Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 B 7
skiptafræði og hagfræði. Við-
skiptafræðingar hafa hingað til
fengið vinnu við sitt hæfi. Alþjóð-
leg viðskipti eru stöðugt að aukast
og viðskiptafræðingar og hagfræð-
ingar eiga eftir að taka þátt í þeirri
þróun. Allur heimurinn er orðinn
að einu markaðstorgi og það er
hættulegast fyrir okkur að ein-
angrast. Ég sé því ekkert vanda-
mál varðandi framtíðarhorfur við-
skipta- og hagfræðinga því verk-
efnin eru óþrjótandi.
Við getum haslað okkur völl á
tölvusviðinu, sem hentar okkur
mjög vel. Þar bíður okkar mikið
hlutverk. Tölvubyltingin er ekki
aðeins að færa okkur nær öðrum
þjóðum heldur eru að verðá óstjórn-
lega miklar þjóðfélagsbreytingar í
kringum okkur.
Breytingarnar sem eru að verða
í Evrópu eru líklega svipaðar og á
árunum 1785-1815, þ.e.a.s. á
stjórnarbyltingar- og Napóleons-
tímanum í Frakklandi. Þá gjör-
breyttist öll Evrópa bæði stjórnar-
farslega, atvinnulega og landfræði-
lega. í fyrirtækjarekstri hefiy
þetta m.a. komið fram í því að stað-
arval er nú að verða miklu alþjóð-
legra en áður. Þýsk og frönsk fyrir-
tæki hafa verið að flytja sína fram-
leiðslu til Austur-Evrópu þar sem
launakostnaður er lægri. íslending-
ar eiga ekki að setja sér það mark-
mið að keppa við þessar þjóðir um
launakostnað. Við verðum að búa
okkur til samkeppnisforskot sem
getur legið í því að við höfum
tæknikunnáttu umfram aðra. Þá
gætum við verið með betra
menntakerfi en aðrir eða boðið upp
á áhugaverða kosti í orkumálum,
sjávarútvegi eða náttúru."
Margir kennarar úr
viðskiptalífinu
- Hvernig sýnist þér að tengsl-
um Háskólans við atvinnulífið sé
háttað?
„í grófum dráttum held ég að
þau séu að mörgu leyti ágæt. Há-
skólinn er að mennta fólk til starfa
í atvinnulífinu og til sjálfstæðra
rannsókna. Ein af frumskyldum
skólans er að stunda rannsóknir,
enda er það grundvöllurinn fyrir
tengslum og umsetningu síðar í
atvinnulífinu. Við vinnum töluvert
með fyrirtækjum að verkefnum.
Nemendur eru að gera raunhæf
verkefni í samvinnu við fyrirtæki.
Margir af okkar kennurum hafa
starfað að hluta til í atvinnulífinu
og þekkja vel til stjórnunarstarfa
þar. Vafalítið mætti þó koma á
betri tengslum á milli atvinnulífs
og háskóla. Ég held að það mætti
efla þessi tengsl með því að taka
inn í stjórnir deilda aðila utan há-
skólans."
Einnig má geta þess að við End-
urmenntun Háskóla íslands sækja
nú um 6 þúsund manns ýmis nám-
skeið í tengslum við atvinnulífið.
Tungumálið eini lykillinn
Ágúst ætlar sér að snúa aftur
til háskólans eftir fjögur ár þegar
kjörtímabilinu lýkur, en viðheldur
tengslum við skólann með því að
kenna eitt námskeið sem hann
þróaði sjálfur. „Ég gaf út kennslu-
bók í rekstrarhagfræði í fyrra og
er að dunda við að skrifa fram-
hald á henni. Ég tel að það sé
mjög mikilvægt að við eigum
kennslubækur á íslensku í öllum
fræðigreinum. Erlend samvinna
og erlend rannsóknartungumál
verða sífellt meira áberandi og
sérkenni þjóða og sérstaða minnk-
ar smátt og smátt í ljósi meiri
alþjóðlegrar samvinnu. Tungu-
málið er þá eini lykillinn að eigin
menningu. Þetta verður enn mikil-
vægara á næstu áratugum.
Að mínu máti er fijáls verslun
og góð menntun höfuðatriðið fyrir
þessa þjóð. Það var einmitt aðal-
málið í sjálfstæðisbaráttunni á síð-
ustu öld, að fá verslunarfrelsið og
ná menntuninni inn í landið. Sagan
endurtekur sig oft.“
*
Islenskt bókhaldsforrit
NÝTT íslenskt sölu- og bókhalds-
kerfí, sem skrifað er fyrir Windows
umhverfi, er væntanlegt á mark-
aðinn. Hönnuðir kerfisins eru þeir
Níels Einarsson og Örn Sævar
Rósinkransson.
Að sögn Níelsar er þetta forrit
hið fyrsta af þessari tegund sem
hannað er fyrir Windows. Hann
segir helstu kosti þess vera hversu
einfalt það sé í notkun. „Það ætti
ekki að taka nýjan notanda meira
en hálfa klukkustund að læra á
kerfið ef hann hefur fengið ein-
hveija tilsögn í bókhaldi. Það fylgir
þessu kerfí því ekki mikill kostnað-
ur við þjálfun starfsmanna né flók-
in og dýr eftirþjónusta,“ segir Níels.
Þróun þessa hugbúnaðar mun
hafa staðið yfir undanfarin fjögur
ár. Ekki hefur enn verið samið um
dreifingu hans en Níels segir að
verið sé að fara af stað með mark-
aðssetningu þess. Hugbúnaðurinn
kemur til með að bera nafnið
Bragðarefur, sem er að sögn Níels-
ar skírskotun til þess að það geri
flókið verk einfalt.
Blab allra landsmanna!
ptorgttttMafeifr
-kjarni málsins!
Olfufélagifi hf
Aukið öryggi
® Rafrænar færslur
• Sundurliðuð yfirlit
• Betra bókhald
• Gildir á öllum ESSO stöðvum
Sparaðu fargjöldin
en ekki þægindin í viðskiptaferðinni!
Nú bjóða Flugleiðir og SAS allt að 40% lægri EuroClass og Saga Class
fargjöld til fjölmargra áfangastaða í Skandinavíu og annarra staða í Evrópu.
Hámarksdvöl er einn mánuður og bóka þarf með fjögurra daga fyrirvara.
Kynntu þér góðan kost á enn betra verði.
Fullt fargjald Euro ticket/Saga 2 fargjöld*
Kaupmannahöfn..................97.100
Osló...........................94.400
Bergen.........................94.200
Kristiansand.................. 94.200
Stavanger......................94.200
Stokkhólmur...................108.300
Gautaborg......................98.100
Malmö.........................102.000
Jönköping.....................114.200
Váxjö.........................114.200
Kalmar........................114.200
Vásterás......................109.200
Örebro........................109.200
Norrköping....................116.100
Helsinki.................... 120.300
Tampere.......................120.300
Turku.........................120.300
Vaasa.........................120.300
Amsterdam......................93.400
London.........................93.500
Glasgow........................81.100
Luxemborg......................93.400
,65.000
.65.000
.75.360
.75.360
.75.360
.65.000
.78.500
.81.600
.91.360
.91.360
.91.360
.87.360
.87.360
.92.880
.84.210
.96.240
.96.240
.96.240
.65.000
.59.000
.59.000
.65.000
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína, söluskrifstofu SAS
eða söluskrifstofu Flugleiða.
SAS, sími 562 2211. Flugleiðir, sími 5050 100.
M/SfS
*Verð gildir til 31. desember 1995.
FLUGLEIDIR