Morgunblaðið - 04.10.1995, Blaðsíða 1
Pennavinir
HÆ, hó, Myndasögur Mogg-
ans!
Ég heiti Helga pg bý í Vest-
mannaeyjum. Ég er fædd
árið 1980 og vil gjarnan eign-
ast pennavini á svipuðum
aldri. Áhugamál mín eru:
íþróttir, aðallega fótbolti,
ferðalög og margt fleira.
Reyni að svara öllum bréfum
og ef hægt er að fá mynd í
fyrsta bréfi væri það mjög
gott.
Helga Jóhannesdóttir
Bröttugötu 9
900 Vestmannaeyjar
Kæri Moggi.
Ég er 7 ára íslensk stelpa og
bý í Hollandi. Mig langar að
eignast pennavini á íslandi á
aldrinum 7-9 ára. Ég tala
góða íslensku og áhugamál
mín eru lestur, sund og fleira.
Telma H. Ragnarsdóttir
Bellamystraat 35 bis
3514 EK Utrecht
Nederland/Holland
Kæri Moggi!
Ég er 9 ára stelpa í Reykja-
vík sem langar að eignast
pennavini - stelpur jafnt sem
stráka - á aldrinum 8-11 ára.
Áhugamál mín eru: Ballett,
píanó, hestar, barnapössun,
hjólaskautar og bréfaskriftir.
Svara öllum bréfum.
Hrafnhildur B. Þórðar-
dóttir
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
Kæri Moggi.
Gætirðu nokkuð birt þetta í
blaði þínu? Ég óska eftir
pennavini, sem má vera
stelpa eða strákur á aldrinum
11-12 ára. Áhugamál mín
eru: Fótbolti, sund, utan-
landsferðir, útilegur, hestar.
Ég er 11 ára og skrifa ís-
lensku! Vinsamlegast sendið
mynd með fyrsta bréfi.
Kristín Bjarnadóttir
Yrsufelli 11
111 Reykjavík
Drýpur blóð...
KOMIÐ þið sæl!
Er mögulegt að birta þessa
víkingamynd eftir Stefán Stef-
ánsson, 8 ára, Logafold 98,112
Reykjavík, í Barnablaði Morg-
unblaðsins?
Kveðja pabbi.
Pabbi og Stefán, Myndasög-
um Moggans er sönn ánægja
að verða við bóninni, myndin
hans Stefáns yngri er alveg
meiriháttar! Þetta er kannski
kappinn sem fannst í kumlinu
(gröf, dys, haugur) frá vík-
ingatímanum í landi Eyrar-
lands í Skriðdal á Fljótsdals-
héraði (á Austurlandi) fyrir
hálfum mánuði! Það skyldi þó
ekki vera!
mMr
--------------7-f——
Sagan af Helgu Rún
KÆRU Myndasögur Mogg-
ans.
Ég heiti Helga Rún Jónsdótt-
ir og er 4 ára gömul. Ég bíð
alltaf eftir Myndasögunum og
hlakka til að skoða þær. Ég
sendi þér héma mynd af mér
í sumarveðri og smá sögu með:
Þetta er hún Helga Rún sem
er úti að leika sér í góða veðr-
inu. Það er glampandi sól og
hún brosir til Helgu Rúnar sem
dansar um og leikur sér með
flugdreka úti.
Hún á heima í þessu húsi
með mörgum fallegum litum
eins og í regnboganum, sem
sést yfir húsinu.
Helga Rún Jónsdóttir,
Kópavogsbraut 83, 200 Kópa-
vogur.
Hjartans þakkir, Helga Rún
mín, fyrir myndina og söguna
og notalega kveðju.
Ljóð
Hvað leynist í flöskunni?
Er það eldur?
Er það vín?
Eða er það hamingja eða ást?
Er það vont eða er það gott?
Nei, það er slysavaidur (eitur).
•Kristín Hartmannsdóttir,
Breiðabliki, 900 Vestmanna-
eyjar, er skáldið sem orti ljóð-
ið um innihald flöskunnar.
Við þökkum Kristínu fyrir
þarfa hugvekju. Slæmt fólk er
að selja flöskur með drykk sem
ekki er hægt að bjóða fólki.
Þessi drykkur er oftast kallað-
ur landi. Krakkar, passið ykkur
á honum. Ekki súpa á hverju
sem er - sumir drykkir eru
göróttir (eitraðir, mengaðir).
Umbúðirnar og áróðurinn eru
oft á tíðum skrautleg og aðlað-
andi - en ekki er allt sem sýnist.
Kristín mín, þetta ijóð er
vonandi ekki það eina sem þú
hefur ort, þú veist greinilega
hvað málið snýst um í ljóða-
gerðinni. Haltu áfram á ljóða-
brautinni og öðrum þroska-
brautum.