Morgunblaðið - 23.09.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Ásdís
Gæðaskór handa markahæstu stúlkunum
MARKAHÆSTU leikmenn 1. delldar kvenna í knattspyrnu fengu í gær afhenta gull-, sllfur- og bronsskó fyrlr
frammistöðuna í sumar, frá aðal styrktaraðlla deildarinnar, Kj. Kjartanssyni hf., sem hefur umboð fyrir Miz-
uno-íþróttavörur. Markahæsti lelkmaður deiidarinnar var Margrét Ólafsdóttir Breiðabllki, en hún gerði þrettán
mörk í deildinni í sumar. Önnur varð félagl hennar úr Breiðabliki, Sigrún Óttarsdóttir, með 12 mörk. Fast á
hæla hennar kom Kristbjörg Ingadóttir Val með 11 mörk. Stúikurnar eru á myndlnni frá vinstri Slgrún Óttars-
dóttir, Kristbjörg Ingadóttir og Margrét Ólafsdóttir.
Anderlecht
gagnrýnir
UEFA
BELGÍSKA knattspyrnuliðið Anderlecht er ekki
sátt við ákvörðun UEFA að láta danska liðið
Álaborg taka sæti Dynamo Kiev í meistaradeild
Evrópu, verði niðurstaðan sú að Kiev verði dæmt
í þriggja ára bann. Þeir þjá Anderlecht tejja að
þeir eigi miklu frekar að vera í keppninni og
byggja þá skoðun sína á því hversu vel liðið lék
í síðustu Evrópukeppni. „ Við sjáum engin rök,
hvorki íþróttaleg né annars konar, sem styðja
þá ákvörðun að Alaborg taki sæti Kiev,“ segir í
bréfi Anderlecht til UEFA.
Dalglish ætlar
ekki að taka
við Blackburn
KENNY Dalglish mun ekki taka að sér að stjórna
liði Blackburn eins og orðrómur hefur verið
uppi um, en hann var gerður að yfirmanni knatt-
spyrnumála þjá Blacbum eftir að hafa tryggt
liðinu Englandsmeistaratitilinn siðasta vor.
Blackburn hefur gengið mjög illa það sem af er
keppnistimabilinu undir stjóm Ray Harford og
segist Dalglish ætla að aðstoða hann en ekki
taka við. „Eg er tilbúinn að veita honum alla þá
aðstoð sem ég get, en hann ræður. Hann var
mér innan handar í fyrra og nú er komið að
mér að endurgjalda það. En hann hefur lokaorð-
ið í öUum mikilvægum málum núna, hans er
valið og það á að gefa honum færi á að sinna
skyldum sinum án afskipta. Ég mun eingöngu
aðstoða og veita ráðleggiugar," sagði Dalglish.
Klinsmann vill
Ijúka ferlinum
hjá Bayem
JÚRGEN Klinsmann, fyrirliði þýska landsliðsins
og miðheiji Bayem Mlinchen, segir að hann
ætli að ljúka ferli sínum sem knattspyraumaður
þjá Bayem. Klinsmann, sem er 31 árs, hefur
leikið með Stuttgart, Inter Mílanó, Mónakó og
Tottenham. Klinsmann hefur aðeins skorað tvö
mörk í sex deiidarleikjum í Þýskalandi. „Við
höfum enn ekki fundið rétta stígandann til að
opna varnir andstæðinganna.
Skíðalandsliðið
í Austurríki
SKÍÐALANDSLIÐIÐ verður gert út frá Austur-
ríki í vetur eins og í fyrravetur. Liðið verður í
Schladming fram í apríl og mun æfa eftir sömu
áætlun og i fyrra. í fyrra var liðið með bilaleigu-
bíl í sjö mánuði og keyrði 46 þúsund kílómetra
en nú hefur Skíðasambandið keypt Toyota Hiace
fyrir liðið þannig að ekki þarf að borga leigu.
FRJALSIÞROTTIR
Sprautur finnast í Gautaborg
Sænskir fjölmiðlar greindu frá
því nýverið að í kringum 100
notaðar sprautur hafí fundist í
ruslinu í búðum
Svíþjóð keppenda á Heims-
Grétar Þór meistaramótinu í
Eyþórsson fijálsíþróttum sem
fram fór í Gautaborg í ágúst.
Talið er fullvíst að sprautur
þessar hafi innihaldið lyf, þótt
ekki virðist um ólögleg lyf að
ræða. Fram hefur komið að ekk-
ert þeirra efna sem fundist hafa
séu á bannlista, heldur séu þau
flest efni sem telja má á gráu
svæði, þar sem ekki hefur verið
hægt að sanna að notkun þeirra
bæti árangur íþróttamannanna.
Meðal efnanna var þó efnið Argin-
in sem eykur framleiðslu líkamans
á vaxtarhormónum, en er þó ejíki
bannað. Tönu Saartok, yfirmaður
lyfjaprófunar á HM, segir í sam-
tali við Dagens Nyheter að sín
persónulega skoðun sé að efnið
eigi að vera á bannlistanum.
Alls voru framkvæmd um 300
lyfjapróf á meðan HM stóð og var
ekkert þeirra jákvætt. Að sögn
Saartok verður afgöngunum af
lyfjunum sem fundust þó haldið
til haga, því þetta gefí dýrmætar
upplýsingar um hvaða efni það eru
sem toppíþróttamenn eru að dæla
í sig í dag.
Saartok mun skila skýrslu til
alþjóða frj álsíþróttasambandsins
sem tekur ákvörðun um hvort ein-
hverjir eftirmálar verða af þessum
fundi.
KNATTSPYRNA: SJONVARPSTÆKNITIL AÐSTOÐAR VIÐ DÓMGÆSLU / D3