Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 B 5 Alvarlegur aflabrestur á yfirstaðiimi humarvertíð Menn ráða ekki við náttúruna Það olli vonbrigðum að aðeins 1000 tonn veidd- ust á yfirstaðinni humar- vertíð, en veiðar voru heimilar á 2200 tonnum. Pétur Blöndal ræddi við útgerðarmenn, sölu- fyrirtæki og Hafrann- sóknastofnunina. „HUMARVERTÍÐIN var mjög slæm hjá okkur,“ segir Ágúst Sigurðsson, framleiðslustjóri Borgeyjar hf á Höfn í Homafirði. Hann segir að alls hafi veiðst um 72 tonn af humri. Ágúst segist ekki geta gert sér grein fyrir hvað hafi haft úrslita- áhrif varðandi dræma veiði á humri. Hann segist þó gera ráð fyrir að það hafi verið samspil margra þátta. „Það má gera ráð fyrir að nokkur tonn hafi tapast vegna verkfallsins. Þá hafa menn talað um að það hafi haft slæm áhrif á veiðina þegar sjáv- arútvegsráðherra seinkaði vertíðinni um viku, því besti tíminn til humar- veiði sé þegar svifþörungagróður sé mikill, sem sé fyrstu vikumar í maí.“ Ágúst nefnir líka að óvenju mikið af þorski hafi verið á miðunum fyr- ir austan, sem geti ef til vill haft áhrif á afkomu humarsins: „Það aflaðist minna af fiski með humrin- um fyrir sunnan, enda var veiðin betri þar.“ Hann segir að sjálfsagt komi ofveiði inn í þetta líka, en humar sé þó þannig tegund að hún sé ekki veidd f torfum. Ofveiðar taki því langan tíma. Hljóta að leita annað Að sögn Ágústs hefur aflabrest- urinn komið illa við fyrirtækið, hvað varðar skuldbindingar erlendis: „Við gátum ekki staðið við neina samn- inga, nema að litlu leyti, þannig að ég býst við að okkar seljendur á humri erlendis séu mjög sárir. Þeir hljóta að leita annað næst til að fylla þetta tómarúm á markaðnum, ef það er hægt.“ Hann segir að það hafi ekki haft góð áhrif á afkomu fyrirtækisins að tapa humarvertíðinni. Málin hafi þó þróast þannig að meiri áhersla hafi þá verið lögð á aðrar tegundir í staðinn, þ.e. frystan kola og salt- aðan ufsa og þorsk. Þetta eigi sér- staklega við um söltunina. „Menn ráða ekkert við náttúruna, en það er vonandi að veiðin verði í lagi á næsta ári,“ segir Ágúst. „Það hefur áður komið fyrir að veiðin hafi verið dræm, og þá veiddist ágætlega árið eftir.“ Þetta gekk vonum framar „Humarvertíðin gekk nú bara vonum framar,“ segir Hjörleifur Brynjólfs- son, framkvæmdastjóri Humar- vinnslunnar í Þorlákshöfn. „Ef miðað er við þessar þijár vikur sem fóru í verkfallið og leiðinlegt tíðarfar seinnipart sumars er maður ekkert ósáttur. Unnið magn frá okkur var aðeins 10 prósent minna en í fyrra. Það voru reyndar tveir bátar í viðbót sem lögðu upp hjá okkur, þannig að það var minni afli á hvem bát.“ Hjörleifur telur að engar áhyggj- ur þurfi að hafa af því að um of- veiði sé að ræða. Hann kennir að- stæðum í sjónum frekar um, enda hafi sjórinn verið mjög kaldur í sum- ar. „Það er búið að stýra þessum veiðum svo lengi, að það væri afar einkennilegt ef stofninn færi að hrynja allt í einu núna.“ Hjá Humarvinnslunni komu 55 tonn í halaígildum á land eða 180 tonn. f fyrra veiddust 60 tonn í halaígildum. „Við stefndum að því að ná meiri afla, af því að skipum hafði fjölgað, en viðskiptavinir okk- ar hafa sýnt þessu máli skilning. Við lögðum okkur alla fram til að standa við gerða samninga, vertíðin var lengd um hálfan mánuð, en allt kom fyrir ekki. Það var einfaldlega ekki hægt að gera betur.“ 55% samdráttur í útflutningi „Þetta hefur komið mjög illa við okkur. Það má segja að samdráttur í magni sé um 55 prósent, en í út- flutningsverðmætum eru það tæpar 200 milljónir,“ segir Áðalsteinn Gottskálksson, framkvæmdastjóri framleiðslu- og þjónustusviðs hjá íslenskum sjávarafurðum hf. „Hornafjörður, sem virðist hafa komið verst út úr þessu, er einn af okkar aðalframleiðendum, eins og Vestmannaeyjar, þar sem áraði líka illa. Við höfum hins vegar reynt að halda okkar viðskiptamönnum upp- lýstum um stöðu mála og ég held • að þeir muni sýna því skilning að þetta var eitthvað sem við réðum ekki við. Það kemur þó ekki í ljós fyrr en við göngum til samninga á næstu vertíð." Að sögn Aðalsteins hefur þetta haft þau áhrif að verð hafi í ölium tilfellum verið betri en í fyrra, þrátt fyrir til dæmis gengislækkun doll- ars: „íslendingar eru samt ekki einu frambjóðendur á humri, þannig að aðrir hafa getað fyllt í skarðið.“ Hann segir að fyrirtækið hafi verið búið að gera töluvert af fyrir- fram samningum sem það hafi ekki getað staðið við: En nú vonum við að sagan endurtaki sig ekki og þrátt fyrir kvótaskerðingu getum við þjónað viðskiptavinum okkar betur á næsta ári.“ Á sama tíma og samdráttur var í humarútflutningi hjá íslenskum sjávarafurðum var aukning á öðrum sviðum, þannig að í heildina er fyrir- tækið því með aukningu í útflutn- ingi. „Þetta bitnar því líklega verst á útgerðunum sjálfum," segir Aðal- steinn. „Við fórum mjög varlega af stað í upphafi vertíðar með samningagerð, mikið til vegna yfírvofandi verkfalls sjómanna og óvissu vegna þess,“ segir Elísabet Hjaltadöttir, mark- aðsstjóri skeifiskdeildar Sölumið- stöðvar Hraðfrystihúsanna. „Við náðum því að standa að mestu leyti við alla þá samninga sem við gerðum cg fórum ekki illa út úr þessu. Það var þó slæmt að magnið var jafn lítið og raun ber vitni, því við hefðum viljað sinna kaupendum okkar mun betur.“ Elísabet segir að þótt framboð íslendinga á humri hafí minnkað, hafí það haft hverfandi áhrif á verð- myndunina. Til þess séu íslendingar ekki nógu stórir á markaðinum. Hún segist ekki halda að markað- ir hafí tapast vegna minna framboðs en áður: „Það er ekki fýrirsjá- anlegt. Okkur fyrirgefst ein slæm vertíð, en ef humarskorturinn verð- ur viðvarandi er hætta á því. Sölum- iðstöðin hefur náð sterkri stöðu á markaðinum og skapað sér sess sem útflytjandi hágæðavöru. Það hjálpar mikið þegar tímabundið vandamál kemur upp á að hafa þannig sér- stöðu á markaðinum." Margar tilgátur um af hverju aflabresturinn stafi „Við þurfum að koma með ráðgjöf ár fram í tímann," segir Sólmundur Einarsson fiskifræðingur hjá Haf- rannsóknastofnuninni. „Aðstæður voru þannig að eftir að við fórum í humarleiðangurinn í vor lögðum við fram tillögu um lægri bráða- birgðaheimildir fyrir næsta ár eða 1500 tonn og fór Sjávarútvegsráðu- neytið eftir þeim tillögum.“ Þegar fjallað er um aflabrest í sumar segir Sólmundur að það verði að taka tvennt með í reikninginn: „í fyrsta lagi hófust veiðarnar viku seinna en venjulega vegna þess að skólum var ekki lokið og gefa átti skólafólki færi á að komast á vinnu- markaðinn. Síðan skall á verkfall tíu dögum eftir að veiðar hófust sem stóð yfír í þijár vikur. Þar með var besti veiðitíminn á austursvæðunum liðinn, því venjulega veiða þeir þar allt að helming af humarkvótanum fyrir sjómannadag. Það má segja að þessi tvö atriði hafí verið af mannavöldum.“ En fleira virðist vera að: „Við fengum minni afla en undanfarin ár á árlegri yfirreið okkar og það gefur til kynna að eitthvað sé að. Það var ástæðan fyrir því að við töldum rétt að leggja fram tillögu um lægri bráðabirgðaveiðiheimild en verið hafði. Við vitum ekki hveij- ar orsakirnar eru, en tilgáturnar hafa verið margar. Við héldum meðal annars fund með humarveiðimönnum í Vest- mannaeyjum og á Höfn í Homa- fírði. Þá kom í ljós að Vestmannaey- ingartelja að aflabresturinn sé vegna breytinga á umhverfísaðstæðum, en Homfírðingar sögðu að of mikilli veiði og of mikilli sókn mætti alfarið kenna um. Þeir vildu meina að það þyrfti að svæðisbinda veiðarnar, til þess að koma í veg fyrir of mikla sókn á einstaka svæðum. En það hefur eitthvað komið fyr- ir, ef til vill margir samverkandi þættir. Nefndir hafa verið þættir eins og veiðitilhögun, léleg nýliðun og of mikil sókn, röskun vegna veið- arfæra og stöðug áreitni, ásamt breytingum á umhverfísþáttum og afráni. Við getum einfaldlega ekki bent á neitt ákveðið í þessum efn- um, en gemm ráð fyrir að kanna öll tiltæk gögn með þessi atriði í huga þegar endanleg tillaga um aflamark verður lögð fram.“ RÆKJUBA TAR Nafn Siaorð Afll Flskur •|4f Löndunarst. j FENGSÆLL GK 262 56 3 ■: O 1 Grindavík ] MÁNIGK257 72 3 Ö 1 Grindavík ÚLAFURGK33 51 5 0 1 ... Grindovík GUDFÍNNUR KE 19 30 3 ö Sandgerði j ERUNQ KB 140 179 1§1 0 1 Keflevík GEIRFUGL GK 66 148 2 2 2 Keflavík | HRINGUR GK 16 ' 31.1..... 1 8 4 Hafnarflöráur" | HAMAR SH 224 235 4 5 2 Rif \ GARÐARIISH 164 142 7 • ■ i" 2 ólafsvík FANNEY SH 24 103 5 1 1 Grundarfjörður l GRUNDFIRÐINGUR SH 12 103 5 O 1 Grundarfjörður SÓLEYSH 124 144 8 2 2 Grundarfjöröur KRISTINN FRIDRIKSSON SH 3 104 4 2 1 Stykkishólmur SVANUR SH 111 138 6 2 1 Stykkishólmur HAFBERG GK 377 189 25 0 1 Ðolungarvik HEÍÐRÚN ÍS 4 294 32 0 .... ^ Bolungarvík HUGINN VE 55 348 37 "0 1 Bolungarvlk SÚLAN EA 300 391 22 0 1 Bolungarvík ! VINURlSS 2S7 11 0 1 Bolungarvík VÍKÚRBERG GK Í 328 37 0 1 Bolungarvík { BERGUR VE 44 266 17 0 1 Twfjöröur " "1 SIGHVATUR SJARNASON VE S1 370 30 0 1 ísafjörður STURLA GK 12 297 25 0 1 Isafjörður SÆFELL ÍS 820 162 11 0 1 ísafjöröur ; ÓSKAR HALLDÓRSSON RE 157 241 19* 12 2 Isafjörður HÁFFÁ RÍ ÍS 4 30 227 36 0 1 Súðavík ■ KOFRIIS 41 301 30 0 V Súðavðc JÖFÚRÍSÍT2 254 44 0 1 Hvammstangi RÆKJUBA TAR Nafn 5ta»rð Afll Flskur SJÓf Löndunarst. í SIGURBORGVE 121 220 26 0 1 Hvammatongi LÓMURHF 177 295 20 0 1 Skagaströnd SIGÞÓR RH IOO 109 25 0 " 1 Skagaatrönó 1 HAFÖRN SK 17 149 11 ö 1 Sauðárkrókur [ JÖKÍJLL SK 33 68 11 0 2 Snuðárkrókur GUDMUNDUR ÓLAFUR Ól 91 294 37 0 1 Ólafsfjörður I ARNRÓR FA 16 243 20 0 1 Dalvik HAFÖRN EA 955 29 0 Dalvík j HALLDÓR JÓNSSON SH 217 102 3 0 ' 1 Dalvtk NAUSTAVlK EA 151 28 4 ö 1 Dalvík [ ÖTUREA t'éH 58 " 0 1 0 1 Datvfk STEFÁN RÖGNVALDS. ÉÁ 345 68 3 0 1 Dalvík STOKKSNES EA 410 461 35 0 T Dalvik SVANUR EA 14 218 29 0 1 Dalvík SÆÞÓR EA 101 150 : '34 : 0 T Dalvik SÓLRÚN EA 351 147 21 0 1 Dalvík l VIÐIRTRAUSTIEASI7 62 2 0 1 1 DaJvfk ÞÓRÐUR JÓNASSON EA 350 324 32 0 Akureyri ( SJÖFNÞHI42 199 28 0 i Gronivik ALDEY ÞH 110 101 23 0 i Húsavík BJÖRG JÓNSDÓTTIR II ÞH 320 273 35 0 i Húsavik KRISTRJÖRG ÞH 44 187 32 0 1 Húsavík GESTUR SU 159 138 17 0 1 Eskiflörður JÓN KJÁRTANSSON SÚ 1 i t 775 39 0 1 Eskifjöröur ÞÓRIRSF 77 125 13 0 1 Eskiflöröur BRIMIR SU 383 225 13 0 i Djúpivogur RAÐSTEFNA UM ÖRYGGISMÁL SJÓMANNA föstudaginn 29. september Sjómenn, útgerðarmenn og áhugamenn um öryggismál sjómanna! Ráðstefna um öryggismál sjómanna verður haldin í Borgartúni 6 föstudaginn 29. september nk. kl. 09.00 RÁÐSTEFNUSTJÓRl: Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands. FUNDARRITARI: Harald Holsvik, loftskeytamaður, Pósts og síma. DAGSKRÁ: 0830-0900 SKRÁNING ÞÁTTTAKENDA. 0900 SETNING RÁÐSTEFNU: Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri samgönguráðuneytinu. 0905 ÁVARP SAMGÖNGURÁÐHERRA Halldórs Blöndal. 0915 ÖRYGGI SMÁBÁTA a) Réttindamál: Friðrik Ásmundsson, skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum b) Þekking sjómanna, reynsla og vélfræðsla: Sigfús Tómasson, sjómaður. c) Slys um borð í smábátum: Erlendur Hákonarson, nemandi í stýimannaskólanum í Reykjavík. d) Hönnun báta stöðugleiki hleðsla: Gunnar Tryggvason, skipaverkfræðingur. 1005 Kaffi 1025 e) Vélbúnaður skipa, öryggi sjómanna: Haukur Óskarsson, kennari, Vélskóla íslands. Umræður ll35 ÖRYGGISFRÆÐSLA a) Nýliðafræðsla Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnarskóla sjómanna. Karel Karelsson, skipstjóri. 1215 -1315 Matarhlé 1315 b) Öryggismál frá sjónarhóli sjómanns: Lúðvík Friðbergsson, sjóntaður, nemandi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. c) Vaktstaða um borð í skipum: Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólameistari í Stýrimannakólans i Reykjavík. Umræður 1430 Rannsókn sjóslysa a) Rannsókn sjóslysa: Hvernig er rannsókn sjóslysa framkvæmd í dag? Ragnhildur Hjaltadóttir, skrifstofustjóri, samgönguráðuneyti. b) Forvarnir - slysaskráning: Brynjólfur Mogcnsen, yftrísknir, Borgarspítalanum. c) Upplýsingarkerfi um vcður og sjólag fyrir sjófarendur: Gísli Viggósson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vita- og hafnarmálastofnunar. 1530 - 1550 Kaffihlé. d) Hvernig má fækka slysum til sjós? Sigmar Gíslason, skipstjóri, Vestmannaeyjum. Umræður 18°° Slit ráðstefnu Skráning þátttakenda í síma 552-5844, hjá Siglingamálastofnun rtkisins og á ráðstefnustað í Borgartúni 6 frá kl. 08.30 ráðstefnudag. Þátttökugjald kr. 3.000, ráðstefnugögn, hádegisverður og kaffi innifalið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.