Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 D 3
HANDKNATTLEIKUR
:
-Síí
<.•> w '' Ca,
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
■ atlögu aö marki Stjörnunnar en Herdís Sigurbergsdóttir, Inga
ísdóttir eru til varnar. Arna Steinsen reynir að losa sig á línunni.
Aldrei gefist
upp í Vilcea
MENN sætta sig almennt ekki
við að tapa en samt getur ís-
lenska landsliðið íhandknatt-
leik nokkuð vel við unað að
hafa aðeins tapað með tveggja
marka mun fyrir Rúmenum í
fyrri leik liðanna í Evrópukeppn-
inni að þessu sinni. Heimamenn
unnu 21:19 íVilcea ígærkvöldi,
en með aðeins betri leik og
góðum stuðningi eiga íslend-
ingar hæglega að geta sigrað
með meiri mun í Kaplakrika á
sunnudagskvöld.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf-
ari, sagði við strákana á fundi
fyrir leik að það væri ömurleg tilfinn-
■■■■■■ ing að fara í bælið
Steinþór með Það & bakinu að
Guðbjartsson hafa ekki gert sitt
skrifar besta. „Við verðum
frá Rúmemu ag fórna okkur
hundrað prósent", sagði hann og
piltarnir tóku þjálfarann á orðinu;
börðust allir sem einn og gáfust aldr-
ei upp. Þegar níu mínútur voru til
leiksloka var útlitið svart hjá strák-
unum, í stöðunni 20-15, fyrir heima-
menn, en íslensku víkingarnir gáfu
ekkert eftir og fyrir vikið tókst þeim
að saxa á forskotið áður en yfir lauk.
Reyndar höfðu Rúmenar yfirleitt
yfirhöndina þótt litlu munaði lengst
af. íslendingar komust í 7:5 eftir
22 mínútna leik, en Rúmenar voru
2 mörkum yfir í hálfleik, 11:9, og
komust í 15:10 eftir að hafa spilað
í 6>/2 mínútu eftir hlé.
Óþarfi
Þegar á heildina er litið var óþarfi
að tapa þessum leik, strákarnir
fengu tækifæri til að gera betur í
fyrri hálfleik, en þá tókst Valdimar
ekki að skora úr tveimur vítaköstum
og Sorin Toazsen, markvörður Rúm-
ena, varði glæsilega eftir hraðaupp-
hlaup Gunnars og Valdimars. Auk
þessara fjögurra góðu marktæki-
færa, misstu strákarnir boltann
nokkrum sinnum klaufalega, einkum
eftir slæmar sendingar. Þá reyndist
Toazsen sóknarmönnunum oft erfið-
ur en hann varði alls 20 skot og
hélt 17 sinnum.
Það var hraustlega tekist á án
þess að menn væru beint grófir en
dómararnir leyfðu mikla hörku og
hentaði það ísiendingunum betur.
Rúmenar gerðu 7 mörk eftir hraða-
upphlaup gegn 5 siíkum mörkum
íslendinga en heimamenn komust
ekki áleiðis á línunni eða í hornunum
nema einu sinni. Styrkur þeirra fólst
fyrst og fremst í frábærri mar-
kvörslu.
Frábær varnarleikur
5-1 varnarleikur íslenska liðsins
gekk mjög vel. Gunnar truflaði stöð-
ugt spil mótheijanna og stríddi þeim
en fyrir aftan hann var þéttur múr
þar sem mest mæddi á Geir, Júl-
íusi, Ólafí og Patreki. Þeir vörðu
mörg skot og í raun stóðu allir sig
vel í vörninni en allir tólf leikmenn-
imir tóku virkan þátt í leiknum.
Sóknarleikurinn var frjáls en ekki
kerfisbundinn og gekk oft vei. Mörg
marktækifæri sköpuðust en stund-
um varð keppnin meiri en forsjáin
og mistökm kostuðu sigurinn. Valdi-
mar og Ólafur fundu sig ekki og
meiðsl Patreks háðu honum í sókn-
inni.
Þorbjörn sagði strákunum að
halda leiknum í 40-45 sóknum á lið
og þeir voru nálægt því. Með ámóta
varnarieik og agaðri sóknarleik í
Hafnarfirði á markmiðið að nást -
að standa betur að tveimur leikjum
loknum.
Júlíus Jónasson var
ódrepandi í vöminni
Júlíus Jónasson var bésti leikmað-
ur íslenska liðsins, var ódrep-
andi í vörninni og frábær í sókn-
inni, var með 100%o skotnýtingu í
seinni hálfleik þegar hann gerði 5
mörk og alls var hann með 8 mörk
úr 10 skotum.
„Ég er aidrei ánægður með að
tapa en það var mjög gott að breyta
stöðunni í 21:19 eftir að hafa verið
20:15 undir, sagði hann við Morg-
unblaðið í höllinni eftir leikinn.
„Við spiluðum ekkert sérstaklega
vel í fyrri hálfleik, menn voru of
taugaspenntir og gerðu of mörg
mistök, en Rúmenarnir voru á sama
plani. Þeir voru góðir í heimsmeist-
arakeppninni á Islandi í vor og ekk-
ert kom okkur á óvart en ég er
óhræddur við seinni leikinn. í sjálfu
sér held ég að við getum verið
ánægðir með tveggja marka tap
hérna því ef hugarfarið hjá okkur
verður rétt í Hafnarfirði eigum við
að geta sigrað þetta lið með meiri
mun“.
Gátum sigrað
Geir Sveinsson, fyrirliði, var mjög
góður í vörninni og stóð fyrir sínu
í sókninni, en fékk ekki úr miklu
að moða. Hann skoraði úr báðum
góðu sendingunum en fékk eina
slæma að auki, náði ekki almenni-
legu taki á boltanum og skotið var
varið.
„Ég er nokkuð sáttur við úrslitin
því það er ekki slæmt að tapa með
tveimur mörkum gegn Rúmenum á
útivelli í Evrópukeppni. Hinsvegar
hefðum við getað gengið út með
bæði stigin en við nýttum ekki
dauðafærin, vörnin gekk mun betur
SÓKNAR-
NÝTING
Evrópukeppni landsliða
RÚMENÍA 'r' I fSI-AND
Mðrt< Sóknir % # Mörk Sóknif %
11 25 44 F.h 9 25 36
10 24 42 S.h 10 23 43
21 49 43 Alls 19 48 40
7 Langskot 6
4 Gegnumbrot 2
7 Hraðaupphlaup 5
1 Hom 1
0 Lína 2
2 Vítl 3
Rúmenía - ísland
21:19
íþróttahöllin í Vilcea í Rúmeníu, Evrópukeppni landsliða, miðvikudagur 27. septem-
ber 1995.
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 5:5, 5:7, 9:7,11:9.13:9,15:10,15:12, 20:15, 20:18,21:19.
Mörk Rúmeníu: Apovpvci 6/2, R. Licu 6, P. Prisacaru 4, C. Besta 2, I. Radu 1,
E. Voica 1, P. Pop 1.
Varin skot: S. Toacsen 20/3 (Þar af þrjú skot sem fór aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson 8/3, Ólafur Stefánsson 3, Valdimar Grímsson 2,
Gunnar Beinteinsson 2, Geir Sveinsson 2, Sigurður Sveinsson 2, Patrekur Jóhannes-
son 1. Aðrir leikmenn: Jón Kristjánsson, Dagur Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 7 (Þar af fimm sem knötturinn fer aftur
tilk mótheda), Guðmundur Hrafnkelsson 5 (Þar af tvö til mótherja).
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Gian Pireomasi og Piero Di Piero frá Italíu, sem dæmdu vel, en leygðu
of mikia hörku.
Áhorfendur: Um 2.500.
en í heimsmeistarakeppninni og
ftjálsi sóknarleikurinn kom vel út
en við getum lagað ýmislegt fyrir
seinni leikinn. Ef við fáum fullan
Kaplakrika og mikla stemmningu
er ég mjög bjartsýnn."
Erfitt að byrja
Bergsveinn Bergsveinsson lék
fyrstu 35 mínúturnar í markinu og
varði alls 7 skot.
„Það var erfitt að byija því fyrstu
10 mínúturnar eða svo fóru í að
lesa mótheijana. Vörn okkar var
svakalega góð en skotin komu
snöggt og yfirleitt af stuttu færi
og maður varð að vera viðbúinn.
Ég átti að taka tvö til viðbótar en
annað var ég nokkuð sáttur við.“
JÚLÍUS Jónasson átti frábæran leik gegn Rúmeníu.
íslendingar komu
til að sigra
DORU Simion, þjálfari Rúmen-
íu, var ánægður með sigurinn
en dáðist að íslenska liðinu og
sagðist óttast að það sigraði
með miklum mun í Hafnarfirði.
„Styrkleiki íslenska liðsins
kom mér á óvart, það kom
ákveðið til leiks og ekki fór á
milli mála að íslendingar komu
hingað tii að sigra, barátta ís-
lendinga og reyndar allra liða
á Norðurlöndum er aðdáunar-
verð, og sérstaklega gerðu Geir
og Júlíus okkur lífið leitt með
frábærum varnarleik. Við gerð-
um mörg mistök eftir að hafa
komist í 20:15 og ég óttast stór-
an sigur íslendinga í Hafnar-
firði þó ég voni að við náum
jafntefli. Dómararnir voru
slakir og það er aðfinnsluvert
að láta ítalska dómara dæma
svona mikilvægan leik í Evr-
ópukeppni. Ég er ekki ánægður
með leik minna manna en það
var slæmt að fá ekki hópinn
saman fyrr en tveimur dögum
fyrir leik. Ég notaði 7 leik-
menn, sem spila með erlendum
liðum, en Island var aðeins með
tvo slíka. Það er erfitt að ná
samstiga liði þegar allir koma
úr sitthven-i áttinni rétt fyrir
leik en vonandi náum við að
stilla strengina betiu1 fyrir
sunnudaginn.“
■ JAKOB Gunnarsson sjúkra-
þj álf ari handknattleikslandsliðsins
telur nær öruggt að Patrekur Jó-
hannesson verði alveg búinn að ná
sér fyrir leikinn á sunnudaginn.
■ JÚLÍUS Jónasson gerði 8/3
mörk úr 10/3 tilraunum, þijú mörk
með langskotum, tvö með gegnum-
brotum og þijú úr víti.
■ GEIR Sveinsson gerði tvö mörk
af línunni en hann skaut þrívegis
að marki.
■ GUNNAE Beinteinsson gerði
tvö mörk úr hraðaupphlaupum en
hann átti fimm skot að marki.
■ VALDIMAR Grímsson gerði tvö
mörk, annað úr hraðaupphlaupi, hitt
úr horninu. Hann átti alls sjö skot
að marki, þar af tvö vítaköst sem
misfórust.
■ ÓLAFUR Stefánsson gerði þijú
mörk úr sjö tilraunum, eitt úr hraða-
upphlaupi og tvö með langskoti.
■ PATREKUR Jóhannesson gerði
eitt mark úr þremur tilraunum. Mark-
ið skoraði hann með skoti frá eigin
punktalínu og yfir markvörðinn.