu á frekari
sprengjutilræðum og heimilaði þeim
að leita í bílum og íbúðum að eigin
vild. Öryggisgæslan við sendiráðið í
Moskvu og ræðismannsskrifstofurn-
ar í Pétursborg, Jekaterínborg og
Vladívostok var hert.
Ekki er vitað um ástæðu tilræðis-
ins, en samskipti Rússa og Banda-
ríkjamanna hafa verið stirð að und-
anförnu vegna loftárásanna í
Bosníu. Skipulögð glæpasamtök
hafa einnig sótt í sig veðrið í Rúss-
landi eftir hrun Sovétríkjanna og
nokkur þeirra hafa haslað sér völl
í Bandaríkjunum.
Líbýa
Palestínu-
mönnum
vísað burt
Jerúsalem. The Daily Telegraph.
ARABABANDALAGIÐ bað í
gær Muammar Gaddafí, leið-
toga Líbýu, að falla frá þejrri
ákvörðun sinni að vísa 30.000
Palestínumönnum úr landi.
Gaddafí ákvað fýrr í mánuð-
inum að grípa til þessara að-
gerða til að sýna fram á að
samningurinn við ísrael um
sjálfstjóm Palestínumanna á
Gaza-svæðinu og í Jeríkó á
Vesturbakkanum leysti ekki
vanda palestínskra flóttamanna.
Fregnir herma að yfírvöld í
Líbýu hafí látið safna Palestínu-
mönnum saman í búðum í Trí-
oplí. Þúsundum Palestínumanna
hefur þegar verið vísað úr landi
og margir þeirra hafa þurft að
dúsa við landamæri arabaríkja
og ísraels, sem neita að taka
við þeim.