Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
II
KNATTSPYRNA
1995
FIMMTUDAGUR28. SEPTEMBER
BLAÐ
Maxwell frá ;
Rockets til
76ers
VERNON Maxwell, fyirum bakvörður hjá
Houston Rockets, gerði á þriðjudaginn samn-
ing við Philadelphia 76ers en ekki var getið
um innihald samningsins. „Mad Max“, eins og
hann er jafnan kaUaður, er 193 sentimetrar á
hæð og vegur 86 kíló og var látinn fara frá
Rockets í fyrra og vann meistaratitilinn án
hans. Maxwell líkaði ekki vel að þurfa að sitja
mikið á bekknum eftir að Rockets keypti Clyde
Drexler á miðju síðasta tímabili og var forráða-
mönnum liðsins mjög erfiður.
76ers krækti sér í annan frábæran leikmann
í gær er liðið gerði samning við Jerry Stack-
house, en hann var valinn þriðji í síðasta vali.
Hann er 198 sentimetrar á hæð og 99 kíló og
getur leikið bæði sem framheiji og skotbak-
vörður og hann stóð sig mjög vel með Norður-
Karolínu skólanum, 19,2 stig að meðaltali, tók
8,2 fráköst og átti 2,7 stoðsendingar auk þess
sem hann stal boltanum að meðaltali 1,5 sinn-
um I leik og varði 1,7 skot.
Bullets krækti í Ras-
heed Wallace
WASHINGTON Bullets gerði í gær samning
við framheijann Rasheed Wallace, en hann
var fjórði í röðinni í valinu fyrir þetta timabil,
á eftir Joe Smith frá Maryland, Antonio McDy-
ess frá Alabama og skólafélaga sínum úr Norð-
ur-Karolínu, Jerry Stackhouse.
Wallace lék sem miðheiji í skólaliðinu en
mun vera notaður sem framheiji hjá Bullets
með þeim Chris Webber og Juwan Howard.
Hann er 208 sentimetrar á hæð og vegur 102
kíló en þykir mjög snöggur og hlaupalag hans
er alls ekki í samræmi við hæð og þyngt, hann
er miklu líkari litlum bakverði þegar hann er
kominn á ferðina.
Bibercic undir smá-
sjá hjá Everton?
BHIAJOLO Bibercic, Serbinn í liði KR, verður
undir smásjámii hjá Everton í leiknum gegn
KR á Goodison Park í Liverpool í kvöld, að
sögn KR-inga. Guðjón Þórðarson, þjálfari KR,
sagðist hafa heyrt af áhuga Everton á Bi-
bercic. „Þeir segjast hafa áhuga á að skoða
hann betur. Viljajafnvel fá á hann til reynslu
ef hann stendur sig eins vel i leiknum í kvöld
og hann gerði í fyrri leiknum,“ sagði Guðjón.
Bibercic lék nyög vel í fyrri leik liðanna
og skoraði auk þess bæði mörk KR úr víta-
spyrnum. Guðjón segir að leikurinn I kvöld
skipti miklu máli fyrir Bibercic og það væri
einnig lykilatriði fyrir KR að hann léki vel.
Everton hefur ekki unnið leik síðan þeir mættu
KR á Laugardalsvelli.
Enn tapar
Blackburn
BLACKBURN hefur ekki gengið
vel í ensku úrvalsdeildinni það sem
af er hausti og sömu sögu er að
segja um gengi liðsins í meistara-
deild Evrópu, en þar tapaði Iiðið
öðru sinni í gær. Ensku meistararn-
ir héldu til Þrándheims í Noregi
og mættu þar Rosenborg sem gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu 2:1 en
Mike Newell gerði mark Blackburn
Rovers. Þetta var önnur umferð
deildarinnar og fyrir hálfum mán-
uði tapaði Blackburn í Moskvu og
er nú neðst í B-riðli. Á myndinni
má sjá Alan Shearer skjótast fram-
hjá Stale Stensás, varnarmanni
Rnunxhorg, en allt kom fyrir ekki.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Þorbjörn Jensson eftir tveggja marka tap í Rúmeníu
Getum unnið þetta upp
orbergur Jensson stjórnaði
landsliðinu í fyrsta sinn á
stórmóti og var ánægður eftir
leikinn þrátt fyrir tapið, 21:19,
fyrir Rúmeníu í Evrópukeppni
landsliða í Vilcea í gærkvöldi.
„Rúmenar eru engir aukvisar í
handbolta og ég vissi að þetta
gæti farið svona, það verður að
hafa í huga að við vorum að spila
á þeirra heimavelli og úr því sem
komið er er ég bara ánægður með
að hafa ekki tapað með meira en
tveggja marka mun.
Langtímum saman vorum við
að skapa færi en við klikkuðum
á tveimur vítum og fiögur hrað-
aupphlaup fóru í súginn. Það er
ekki hægt að spila villulausan leik
og mér leist ekki á blikuna þegar
þeir voru fimm mörkum yfir en
það er ekki slæmt að tapa með
tveimur mörkum hérna og láta
Rúmena aðeins skora tuttugu og
eitt mark.
Ég er nokkuð sáttur við spilið
þó menn hafí verið frekar gráðug-
ir á stundum og vörnin var ákveð-
in. Með tilliti til mistaka okkar,
sem við eigum að geta lagað,
finnst mér að við eigum að geta
sigrað með meira en tveimur
mörkum heima.“
■ Gífurleg... / D3
KÖRFUKIMATTLEIKUR: ÍSLANDSMEISTARARIMIR MÆTA NÝLIÐUM BREIÐABLIKS / D4