Morgunblaðið - 03.10.1995, Side 1
64 SÍÐUR B
224. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nýr forseti íslands verður kjörinn 29. júní á næsta ári
Vigdís Finnboga-
dóttir gefur ekki
kost á sér á ný
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, tilkynnti í gær að hún
gæfi ekki kost á sér til endurkjörs
er núverandi kjörtímabili hennar
lýkur næsta sumar. Forsetakosn-
ingar verða því lögum samkvæmt
haldnar 29. júní á næsta ári og
rennur framboðsfrestur út fimm
vikum fyrr, eða 25. maí. Nýr for-
seti tekur við embætti 1. ágúst.
Forseti íslands tilkynnti ákvörð-
un sína er hún setti 120. löggjafar-
þing Alþingis í gær. Lét forseti
þess getið að þetta væri í síðasta
sinn, sem hún setti Alþingi á þessu
kjörtímabili, og teldi hún við hæfi
að nota tækifærið og greina þingi
og þjóð frá þeirri ákvörðun sinni
áð gefa ekki kost á sér áfram í
embætti forseta.
Þakklát þjóðinni
Frú Vigdís boðaði síðan til
blaðamannafundar á Bessastöðum
klukkan fjögur síðdegis, þar sem
hún skýrði nánar frá ástæðum
ákvörðunar sinnar. í upphafi fund-
arins las forseti eftirfarandi yfir-
lýsingu: „Við setningu Alþingis í
dag tilkynnti ég að ég hyggst ekki
gefa kost á mér til endurkjörs í
embætti forseta íslands á næsta
ári. Þetta er í fullu samræmi við
þau orð, sem hér féllu á Bessastöð-
um 19. júní 1991, þegar því var
lýst yfir að árin á forsetastóli yrðu
ekki fleiri að loknu þessu kjörtíma-
bili. Þegar þetta er sagt, er mér
efst í huga þakklæti til íslenzku
þjóðarinnar fyrir það mikla traust,
sem hún hefur sýnt mér með því
að fela mér embættið í þessi ár
og veita mér til þess stuðning og
styrk að gegna því. Og ekki er ég
sízt þakklát öllu því fólki, sem
þessa dagana hefur lagt að mér
að breyta þessari ákvörðun, bæði
með viðtölum, bréfum og undir-
skriftalistum og einnig met ég
mikils jákvæða afstöðu þeirra, sem
lýst hafa skoðun sinni í könnun.“
Ákvörðun tekin fyrir löngu
Frú Vigdís sagðist hafa tekið
ákvörðun sína fvrir löngu og
starfsfólk hennar og trúnaðarvinir
hefðu vitað um hana lengi. Að-
spurð hvað hefði ráðið_ þessari
ákvörðun, sagði forseti: „Eg lít svo
á að ég hafi unnið þessari þjóð af
heilum hug og heilindum í þessi
ár. Ég hef þokað nokkuð áfram
þeim málum, sem mér voru efst í
huga í upphafi kjörtímabils, og ég
er enn á góðum járnum, svo mig
langar kannski til þess að vinna
að öðrum verkefnum líka.“ Þar
nefndi forseti meðal annars áhuga
sinn á margmiðlun og nýtingu
hennar til góðs fyrir þjóðina.
■ Þakklæti til þjóðarinnar/28
Morgunblaðið/Þorkell
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, gengur úr fundarsal
Alþingis eftir að hafa greint þingheimi frá þeirri ákvörðun
sinni að gefa ekki kost á sér að nýju næsta sumar.
Lentií
röngn
landi
Washington. Daily Telegraph.
BANDARÍSKA flugmálastjórnin
(FAA) rannsakar nú hvernig í
ósköpunum DC-10 þota flugfélags-
ins Northwest Airlines í áætlunar-
flugi frá Detroit til Frankfurt í
Þýskalandi með 241 farþega innan-
borðs lenti í Brussel. „Einu menn-
irnir í flugvélinni sem ekki vissu
hvert stefndi voru náungarnir í
stjórnklefanum,“ sagði fulltrúi FAA
sem vinnur að rannsókn málsins.
Farþegunum fannst eitthvað at-
hugavert er þeir sáu Brussel nálg-
ast óðfluga á tölvukorti í farþega-
klefanum. Flugfreyjurnar sáu hvert
flugvélin stefndi og héldu að fiug-
rán hefði verið framið. Vöruðu þær
ekki flugmennina við, enda banna
reglur félagsins þeim að fara fram
í stjórnklefann í aðflugi.
Flugmennirnir áttuðu sig hins
vegar ekki fyrr en þotan kom niður
úr skýjum skammt frá brautarenda
í Brussel. Voru þeir settir í flug-
bann strax eftir lendingu og ný
áhöfn lauk ferðinni til Frankfurt.
Rannsóknin beinist að því hvers
vegna flugumferðarstjóri á Shann-
on-flugvelli breytti áfangastað þot-
unnar í tölvukerfi evrópsku flugum-
ferðarþjónustunnar. Flugumferðar-
stjórar í öðrum löndum tóku þær
breytingar góðar og gildar. Samtöl
á hljóðrita þotunnar þykja hins veg-
ar leiða í ljós að eftirtekt flugum-
ferðarstjóra í Brussel, sem stjórn-
uðu aðflugi þotunnar til borgarinn-
ar, hafi ekki verið nógu góð. Grun-
aði þá ekkert þótt flugmenn þotunn-
ar ávörpuðu þá ætíð og margsinnis
„ Frankfurt- aðflug".
Frakkar gagnrýndir vegna annarrar tilraunasprengingar
Hyggjast
hundsa
mótmælin
London. Ósló. Reuter. Morgunblaðið.
FRAKKAR létu engan bilbug á sér
finna í gær þrátt fyrir harðorð mót-
mæli um heim allan við því að þeir
sprengdu kjarnorkusprengju í til-
raunaskyni á Fangatufa-kóralrifinu
í Kyrrahafi í fyrrakvöld. Herve de
Charette utanríkisráðherra sagði í
gærkvöldi, að fyrirhuguðum til-
raunasprengingum yrði haldið áfram
eins og ekkert hefði í ákorist.
Stjórnvöld víða um heim for-
dæmdu sprenginguna og þjóðir við
Kyrrahaf, sérstaklega Japanir,
Nýsjálendingar og Astralir, hafa
brugðist mjög hart við, ekki síst við
því sem þau kalla þögn breskra
stjórnvalda. Sprengingin var að öll-
um líkindum sú stærsta sem Frakk-
ar munu sprengja í tilraununum nú.
Sprengjan var 110 kílótonn og
sprengd kl. 23.30 að íslenskum tíma
á sunnudagskvöld. Hún var fimm
sinnum öflugri en kjarnorkusprengj-
an sem Bandaríkjamenn vörpuðu á
Hiroshima árið 1945. í Noregi var
efnt til fimm mínútna verkfalls í gær
til að mótmæla tilraunasprengingum
Frakka og Kínveija.
Reuter
GRÆNFRIÐUNGAR mótmæla kjarnorkutilraunum Frakka á þaki
franska sendiráðsins í London í gær. Hvöttu þeir til þess að Frakk-
ar yrðu einangraðir á alþjóðavettvangi vegna tilraunanna.
Anand gjörsigraður
GARRÍ Kasparov sigraði Viswanat-
han Anand í 25 ieikjum í skákein-
vígi þeirra í New York í gær, og
tefldi hann með svart.
Kasparov hefur nú 7,5 vinning á
móti 5,5 vinningi Anands. Hann
hefur fengið þrjá og hálfan vinning
úr seinustu fjórum skákum. Aðeins
er eftir að tefla sjö skákir, þannig
að ólíklegt þykir að Anand geti náð
yfirhöndinni héðan í frá.
Kasparov lék sér að andstæðingi
sínum og eru yfirgnæfandi líkur á að
hann haldi heimsmeistaratitli sínum.
Dómur kveðinn
upp í dag yfir
O.J. Simpson
Los Angeles. Reuter.
KVIÐDÓMUR í máli
bandarísku íþrótta- og
sjónvarpsstjörnunnar
O.J. Simpsons komst
að niðurstöðu í gær, á
hálfri sjöttu klukku-
stund, en réttarhöldun-
um á hendur honum
lauk í síðustu viku nær
níu mánuðum eftir að
þau hófust.
Lance Ito dómari
ákvað að fresta því til
klukkan 17 að íslensk-
um tíma í dag að lesa
upp úrskurð kviðdóms-
ins þar sem margir af
lögmönnum bæði veij-
enda og sækjenda máls-
ins höfðu farið til síns heima þar sem
þeir áttu ekki von á niðurstöðu af
hálfu kviðdómsins fyrr en eftir
nokkra daga.
Það kom sérfræðingum í afbrota-
rétti mjög á óvart hversu fljótt kvið-
dómurinn komst að niðurstöðu.
Skömmu áður en það lá fyrir hafði
dómurinn óskað eftir
því að lesinn yrði upp
framburður eins vitnis
saksóknara, bílstjórans
Allans Parks, sem sótti
Simpson á heimili hans
12. júní í fyrra, kvöldið
sem hann er sakaður
um að hafa myrt eigin-
konu sína, Nicole Simp-
son, og ástmann henn-
ar, Ron Goldman.
Framburður hans er
talinn styrkja málið á
hendur Simpson og sú
ákvörðun dómsins að
fá að heyra aftur fram-
burð Parks, svo og
hversu skjótt niður-
staða fékkst, þótti að mati reyndra
bandarískra dómara og lögfræðinga
í gærkvöldi benda til þess að dómur-
inn hefði fundið O.J. Simpson sekan.
Simpson var í réttarsalnum í gær
þegar tilkynnt var að úrskurður lægi
fyrir. Brá honum greinilega og virt-
ist hann taugaóstyrkur.
O.J. Simpson yfirgefur
réttarsalinn í gær.
Honum virtist brugðið.