Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 1
1995 ■ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER BLAD Sigurður í árs keppnisbann frá handbolta SIGURÐUR Björgvinsson, leikmaður Keflavíkur í meistaraflokki karla í handknattleik, hefur verið dæmdur í eins árs leikbann af aganefnd HSI vegna atviks sem átti sér stað í leik Keflavíkur og Gróttu í meistaraflokki B-liða sl. föstudag. Bannið tók gildi í gær, 4. október og stendur til 1. september 1996. Samkvæmt skýrslu dómarans átti atvikið sér stað um miðjan fyrri hálfleik. Sigurður stöðvaði leikmann Gróttu ólöglega í hraðaupphlaupi og fékk fyrir það tveggja mínútna brottvísun hjá dómara leiksins. Sig- urður var ekki sáttur við það og mótmælti, en dómar- inn sýndi honum þá rauða spjaldið og þá réðst Sigurð- ur á dómarann og sló hann tvisvar, fyrst í andlitið og síðan í bijóstkassann. Dómarinn var með brákað rifbein eftir árásina. KNATTSPYRNA Guðjón Þórðarson skrifaði undirfjögurra ára þjálfarasamn- ing við IA og segist vilja komastyfir „Evrópuþröskuldinn" „Aðstöðuleysi í borginni mikið umhugsunarefni“ Morgunblaðið/Ásdís Á heimleið GUÐIÓN Þórðarson, til vinstri, og Gunnar Slgurðsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, við undirskrift samningsins — lengsta samnings sem um getur hjð íslensku félagsliði. GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari KR tvö síðustu keppnistimabil, skrifaði í gær undir fjögurra ára þjálfarasamning við Knatt- spyrnufélag ÍA sem gildirtii hausts 1999. Guðjón, sem lék um árabil með ÍA og þjálfaði liðið síðan með frábærum ár- angri, verður framkvæmda- stjóri meistaraflokks eins og hann var áður og raunar yfir- þjálfari allra elstu flokka fé- lagsins. Guðjón hefur verið mjög sigur- sæll sem þjálfari. KA varð Islandsmeistari undir stjórn hans 1989, ÍA 1992 og 1993, en það ár varð liðið einnig bikarmeistari, og KR bikarmeistari 1994 og 1995. Hann segist telja sig skilja vel við KR: „Það væri hroki ef ég segðist óánægður með árin tvö — hvað mega hinir segja sem vinna aldrei neitt?“ sagði hann á blaðamanna- fundi þar sem skrifað var undir umræddan samning í gær. „Ég hef skilað KR tveimur bikarmeistara- titlum á tveimur árum, skil við hóp sem er þokkalega sterkur og það er tiltölulega bjart framundan hjá KR-ingum. Þeir eiga mikið af efni- legum strákum,“ sagði þjálfarinn. „Eg átti tvö ágætis ár í Vesturbæn- um,“ sagði hann, en á Guðjóni mátti greinilega skilja að frábær aðstaða Skagamanna vó þungt í ákvörðuninni um að halda aftur heim, sömuleiðis aðstöðuleysið í Reykjavík, Hann gagnrýndi harka- lega uppbyggingu íþróttahúsa hér á landi, og sagði „handboltaham- ingjunni" verða að ljúka. Peningavon Þjálfarinn sagði knattspyrnuna í dag vera „púra bisness", allir vildu komast í Evrópukeppnina, enda væri þátttaka í Evrópukeppninni í knattspyrnu eina von flokkaíþrótta hérlendis til að komast yfir pen- inga. Ef byggð yrðu hús sem full- nægðu kröfum knattspyrnumanna gætu íslensk félagslið jafnvel barist á sama vettvangi og norsku meist- arnir í Rosenborg væru að keppa í dag — Meistaradeild Evrópukeppn- innar, þar sem gífurlegir fjármunir eru í boði. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Akranesi síðustu árin, en „aðstöðuleysið í borginni er mikið umhugsunarefni," sagði Guðjón. „Þegar KR kom upp á Akranes að spila við ÍA árið 1952 átti ÍA einn grasvöll og fjöruna en KR tvo gras- velli. Nú á ÍA átta eða níu gras- velli og fjaran er enn á sínum stað — en KR á rúmlpga tvo grasvelli," sagði Guðjón. „Ég hef fulla trú á að með samstilltu átaki getum við komist lengra í Evrópukeppninni [en hingað til]. Ég vil upp á Evrópu- þröskuldinn, veit ekki hvort ég kemst yfir — en ég vil reyna,“ sagði Guðjón. „Við Gunni [Gunnar Sigurðsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA] störfuðum þijú ár saman á Skagan- um og samstarfið var farsælt og friðsælt, hvort sem menn trúa því eða ekki.“ Hann sagði báða vita að hveiju þeir gengju og e.t.v. þess vegna væri samningurinn svo lang- ur sem raun bæri vitni. „Þeir sýna mikinn kjark og mér mikið traust með svo löngum samningi." Persónulegt samband „Aðdragandi þessa samnings hefur verið tíminn síðan Guðjón fór frá okkur. í mínum huga hefur það ekki verið spurning hvort, heldur hvenær, hann kæmi aftur heim,“ sagði Gunnar Sigurðsson aðspurð- ur. „Kannski trúir því enginn, en þó Guðjón hafi verið í burtu höfum við meira og minna verið í persónu- legu sambandi við hann, eins og reyndar aðra Skagamenn, leikmenn og aðra, sem fara burt. Kannski þess vegna er það svo algengt að menn komi aftur til okkar,“ sagði Gunnar. Guðjón var einn þeirra sem talinn var koma til greina í stöðu landsliðs- þjálfara er Logi Ólafsson var ráðinn á dögunum. „Ég hef ekki mikinn áhuga á því starfi,“ sagði Guðjón í gær. „Ég var reyndar svo barna- legur að halda að mér yrði boðið starfið, en það er ljóst að það þarf mikið að breytast í Laugardalnum til að ég starfí fyrir KSÍ,“ sagði hann — og útskýrði það nánar með því að mannabreytingar yrðu að verða „á toppnum“ hjá KSÍ til að hann hefði áhuga á starfi þar. Ekki vildi Guðjón þó nefna nein nöfn í því sambandi. Virðum ákvörðunina „Það er engin spurning um að Guðjón hafí verið að gera góða hluti fyrir okkur og við gátum hugsað okkur að hafa hann áfram — og viðræður verið á milli okkar. En ákvörðun hans varð á endanum sú að fara upp eftir og við virðum hana. Guðjón er sannarlega litríkur maður og það er gaman að vinna með honum, en við erum ekki hætt- ir að spila knattspyrnu í Frosta- skjólinu," sagði Björgólfur Guð- mundsson, formaður knattspyrnu- deildar KR við Morgunblaðið. Þorvaldur í fjötrum hjá Stoke ÞORVALDUR Örlygsson er ekki sáttur við gang mála hjá Stoke og hefur neitað að spila með aðalliði félagsins undanfarnar vikur. Samn- ingur hans rann út eftir síð- asta tímabil en fyrirspurnir annarra félaga hafa fallið um sjálft sig þar sem þau hafa sett fyrir sig uppsett verð Stoke, að sögn Þorvalds. Þorvaldur sagði að verðið hefði farið eftir því hvaða félag ætti í hlut. Þegar Manc- hester City vildi fá hann hefði Stoke farið fram á milljón pund (um 103 millj. kr.), 800.000 til 900.000 pund þegar Birmingham sýndi áhuga og 250.000 pund þegar Barnsley kom til greina. „Stoke hefur sett upp of hátt verð og þvi hef ég ekki viljað vera með í aðalliðinu en hald- ið mér í leikæfingu með vara- liðinu," sagði Þorvaldur. Meðan svo væri sagðist hann halda launum og félagið tæki ekki áhættuna að hætta að borga því þá væri hann laus allra mála. Logi byrj- ar með landsliðið á Möltu LOGI Ólafsson fylgist með undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópuleikinn gegn Tyrkjum, sem verður á Laug- ardalsvelli 11. október, og fer með liðinu til Búdapest þar sem síðasti leikur þess verður gegn Ungveijum 11. nóvember en tekur síðan formlega við sijórninni. Fyrsta verkefni landsliðsins undir hans stjórn verður þátttaka í fjögurra þjóða móti á Möltu i febrúar en þar keppa Slóvenía, Rússland, Malta og ísland. HANDBOLH: KA OG STJARNAN HAFA SIGRAÐIFYRSTU ÞREMUR LEIKJUNUM / 02

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.