Morgunblaðið - 21.09.1995, Page 1

Morgunblaðið - 21.09.1995, Page 1
FISKELPI Bleikjan bjartasta vonin/4 SAMRUWI Tími samsteyp- anna kominn /8 FYRIRTÆIiI íslenskur markaö- ur á tímamótum /6 VIDSKIFn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 BLAÐ B Bílar VOLVO-bílasmiðjurnar hafa borð- ið til baka orðróm um að Chrysler- verksmiðjurnar séu að reyna yfir- taka þær. Hlutabréf í Volvo hækk- uðu um 10% i 177,50 s. kr. í kaup- höllinni í Stokkhólmi vegna orð- rómsins. Sérfræðingar telja kvitt- inn stafa af því að Volvo og Chrysler hafa unnið saman að til- teknum verkefnum eins og al- gengt er i bilaiðnaði. Tölvur Computer 2000 á Islandi hefur verið falin sala á DeskJet og LaserJet prenturum frá Hewlett-Packard hér á landi, samkvæmt frétt frá HP í Danmörku. Sagt er að söluaðilar á við Computer 2000 tryggi HP öflugan markað í gegnum góða vörustýringu ogþjónustu. Flugþing Flugmálasljórn efnir til málþings undir heitinu Flugþing ’95 — Flugsamgöngu á Islandi fimmtu- daginn 19. október nk. Er þetta nýjung í starfsemi flugmálayfir- valda en stefnt er að því að halda Flugþing reglulega í framtiðinni og taka þá fyrir eitt afmarkað efni í hvert sinn. SÖLUGENGlDOLLARS Nýr fjárfestingarkostur hjá Lánasýslu ríkisins Verðtrygging til 20 ára Ánægja með fyrsta útboð 5 ára óverðtryggðra ríkisbréfa FYRSTA útboð á fimm ára óverð- tryggðum ríkisbréfum fór fram í gær hjá lánasýslu ríkisins. Nam sala á bréfunum röskum 300 millj. króna en meðalávöxtun varð 10,78% og segir Sigurgeir Jónsson, forstjóri Lánasýslu ríkisins útboðið hafa tekist mjög vel til í alla staði. Þá segir Sigurgeir að von sé á fleiri nýjungum frá Lánasýslunni. Þannig sé ætlunin að hefja útboð á verð- tryggðum spariskírteinum til 20 ára og sé það í fyrsta skipti sem boðið sé upp á verðtryggðan fjárfestingar- kost til svo langs tíma hér á landi. Hann segir þessa nýjung vera lið í viðleitni Lánasýslunnar við að auka við flóruna á íslenskum verðbréfa- markaði. Á verðbréfamarkaði er þess beðið með nokkurri eftirvæntingu hver ávöxtunin verði á slíkum bréfum. Sigurgeir segir þennan nýja fjár- festingarkost vera mjög hentugan fyrir lífeyrissjóði sökum þess að um fjárfestingu til mjög langs tíma sé að ræða. „Skuldbindingar lífeyris- sjóða ná mjög langt fram í tímann á sama tíma og fjárfestingar þeirra eru til mun skemmri tíma í einu. Það ríkir því mikil óvissa um vaxtaþróun en með þessum hætti geta sjóðimir tryggt sé ákveðna raunvexti til mjög langs tíma og dregið þannig úr vaxtaáhættu sinni." Þá segist Sigurgeir reikna með því að einhver tími muni líða uns menn fari að nýta sér þennan kost í miklum mæli en segist engu að síður hafa mikla trú á honum. „Við teljum það vera hlutverk ríkisins að vera í farar- broddi með nýjungar á þessu sviði enda er það langstærsti aðilinn á markaðnum. Við reiknum með að aðrir muni síðan fylgja í kjölfarið." Hin nýju bréf eru eingreiðslubréf og er gjalddagi fyrstu útgáfunnar því 1. október árið 2015. Þau eru verðtryggð með vísutölu neysluverðs og án nafnvaxta, sem mun vera nýj- ung hvað varðar verðtryggð spari- skírteini ríkissjóðs. Bréfin eru því keypt með forvöxtum til næstu 20 ára og dragast vextimir frá höfuð- stól skíreinisins við kaup. Lág- marksfjárhæð hvers tilboðs er 100 milljónir króna og verður heildarfj- árhæð fyrsta útboðsins allt að 1 milljarði króna. Fyrsta útboð vel heppnað Sigurgeir segist jafnframt vera mjög ánægður með hvemig til hafi tekist með fyrsta útboðið á óverð- tryggðum ríkisbréfum til 5 ára. Alls hafi verið tekið tilboðum fyrir 422 milljónir króna í 3ja og 5 ára ríkis- bréf en þar af hafi tilboð í 5 ára bréfin numið ríflega 300 milljónum króna. Meðalvöxtun 5 ára bréfanna hafí verið 10,78%, ríflega 1% hærri en meðalávöxtun 3ja ára bréfanna sem var 9,48%. Að sögn Sigurgeirs er þetta mjög áþekk ávöxtun og búist hafi verið við, en reikna megi með því að hún muni lækka eitthvað í næstu útboð- um. Þannig hafi meðalávöxtun 3ja ára bréfanna Iækkað um 0,4 pró- sentustig frá fyrsta útboði. Það sé eðlilegt að ávöxtunarkrafa manna sé nokkuð há í upphafi enda fylgi fjárfestingu af þessu tagi alltaf nokk- ur áhætta hvað varðar þróun verð- bólgu og vaxtastigs næstu árin. tl/ ctð hug$a um að fyaUesti Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraðilum afar hagstætt að fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár. Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum. Hafðu samband og fáðu að vita meira um flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að binda rekstrarfé í tækjakosti. GUtnirhf dótturfyrirtæki íslandsbanka Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10. Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað um ólíkar gerðir fjármögnunar. Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn og spjallaðu við ráðgjafa okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.