Morgunblaðið - 22.09.1995, Side 1
92 SÍÐUR B/C/D
215. TBL. 83.ÁRG.
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Þingmannalaun hækkuð
NEÐRI deild þýska þingsins sam-
þykkti í gær að breyta stjórnar-
skránni og hækka laun þingmanna
um 40% á fimm árum. Jafnaðar-
mannaflokkurinn, stærsti stjórn-
arandstöðuflokkurinn, snerist á
sveif með Kristilegum demókröt-
um, flokki Helmuts Kohls kansl-
ara, i atkvæðagreiðslunni. Sam-
steypustjórnin var hins vegar klof-
in í málinu, þvi Frjálsir demó-
kratar lögðust gegn launahækk-
uninni.
Tillagan var samþykkt með 507
atkvæðum gegn 139 og fimm sátu
hjá. Sérfræðingar um sögu þings-
ins sögðust ekki vita til þess að
stóru flokkarnir tveir hefðu áður
sameinast um breytingu á stjórn-
arskránni án stuðnings eins af
minni flokkunum.
Efri deild þingsins á eftir að
samþykkja launahækkunina, en
hún hefur sætt harðri gagnrýni.
„Vitið þið hvað kjósendurnir eru
reiðir?“ spurði dagblaðið Bild
þingmennina í fyrirsögn á forsíðu.
A myndinni greiðir Kohl atkvæði.
Forseti Bosníu segir að ekki verði ráðist á Banja Luka
Sókn Króata og
múslima stöðvuð
Sarjijt’vo, Vín, Washington. Reuter.
STJÓRNARHER Bosníu og króat-
ískar hersveitir hættu í gær að sækja
í átt að serbnesku borginni Banja
Luka í vesturhluta landsins. Alija
Izetbegovic, forseti Bosníu, sagði að
stjórnarherinn myndi ekki ráðast á
Banja Luka en setti það skilyrði fyr-
ir allsheijarvopnahléi í landinu að
yfirmenn serbneska hersins færu úr
borginni.
Sóknin hafði staðið í ellefu daga
og tryggt múslimum og Króötum
yfirráð yfir helmingi landsins.
130.000 serbneskir íbúar lögðu á
flótta vegna bardaganna.
Izetbegovic sagði að ef samið yrði
um vopnahlé myndi það gilda í tvo
mánuði og sá tími yrði notaður til
viðræðna um varanlegan frið eftir
41 mánaðar stríð. Hann sagði að
Bosníustjórn setti þau skilyrði fyrir
vopnahléi að yfirmenn serbneska
hersins færu frá Banja Luka, að
vegir til Gorazde í austurhluta lands-
ins yrðu opnaðir og umsátrinu um
Sarajevo aflétt.
Hermenn halda til Króatíu
Embættismenn Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og Sameinuðu
þjóðanna sögðu að Serbar hefðu
orðið við kröfunni um að aflétta
umsátrinu ,um Sarajevo og flytja
þungavopn sín frá borginni. Þeir
hótuðu hins vegar hörðum loft-
árásum af hálfu NATO á víghreiður
Serba ef þeir stæðu ekki við loforð
sín um að hætta árásum á bosnísku
höfuðborgina.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna höfðu varað ráðamenn í
Sarajevo og Zagreb við því að sókn-
in í norðvesturhluta Bosníu gæti
stefnt friðarviðræðum í hættu. Þeir
sögðu að stjórnarherinn og Króatar
hefðu hætt hernaðaraðgerðum sín-
um á þessum slóðum. „Sést hefur
til króatískra hersveita fara yfir
landamærin til Króatíu," sagði tals-
maður samtakanna, Alexander
Ivinko.
John Shalikashvili, forseti banda-
ríska herráðsins, sagði í gær að
Bandaríkjamenn væru reiðubúnir að
senda allt að 25.000 hermenn til
Bosníu ef friðarsamningur yrði und-
irritaður. Bandarísku hermennirnir
yrðu þó ekki nema helmingur þess
liðsafla sem þyrfti til friðargæslunn-
ar.
Indland
„Krafta-
verk“ í
hofunum
Nýju Delhí. Reuter.
ÞUSUNDIR manna flykktust í
gær í hof í Indlandi og Nepal
eftir að sú frétt breiddist út
eins og eldur um sinu að lík-
neski af guðum hindúa hefðu
drukkið mjólk sem borin var
fyrir þau.
Hofin voru troðfull af fólki
sem hafði frétt að mjólk, sem
var hellt á líkneski af guðinum
Shiva og Ganesha, guðinum
með fílshöfuðið, hyrfi með dul-
arfullum hætti.
Rökhyggjumenn andmæltu
þessum fréttum. „Margir þeirra
sem trúa á slíka atburði eru
að leita að kraftaverkum og
vilja ekki líta á þá með gagn-
rýnu hugarfari," sagði Sanal
Edamarukku, framkvæmda-
stjóri Sambands indverskra
rökhyggjumanna.
„Kraftaverkið"
rannsakað
Þeir sem trúðu því að lík-
neskin drykkju mjólkina voru
hins vegar miklu fleiri og marg-
ir snerust til hindúatrúar þegar
þeir urðu vitni að „kraftaverk-
inu“. Þúsundir manna lögðu
niður vinnu til að bíða í löngum
röðum við hofín.
Yfirvöld í Nýju Delhí sögðu
að vísindamenn yrðu fengnir
til að rannsaka hvort um
kraftaverk væri að ræða.
Skortur var á mjólk og yfirvöld
í Delhí gerðu ráðstafanir til að
afla 100.000 lítra til viðbótar.
Mjólkurverðið snarhækkaði
vegna tíðindanna.
Reuter
Fulltrúadeild
Bandaríkjaþings
Þjarmað
að Kastró
Washington. Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings
samþykkti í gær með miklum meiri-
hluta atkvæða að herða þvinganirnar
gegn Fídel Kastró, leiðtoga Kúbu,
og hindra erlendar fjárfestingar í
landinu.
Helstu ráðgjafar Bills Clintons
forseta hafa lagt til að hann beiti
neitunarvaldi sínu berist tillagan á
hans borð óbreytt þar sem hún geti
skapað spennu í samskiptum við
önnur ríki og stefnt hagsmunum
Bandaríkjanna erlendis í hættu.
Tillagan var samþykkt með 294
atkvæðum gegn 130, sem nægir til
að hnekkja neitunarvaldi forsetans.
Báðar deildir þingsins verða að sam-
þykkja tillöguna og óljóst er hvaða
stuðning svipuð tillaga hefur í öld-
ungadeildinni.
Mótmæli í Manila
MÖRG þúsund vinstrisinnaðra
verkamanna og námsmanna á
Filippseyjum fóru í gær í kröfu-
göngur til að mótmæla fyrirhug-
uðum hækkunum á bensíni. Um-
ferð stöðvaðist víða í Manila
vegna mótmælanna og atvinnulíf
lamaðist í borginni Iligan í suður-
hluta landsins.
A myndinni sjást mótmælend-
ur fyrir utan forsetahöllina í
Manila. Spjaldið, sem haldið er á
lofti, sýnir mann með tvö andlit.
Vinstri helmingurinn er andlit
Fidels Ramosar forseta, en hinn
helmingurinn sýnir Ferdinand
Marcos, fyrrverandi einræðis-
herra Filippseyja. Ýmsir stjórn-
málamenn hafa vænt Ramos um
að vilja setja herlög.
Einvígi Kasparovs og Anands í New York
Sjöundajafnteflið
Ncw York. Rcutcr.
SJÖUNDU skákinni í heimsmeist-
araeinvígi Garrís Kasparovs og Ind-
veijans Viswanathans Anands lauk
með jafntefli í gærkvöldi eftir 25
leiki. Anand var með hvítt í skák-
inni og tefld var Sikileyjarvörn.
Öllum skákunum sjö hefur lokið
með jafntefli og skákmeistararnir
eru því með þijá og hálfan vinning
hvor. Næsta skák verður tefld í dag.
Titringiir vegna
ummæla Waigels
London. Reuter. ^ *
RAINER Masera, fjárlagaráðherra
Italíu, vísaði í gær á bug ummæl-
um Theos Waigels, fjármálaráð-
herra Þýskalands, þess efnis að
ítalir gætu ekki orðið stofnaðilar
að myntbandalagi Evrópusam-
bandsins (ESB). Masera sagði
ummælin „vanhugsuð og óviðun-
andi“.
Waigel lét einnig svo um mælt
að erfitt yrði fyrir Hollendinga og
Belga að fullnægja skilyrðum
Maastricht-sáttmálans um mynt-
bandalagið.
„Þetta endurspeglar að nokkru
leyti skoðanir almennings í Þýska-
landi sem hefur miklar áhyggjur
af því að missa þýska markið,“
sagði James Montier, hagfræðing-
ur fjárfestingarfélagsins Kleinwort
Benson. „Svo virðist sem það sé
ekki lengur pólitískur vilji fyrir
myntbandalaginu í Þýskalandi.“
Hagfræðingar bentu á að svipuð
ummæli þýskra ráðamanna hefðu
valdið gengishruni nokkurra gjald-
miðla á árunum 1992 og 1993.
Gengi ítölsku lírunnar lækkaði
í gær en þýska markið og sviss-
neski frankinn styrktust á mörkuð-
um í Evrópu í kjölfar ummæla
Waigels. Gengi Bandaríkjadollars
lækkaði einnig og fór um tíma nið-
ur fyrir 100 jen í Tókýó.