Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
223. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hvika ekki
frá myntein-
ingu 1999
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evrópusam-
bandsins (ESB), sem komu saman til
helgarfundar í Valencia á Spáni, sögðu
í gær að hvergi yrði hvikað frá því marki
að koma á mynteiningu innan sambands-
ins árið 1999. Talsmaður ESB sagði að
ráðherrarnir hefðu mælt einni röddu.
Mynteiningin hefur verið mjög til
umræðu eftir að Theo Waigel, fjármála-
ráðherra Þýskalands, sagði að Italar
væru ekki tilbúnir og Lamberto Dini,
forsætisráðherra Italíu, lagði til á fundi
Evrópuleiðtoga á Majorca að myntein-
ingunni yrði frestað um eitt ár.
Óvissa myndaðist á gjaldeyrismörkuð-
um vegna þessara yfirlýsinga og gjald-
miðlar féllu gagnvart þýska markinu.
Litið er á yfirlýsingu ráðherrana á Spáni
sem tilraun til að koma á ró í fjármála-
heiminum.
Dagblaðið International Herald Tribune
leyfði evrópskum leiðtogum að Ijá sig
um mynteininguna í skjóli nafnleyndar
á föstudag. Kváðust þeir aðeins telja
helmings líkur á því að mynteining kæm-
ist á 1999 og voru flestir þeirrar hyggju
að málið myndi stranda á Frökkum.
• •
Oflug sprenging
í Algeirsborg
ÖFLUG sprenging varð í Algeirsborg í
gær með þeim afleiðingum að tveggja
ára gamalt barn lét lífið og 11 slösuð-
ust. Sprengingin var rakin til gasleka.
Haft var eftir vitnum að sprengingin
hefði orðið í Seðlabanka Alsír og fjöldi
manns væri fastur undir rústum. Skelf-
ing greip um sig við sprenginguna
skömmu fyrir hádegi.
Hreinsað til í CIA
JOHN Deutch, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, tilkynnti á föstu-
dag að hann hefði rekið tvo háttsetta
starfsmenn og vítt níu eftir rannsókn á
starfsemi leyniþjónustunnar í Guate-
mala.
Mennirnir, sem voru reknir, sljórnuðu
báðir aðgerðum CIA í Guatemala. Annar
þeirra er nú yfirmaður aðgerða CIA í
Sviss, að því er greint var frá í dagblað-
inu The New York Times. Leyniþjónust-
an var gagnrýnd harkalega fyrr á árinu
þegar því var haldið fram að foringi úr
her Guatemala, sem var á launaskrá hjá
CIA, hefði einnig verið valdur að morði
á bandarískum ríkisborgara, Michael
DeVine, og hvarfi Effrains Bamacas,
skæruliða, sem var kvæntur bandarískri
konu, Jane Harbury. Deutch sagði að
ekkert renndi stoðum undir það að mað-
ur á launum hjá CIA væri viðriðinn þessi
mál.
Morgunblaðið/RAX
FJALLSJÖKULL SKRIÐUR FRAM
Skriður kemst á friðar-
viðræður um Bosníu
Brussel, Sarajevo, Washington. Reuter.
RICHARD Holbrooke, friðarerindreki
Bandaríkjanna í Bosníu, sagði í gær að
hann hefði haldið sinn árangursríkasta fund
með Bosníustjórn á föstudag og hélt af
stað frá Sarajevo til Belgrad og Zagreb til
að nýta sér það að skriður er kominn á
friðarviðræðurnar.
Bjartsýni Holbrookes endurspeglast hins
vegar ekki á vígstöðvunum þar sem ekkert
lát er á átökum. Her Bosníustjórnar hóf
nýja sókn á hendur Bosníu-Serbum í vestur-
hluta Bosníu á föstudag og í gær var því
haldið fram að hann hefði sótt fram um
þrjá km í átt að bænum Mrkonic Grad og
náð mikilvægri hæð á sitt vald. Bosníu-Ser-
bar lýstu hins vegar yfir því að þeir hefðu
hrundið sókn stjórnarhersins.
Holbrooke á ferð og flugi
Gert er ráð fyrir að Holbrooke ræði í dag
við Slobodan Milosevic, leiðtoga Serb-
íu/Svartfjallalands, sem semur fyrir hönd
Hörð átök í vestur-
hluta Bosníu endur-
spegla ekki bjartsýni
ráðamanna
Bosníu-Serba, haldi því næst til Króatíu
til viðræðna við Franjo Tudjman forseta
og snúi til Bosníu á ný á morgun.
Múslimar gagnrýndir
Milan Milutinovic, utanrikisráðherra
Serbíu, sagði Tanjug-fréttastofunni að
friðarlíkur væru „miklar og raunverulegar“
og sakaði stjórn Bosníu undir forystu músl-
ima um að tefja fyrir. „Múslimarnir vilja
ekki að þessu stríði ljúki,“ sagði Milut-
inovic.
Samkomulag hefur náðst um skiptingu
Bosníu og fyrirkomulag stjórnarskrár og
nú hyggst Holbrooke knýja fram vopnahlé.
„Ég get sagt ykkur að nú er ræðst við
af alvöru og líkur eru á vopnahléi, sem ég
vona að náist til þess áð hægt verði að
framfylgja öðrum ákvæðum samkomulags-
ins,“ sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti á
föstudag.
Dole gegn Clinton
Clinton hyggst nú leita samþykkis
Bandaríkjaþings fyrir því að senda herlið
til eftirlits með friðarsamkomulagi í
Bosníu. Það gæti orðið torsótt því að Bob
Dole, forseti öldungadeildar þingsins, sem
talinn er líklegastur til að verða forseta-
frambjóðandi repúblikana, kvaðst ekki geta
stutt slíkt enn um sinn.
Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins samþykktu hins vegar í
megindráttum áætlun um að senda nokkur
þúsund manna herlið NATO og annarra
ríkja til Bosníu til að taka við af friðar-
gæsluliði Sameinuðu þjóðanna.
TALAR
MÁLI
BARNA
0
Æska í ánauð
20
AÐ LÁTA FÓLKI
LÍÐA VEL
VEBKIPnfflVINNULÍF
A SUNIMUDEGI