Morgunblaðið - 27.09.1995, Side 1

Morgunblaðið - 27.09.1995, Side 1
| ÞRAUTIRl PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995_________ Heimilisfang: MYNDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík Pennavinir Ég heiti Ingi Steinn og er 9 ára. Ég óska eftir pennavin- um á aldrinum 9-12 ára (bara strákum). Áhugamál mín eru: Fótbolti, körfubolti, fjallahjól og fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfí. Svara öll- um bréfum. Ingi S. Þorsteinsson Skálafelli 1, Suðursveit 781 Höfn Kæru Myndasögur. Við erum tvær 9 ára stelpur og óskum eftir pennavinum á aldrinum 9-14 ára (helst stelpum). Áhugamái: Ymis- leg. Urður A. Ómarsdóttir Borgarlandi 34 765 Djúpivogur Eva D. Sigurðardóttir Búlandi 2 765 Djúpivognr Kæri einhver! Ég skrifast á við strák frá Ghana og hann á bróður sem vill alveg endilega eignast íslenskan pennavin. Hann vill skrifast á við krakka á aldrinum 12-13 ára. Hann býr á Kwahn sléttunni í Ghana í bæ sem heitir Nkawkaw. Með fyrirfram þökk. Sunna. Nana Osei c/o Ofusu Emmanuel P.O. Box 133 Nkawkaw Kwahn Ghana West-Africa Hæ, hæ, Moggi. Ég heiti Ylfa og mig langar að eignast pennavini á aldr- inum 7-9 ára, ég er sjálf 7 ára. Áhugamál mín eru fím- leikar og myndlist. Ylfa Úlfsdóttir Grönvold Dvergholti 25 220 Hafnarfjörður Hlébarðarnir HVERJIR tveir hlébarðanna eru eins? Lausnir eru með svar-l ið þegar þið eruð búin að fínna rétta svarið - en alls ekki fyrr! Eltinga- leikur FJÖLSKYLDAN kemur út um bakdymar og er að elta músa- fjölskyldu, sem aftur ætlar að elta dúfnafjölskylduna, sem flýgur á himninum. Þannig hljóðar útskýring sem fylgdi með myndinni hennar Kristínar Lilju Björns- dóttur, 5 ára, Víðimel 59, 107 Reykjavík. Innilegar þakkir, Kristín Lilja, myndin er aldeilis flott. 50 f rost- pinnar! LÍSA komst í feitt, krakkar. Á 5 dögum hefur hún borðað 50 frostpinna! Hún hefur borðað þremur fleiri á hverjum degi en daginn áður. Getið þið reiknað út hve marga frostp- inna hún hefur borðað hvern dag? Við skulum vona að hún hreyfi sig reglulega, stúlkan, og bursti tennur kvölds og morgna og eftir hvert mál. Lausnir hafa svar á reiðum höndum eins og venjulega. Það er nú meira hvað þessar Lausnir eru ofboðslega klárar, ha. Þær barasta vita ALLT! Horfin eru sex SEX eru myndirnar og á hveija þeirra vantar eitt at- riði sem er á hinum fímm myndunum. Góð æfíng í þol- inmæði og þrautseigju og þegar þið eruð búin að fínna atriðin sex getið þið sann- færst um að þið hafíð fundið rétta hluti með því að fletta upp á Lausnum, sem hafa alltaf svörin á reiðum hönd- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.