Morgunblaðið - 27.09.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 B 7
FRÉTTIR
„í lagi að auka við afla á
náttúruvæn veiðarfæri“
„Um 500 bátar
veiða 1-10 tonn
þorski, en eru reiknað-
ir út á 10 tonn á tonn-
ið samkvæmt afla-
toppnum, þannig að
þar dregst fra álitleg-
ur tonnafjöldi," segir
Garðar. „Síðan lækka
þorskaflahámarks-
tonnin niður í 10 þús-
und tonn, vegna þess
að hver bátur má að-
eins veiða tíu tonn á
tonnið upp að sex
tonnurn."
Samkvæmt þessu
er um að ræða 20
þúsund tonna aukn-
ingu frá því kerfi sem nú er við
lýði, segir Garðar. Hann segir að
það eigi að .vera í lagi að auka við
afla á náttúruvæn veiðarfæri, línu
og færi, til dæmis um 10 þúsund
tonn, eins og Davíð Oddsson hafi
lofað á kosning'afundi á Húsavík.
Kvóti fluttur af skipum með
dregin veiðarfæri
„Ég álít að það sé nægur fiskur
í sjónum til þess, vegna þess að
dregin veiðarfæri skemma botn
og drepa físk, sem er þá hent.
Þess vegna álít ég að
10 þúsund tonn dregin
á færi skipti ekki telj-
andi máli fyrir fiski-
stofnana."
Hann segir að þau
10 þúsund tonn sem
eftir standi til að fylla
upp í þessi 45-50 þús-
und tonn megi taka
af skipum með dregin
veiðarfæri í samræmi
við þá vakningu sem
orðið hafi í heiminum
um það að.veiða með
náttúruvæn veiðar-
færi.
Engum fiski hent
Garðar segir að það sé ennfrem-
ur kostur við aflatoppstillögu sína
að ef hún gangi eftir muni sjó-
menn hætta að henda fiski í sjó-
inn. Þannig muni um 10 þúsund
tonn koma á land, sem annars
endi á sjávarbotni: „Kvótabátarnir
upp að tólf tonnum henda a.m.k.
5 þúsund tonnum af þorski og
sama gildir um þorskaflahámarks-
bátana, sem koma til með að
henda öðru eins. Ef þessir bátar
verða fluttir í aflatoppskerfið, þar
sem aðeins má veiða á króka, og
smáfiskur er ekki talinn í toppn-
um, er ástæðulaust að henda
nokkrum fiski.“
Til viðbótar þessu segist Garðar
vera með lausn á atvinnuleysis-
vanda unglinga. Hún felist í því
að bæjar- og sveitarfélög nýti
gamla báta, sem séu í tiltölulega
góðu standi, og gefi unglingum
færi á því að koma þar um borð
með fötin sín og handsnúna færar-
úllu, og vinna á skipunum við að
fiska í salt... Þeir fái helming af
því sem þeir dragi, hitt fari í að
reka skipin. Bæjarfélögin hjálpi
þeim þannig af stað til að vera
sjálfstæðir einstaklingar. Til þessa
vill Garðar veija 7 þúsund tonnum
sem dragist frá skipum með dreg-
in veiðarfæri, vegna þess að frysti-
skipin séu búin að útrýma vinnu
fyrir unglinga í fiskvinnslustöðv-
um.
Gengur á fund Davíðs
Oddssonar
Garðar hefur nú hafið baráttu fyr-
ir því að sjómenn á smábátum upp
að tólf tonnum stofni með sér sam-
tök um þessa tillögu. „Með þá 85
prósenta samstöðu sem ég tel mig
höfða til dómsgreindar landsferð-
anna og bið þá um að skoða hug
sinn rækjuilega, vilji þeir í raun
lausn á þessu erfiða vandamáli.
Varðandi stjórnsýslu landscam-
bands smábátaeigenda, er ég ekki
að reyna að bola þeim félögum
Arthur og Emi frá. Þeir verða
hins vegar að gæta þess að láta
ekki kljúfa samstöðu félagsmanna
sinna, en nú er Landssambandið
eins margklofið og mögulegt er,“
segir Garðar.
FISKISTOFA
Nægur fiskur til þess, r;:ikIiað
. £ 3 ’ ut fynr Garðar
sesrir uaroar Biorervinsson Björgvinsson
® að heildarafli
af þorski fyrir báta upp að tólf tonnum, ef þeir yrðu settir inn í króka-
kerfið, samkvæmt tillögu hans um aflatopp, yrði 71.790 tonn. Hann
segir að raunhæft sé að áætla að aðeins 45-50 þúsund tonn af þeim
verði í raun veidd. Tillaga Garðars er á þá leið, að hver bátur fái að
veiða 10 tonn af þorski á hvert stærðartonn báts síns. Þannig fái fjög-
urra tonna bátur að veiða 40 tonn og svo framvegis.
Garðar
Björgvinsson
Oryggi sjómanna
rætt á ráðstefnu
Ráðstefna um öryggismál sjó-
manna verður haldin föstudaginn
29. september nk. að Borgartúni
6 í Reykjavík. Þetta er fjórða ráð-
stefnan, sem haldin er frá árinu
1984 þar sem leitast er við að
gera úttekt á stöðu öryggismála
sjómanna og íj'alla um úrbætur í
því efni. Að ráðstefnunni standa
átján stofnanir, hagsmunasamtök
og félög, sem láta sig öryggi sjó-
manna varða á einn eða annan
hátt.
Málaflokkar sem nú verða tekn-
ir fyrir á ráðstefnunni og fjalla á
um_í einstökum fyrirlestrum eru:
Oryggi smábáta,
öryggisfræðsla,
nýliðafræðsla,
rannsókn sjóslysa.
Leitast hefur verið eftir að velja
menn til framsögu erinda með sem
víðtækasta þekkingu og reynslu á
þeim málum sem fjallað er um.
Fyrsta ráðstefnan um öryggis-
mál sjómanna var haldin 21. og
22. september 1984 að tilhlutan
Rannsóknarnefndar sjóslysa og
Siglingamálastofnunar ríkisins í
samvinnu við fjórtán aðrar stofn-
anir, hagsmunasamtök og félög.
Opinská umræða á fyrri ráð-
stefnum hefur leitt til víðtækrar
umfjöllunar á milli þeirra aðila sem
að öryggismálum sjómanna
standa og flýtt fyrir framkvæmd
ýmissa veigamikilla mála, svo sem
stöðugleika, athuganir á minni
fískibátum, öryggislit á fiskiskip-
um, lögleiðingu björgunarbúninga
og svo mætti lengi telja.
Ráðstefnan er öllum opin og er
það von undirbúningsnefndar að
þessi ráðstefna verði vel sótt, ekki
síst af starfandi sjómönnum, og
árangur af ráðstefnunni verði eigi
minni en af fyrri ráðstefnum.
Skráning þátttakenda fer fram
í síma 552-5844 hjá Siglinga-
málastofnun ríkisins og á ráð-
stefnustað verður húsið opnað kl.
8.15 föstudaginn 29. sept. nk.
Námskeið haldið í
þurrkun fiskafurða
RANNSÓKNASTOFNUN Fisk-
iðnaðarins gengst næstkomandi
föstudag fyrir námskeiði í þurrkun
fískafurða. Á námskeiðinu verður
farið yfir grunninn í þurrkun á
saltfiski, harðfiski, skreið og
þorskhausum. Meðal þess, sem
verður fjallað um, eru eðliseigin-
leikar lofts, uppbygging þurrkbún-
aðar, orku- og massajafnvægi og
gæða- og örverubreytingar við
þurrkun. Námskeiðið er ætlað
þeim sem vinna við þurrkun fiskaf-
urða og þeim, sem hafa áhuga á
að hefja slíka vinnslu. Leiðbein-
endur á námskeiðinu verða Sigur-
jón Arason og Grímur Valdimars-
son, en námskeiðið verður haldið
í húsakynnum RF og stendur frá
klukkan 10 árdegis til 16.000 síð-
degis. Þátttökugjald er 6.600
krónur og innifalið í því eru nám-
skeiðsgögn og iéttar veitingar.
WtÆKWÞAUGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
SKAGSTRENDINGUR hf.
Yfirvélstjórar
- vélstjórar
Vegna skipulagsbreytinga, tengdum skipa-
skiptum, eru laus til umsóknar eftirtalin fram-
tíðarstörf hjá Skagstrendingi hf.:
1. Tvær yfirvélstjórastöður.
2. Tvær fyrsta vélstjórastöður.
Um er að ræða störf á frystitogaranum Örv-
ari HU 21 (1766 kw) og rækjufrystitogara (1325
kw) sem félagið hefur nýlega fest kaup á.
Skilyrði fyrir ráðningu er búseta á Skaga-
strönd að loknum reynslutíma.
Hægt verður að bíða eftir réttum aðilum.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið
með sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði í síma 533 1800.
Ath.: Upplýsingar um störfin eingöngu veitt-
ar hjá Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs hf., með upplýsingum um mennt-
un/réttindi, fyrri störf og fjölskylduhagi, eða
útfyllið eyðublöð Ráðgarðs hf., merktar:
„Skagstrendingur hf.“, fyrir 5. október nk.
RÁÐGARÐURhf
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK ^533 1800
Þurrkun fiskafurða
Föstudaginn 29. september frá klukkan tíu
til fjögur heldur Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins námskeið í þurrkun fiskafurða.
Þar verður m.a. fjallað um eðliseiginleika
lofts, uppbyggingu þurrkbúnaðar, orku- og
massavægi og gæða- og örverubreytingar
við þurrkun á saltfiski, harðfiski, skreið og
þroskhausum.
Skráning og nánari upplýsingar í síma
562 0240.
(f
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins,
Skúlagötu 4.
Fiskiskip
Til sölu 200 tonna yfirbyggður stálbátur.
60-63 tonna eikarbátar.
Skipti á 100 tonna stálbát á 150-200 tonna
stálbát.
17 tommu eikarbátar.
15 tommu eikarbátur, skipti á 25-30 tonna
eða bein sala.
Vantar allar stærðir fiskiskipa á skrá.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Tryggvagötu 4,
sími 562 2554, fax 552 6726.
Þorskur og humar
Þorskur 10 tonn í boði fyrir varanleg skipti
á humar. Tilboð óskast.
Svör leggist inn á afgreiðslu Mbl. merkt:
„Kvóti - 7828“, fyrir 3/10.
KVIílTABANKINN
Vantar þorsktil leigu
Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson.
TIL SÖLU
Til sölu
fiskvinnslubúnaður
2 stk. Baader 52 roðvélar, árg. 1993.
4 stk. Baader 51 roðvélar, árg. 1992.
2 stk. Baader 35 haus- og slógdráttarvélar
fyrir síld.
Baader 99, 150, 175, 184, 185, 187, 188,
189 flökunarvélar.
Baader 410, 412, 413, 417, 419, 421, 424,
427 hausara.
Flatningsvélar OÁ hausara, saltara ísvélar,
reykofna, fésara, marningsvélar, lausfrysta,
plötufrysta, blokkaramma, togarakassa o.fl.
Allar nánari upplýsingar gefur Steinar Guð-
mundsson, sölustjóri.
Símar 551 -1777, 989-31802 og 985-31802.
ÁLFTAFELLHF.
Austurbugt 5, Reykjavík,
sími 55 11 777, 989-31802,
985-31802.