Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 7

Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER1995 B 7 Leiftur missti móðinn * - í lokaleiknum gegn FH-ingum í snjónum á Olafsfirði NÝLIÐAR Leifturs stóðu sig vel í 1. deildinni en döluðu þó mjög í síðustu leikjunum og misstu af sæti í Toto-keppninni með því að tapa 1:2 fyrir fallliði FH í Ólafsfirði á laugardaginn. Segja má að hringurinn hafi lokast því líkt og í fyrstu um- ferð var allt hvftt í kringum grænan knattspyrnuvöllinn, en með því að nota skóflur og hrffur tókst vöskum mannskap að koma vellinum í leikhæft ástand. Stefán Þór Sæmundsson skrifar frá Ólafsfirði Snúum okkur þá að knattspyrn- unni, sem reyndar var lítið augnayndi. Heimamenn voru að beijast fyrir mikil- vægu sæti sem hefði fært þeim leiki. við erlend félagslið en svo virtist sem áhugi leikmanna væri í lágmarki. Leiftur sótti þó meira fyrstu 10 mínúturnar en FH-ingar fengu fyrsta færið þegar Hrafnkell komst í gegnum vörnina á 11. mín. en Þorvaldur bjargaði meistaralega. Eftir þetta komust gestirnir meira inn í leikinn og spiluðu ágætlega. Mark Leifturs var köld vatngusa sem FH-ingar hristu fljótt af sér. Þeir jöfnuðu og áttu þijú hættuleg færi áður en dómarinn flautaði til leikhlés, fyrst Hlynur og síðan Lúðvík í tvígang. Leiftursmenn hresstust nokkuð í seinni hálfleik. Baldur Bragason komst einn í gegn eftir langt út- spark Þorvaldar á 54. mín. en Stef- án markvörður FH varði í horn. Stefán varði einnig skot Páls á 20. mín. og nú dofnaði aftur yfir heima- mönnum og það nýttu FH-ingar sér. Síðustu 10 mínúturnar lögðu Leiftursmenn allt kapp á sóknina og opnaðist leikurinn þá mjög. Sóknirnar voru þó ákaflega bit- lausar og helst Páll Guðmundsson sem reyndi að skjóta á markið. Vörnin var götótt en fremsti maður Morgunblaðið/Stefán Sæmundsson Klappstýrur í snjónum! ÞAÐ var frekar kuldalegt um að litast á Ólafsfirði er heima- menn tóku á móti FH í síðustu umferð á iaugardaginn. Klapp- stýrur Ólafsfirðinga iétu snjóinn ekki hafa áhrif á sig. FH, Hörður Magnússon, var of seinn_ og þungur til að nýta sér það. Á 44. mín. fékk hann sendingu inn fyrir vörnina og dauðafæri blasti við en tveir varnarmenn náðu að loka hann af og leikræn tilþrif Harðar í vítateignum voru aðeins verðlaunuð með gulu spjaldi. Á síð- ustu mínútu komst hann einn í gegn en Þorvaldur bjargaði stórvel með úthlaupi. Gunnar Oddsson, fyrirliði Leift- urs, kunni engar skýringar á doða leikmanna. Hann sagði menn hafa stefnt að umræddu Toto-sæti en eins og í mörgum undanfömum leikjum hefðu þeir gloprað öllu úr höndum sér. „Það var dapurt að geta ekki klárað þetta,“ sagði Gunnar. Hann átti frekar slakan dag eins og aðrir í Leiftursliðinu en FH-ingar voru öllu sprækari og spiluðu oft lipurlega. Þeir voru fyr- ir nokkru fallnir í 2. deild og léku mun betur eftir það spennufall og uppskáru tvo sigra í lokin. #\Á 21. mínútu leiks- ■ Vins fékk Jón Þór Andrésson knöttinn utarlega í vítateig FH, sneri sér laglega og skoraði með góðu skoti í bláhomið. ■ v Eftir snarpa sókn ■ I FH á 28. mínútu og góðan samleik komst Hlyn- ur Eiriksson í gegn hægra megin í vítateig Leifturs og skoraði með föstu skoti í hom- ið fjær. 1B^J^Hörður Magnússon ■ áCískaut hörkuskoti að marki Leifturs á 76. mínútu eftir vamarmistök en Þorvald- ur Jónsson varði með tilþrif- um. Hann hélt þó ekki boltan- um sem datt fyrir fætur Dav- íðs Ólafssonar sém átti ekki í erfiðleikum með að skora frír á markteig. Mörk, trsörk og aftur mörk Kunnir kappar geystust um ensku vellina eins og hríðskotabyssur Mm FOLK ■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu Pontus Kámark hefur gengið til liðs við Leicester, sem borgaði IFK Gautaborg 840 þús. pund fyrir hann. Kámark er 26 ára varnarleikmaður. ■ QPR keypti fyrir helgina sókn- arleikmanninn Mark Hateley frá Glasgow Rangers á eina millj. punda. Hateley, sem er fyrrum landsliðsmaður Englands, hefur skorað yfir 100 mörk fyrir Rang- ers, sem keypti hann frá Mónakó 1990. ■ ALEX Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchester United, sagðist reikna með að Eric Can- tona leiki sinn fyrsta leik með liðinu gegn Liverpool á laugardaginn kemur, daginn eftir að sex mánaða keppnisbann hans rennur út. ■ JÚRGEN Klinsmann skoraði sigurmark Bayern Miinchen, 1:0, gegn Leverkusen úr vítaspyrnu, sem liðið fékk gefins frá dómara leiksins á 89. mín. Bayern hefur unnið sjö fyrstu leiki sína í þýsku 1. deildarkeppninni, sem er met í Þýskalandi. Besta bytjun liðsins áður var 1984, þegar það vann fimm fyrstu leiki sína. ■ SVO gæti farið að endurtaka þyrfti leik St Pauli og Rostock vegna þess að þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum var kastað táragasi inná völlinn og annar línu- vörðurinn og markvörður St Pauli urðu að fara til búningsherbergja vegna þessa. Málið hefur verið kært. ■ INTER Mílanó tapaði, 1:2, í Napolí. Þetta var fyrsti sigur Nap- olí gegn Inter á heimavelli síðan 1988, þegar Diego Maradona lék með liðinu. ■ ÞESS má geta að Napolí var nær gjaldþrota sl. sumar og fyrir keppnistímabilið náði liðið aðeins að selja 16.000 ársmiða, en 75.000 áhorfendur mættu á leikinn gegn Inter og fögnuðu áhorfendur hinu unga liði Napolí geysilega í leiks- lok. ■ PAOLO Di Canio skoraði eitt af mörkum AC Milan gegn Atal- anta, 3:0. Þess má geta að Di Canio, sem hefur verið óánægður hjá liðinu, hefur verið orðaður við Blackburn. ENSKI landsliðsmaðurinn Les Ferdinand var hetja Newcastle, sem lagði Chelsea 2:0 á St. James Park — þar með tók lið- ið aftur forustuhlutverk sitt, eftir að Manchester United, sem gerði jafntefli 0:0 við Sheff. Wed., hafði verið á toppnum ísólarhring. Newc- astle lék án Peter Beardsley, sem verður f rá í mánuð vegna hnéaðgerðar, og þá fór Frakk- inn David Ginola af leikvelli fljótlega, meiddur. Leikmenn Chelsea léku sterkan varnarleik — fimm manna vörn undir stjórn Ruud Gullit. Ferdinand, sem Kevin Keegan borgaði QPR sex millj. pund fyrir, náði að bijóta Lundúnarliðið á bak aftur og skora rétt fyrir Ieikhlé og í seinni hálfleik bætti hann öðru marki við; hans ellefta marki fyrir Newcastle. Það voru aðrir kunnir kappar á skotskónum í Englandi. Dennis Bergkamp skoraði sín fyrstu tvö mörk fyrir Arsenal, eftir að hann kom frá Inter Mílanó á 7,5 millj. pund — það tók hann tíu og hálfa klukkustund til að skora. Geysilegur fögnuður brautst út á Highbury, þegar hann braut ísinn á sautjándu mín. — skoraði eftir sendingu landa síns Glenn Helder — gegn Sout- hampton og aftur þegar hann skor- aði, 3:2, með glæsilegu skoti af 25 m færi — knötturinn hafnaði efst upp í markhorninu, án þess að Dave Beasant ætti möguleika á að verja. „Þessi mörk léttu pressu af mér. Reuter IAN Wrfght, hinn marksækni lelkmaður Arsenal (t.h.), bendir á félaga sinn Dennis Bergkamp, eftir að hann hafði skorað fyrsta mark sitt fyrir félagið. Við höfum ekki verið að leika nægi- lega vel fyrir utan leikinn í dag, en höfum náð að tryggja okkur stig,“ sagði Bergkamp. Robbie Fowler skoraði fjögur mörk gegn Guðna Bergssyni og fé- lögum hjá Bolton, þegar Liverpool vann stórsigur 5:1. Fowler skoraði fjögur fyrstu mörk leiksins — á 11., 30., 46. og 67. mín. Þáð varð ekkert úr draumi leikmanna Bolton að vinna sinn fyrsta sigur á Anfield Road síðan 1954. Alan Shearer skoraði þrennu þeg- ar meistarar Blackburn lögðu Co- ventry 5:1 — fyrsta markið var hans 100. mark fyrir Blackburn, sem vann sinn fyrsta sigur frá því í fyrstu umferðinni. Ghanamaðurinn Antony Yeboah skoraði þijú mörk fyrir Leeds gegn Wimbledon, 2:4. Þetta var önnur þrenna Yeboah á stuttum tíma og var hans annað mark afar glæsiiegt — hann stakk sér fram hjá varnar- manni Wimbledon og hamraði knöttinn af 30 m færi; knötturinn hafnaði á þversánni, þeyttist þaðan niður á völlinn og upp undir þaknet- ið. „Þetta var stórkostlegur leikur og það hefði ekki verið óvænt ef leikurinn hefði endað 8:5,“ sagði Howard Wilkinson, framkvæmda- stjóri Leeds. Akranesvöllur Evrópukeppni félagsliða IA - Raith Rovers þriðjudaginn 26. september kl. 16.00. Ath. Breyttar ferðir Akraborgar ú leikdag. Frá Reykjavík kl. 14.30. Frá Akranesi kk 18.15. - kjarni málsins I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.