Morgunblaðið - 21.09.1995, Side 1
FISKELPI
Bleikjan bjartasta
vonin/4
SAMRUWI
Tími samsteyp-
anna kominn /8
FYRIRTÆIiI
íslenskur markaö-
ur á tímamótum /6
VIDSKIFn AIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
BLAÐ
B
Bílar
VOLVO-bílasmiðjurnar hafa borð-
ið til baka orðróm um að Chrysler-
verksmiðjurnar séu að reyna yfir-
taka þær. Hlutabréf í Volvo hækk-
uðu um 10% i 177,50 s. kr. í kaup-
höllinni í Stokkhólmi vegna orð-
rómsins. Sérfræðingar telja kvitt-
inn stafa af því að Volvo og
Chrysler hafa unnið saman að til-
teknum verkefnum eins og al-
gengt er i bilaiðnaði.
Tölvur
Computer 2000 á Islandi hefur
verið falin sala á DeskJet og
LaserJet prenturum frá
Hewlett-Packard hér á landi,
samkvæmt frétt frá HP í
Danmörku. Sagt er að söluaðilar
á við Computer 2000 tryggi HP
öflugan markað í gegnum góða
vörustýringu ogþjónustu.
Flugþing
Flugmálasljórn efnir til málþings
undir heitinu Flugþing ’95 —
Flugsamgöngu á Islandi fimmtu-
daginn 19. október nk. Er þetta
nýjung í starfsemi flugmálayfir-
valda en stefnt er að því að halda
Flugþing reglulega í framtiðinni
og taka þá fyrir eitt afmarkað
efni í hvert sinn.
SÖLUGENGlDOLLARS
Nýr fjárfestingarkostur hjá Lánasýslu ríkisins
Verðtrygging
til 20 ára
Ánægja með fyrsta útboð 5 ára
óverðtryggðra ríkisbréfa
FYRSTA útboð á fimm ára óverð-
tryggðum ríkisbréfum fór fram í gær
hjá lánasýslu ríkisins. Nam sala á
bréfunum röskum 300 millj. króna
en meðalávöxtun varð 10,78% og
segir Sigurgeir Jónsson, forstjóri
Lánasýslu ríkisins útboðið hafa tekist
mjög vel til í alla staði.
Þá segir Sigurgeir að von sé á fleiri
nýjungum frá Lánasýslunni. Þannig
sé ætlunin að hefja útboð á verð-
tryggðum spariskírteinum til 20 ára
og sé það í fyrsta skipti sem boðið
sé upp á verðtryggðan fjárfestingar-
kost til svo langs tíma hér á landi.
Hann segir þessa nýjung vera lið í
viðleitni Lánasýslunnar við að auka
við flóruna á íslenskum verðbréfa-
markaði. Á verðbréfamarkaði er þess
beðið með nokkurri eftirvæntingu
hver ávöxtunin verði á slíkum bréfum.
Sigurgeir segir þennan nýja fjár-
festingarkost vera mjög hentugan
fyrir lífeyrissjóði sökum þess að um
fjárfestingu til mjög langs tíma sé
að ræða. „Skuldbindingar lífeyris-
sjóða ná mjög langt fram í tímann
á sama tíma og fjárfestingar þeirra
eru til mun skemmri tíma í einu. Það
ríkir því mikil óvissa um vaxtaþróun
en með þessum hætti geta sjóðimir
tryggt sé ákveðna raunvexti til mjög
langs tíma og dregið þannig úr
vaxtaáhættu sinni."
Þá segist Sigurgeir reikna með því
að einhver tími muni líða uns menn
fari að nýta sér þennan kost í miklum
mæli en segist engu að síður hafa
mikla trú á honum. „Við teljum það
vera hlutverk ríkisins að vera í farar-
broddi með nýjungar á þessu sviði
enda er það langstærsti aðilinn á
markaðnum. Við reiknum með að
aðrir muni síðan fylgja í kjölfarið."
Hin nýju bréf eru eingreiðslubréf
og er gjalddagi fyrstu útgáfunnar
því 1. október árið 2015. Þau eru
verðtryggð með vísutölu neysluverðs
og án nafnvaxta, sem mun vera nýj-
ung hvað varðar verðtryggð spari-
skírteini ríkissjóðs. Bréfin eru því
keypt með forvöxtum til næstu 20
ára og dragast vextimir frá höfuð-
stól skíreinisins við kaup. Lág-
marksfjárhæð hvers tilboðs er 100
milljónir króna og verður heildarfj-
árhæð fyrsta útboðsins allt að 1
milljarði króna.
Fyrsta útboð vel heppnað
Sigurgeir segist jafnframt vera
mjög ánægður með hvemig til hafi
tekist með fyrsta útboðið á óverð-
tryggðum ríkisbréfum til 5 ára. Alls
hafi verið tekið tilboðum fyrir 422
milljónir króna í 3ja og 5 ára ríkis-
bréf en þar af hafi tilboð í 5 ára
bréfin numið ríflega 300 milljónum
króna. Meðalvöxtun 5 ára bréfanna
hafí verið 10,78%, ríflega 1% hærri
en meðalávöxtun 3ja ára bréfanna
sem var 9,48%.
Að sögn Sigurgeirs er þetta mjög
áþekk ávöxtun og búist hafi verið
við, en reikna megi með því að hún
muni lækka eitthvað í næstu útboð-
um. Þannig hafi meðalávöxtun 3ja
ára bréfanna Iækkað um 0,4 pró-
sentustig frá fyrsta útboði. Það sé
eðlilegt að ávöxtunarkrafa manna
sé nokkuð há í upphafi enda fylgi
fjárfestingu af þessu tagi alltaf nokk-
ur áhætta hvað varðar þróun verð-
bólgu og vaxtastigs næstu árin.
tl/ ctð hug$a um að fyaUesti
Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraðilum afar hagstætt að
fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár.
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum
Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum.
Hafðu samband og fáðu að vita meira um
flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að
binda rekstrarfé í tækjakosti.
GUtnirhf
dótturfyrirtæki íslandsbanka Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir
Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað
um ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn
og spjallaðu við ráðgjafa okkar.