Morgunblaðið - 20.09.1995, Qupperneq 1
JH*ripuil>lafrife
1995
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER
BLAÐ
Þrenna í Þýskalandi
BERNHARD Wilkler, sem leikur með 1960 Miinchen í Þýskalandi, skoraði þrennu fyrir lið sitt í gær er það sló Eintracht Frankfurt
út úr blkarkeppninni með 5:1 slgrl. Á myndinni má sjá Winkler skora þriðja mark sitt gegn Oka Nlkolov markverði Frankfurt.
■ Úrslit / D2
Johansson
á móti
Havelang?
SVÍINN Lennart Johansson, forseti Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA, sagði í gær að
hann væri tilbúinn til að bjóða sig fram til for-
manns í Alþjóðasambandinu árið 1998, en þá
rennur kjörtímabil Joao Havelangs út. Johansson
lýsti þessu yfir á blaðamannafundi í Portúgal í
gær, en þar er hann ásamt formönnum knatt-
spyrnusambanda í Evrópu.
„Við erum ekki í neinu stríði við FIFA, heldur
aðeins að ræða hugmyndir um hvemig hægt er
að breyta ýmsum hlutum. Við ætlum að ræða
ýmsar grundvallarspumingar næstu tvo daga,“
sagði Johansson og aðspurður hvort hann gæfi
kost á sér til formanns í FIFA
sagði hann: „Ef ég verð að
bjóða mig fram til að ein-
hveijar breytingar verði á
FIFA, er ég tilbúinn til þess.
En það er löng leið til tungls-
ins og ég get ekkert sagt nán-
ar um þetta fyrr en 1998, þá
kemur í Ijós hvort ég hef
stuðning til að gera þetta,“
sagði Johansson og bætti við
í gamansömum tón: „Ef þeir
verða ekki búnir að ganga frá
mér áður.“
Níu íbanni
í síðustu
umferðinni
AGANEFND KSÍ úrskurðaði
í gær 20 leikmenn í eins leiks
bann, vegna áminninga eða
brottvísunar. Níu leikmenn í
1. deild verða í banni í síðustu
umferðinni. KR-ingarnir
Hilmar Björnsson og Sigurður
Örn Jónsson verða í banni,
FH-ingarnir Petr Mrazek og
Þorsteinn Halldórsson einnig
og Bjarki Stefánsson úr Val,
Nökkvi Sveinsson úr Fram,
Kjartan Einarsson úr Keflavík
og Milan Jankovic úr Grinda-
vík.
Fylkismenn þurfa að hefja
baráttuna í 1. deild að ári án
Ingvars Ólasonar, en hann var
dæmdur í eins leiks bann og
fyrirliði Stjörnunnar, Heimir
Erlingsson, verður einnig með-
al áhorfenda í fyrsta leik
Stjömmmar í 1. deildinni í vor.
Keuter
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan leikur
fyrir luktum dyrum
Ásgeir
áferð
ogflugi
ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrau, er á för-
um til Þýskalands, þar sem hann
mun fylgjast með Þórði Guð-
jónssyni og Eyjólfi Sverrissyni
í leikjum. Asgeir sér Þórð leika
með Bochum gegn Nlimberg á
föstudaginn í Bochum og á laug-
ardaginn sér hann Eyjólf leika
með Herthu Berlín í Hannover.
Leikur Stjörnunnar og Vals í
2. umferð 1. deildar karla í
handknattleik fer fram fyrir lukt-
um dyrum í íþróttahúsinu í As-
garði í Garðabæ í kvöld. Eftir
oddaleik Stjörnunnar og KA, sem
KA sigraði, í átta liða úrslitum
föstudaginn 3. mars, brutust út
ólæti í húsinu þar sem m.a. var
ráðist að öðrum dómara leiksins.
Aganefnd HSÍ ákvað að refsing
Stjömunnar yrði sú að fyrsti
heimaleikur liðsins yrði leikinn fyr-
ir tómu húsi og eins var félaginu
gert að greiða 25 þúsund krónur
í sekt. Þeir sem hafa aðgang að
leiknum í kvöld eru eftirtaldir: 14
leikmenn og fjórir starfsmenn
hvors liðs (þjálfari, liðsstjóri og
læknir meðtaldir), tveir dómarar,
einn ritari, einn tímavörður, tveir
starfsmenn húss til að þurrka af
gólfi, þrír aðilar frá HSÍ, einn
blaðamaður og Ijósmyndari frá
hveiju blaði, sem að staðaldri fjalla
um íþróttir, og starfsmenn þeirra
útvarps- og sjónvarpsstöðva, sem
að staðaldri fjalla um íþróttir.
SIR ROGER BANNISTER: BLOKKUMENN SKAPAÐIR TIL SPRETTHLAUPA / 04