Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 1
LÆ$STA-VERÐ
ABYRGÐ
Á BÍLALEIGUBÍLUM
FLORIDA 7.590
BRETLAND 13.020
KANARÍ 11.690
TÚNIS 29.900
*
Líflegir
litirí
lopapeysum
SLOPAPEYSUR í bláum, bleikum,
grænum o.fl. litatilbrigðum eiga
auknum vinsældum að fagna með-
^ al barna og unglinga eins og glöggt
má sjá þar sem margir eru saman-
komnir. Fullorðnir eru einnig að verða
djarfari en áður í litavali, þótt lopapeys-
ur í sauðalitunum haldi velli og útlend-
ingar kjósi þær fremur en hinar.
Istex hf. safnar ull frá öllum bænd-
um á landinu og framleiðir band í
handprjónm, vélpijón og vefnað. Þrúð-
ur Helgadóttir, sölustjóri, segir að
mikil aukning sé í sölu á lopa, sérstak-
lega lituðum hespu- og plötulopa, sem
einkum er notaður í lopapeysur. Hún
telur að tíska unglinganna mótist af
fortíðarþrá, og þeir sæki fyrirmyndir
sínar til ’68-kynslóðarinnar, en taki
þó litríkar lopapeysur fram yfir sauða-
litina.
í fyrra gaf fstex hf. út prjónablað
með 34 uppskriftum af lopapeysum í
tilefni lýðveldishátíðarinnar. Þrúður
segir að þá hafi sala á lituðum lopa
aukist til muna, enda voru uppskriftirn-
ar útfærðar í takt við kröfur tískunn-
ar, bæði í sniði og litasamsetningu.
Afgreiðslufólk hjá Handpijónasam-
bandi íslands, íslenskum heimilisiðnaði
og verksmiðjusölu Álafoss tóku í sama
streng og sögðu meira pijónað en áður.
Litaúrval hefði aukist mikið undanfarin
ár. Sem dæmi um verð kostar plötulopi
i peysu á 12 ára barn um 1.200 kr., en
sé tekinn hespulopi er verðið um 1.600
kr. Út úr búð kostar peysa á sama ald-
ur 5-6 þús. kr. ■
FÖSTUDAGUR
15. SEPTEMBER 1995
c
MAROKKÓ 24.700
MALAGA 9.980
BAHAMAS 21.060
InnHalið i verfti er: kaskótryaging. Itekkun sjalfsabyrqðar,
trygging g. stuldi og allir staAbunanlr skattar. 011 verð eru i
Islenskum krónum og eru vikuverð.Florida: ótokmarkaóur
akstur og kaskó.
588 35 35
Opið món-lös 9-18 lau 10-14
Flugleiðir 1 samstarf
við Atlantic flirway
FLUGLEIÐIR hf. og færeyska
flugfélagið Atlantic Airway undir-
rituðu í gær samstarfssamning sem
markar tímamót í flugsamgöngum
milli landanna tveggja. Að sögn
forsvarsmanna flugfélaganna felur
samningurinn meðal annars í sér
breytingar á flugdögum, lægra
verð og meiri áreiðanleika.
„Flugleiðir hafa um
árabil flogið áætlunarflug
til Færeyja á laugardög-
um og þriðjudögum,“ seg-
ir Páll Halldórsson, yfir-
maður innanlandsdeildar
Flugleiða. „Það hefur ver-
ið vilji fyrir því að breyta
dögunum, en innanlands-
deildin, sem sér um Fær-
eyjaflugið, hefur átt erfitt með að
losa flugvélar, til dæmis á föstu-
dögum. Nú verður hins vegar flog-
ið á milli íslands og Færeyja á
mánudögum og föstudögum frá og
með 27. október nk.“
Páll sagði að með breytingunni
vildu Flugleiðir jeggja áherslu á að
kynna fyrir íslendingum þann
möguleika að fara helgarferðir til
Færeyja yfir vetrartímann og eins
að fá þá Færeyinga í helgarferðir
til íslands. „Við erum að fara af
stað með markassetningu á
Reykjavík í Færeyjum, líkt og við
höfum verið með víða. Markaðs-
setningin verður undir heitinu
„Gjugg í borg“ og við verðum á
sama tíma með sams konar átak
til að kynna Reykjavík fyrir lands-
byggðinni.
Aukinn áreiðanleiki
Atlantic Airway mun sjá um
föstudagsflugið og Flugleiðir um
mánudagsflugið. „Við sjáum fram
á að geta aukið áreiðanleika í
fluginu með þessu fyrirkomu-
lagi,“ segir Páll. „Atlantic Airway
er með 86 sæta BAE, 146-200
fjögurra hreyfla þotur sem nýtast
vel í því veðri sem oft er í Færeyj-
um. Þá eru áhafnirnar sérþjálfað-
ar í Færeyjaflugi og það eykur
áreiðanleika flugsins til muna.
Einn þáttur í viðleitni Flugleiða
til að auka umferð milli íslands og
Færeyja er sú ákvörðun sem þar
hefur verið tekin um að endurskoða
fargjöldin. Páll segir að verið sé
að tala um 33% lækkun þar sem
fullt fargjald verði um 40.000 krón-
ur. Hann segir ennfremur
að uppi séu hugmyndir
um að reyna að auka tíðn-
ina næsta sumar og fljúga
þá þrisvar í viku milli Is-
lands og Færeyja. „Við
erum nú að flytja um
5.000 farþega í þessu
fiugi. Færeyjar eru hins
vegar 45-50.000 manna
markaður og það er ekki óeðlilegt
að við séum að flytja um tíu þús-
und farþega árlega.
Magne Arge hjá Atlantic Airway
lýsti yfir mikilli ánægju með sam-
starfssamninginn við Flugleiðir.
„Við sjáum fram á að fá fleiri far-
þega og það er ljóst að böndin
milli Færeyja og íslands munu
styrkjast verulega með þessum
samningi." ■
Útivist
stofnar
jeppadeild
Morgunblaðið/Hanna Katrín
HÉR hlykkjast ormurinn langi, 42 jeppar
á leið frá Hrafntinnuskeri.
JEPPADEILD verður stofnuð hjá Útivist í kjölfar
góðrar þátttöku í jeppaferð sem félagið stóð fyrir
um síðustu helgi. Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar,
fararstjóra hjá Útivist, bjuggust menn fyrirfram
við þátttöku 15-20 jeppa. Raunin varð hins vegar
sú að jepparnir urðu 42 og komust færri að en vildu.
„Það kom frétt um þessa fyrirhuguðu ferð í
Morgunblaðinu og viðbrögðin voru hreint ótrú-
leg,“ segir Sigurður. „Síminn stoppaði ekki og
fólk var enn að hringja rétt fyrir brottför á föstu-
dagskvöld. Þá vorum við hins vegar búnir að segja
stopp.“
Á föstudagskvöld óku jepparnir 42 sem leið lá
austur á Hvolsvöll og inn Fljótshlíð. Farið var yfir
Markarfljót og norður Emstrur í Hvanngil þar sem
gist var báðar nætur. Daginn eftir var ekið vestur
að Laufafelli og þaðan norður að Hrafntinnuskeri.
Gengið var á skerið og íshellar skoðaðir. Á sunnu-
dag var aftur ekið vestur að Laufafelli og þaðan
eftir svokallaðri Krakatindsleið. Hópurinn endaði í
Þjórsárdal og ók síðan hver á sínum hraða til
Reykjavíkur.
Tvær flugur í einu höggi
Sigurður sagði að í ljósi vel hepþnaðrar ferðar
hefði verið ákveðið að stefna á aðra ferð í kringum
næstu mánaðarmót. Síðan væri ætlunin að hafa
jeppaferðir framvegis með í ferðaáætlun Útivistar
sem gefin er út um hver áramót. „Við ætlum að
reyna að fá í jeppadeildina fólk sem hefur ferðast
á eigin jeppa hingað til, en ekki notið leiðsagnar.
{ raun stefnum við á að slá tvær flugur í einu
höggi. Annars vegar ætlum við að bjóða þessu
fólki að læra á ökutækin, hvernig á að nýta sér
fjórhjóladrifið, hvernig á að gera við einföldustu
hluti í bílunum, hvernig á að keyra yfir ár og svo
framvegis. Hins vegar viljum við kenna fólki að
umgangast landið með virðingu. Markmiðið er að
hafa gaman af því að ferðast og skoða landið okk-
ar.“ ■