Morgunblaðið - 03.10.1995, Blaðsíða 1
fttjMI
„Óhneppt skyrta“
Ámi með slæmt
krossband
VÍKINGURINN Árni Friðleifsson verður ekki
með liði sínu í þriðju umferðinni 1. deildar í
handknattleik á morgnn. Hægra hné Árna var
speglað i gær, hann hefur tvivegis slitið kross-
band og eftir leikinn gegn Haukum blæddi tals-
vert inná hnéið. „Læknarnir sögðu að krossband-
ið væri orðið eitthvað teygt og héldi engu,“ sagði
Árni í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann
sagðist ekki búinn að gera upp við sig hvort
hann væri hættur eða hvprt hann ætlaði að
þijóskast eitthvað við. „Ég verð alla vega ekki
með á miðvikudaginn og það er spurning hvort
ég næ Evrópuleikjunum í Tékklandi um aðra
helgi,“ sagði Árni.
Heimilt að taka leik-
hlé í hvorum hálfleik
Á ÁRSÞINGIHSÍ um helgina var samþykkt að
heimila hvoru liði í meistaraflokki karla og
kvenna að taka mínútu leikhlé í hvorum hálf-
leik. Eins var ákveðið að hafa 15 minútna hlé á
milli hálfleikja I stað 10 mínútna áður og taka
reglur þessar þegar gildi.
Af öðrum breytingum bar hæst sú ákvörðun að
leggja niður sambandsstjórn sem í var 21 maður
en kjósa þess í stað sjö manna stjórn og þrjá til
vara.
Kóngurinn á Old Traffford
Reuter
FRAKKINN Erlc Cantona lék með Manchester Unlted í fyrsta slnn eftlr að hafa tekið út bann. Andrúmsloftið
utan vallar fyrir lelk var rafmagnað vegna endurkomu „Klng Eric“ og hann brást ekki stuðnlngsmönnum sín-
um. Hér á myndinnl er ungur piltur að láta mála nafn „Kóngsins" á andllt sltt. Kóngurlnn er mættur / B8
ÞAÐ eru oft
mikil átök i
handbolta og
á sunnudag-
inn rifnaði
peysa rúm-
enska línu-
mannsins
Alexandru
Dedu þegar
hann og Júl-
íus áttust við.
Peysan rifn-
aðl alveg frá
hálsmáli og
niður úr
þannig að
hún varð eins
og óhneppt
skyrta. Eftir
Qögurra mín-
útna reki-
stefnu dóm-
ara og eft-
iriitsdómara
var „skyrtan“
vaflnn með
limbandi.
HANDKNATTLEIKUR
1995
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER
BLAÐ
KNATTSPYRNA
HSI krafið um 15 millj.
kr. í virðisaukaskatt?
OLAFUR B. Schram, formað-
ur Handknattleikssambands
íslands, sagði á ársþingi sam-
bandsins um helgina áð rannsókn
skattrannsóknastjóra ríkisins
hefði leitt í ljós að söluskatts- og
virðisaukauppgjör HSI væri ekki
í samræmi við túlkun yfirvalda
og væri um háar fjárhæðir að
ræða. „Svo sýnist sem yfirvöld
ætli að kreíjja sambandið um virð-
isaukaskatt af öllum samningum
við styrktaraðila," sagði hann í
ræðu sinni.
Samkvæmt bókhaldsgögnum
Handknattleikssambands Islands
fékk HSÍ 75,7 millj. kr. fyrir
samninga við styrktaraðila frá
1. maí 1989 til árslöka 1993 og
hefur skattrannsóknarstjóri bent
á í skýrslu sinni að ekki hafi
verið gerð grein fyrir þessari
upphæð í skattuppgjöri. Ef greiða
á skatt af umræddri upphæð er
um að ræða tæplega 15 milljónir
króna vegna áranna 1989 til
1993. Að sögn Ólafs var ekki
innheimtur virðisaukaskattur af
þessum greiðslum enda um styrki
í alls konar formi að ræða.
„íþróttahreyfingin er ekki
virðisaukaskattskyld og ég veit
ekki betur en að öll frjáls félaga-
starfsemi sé að meira eða minna
leyti rekin af styrkjum einstakl-
inga, fyrirtækja og opinberra
aðila. HSI hefur því aldrei inn-
heimt virðisauka og þar af leið-
andi teljum við okkur ekki hafa
þurft að standa skil á honum,“
sagði Ólafur við Morgunblaðið.
Á þinginu sagði Ólafur að útlit-
ið væri ekki bjart ef af þessari
skattheimtu yrði. „Sér hver í
hendi sér að virðisauki yfirvalds-
ins verður harla líþill ef þetta á
að ganga eftir. Með þessari túlk-
un laganna er allri íþróttastarf-
semi sniðinn svo þröngur stakkur
að útlit fyrir óbreytta starfsemi
er brostinn. Eigi að taka fimmt-
ung af uppbyggingar- og út-
breiðslustarfsemi en ætlast samt
sem áður til að félög og sambönd
vinni áfram að því þjóðþrifamáli
að halda æsku landsins við upp-
byggingu líkama og sálar þá er
eitthvað að.“
Hann sagði ennfremur að um
stórpólitískt mál væri að ræða
„og ekki nema á valdi löggjafans
að leiðrétta embættismenn í
framfylgni þeirra á snarvitlaus-
um reglugerðum.“
KÖRFUKNATTLEIKUR: NORÐANLIÐIN TAKA FORYSTUNA / B5