Morgunblaðið - 28.09.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 B 5
VIÐSKIPTI
Bandaríkjunum, m.a. vegna stöðu
dollars á síðustu misserum.
Við höfum óskað eftir því að
hér verði settar reglur sem myndu
rúma samhliða EES-reglurnar og
þær bandarísku. Hvort að svigrúm
sé til þess er það sem menn hafa
verið að velta fyrir sér. í fljótu
bragði virtist þetta ekki vera mik-
ið mál þar sem fyrstu 24 kaflar
tollskrárinnar, þ.e. matvörurnar,
eru ekki hluti af EES-samningn-
um, en málið er því miður ekki
svo einfalt og hafa ýmsar tækni-
legar lagaflækjur gert mönnum
erfitt með kveða þar upp úr, af
eða á. Við höfum hins vegar verið
að skoða þessi mál í nágrannalönd-
um okkar og sjáum að þar er fjöldi
bandarískra vörutegunda á mark-
aðnum sem ekki uppfylla þessar
merkingarreglur. Löndin virðast
því nokkuð misjafnlega . á vegi
stödd hvað þetta varðar. Við telj-
um hins vegar að íslendingar eigi
hér meiri hagsmuna að gæta en-
aðrar Evrópuþjóðir þar sem við
erum auðvitað mun háðari milli-
ríkjaverslun. Þar að auki eigum
við líklega meiri viðskipti við
Bandaríkin, hlutfallslega, en aðrar
Evrópuþjóðir.“
Stefán segir að Félag íslenskra
stórkaupmanna hafi tekið saman
tölur um innflutning frá Banda-
ríkjunum og þær sýni að hann sé
mjög mikill, auk þess virðist sem
hann sé oft á tíðum hagkvæmari
en innflutningur frá Evrópu. Þá
sé stór hluti margra vörutegunda
fluttur inn frá Bandaríkjunum og
því geti þessar reglur leitt til um-
talsverðra verðhækkana til ís-
lenskra neytenda.
Fjölskyldubragur á
stórfyrirtæki
Það vakti athygli mína hversu
óvenjulega umgjörð Gerber hefur.
Fyrirtækið er sprottið upp af
niðursuðuverksmiðju sem Gerber-
fjölskyldan kom á fót. í tímans rás
hefur það vaxið og í dag er það
orðið að stórfyrirtæki á alþjóðleg-
an mælikvarða, sem árlega veltir
milljörðum dollara. Þrátt fyrir
þetta virðist það hafa haldið ýms-
um blæbrigðum íjölskyldufyrir-
tækisins. Betz segir ástæður þessa
m.a. vera að finna í uppruna og
umgjörð fyrirtækisins. „Gerber er
í Fremont, Michican, sem er mjög
lítill bær með aðeins um 5.000
íbúa. Flestir þeirra ýmist vinna
Banka-
þjónusta
gegnum
bílalúgu
LANDSBANKINN opnar á morg-
un nýtt útibú á Fjallkonuvegi 1 í
Grafarvogi. Þar verður í boði öll
almenn bankaþjónusta en að auki
geta viðskiptavinir sinnt bankaer-
indum beint úr bílnum sínum í
gegnum lúgu.
Utibússtjóri Grafarvogsútibús-
ins er Guðbjörg Gísladóttir. Á
laugardag ætlar Landsbankinn að
bjóða öllum íbúum Grafarvogs til
sérstakrar íjölskylduskemmtunar
í tilefni af opnun útibúsins.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
FRABÆR ÞJONUSTA
H KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
hjá Gerber eða einhveijum sem
vinnur fyrir fyrirtækið. Ástæða
þess að fyrirtækið er með alla
starfsemi sína í svo litlum bæ er
fyrst og fremst sú að þær landbún-
aðarafurðir sem notaðar eru við
framleiðsluna eru ræktaðar í ná-
grenninu og þessi staðsetning hef-
ur gefíð fyrirtækinu tækifæri til
þess að vinna með bændum í ná-
grenninu að því að tryggja eins
mikil gæði og mögulegt er á afurð-
um þeirra. Að auki var bændum
og starfsmönnum fyrirtækisins
oftsinnis greitt í formi hlutaijár í
fyrirtækinu og þessi nálægð hefur
leitt til þess að bæjarbúar hafa
verið mjög stoltir yfir gengi þess,
að því ógleymdu að margir þeirra
hafa auðgast verulega eftir því
sem gengi hlutabréfanna fór
hækkandi.“
, Yfir 70 ferðir í viku til áætlunarstaða beggja vegna Atlantshafsins.
Tengiflugum allan heim.
Flugfrakt gerir Iwiminn að lieimamarkaði
FLUGLEIDIR
F R A K T
sími 50 50 401
2
ÓSKAf.LÍFEYRIR
OSKALIFEYRIR - ALVEG EFTIR ÞINUM ÞORFUM
Óskalífeyrir sameinar fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar og skipu-
legan sparnaö. Sameinaöa líftryggingarfélagiö starfar á íslandi
sem gerir þaö auövelt aö ná til félagsins án milliliöa og öll þjón-
usta er innan seilingar.
í Óskalífeyri getur þú m.a. tekib líftryggingu ásamt útborgun við
tiltekinn aldur. í þyí felst m.a. ab:
• Umsækjandi ræbur heildarinnborgun fyrir líftryggingu og
sparnab. Lágmarksupphæb er 3.000 kr. á mánuði.
• Sparnabur ásamt verötryggingu og vöxtum er greiddur út í
einu lagi á umsömdum tíma.
• Útborguð fjárhæb er skattfrjáls.
• Félagið ábyrgist lágmarksávöxtun. Árið 1994 var raunávöxtun
Óskalífeyris 7,1%.
• Látist sá tryggbi fyrir umsaminn útborgunardag er líftryggingar-
fjárhæbin greidd út auk sparnaðarins.
• Innifalinn getur veriö réttur til bóta vib skerta starfsorku,
svokölluð Afkomutrygging. Bætur eru greiddar mánabarlega
til 60 eða 65 ára aldurs.
Dœmi um fólk sem tekur tryggingu 27 ára:
Mánaöarlegt iögjald 10.000 kr.
til 65 ára aldurs......................Samtals 4.560.000 kr.
Líftrygging frá 27-65 ára..............Fjárhæö á fyrsta ári er
, 6.000T000 kr.
Eingreiösla til 65 ara tryggingar-
taka, miðaö við 4% ávöxtun á Karl: 8.959.402 kr.
samningstíma...........................Kona: 9.332.260 kr.
Mí
Sameinaöa líftryggingarfélagið hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík Sími 569 2500 j!
í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiöstö&varinnar hf.