Morgunblaðið - 27.09.1995, Síða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
ÍA - Raith Rovers 1:0
Akranesvöllur, Evrópukeppni félagsliða,
síðari leikur í 1. umferð, þriðjudaginn 26.
september 1995.
Aðstæður: Norðan gola og sól, 8 stiga hiti
gott knattspyrnuveður miðað við árstíma.
Völlurinn góður.
Mark IA: Amar Gunnlaugsson (52.)
Gult spjald:Zoran Miljkovic (90.) - fyrir
brot. Ronnie Coyle (85.) - fyrir að tefja.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Roelof Luinge frá Holiandi. Hafði
mjög góð tök á leiknum.
Línuverðir R.J.M. Brekelmans og H.A.S.A.
Merks.
Áhorfendur: 2.900.
Lið ÍA: Þórður Þórðarson — Pálmi Haralds-
son, Zoran Miljkovic, Ólafur Adolfsson, Sig-
ursteinn Gíslason — Ólafur Þórðarson, Alex-
ander Högnason, Sigurður Jónsson, Harald-
ur Ingólfsson (Dejan Stojic (77.) — Bjarki
Gunnlaugsson, Arnar Gunnlaugsson.
Lið Raith Rovers: Scott Thomson — Ste-
ven McAnespie, Shaun Sennis, Ronnie Co-
yle, Davie Sinclair — Davie Kirkwood, Ja-
son Dair (James Mcnally 88.), Colin Camer-
on, Julian Broddle — Steve Crawford (Barry
Wilson 77.), Danny Lennon.
Evrópukeppni U-16 ára
Dublin, írlandi:
Irland - fsland.....................0:3
■Næsti leikur íslands er gegn Norðmönn-
um á morgun.
UEFA-keppnin
Fyrsta umferð, seinni leikir:
Prag, Tékklandi:
Slavia Prag - Freiburg.............0:0
9.328.
•Slavia vann samanlagt 2:1.
Lyon, Frakklandi:
Lyon - Farense (Portúg.)...........1:0
Jean-Luc Sassus (48.). 15.000.
•Lyon vann samanlagt 2:0.
Lilleström, Noregi:
Lilleström - Bröndby...............0:0
1.090.
•Bröndby vann samanlagt 3:0.
Liege, Belgíu:
Standard Liege - Guimaraes (Port.) ....0:0
12.000.
•Guimaraes vann samanlagt 3:1.
Plovdiv, Búlgaríu:
Botev-Sevilla......................1:1
Roumen Ivanov (69.) — Ramon Monchu
(57.). 10.000.
•Sevilla vann samanlagt 3:1.
Minsk, Hvíta-Rússlandi:
Dinamo Minsk - FK Austria...........1:0
Belkevich (90.). 12.000.
•Dinamo Minsk vann samanlagt 3:1.
Moskva, Rússlandi:
Lokomotiv - Bayem Miinchen..........0:5
- Klinsmann 2 (26., 35.), Herzog (39.),
Scholl (45.), Strunz (78.). 22.000.
•Bayern vann samanlagt 5:1.
Róm, ítaliu:
AS Roma - Neuchatel (Sviss).........4:0
Abel Baldo (26., 35.), Daniel Fonseca (32.),
Rueda (49. - sjálfsm.). 15.000.
•Roma vann samanlagt 5:1.
Nicosía, Kýpur:
Omonia-Lazió........................1:2
Panikos Xiourouppas (68.) — Casiraghi Pi-
erluigi (15.) Di Vaio Marco (74.). 3.000.
•Lazíó vann samanlagt 7:1.
Nottingham, Englandi:
Nott. Forest - Malmö FF.............1:0
Bryan Roy (69.). 23.817.
•Jafnt var 2:2. Forest komst áfram á marki
skoruðu á útivelli.
Liverpool, Englandi:
Liverpool - Vladikavkaz (Rússl.)....0:0
35.042.
•Liverpool vann samanlagt 2:1.
Manchester, Englandi:
Man. Utd. - Rotor Volgugrad (Rússl.) ..2:2
Paul Scholes (59.), Peter Schmeichel (89.)
— Vladimir Nidergaus (16.), Oleg Veretenn-
ikov (24.). 29.274.
•Jafnt 2:2. Volgugrad vann á mörkunum
skoruðum á útivelli.
Leeds, Englandi:
Leeds - Mónakó.......................0:1
- Anderson (23.). 24.501.
•Leeds vann samanlagt 3:1.
Riga, Lettlandi:
RAF Riga - Chisinau (Moldavíu).......1:2
Modris Zuyev (76.) — Vladislav Gavriluk 2
(5., 25.). 300.
•Zimbrau Chisinau vann samanlagt 3:1.
Auxerre, Frakklandi:
Auxerre - Viking Stavanger..........1:0
Franck Silvestre (48.). 10.000.
•Auxerre vann samanlagt 2:1.
Eindhoven, Hollandi:
PSV Eindhoven - Mypa-47 (Finnl.)....7:1
Ronaldo 4 (15., 45., 73., 83.) Wim Jonk 2
(57., 71.), Peter Hoekstra (66.) — Mauri
Keskitalo (16.). 10.800.
•PSV vann samanlagt 8:2.
Kaiserslautern, Þýskalandi:
Kaisersiautem - Bratislava..........3:0
Wegmann 2 (27., 56.), Wollitz (38.). 20.000.
•Kaiserslautern vann samanlagt 4:2.
; Silkeborg, Danmörku:
Silkeborg - Sparta Prag.............1:2
;Christian Duus (52.) — Vratislav Lokvenc
1(21.), Jozef Nemec (51.) — 5.200.
■•Jafnt 2:2. Sparta Prag vann á mörkum
skoruðum á útivelli.
: Ljubljana, Slóveníu:
Olimpija - Roda...........................2:0
ÍBozgo (37. - vítasp.), Zulic (74. - vítasp.).
■2.500.
' »Roda vann samanlagt 5:2.
, Mílanó, Ítalíu:
Inter Mílanó - Lugano (Sviss)..........0:1
'Eduardo Carrasco (85.). 10.000.
•Lugano vann samanlagt 2:1.
; I-odz, Póllandi:
Widzew - Odessa (Úkraínu)..............1:0
Andrzej Michalczuk (80.) 13.000
■Odessa vann 6:5 í vítaspyrnukeppni en
fyrri leiknum lauk með 1:0 sigri Ukraínu-
manna.
Lissabon, Portúgal:
Benfica - Lierse (Belgiu)...........2:1
Joao Pinto (24.), Daniel Kenedy Santos
(60.) - Nico Vanderckoven (34.) 40.000
■Bénfica vann samanlagt 5:2
Barcelona, Spáni:
Barcelona - Hapoel (ísrael).........5:0
Josep Guardiola (12.), Gheorghe Hagi (27.),
Toni (51.), LLuis Carreras (61.), Guillermo
Amor (65.) 27.000
■Barcelona vann samanlagt 12:0.
Seville, Spáni:
Real Betis - Fenerbahce (Turkey)....2:0
Alexis Trujillo (21. vsp.), Juan Canas (37.)
39.000
■Betis vann samanlagt 4:1
Maribor, Slóveníu:
Branik - Olympiakos (Grikkl.).......1:3
■Olympiakos vann samanlagt 5:1.
Aalst, Belgíu:
Aalst - Levski Sofia (Búlgariu).....1:0
Olivier Lamberg (59.) 7.500
■Aalst vann samanlagt 3:1
Lubin, Póllandi:
Zaglebie - AC Mílan.................4:1
Stefanio Eranio (51.) Marco Simone (63.)
Zvonimir Boban (86., 90.) - Jaroslaw Krzyz-
anowski (73.) 15.000
■AC Mílan vann samanlagt 8:1
Körfuknattleikur
Breiðabliksstúlkur urðu Reykjanesmeistara
í gærkvöldi með því að vinna Keflavík 88:47.
Hestar
Alþjóðlega skeiðmeistaramótið haldið í Vil-
helmsborg í Danmörku 22. til 24. september
A-flokkur gæðinga
1. Huginn frá Kjartansstöðum, knapi Sig-
urður Matthíasson, ísl., 8,53.
2. Náttar frá Miðfelli, knapi Ragnar Ólafs-
son.ísl.
3. Blær frá Minniborg, knapi Hinrik Braga-
son, fsl.
4. Bokki frá Akureyri, knapi Sveinn Ragn-
arsson, fsl.
5. Kári frá Ási, knapi Charlotte Baunhöj,
Danmörku.
6. Galsi frá Skarði, knapi Jóhann G. Jóhann-
esson, ísl.
7. Álmur frá Sauðárkróki, knapi Andreas
Trappe, Þýskal.
8. Svaðilfari frá Heager, knapi Dorte Stou-
gaard, Danm.
9. Kolskeggur frá Hveragerði, knapi Nina
Keskitalo, Svíþj.
Skeiðmeistarakeppni 250 metrar
1. Höskuldur Aðalsteinsson Ísl./Brýnir frá
Kvíabekk, 13.
2. Hinrik Bragason Ísl./Eitill frá Akureyri,
9.
3. Claas Dutilh Holl./Trausti frá Hall, 8.
4. Lothar Schenzel, Þýskal./Gammur frá
Krithóli, 4.
Skeið 250 metra
1. Claas Dutilh Holl., á Trausta frá Hall,
22,7 sek.
2. Höskuldur Aðalsteinsson fsl., á Brýni frá
Kvíabekk, 23,2 sek.
3. Hinrik Bragason ísl., á Eitli frá Akur-
eyri, 23,3 sek.
4. Lothar Schenzel Þýskal., á Gammi frá
Krithóli, 23,4 sek.
5. Styrmir Árnason ísl., á Sindra frá Karl-
ungen, 23,5 sek.
Skeiðmeistarakeppni 150 metrar
1. Jóhann G. Jóhannesson ísl., Ægir frá
Störtal, 10.
2. Magnús Benediktsson ísl., Óttar, 8.
3. Magnús Skúlason fsl., Sigla frá Eyrar-
bakka, 6.
4. Herbert Ólason ísL, Gagarín, 6.
Skeið 150 metrar
1. Magnús Benediktsson ísl.,Óttar, 14,7
sek.
2. Nina Keskitalo Svíþj., Kolskeggur frá
Hveragerði, 14,9 sek.
3. Magnús Skúlason fsl., Sigla frá Eyrar-
bakka,. 15,2 sek.
4. Jóhann G. Jóhannesson ísl., Ægir frá
Störtal, 15,2 sek.
5. Herbert Ólason ísl., Gagarín, 15,4.
Gæðingaskeið
1. Hinrik Bragason ísl., Eitill frá Akureyri.
2. Einar Öder Magnússon Isl., Árvakur frá
Hofsstöðum.
3. Styrmir Ámason ísl., Nótt frá Hlemmi-
skeiði.
4. Ragnar Hinriksson ísl., Djákni frá Efri-
Brú.
5. Einar Hermannsson ísl., Torfi frá Hjarð-
arhaga.
Slaktaumatölt
1. Jóhann G. Jóhannesson fsl., Blesi frá
Störtal.
2. Ylva Hagander Svíþj., Mökkur frá
Varmalæk.
3. Bjame Forrand Nor., Sómi frá Forrand.
4. Marion Heib Þýskal., Kvika frá Dæli.
5. Piet Hoyos Austurr., Bessi frá Stóra-Hofi.
Stigasöfnun
1. Hinrik Bragason ísl., Eitill frá Akureyri.
2. Uli Reber Þýskal., Sif frá Hóli.
3. Herbert Ólason ísl., Spútnik frá Hóli.
í kvöld
Handknattleikur
Meistarakeppni kvenna:
Ásgarður: Stjarnan - Fram.20
Knattspyrna:
Bikarúrslit 2. flokks:
Valbjamarv.: Breiðab. - Valur.. 16.30
■Liðin skildu jöfn 2:2 í fyrri úrslita-
leiknum og nú á að reyna aftur.
Verði jafnt eftir framlengingu verður
vítaspymukeppni.
Þakka
Thomson
markverði
- sagði Jimmy Nicoll
Jimmy Nicoll, þjálfari Raith Ro-
vers, var ánægður þegar flautað
var til leiksloka. „Það var mikil
pressa á okkur í lokin og það má
þakka Scott Thomson markverði
okkar að við héldum þetta út. Hann
átti stórleiki í markinu. Við vorum
ákveðnir í að veijast og ætiuðum
okkur ekki að fá á okkur mark.
En eftir að þeir náðu að skora í
upphafi síðari hálfleiks var þetta
orðið mjög erfitt og tvísýnt. Það
gekk vel í fyrri hálfleik, en ég var
orðinn ansi hræddur um í síðari
hálfleik að þeir næðu að skora eitt
í viðbót. Akranesliðið er mjög gott
og nú sé ég hvers vegna það hefur
ekki tapað á heimavelli.“
- Telur þú Skagamenn vera með
það gott lið að það myndi sóma sér
vel í skosku úrvalsdeildinni?
„Já, það hugsa ég. Það eru fjórir
þjálfari Raith Rovers
til fimm leikmenn sem myndu sóma
sér vel í skosku deildinni. Leik-
mennn liðsins eru tekniskir og leika
vel án bolta, mikil hreyfing á leik-
mönnum. Sigurður Jónsson var
besti leikmaður liðsins og ég vildi
hafa hann í mínu liði,“ sagði Nicoll.
Sjaldan haft meira að gera
Scott Thomson, markvörður Ra-
ith Rovers, var hetja liðsins. „Ég
er ánægður með að vera kominn
áfram. Þetta var erfiður leikur og
ég hef sjaldan haft eins mikið að
gera í markinu og í síðari hálfleik.
Vörnin stóð sig vel fyrir framan
mig og það sem fór í gegn náði ég
sem betur fer að verja. En það var
erfitt að spila undir þessari miklu
pressu og ég hefði ekki viljað sjá
boltann öðru sinni í netinu því þá
væri Evrópudraumurinn á enda.“
ARNAR Gunnlaugsson gat fag
síðari hálfleik. Þrátt fyrir stan:
áfram í aðra umferð Ev
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
LEIKMENN Raith Rovers fagna f leikslok á Akranesi.
Ekki alltaf nóg að
Þolinmæði Raith Rovers bar árangur á Akranesi
ÞRÁTT fyrir að hafa knöttinn nær allan leikinn og ráða gangi
hans að mestu tókst Skagamönnum ekki að komast i aðra um-
ferð Evrópukeppni félagsliða. Skoska liðið Raith Rovers lék af
mikilli skynsemi og gætti sín vel á að sækja ekki og voru ávallt
fjölmennir ívörninni. Þetta dugði Rovers til að komast áfram,
Skagamenn skoruðu eitt mark en það dugði ekki. Síðasta mark-
ið sem Skotarnir gerðu á sínum heimavelli, og var algjör óþarfi
að fá á sig, sá til þess að Skaginn er úr leik. Rovers komst áfram
3:2 samanlagt.
Skagamenn byijuðu mun betur
og voru miklu betri aðilinn í fyrri
hálfleik en Skotarnir voru varkárir,
héldu fjórum mönn-
um í vöminni og auk
Sveinsson þess var McAnespie
skrifar eins og límdur á Arn-
ar Gunnlaugsson og
fylgdi honum hvert fótmál. Skaga-
menn héldu aðdáunarverðri ró og
þolinmæði, héldu boltanum langtím-
um saman á miðjunni og biðu og
biðu. Nokkrum sinnum bar það
árangur þó ekki tækist þeim að
skora. Þó var of mikið um að sendar
væru háar sendingar inn í vítateiginn
þar sem Skotamir réðu ríkjum í há-
loftunum. Sérstaklega var Pálmi
gjam á slíkar sendingar. En Skotarn-
ir pössuðu sig vel í vörninni og létu
ekki glepjast langt út úr henni þó
svo Skagamenn væru með boltann á
miðjum vallarhelmingi þeirra.
1Bd^Haraldur Ingólfsson
■ ^rtók hornspymu frá
hægri á 52. mínútu. Alexander
Högnason skallaði boltann að
marki og Arnar Gunnlaugs-
son, sem var staðsettur við
markteig, fylgdi vel á eftir og
skallaði í netið.
Ólafur Þórðarson fékk ágætt færi
á 5. mínútu en skotið fór í vamar-
mann og heimamenn fengu jiorn-
spyrnu og úr henni skallaði Ólafur
Adolfsson en boltinn fór í Arnar
Gunnlaugsson í markteignum og
ekkert varð úr. Alexander Högnason
átti gott skot á 11. mínútu frá víta-
teig en yfir og mínútu síðar gaf
Haraldur góða sendingu fyrir frá
vinstri. Arnar kastaði sér fram og
skallaði en rétt framhjá stönginni.
Mikill hamagangur var á síðustu
mínútum hálfleiksins. Fyrst komust
Skotar í ágæta sókn sem hófst með
hörkuskoti McAnespie af 30 metra
færi. Skagamenn sneru vöm í sókn
sem endaði með horni og upp úr því
skaut Sigurður Jónsson, hitti illa og
Alexander fékk boltann skyndilega
við íjærstöngina en lagði hann fram-
hjá. Pálmi átti síðasta orðið, neglu
frá vítateigshorni en í varnarmann
og framhjá.
Stórskotahríð og ertt mark
Eftir markalausan fyrri hálfleik
hófu Skagamenn stórskotahríð um
leið og flautað var til síðari hálf-
leiks. Sigurður Jónsson átti neglu
rétt framhjá og á 52. mínútu skoraði
Arnar fyrir Skagann og kom markið
á besta tíma, eða svo héldu menn.
Mikil barátta var í leikmönnum ís-
landsmeistaranna en Skotarnir pöss-
uðu sig mjög vel í vöminni og létu
ekki draga sig fram á völlinn.
Haraldur átti gott skot rétt fram-
hjá, og tvívegis var bjargað á línu,
fyrst frá Sigurði Jónssyni eftir horn-
spyrnu og síðan frá Stojic og mark-
vörður Rovers varði tvívegis meist-
aralega. Fyrst átti Ólafur Þórðarson
gott skot sem markvörðurinn rétt
náði að koma fingurgómunum í og
Sigurður tók aukaspymu sem hann
varði enn betur. Bjarki Gunnlaugs-
son átti síðan þrumuskot sem rétt
sleikti þverslánna. Mikil pressa
heimamanna síðustu tíu mínútumar
dugði ekki til að skora og þar með
var draumur Skagans og íslenskra
knattspymuáhugamanna, um að ÍA
kæmist í aðra umferð, úti.
Sigurður Jónsson var besti maður
vallarins, tapaði varla návígi og
byggði upp flestallar sóknarlotur
Skagans. Alexander var einnig sterk-
ur en skilaði knettinum ekki nógu
vel frá sér. Bjarki vann mjög vel en
Amar fékk lítinn tíma til athafna
því McAnespie límdi sig á hann.
Vörn ÍA var örugg enda ekki oft sem
þeir voru ónáðaðir af mörgum
sóknarmönnum gestanna. Haraldur
lék vel í síðari hálfleik og Sigursteinn
átti fínan leik. Hjá gestunum var
Scott Thomson markvörður bestur,
mjög öruggur og yfirvegaður. McA-
nespie gætti Arnars mjög vel og í
heijd lék liðið mjög skynsamlega.
Það er oft sagt að þolinmæði sé
dyggð og það átti við í gær, en því
miður ekki fyrir Skgagamenn, þeir
voru þolinmóðir og biðu eftir að Skot-
amir gæfu færi á sér. Leikmenn Raith
Rovers voru líka þolinmóðir, í vöm-
inni, og fyrir þá var þolinmæðin dyggð.