Morgunblaðið - 04.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 04.10.1995, Side 1
 BLAÐ ALLRA LANDSMANNA D 1995 MIDVIKUDAGUR4. OKTOBER BLAD . Reuter LEIKMENN York City höfðu ríka ástæðu til að fagna í gærkvöldi þö svo þeir hafi tapað 1:3 fyrir Manchester United. York vann fyrri leikinn á Old Trafford 3:0 og kemst áfram en United er úr leik. York City sló Man- chester United út etta verður greinilega ekki ár Manc- hester United í bikarnum í Eng- landi og ekki heldur í Evrópukeppninni, þar sem liðið var slegið út á dögunum. I gær sigraði United lið York City, sem leikur í 2. deildinni 1:3, en það dugði ekki til. York kemst áfram í deildarbik- arnum en United er úr leik þar sem York vann fyrri leikinn 3:0 á Old Trafford. Táningurinn Andy Warrington, sem stóð í marki York í stað Dean Kiely, sem var meiddur, lék vel gegn United og bjargaði á síðustu sekúndu leiksins meist- aralega skoti Andy Cole og gerði þar með vonir United um að komast áfram að engu. United byrjaði mjög vel og eft- ir stundarfjórðung höfðu Paul Scholes og Terry Cooke komið þeim rauðu i 0:2. Scott Jordan minnkaði muninn á 39. mínútu fyrir York og þrátt fyrir mikla sókn United tókst þeim aðeins að gera eitt mark í viðbót, Scholes, og það dugði ekki. Leeds lenti einnig í vandræðum með Notts County, en tókst að bjarga sér. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Leeds en staðan var 2:2 þegar vallarklukkan sýndi að leiktíminn væri liðinn. Dómarinn einn vissi hvað var mik- ið eftir og þann tíma nýttu Leedsarar sér og Gary Speed tryggi þeim áframhald- andi veru í keppninni með góðu skoti af 25 metra færi. Einn leikmaður, Notts County, var rekinn af velli er hálf klukku- stund var til leiksloka. Bolton, lið Guðna Bergssonar, sem lék til úrslita í fyrra, stóðst erfitt próf gegn Werder Bremen fékk heldur betur skell, þegar liðið mátti þola tap, 2:3, fyrir 2. deildarliði Niirnberg ,í 3. umferð þýsku bikarkeppninnar. Leik- menn Bremen skoruðu tvö fyrstu mörkin — Mario Basler lagði upp mark fyrir Vladimir Beschastnikh og skoraði síðan sjálfur, 2:0, með skoti af sextán metra færi á 20 mín. Leikmen Niirnberg, sem höfðu áður slegið út 1. deildarlið Hansa Rostock, gáfust ekki upp — á 30 mín. Brentford. Bolton vann 1:0 í fyrri leiknum á heimavelli og í gær tókst þeim að sigra 2:3 eftir að Brentford hafði tvívegis kom- ist yfir. Arsenal var hins vegar ekki í neinum vandræðum með Hartlepool og vann 5:0. Ian Wreight gerði þtjú mörk og Dennis Bergkamp tvö. Steve Staunton tryggði Aston Villa jafntefli gegn Peterborough með marki þremur mínútum fyrir leikslok. skoraði Joe Max Moore úr aukaspyrnu og lagði síðan mark upp fyrir Markus Kurth tíu mín. síðar. Það var svo Oliver Straube sem skoraði sigurmark heima- manna aðeins mín. fyrir leikslok. 1860 Miinchen fékk einnig skell, þegar liðið tapaði fyrir áhugamannaliðinu Homburg, 2:1. Þá vann annað áhuga- mannalið, Lok Altmark Stendal, 2. deild- arliðið Waldhof Mannheim í vítaspyrnu- keppni, 5:4. Bremen fékk skell Skattamál íþrótta- hreyfingarinnar hafa lagast SKÚLI Eggert Þórðarson, skattrannsóknar- stjóri, sagði við Morgunblaðið í gær að skatta- mál íþróttahreyfingarinnar hefðu lagast á und- anförnum árum en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um einstök mál. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær sagði Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, á ársþingi sambandsins um helgina að rannsókn skattrann- sóknarstjóra hefði leitt í Jjós að söluskatts- og virðisaukauppgjör HSÍ væri ekki í samræmi við túlkun yfírvalda og virtist sem yfírvöld ætiuðu að krefja sambandið um virðisaukaskatt af öllum samningum við styrktaraðila. Skattrannsóknar- stjóri sagði að eftir að ýtt hefði verið við íþrótta- hreyfíngunni 1992 hefði margt lagast en rann- sókn væri ekki að ástæðulausu. Dennis Rodman til Chicago Bulls DENNIS Rodman, hinn litríki leikmaður San Antonio Spurs, er farinn til Chicago Bulls, sem lét Will Purdue í skiptum. Rodman, sem hefur oft verið erfiður í umgengni, kemur til með að styrkja Bulls mikil, þar sem hann er mjög sterk- ur varnarmaður og tekur mikið af fráköstum — að meðaltali 16,8 í leik sl. keppnistímabil í NBA- deildinni. „Til að verða meistari verðum við að fá sterkan leikmann til að taka fráköst,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Chicago Bulls, sem er mjög góður sálfræðiþjálfari og á því gott með að hemja skap Rodmans. Áður en Bulls keypti Rodman, sem hefur verið valinn í varnarlið NBA-deildarinnar sex sinnum, var rætt við stjörnuleikmennina Michael Jordan og Scottie Pippen, sem lögðu blessun sína yfir kaupin. Það er talið að Jordan komi til með að hafa góð áhrif á Rodman — nái að dempa skap hans niður. Milan Jankovic í viðræðum við BÍ MILAN Jankovic, Serbinn sem lék í vörninni í 1. deildarliði Grindvíkinga síðastliðið sumar, var á ísafirði í gær til að skoða þar aðstæður. For- ráðamenn BÍ, sem féll úr 3. deild sl. sumar, hafa boðið honum að taka við þjálfun liðsins. Ef samningar takast mun Jankovic einnig leika með liðinu. Gylfi Birgisson í Stjörnuna GYLFI Birgisson handknattleiksmaður, sem hugðist leika með Víkingum í 1. deildinni í vet- ur, mun leika með Stjörmmni þess í stað. Ástæð- an er sú að Fylkir, en þar lék Gylfi í fyrra, og Víkingur komust ekki að samkomulagi um greiðslur vegna Gylfa og endaði það með því að hann fór tii Stjömunnar sem greiddi ein- hveija upphæð auk þess sem tveir ungir leik- menn úr Garðabænum fara til Fylkis. Annar þeirra, Rögnvaldur Johnsen, varð fyrir því óhappi á fyrstu æfingu hjá Fylki að handar- brotna og verður frá keppni í einhvem táma. Paul Gascoigne skoraði og meiddist PAUL Gascoigne verður nær örugglega ekki með enska landsliðinu sem leikur vináttuleik gegn Norðmönnum í Osló í næstu viku. Gasco- igne meiddist í leik með Rangers í skosku úrvals- deildinni í gær og var leiddur af velli eftir að hafatognað. Rangers sigraði Motherwell 2:1 og jók forystu sína í deildinni. Gascoigne gerði fyrsta mark leiksins, McSkimming jafnaði fyrir Motherwell en Ally McCoist gerði sigurmarkið með skallauin miðjan síðari hálfleikinn. KNATTSPYRNA: í HEIMSÓKN HJÁ GUÐNA BERGSSYNILANDSLIÐSFYRIRLIÐA / D2, D3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.