Morgunblaðið - 30.09.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
222. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
ISRAELSKUR hermaður athugar handjárn tveggja Palestínu-
manna, sem voru handteknir í flóttamannabúðum á Vesturbakkan-
um vegna mótmæla gegn samningi ísraela og PLO.
Málaliðar ræna völdum á Comoroeyjum
Frakkar undírbúa
mögulega íhlutun
Nairobi. Reuter.
Friðarfundur í
Washington
Sýrland
næstá
dagskrá
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, ræddi í gær við Hosni Mubar-
ak, forseta Egyptalands, og Huss-
ein Jórdaníukonung um hvernig fá
mætti Sýrlendinga til að fara að
dæmi Palestínumanna og friðmæl-
ast við Israela.
Clinton sagði í gær að ekki væri
hægt að tryggja varanlegan frið í
Miðausturlöndum nema stjórnvöld
í Sýrlandi og Líbanon semdu við
ísraela.
Samningaviðræður Israela og
Sýrlendinga hafa legið niðri í þijá
mánuði og sýrlenskir fjölmiðlar
sögðu í gær að ekki kæmi til greina
að semja frið við ísraela nema þeir
flyttu hermenn sína af Gólanhæð-
um, sem þeir hemámu árið 1967.
ísraelar segjast ekki ljá máls á því
fyrr en Sýrlendingar samþykki að
koma samskiptum ríkjanna í eðli-
legt horf.
Vonir bundnar við Mubarak
Bandarískir embættismenn
sögðust vona að Mubarak beitti
áhrifum sínum til að fá Sýrlendinga
að samningaborði. „Ég tel að ekki
sé hægt að ofmeta áhrif Egypta í
þessu máli,“ sagði einn þeirra.
„Þeir gegna þar veigamiklu hlut-
verki.“
Kasparov-Anand
Samið um
jafntefli
New York. Reuter.
GARRÍ Kasparov og Indveij-
inn Viswanathan Anand
sömdu um jafntefli eftir 43
leiki í heimsmeistaraeinvíginu
í New York í gærkvöldi.
Tefldur var Spænski leikur-
inn. Eftir 12 skákir af 20 er
Kasparov með 6V2 vinning og
Anand 5'/2. Næsta skák verður
tefld á mánudag og Anand
verður þá með hvítt.
Simpsonmálið
fyrir kviðdóm
MÁLFLUTNINGI saksóknara og
veijenda í réttarhöldunum yfir
bandarísku íþrótta- og sjónvarps-
stjörnunni O.J. Simpson lauk í
gær og komið er að því að kvið-
dómurinn skeri úr um hvort hann
sé sekur um morðið á fyrrver-
andi eiginkonu sinni og vini
hennar. Á myndinni gengur aðal-
veijandi Simpsons, Johnnie
Cochran (fyrir miðju), ásamt líf-
vörðum sínum inn í dómshúsið
fram hjá hópi fjölmiðlamanna
með myndavélar og hljóðnema.
■ Óttast óeirðir/24
KHALÉD Kelkal, sem grunaður var
um að hafa tekið þátt í mannskæð-
um sprengjutilræðum í Frakklandi,
beið bana í skotbardaga við lögreglu
nálægt Lyon í gær.
Fingraför Kelkals, sem var 24 ára
og fæddist í Alsír, fundust á
sprengju sem var komið fyrir á járn-
braut í Lyon í síðasta mánuði.
Lögreglan hafði leitað að Kelkal
vikum saman og hann komst naum-
FRAKKAR undirbjuggu í gær
hugsanlega hernaðaríhlutun á
Comoroeyjum á Indlandshafi
vegna valdaráns málaliða sem eru
undir stjórn fransks ævintýra-
manns, Bobs Denards.
Franska varnarmálaráðuneytið
fyrirskipaði hermönnum á Ind-
landshafí að vera í viðbragðsstöðu
og heimildarmenn í París sögðu
að verið væri að undirbúa hugsan-
legar hemaðaraðgerðir ef málalið-
arnir, sem eru frá Suður-Afríku,
gæfust ekki upp. í yfirlýsingu
franska utanríkisráðuneytisins
voru málaliðarnir varaðir við og
sagt að þeir yrðu látnir sæta fullri
ábyrgð á afdrifum fanga sinna,
þeirra á meðal forseta eyjanna,
Said Mohamed Djohar.
Alain Juppe, forsætisráðherra
Frakklands, sagði að hernaðarleg
íhlutun væri ekki á dagskrá en
embættismenn Jacques Chiracs
sögðu forsetann fylgjast grannt
með framvindunni og útiloka eng-
an möguleika.
íbúar á eyjunum, sem símasam-
lega undan þegar þrír félagar hans
voru handteknir eftir skotbardaga á
miðvikudag. Hundruð lögreglu-
manna leituðu hans síðan í skógi
nálægt Lyon með aðstoð hunda, sér-
sveita, fallhlífarhermanna og þyrlna.
Skaut á hermenn
Þegar lögreglan var um það bil
að hætta leitinni í skóginum hringdi
maður og skýrði frá því að Kelkal
Hermenn á Ind-
landshafi í við-
bragðsstöðu
band náðist við, sögðu að Yaacoub
Combo kapteinn, leiðtogi nýrrar
stjórnar, hefði komið fram í út-
varpi og skorað á fólk að sýna
stillingu. Sagði hann að réttað yrði
yfir fyrrverandi ráðherrum og
embættismönnum án tafar 0g lof-
aði ftjálsum kosningum fljótlega.
Fréttir hermdu í gærkvöldi að
hersveitir hollar Djohar forseta
hefðu náð flugvellinum í Moroni,
höfuðstað eyjanna, á sitt vald að
nýju. Fréttir voru um mannfall í
liði beggja.
Með varnarsamning
Caabi Elyachroutu Mohamed,
forsætisráðherra Comoroeyja, sem
leitaði hælis í franska sendiráðinu
í Moroni, skoraði á Frakka að koma
til hjálpar en eyjarnar voru frönsk
nýlenda og hafa ríkin með sér
hefði stigið út úr rútu í grenndinni.
Sveit fallhlífarhermanna hraðaði sér
á staðinn og að sögn lögreglu hóf
Kelkal skothríð á þá. Hermennirnir
skutu á móti og urðu honum að bana.
Sjö manns hafa látið lífið og meira
en 130 særst í sex sprengjutilræðum
í Lyon og París frá því í júlí. I öllum
tilræðunum var beitt sprengjum sem
voru sömu gerðar og sú sem fannst
með fingraför Kelkals.
varnarsamning. Á nálægri eyju,
Mayotte, sem kaus að fylgja
Frakklandi áfram þegar Comoro-
eyjar fengu sjálfstæði 1975, er 130
manna flokkur úr frönsku útlend-
ingaherdeildinni og meiri liðsafli
er á eyjunni La Reunion. Þar er
einnig freigáta, flutningaskip og
tveir 400 tonna fallbyssubátar. Frá
La Reunion til Comoroeyja er
tveggja sólarhringa sigling.
Denard, sem er 66 ára gamall,
var eitt sinn yfirmaður forsetalíf-
varðarins á eyjunum. Hann var
hrakinn þaðan 1989 en þá hafði
hann reynt að ræna völdum þrisv-
ar sinnum og er enn eftirlýstur á
eyjunum vegna morðs á Ahmed
Abdallah, forseta landsins. Átti
hann miklar eignir á eyjunum en
missti þær allar við brottrekstur-
inn. 1993 fékk hann fímm ára
skilorðsbundinn fangelsisdóm í
Frakklandi fyrir málaliðastarfsemi
í Benin en menn kunnugir Denard
telja að það sem vaki fyrir honum
nú sé að fá eitthvað út úr eignum
sínum á Comoroeyjum.
íkveikjur
og dráp
í Krajina
Knín. Reuter.
KRÓATÍSKIR hermenn og óbreytt-
ir borgarar halda áfram íkveikjum,
gripdeildum og drápum á serbnesk-
um þorpsbúum í Krajina-héraði,
sem Króatíuher náði á sitt vald i
ágúst eftir fimm ára uppreisn
Serba.
Króatísk yfirvöld segjast hafa
handtekið 370 manns, þeirra á
meðal nokkra hermenn, fyrir grip-
deildir og íkveikjur en embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna segja
að það hafi ekki dugað. „Við fögn-
um handtökunum en við höfum séð
of fá merki um að haldið sé uppi
lögum og reglu á þessum slóðum,“
sagði Alun Roberts, talsmaður frið-
argæsluliðsins í Knín, höfuðstað
Krajina.
Serbnesk þorp í grennd við Knín
eru nánast mannlaus og þeir fáu
sem komust ekki burt, aðallega
gamalmenni, segjast hafa séð
króatíska hermenn fara ránshendi
um þorpin og kveikja í húsum.
Gamalt fólk myrt
Friðargæsluliðið segist hafa
skráð 120 dráp á serbneskum ibú-
um á svæðinu. „Flest fórnarlamb-
anna voru gamalt fólk sem bjó í
afskekktum þorpum. Nokkrir voru
skotnir af stuttu færi. í þeim tilvik-
um sáu friðargæsluliðar króatíska
hermenn í grenndinni," sagði Rob-
erts.
Reuter
Kelkal drepinn 1 skot-
bardaga nálægt Lyon
Reuter.