Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 1
(t ([*.:; n
i (■('■ ,?s- M jft.
HEILDSALA • ^ " fiArmól 5 HLUTAFÉLÖG
Barnamatur lendir , -4' fr Of háir vextir ’fPfMRpí Evrópskir hluthaf-
í hremmingum /4 á íslandi? /6 A B C D E F G ar aö vakna /8
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 BLAÐ n
Grandi
Hlutafjárútboði Granda hf. er lok-
ið og keyptu núverandi hluthafar
öll þau bréf sem í boði voru. Út-
boðið var upp á 100 milljónir kr.
að nafnvirði og var gengi bréf-
anna 2,08. Alls óskuðu hluthafar
eftir því að kaupa bréf fyrir 218,8
milljónir króna og fengu því ein-
hveijir minna en þeir óskuðu eftir.
Vertshúsið
Eyrarkjör hf, sem rekið hefur
Vertshúsið á Hvammstang var lýst
gjaldþrota þann 20. september s.l.
Bústjóri hefur verið skipaður Ag-
úst Sindri Karlsson, lögmaður.
Skilafrestur krafna í búið rennur
út í nóvember. Óvíst er um fram-
tíðarrekstur Vertshússins, en
heimamönnum þykir mikill skaði
af ef reksturinn stöðvast um
lengri tíma.
Verðstríð
í Danmörku virðist skollið á verð-
stríð milli fyrirtækja sem reka
vefþjóna fyrir Alnetið, samkvæmt
frétt í Berlingske Tidende. At-
hygli vekur að það fyrirtæki sem
rekur þar ódýrustu þjónustuna er
centrum.dk, dótturfyrirtæki Mið-
heima, og er mánaðargjald þess
um 46 kr. danskar eða í kringum
500 krónur, sem er reyndar
snöggtum lægp-a en gjaldið hér.
SÖLUGENGI DOLLARS
Fyrstu 20 ára spariskírteinin
seld með 5,95% ávöxtun
Gæti valdið
vaxtalækkun
NIÐURSTAÐA fyrsta útboðs Lána-
sýslu ríkisins á verðtryggðum spari-
skírteinum til 20 ára gæti leitt til
lækkunar langtímavaxta að mati
sérfræðinga. Alls bárust 57 gild til-
boð að fjárhæð 1.105 milljónum
króna í útboðinu. Tilboðum 26 aðila
var tekið og nam heildarfjárhæð
þeirra 472 milljónum króna. Meðal-
ávöxtun 20 ára spariskírteina nam
5,95% í þessu fyrsta útboði. Einnig
voru boðin út verðtryggð spariskír-
teini til 10 ára og ECU-tengd spari-
skírteini til 5 ára. Engin tilboð bár-
ust í 10 ára spariskírteinin og lág-
marksfjárhæð ECU-tengdra spari-
skírteina náðist ekki.
Óbreytt vaxtastig
Pétur Kristinsson, hjá Lánasýslu
ríkisins, segist ánægður með hvernig
ti! hafi tekist með þetta útboð. „Þátt-
takan var mun betri en við bjugg-
umst við og þrátt fyrir að við værum
að bjóða bréf til helmingi lengri tíma
en áður hefur þekkst, þá náði ríkis-
sjóður sömu vöxtum og verið hafa
á verðtryggðum spariskírteinum til
10 ára.“
Aðspurður segir Pétur þetta
vissulega vera nokkuð háa vexti
miðað við um hversu áhættulitla
fjárfestingu hér sé að ræða og það
endurspeglist í góðri þáttöku. „Mið-
að við þessa þáttöku þá er það ljóst
að það hefur verið vöntun á þessum
bréfum á markaðnum. Hins vegar
eru þetta auðvitað nokkuð háir vext-
ir. Ef við berum þetta saman við
vexti í þeim löndum þar sem menn
eru að bjóða út verðtryggð bréf þá
er vaxtakúrfan í Svíþjóð t.d. öfug
miðað við hér. Ávöxtun á 9 ára bréf-
um þar var 5,48% í síðasta útboðt
en 4,98% á 19 ára bréfunum. í Bret-
landi er vextimir enn lægri eða í
kringum 3,5%. Þetta sýnir hvað
verðtryggðu vextirnir eru háir hér á
landi og ég held að þetta sýni að
vaxtanæmi íslendinga sé ekki sam-
bærilegt við það sem gerist meðal
annarra þjóða sem bjóða verðtryggð
kjör.“
Vextir húsbréfa
fara lækkandi
Bjarni Ármannson, forstöðumað-
ur hjá Kaupþingi segir að vextir
húsbréfa hafi farið lækkandi að und-
anfömu og ætla megi að þessi niður-
staða í útboði á verðtryggðum spari-
skírteinum geti leitt til enn frekari
vaxtalækkana. „Ég sé ýmis teikn á
lofti um enn frekari vaxtalækkanir.
Þannig stefnir allt í að útgáfa hús-
bréfa dragist saman um rúmlega 3
milljarða króna, auk þess sem ríkis-
sjóður hefur verið mun minni í um-
svifum á innlendum lánamarkaði það
sem af er árinu.“ Sem dæmi um
lækkanir að undanförnu nefnir
Bjami að ávöxtunarkrafa húsbréfa
hjá Kaupþingi sé komin niður í
5,96% og nú hafi Skandia verið að
lækka sig niður í 5,95%. Hann segir
það því vera fróðlegt að fylgjast með
þessari þróun á næstunni.
Sem fyrr segir náðu tilboð í ECU-
tengd spariskírteini ekki lágmarks-
fjárhæð og hafa þau ekki selst frá
því í apríl. Pétur Kristinsson segir
þetta áhugaleysi fjárfesta einkum
stafa af óhagstæðri þróun á vöxtum
þessara bréfa að undanförnu, en
þeir hafí lækkað niður í 7,2% eftir
að staðið í rúmum 8% í vor.
§
Þarftu að fjárfesta til skamms tíma?
.... Reiðubréf
hentu£i skammtímafjárfesting
, LANDSBRÉF HF.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
I
Reiðubréf er skammtímaverðbréfasjóður á vegum Landsbréfa hf.
Raunávöxtun Reiðubréfa var 4,6% og nafnávöxtun 8,1% s.l. þrjá mánuði.
Reiðubréf má innleysa án kostnaðar þegar 40 dagar eru liðnir frá kaupunum.
Reiðubréf eru góð vörn gegn verðbólgu.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í öllum útibúum Landsbanka íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24. 108 REYKJAVIK, SIMI 588 9200, HREIASIMI 5 8 8 8 5 9 8