Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 1
'f
§1
V
m
1995
KNATTSPYRNA
Ásgeir
tekur
við
Fram
ÁSGEIR EHasson, landsliðs-
þjálfari, hefur gert tveggja ára
samning við Fram og tekur
samningurinn gildi þegar samn-
ingur hans við KSÍ rennur út,
þann 11. nóvember. Á fundi með
Framherjum á sunnudaginn las
Ólafur Helgi Árnason formaður
knattspyrnudeildar upp frétta-
tilkynningu og þegar hann var
hálfnaður með hana og ljóst var
að Fram hefði ráðið Ásgeir til
sín að nýju var klappað mikið.
Greinilegt að Framarar vonast
til að Ásgeir nái að rífa Fram
upp á nýjan leik.
Ásgeir þjálfaði Fram um sjö
ára skeið, 1985 til 1991, ognáði
einstaklega glæsilegum árangri
með liðið, gerði það þrívegis að
íslandsmeisturum og jafn oft að
bikarmeisturum. Formaðurinn
sagði í ræðu sinni að menn von-
uðust eftir því að starf Ásgeirs
yrði farsællt nú eins og þá. Hann
varaði þó við of mikilli bjart-
sýni, sagði þetta allt taka sinn
tíma og ekki væri verið að biðja
um kraftaverk.
„Það voru fleiri lið búin að
hafa samband við mig en ég
sagðist fyrst ætla að ræða við
Fram og tók siðan ákvörðun um
að taka við liðinu um helgina,“
sagði Ásgeir. „Ég er ekkert far-
inn að hugsa um hvort við mun-
um fá okkur nýja leikmenn eða
hvernig þetta verður, en mun
nota frítímann hjá KSÍ til þess.
Það er þó Ijóst að við setjum
stefnuna uppá við og á toppinn
eins og alltaf hefur verið hér á
bæ,“ sagði Ásgeir. Hann sagði
yngri flokka félagsins steka og
því væri engu að kvíða í framtíð-
inni og eins væru margir Fram-
arar að leika með öðrum liðum.
Magnúsi Jónssyni, þjálfara
Fram í sumar, voru þökkuð vel
unnin störf og sagði hann að-
spurður að hann ætlaði að taka
sér frí frá þjálfun næsta sumar.
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER
BLAD
B
\kRáNc
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar frá
Rúmeníu
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði Skagamanna, með íslandsbikarinn sem þeir hafa unnið fjögur ár
í röð, en það hefur engu liði tekist áður í sögu 1. deildar keppninnar.
Yfirburðir
Við vorum ákveðnir í að sýna
Eyjamönnum hverjir væru
bestir og einnig að koma í veg fyr-
ir þeirra „fögn“ sem hafa skemmt
áhorfendum í síðustu umferðunum.
Við ætluðum hins vegar að
skemmta áhorfendum með góðri
knattspyrnu, og það_ tókst í fyrri
hálfleik," sagði Logi Olafsson þjálf-
ari Skagamanna, sem jöfnuðu
stigamet sitt, 49 stig, frá 1993, og
voru fjórtán stigum á undan næsta
liði, KR, sem eru mestu yfirburðir
í sögu deildarinnar.
„Það var erfiðara að leika knett-
inum með jörðinni undan vindinum
í síðari hálfleik, en ég er sérstak-
lega ánægður með fyrri hálfleikinn
því hann spilaðist mjög vel, en eftir
að við komumst í_ fimm núll datt
botninn úr þessu. Ég vissi að Eyja-
menn eru sókndjarfir og vilja
gleyma sér þannig að við sendum
mikið upp í hornin á bak við vörn-
ina og sköpuðum okkur helling af
færum. Við ætuðum að sýna að við
værum með besta og skemmtileg-
asta lið deildarinnar," sagði Logi.
„Það er að sjálfsögðu viss sökn-
uður að fara héðan eftir eitt ár og
ég hef sagt það áður að ég hefði
aldrei farið nema til að taka við
landsliðinu. Ég er þó ekki alveg
farinn og vonandi verð ég hér eitt-
hvað fram eftir vetri,“ sagði Logi
og vonast til að komast langt í
Evrópukeppninni.
„Hér er gott að vera. Aðstaðan
hér á Akranesi er mjög góð og allt
i kringum liðið er einstakt og það
er trúlega hvergi betra að þjálfa en
hér. Árið hefur ekki valdið mér von-
brigðum, nema bikarleikurinn gegn
Fram. Ég á eftir að vinna með
mörgum úr liðinu þó það sé að sjálf-
sögðu komið undir þeim hvort þeir
komast í landsliðið, en ef þeir standa
sig verða þeir valdir," sagði Logi.
sjóinn í Rúmeníu
„VIÐ rennum blint í sjóinn," sagði Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið í
gærkvöldi, aðspurður um Evrópuleik ístands
og Rúmeníu t Vilcea t Rúmenfu á morgun.
Þetta verður fyrsti leikurinn í Evrópukeppninni
í handknattleik að þessu sinni og mætast liðin
___________ aftur í Kaplakrika f Hafnarfirði
á sunnudag. Rússar og Pól-
verjar eru í sama riðli og kom-
ast tvö efstu liðin áfram f
16-liða úrslitakeppni á Spáni
næsta vor.
MT
Islenski landsliðshópurinn kom
til Calimanesti, sem er skammt
frá Vilcea, eftir fjögurra tíma
akstur frá Búkarest á laugardags-
kvöld. Undirbúningurinn í keppn-
islandinti er því
óvenju langur en
Þorbjöm sagði
það ekki slæmt.
„Við höfum
ekki verið mikið saman til þessa
og þetta eykur samkenndina og
baráttuandann. Þetta er að mörgu
leyti betra en tveggja daga undir-
búningur eins og til stóð, en það
er slæmt að hafa ekki haft Geir
og Júlíus með allan tímann.“
Þorbjörn tók við landsliðinu
eftir HM í vor og var með hópinn
saman í þijár vikur í júní og júlí.
Síðan fór liðið á fjögurra þjóða
æfingamót í Austurríki fyrir
skömmu, en um annan undirbún-
ing hefur ekki verið að ræða fyrir
Evrópukeppnina.
Míkilvægir leikir
Rúmenía lenti í 10. sæti á HM
á íslandi og sagðist Þorbjöm gera
ráð fyrir að liðið spilaði á sömu
nótum og þá. „Möguleikar okkar
felast í að spila agað og hanga á
boltanum. Við verðum að láta þá
puða í vöminni því þá er líklegra
að þeir verði óþolinmóðir og sókn-
ir þeirra verði styttri .“
Almennt er gert ráð fyrir að
Rússar séu með besta lið riðilsins
og telur Þorbjöm að ísland og
Rúmenía beijist um annað sætið.
„Þess vegna skipta þessir leikir
rosalega miklu máli. Rúmenía og
ísland eru svipuð að styrkleika
og því eru þetta úrslitaleikir. Það
yrði frábært að ná sigri hérna og
tveggja til þriggja marka tap yrði
ekki slæmt því við eigum mögu-
leika á að ná hagstæðari úrslitum
heima. Samanlögð úrslit leikjanna
reiknast þegar upp verður staðið
og því eru þessir tveir leikir gífur-
lega mikilvægir,“ sagði Þorbjörn.
Ástþór hættur
ÁSTÞÓR Ingason, leikmaður
Njarðvíkinga í körfuknattleik,
hefur ákveðið að leggja skóna
á hilluna. Hann hefur verið fyr-
irliði íslandsmeistaranna und-
anfarin ár og einn leikreyndasti
maður liðsins. Hann hefur átt
við þrálát hnémeiðsli að stríða
undanfarin ár og ákvað að vera
ekki með f vetur. Ljóst er að
Njarðvíkingar missa þrjá af sín-
um leikreyndustu mönnum, því
Valur Ingimundarson er farinn
til Danmerkur og ísak Tómas-
son er hættur eins og Ástþór.
GOLF / EVRÓPULIÐIÐ TRYGGÐISÉR RYDER-BIKARINN Á ELLEFTU STUNDU / B4
r