Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 jnorgnttfrlt&fö ■ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER BLAÐ Kínverjar líkleg- irtilafreka KÍNVERJAR eru taldir líklegir til afreka á Heimsmeistaramótinu sem fer fram í Japan þessa dagana. Keppnin í skylduæfingum liða stend- ur sem hæst og myndin af Finnanum Jani Tanskanen í stökki var tekinn af henni í gær. Kínveijar þykja lík- legir til afreka í fijálsu æfmgunum sem hefjast í dag og því veðja marg- ir á þá í samanlögðu. ■ JORGE Valdano, þjálfari spænsku meistaranna í Real Madrid, varð fertugur í fyrradag. Leikmenn liðsins færðu honum óskemmtilega afmælisgjöf; töpuðu 3:4 gegn Valencia á útivelli. ■ FLORIN Raducioiu verður ekki með landsliði Rúmeníu gegn Frökk- um á miðvikudaginn kemur í Evr- ópukeppninni. Framheijinn er meidd- ur, en miðvallarleikmaðurinn Ghe- orghe Hagi kemur hins vegar inn í liðið á ný eftir meiðsli. Rúmenar eru efstir í riðlinum og nái þeir í eitt stig tryggja þeir sæti sitt í úrslita- keppni EM í Englandi næsta sumar. ■ COLIN Montgomerie, besti evr- ópski kylfingurinn í ár, hætti í gær keppni á þýska meistaramótinu eftir að hafa farið fyrsta hringinn á 76 höggum — fjórum yfír pari. Hann hefur átt við meiðsli í vinstri úlnlið að stríða síðustu mánuði, náði að leika í Ryder-bikarkeppninni á dög- unum en kvaldist í gær og ákvað cið h cetta, ■ MONTGOMERIE stefnir að því að verða efstur á peningalistanum þriðja árið í röð — þ.e. að vinna sér inn mest verðlaunafé allra kylfinga í Evrópu. Nokkur mót eru eftir en fýrir mótið í Berlín hafði þessi snjalli Skoti þénað um 100 þúsund krónum meira en landi hans Sam Torrance og Þjóðvetjinn Bernhard Langer var einnig skammt undan. ■ WILLEM van Hanegem þjálfari hollenska liðsins Feyenoord var rek- inn frá félaginu í vikunni eftir slæma byrjun á keppnistímabilinu. ■ GVUS Hiddink, landsliðsþjálfari Hollands, valdi Glenn Helder, út- heijann sem leikur með Arsenal í Englandi og Clarence Seedorf frá Sampdoria á Ítalíu, í hópinn fyrir Evrópuleikinn gegn Möltu í næstu viku. Það vakti hins vegar athygli að Wim Jonk, sem leikur stórt hlut- verk í sterku liði PSV Eindhoven, kemst ekki í hópinn. FRJALSIÞROTTIR Péturmeðeitt kastyfir20m Pétur Guðmundsson kúluvarpari kastaði vel á þremur mótum sem Alabama háskólinn, þar sem hann er við nám, hélt í lok september. Lengsta kasti sínu náði hann í síðasta mótinu, 20,13 metrar, og virðist Pétur því í fínu formi. Fyrsta mótið var 22. mars og þar var lengst kast Péturs 18,57 en þá átti hann tvö köst yfir 18 metra. Annað mótið var haldið 25. september og þar flaug kúlan 19,45 metra lengst og öll köstin voru yfir 18 metra og.raunar mjög nærri 19 metrun- um (18,84-18, 84-19, 36-19, 45-19, 09 og síðasta kastið var ógilt). Það var síðan á síðasta mótinu sem Pétur náði kúlunni yfir 20 metrana, en mótið var haldið 29. septem- ber. Fyrst kastaði hann 19,13 metra, síðan 19,55 en gerði ógilt í þriðja kasti og lengst kastið kom á eftir því. Næst síðasta kastið var 18,91 metri og það síðasta ógilt. Sigurður Einarsson spjótkasti keppti á tveimur fyrstu mótunum og kastaði lengst 75,50 metra. Pétur keppti einnig í kringlu- kasti og kastaði þar lengst 55,98 metra. Langt ferðalag Aftureldingar AFTURELDING leikur í Makedóníu i Evrópu- keppninni í handknattleik á morgun og er liðið komið til Nekotíno, þar sem leikurinn fer fram. Ferðalagið tók alls 22 klukkustundir og að sögn leikmanna eru allir leikmenn heilir og tilbúnir í leikinn, en áhorfendur í þessum 13 þúsund manna bær eru sagðir með þeim hressustu og því má búast við miklu fjöri á leiknum. Mosfellingar sejast hafa séð flottari hótel en það sem liðið býr á en hins vegar segja þeir gest- risnina með mUdum ágætum og við fystu sýn virð- ist allt eins og það eigi að vera. Eftir leikinn mun liði halda til Búlgaríu og búast menn við óvæntum atburðum á landamærunum þvi búast má við að greiða þurfi um 41 þúsund krónur fyrir leyfi til að fara i gegnum Búlgaríu, nokkuð sem enginn hafði liugmynd um. Kostic kemurtil greina sem eftir- maður Guðjóns KR-INGAR hafa rætt við nokkra þjálfara, sem þykja koma til greina sem eftirmenn Guðjóns Þórðarsonar hjá knattspyrnuliði félagsins, en Guðjón var ráðinn þjálfari IA i fyrradag sem kunn- ugt er. Luka Lúkas Kostic, þjálfari Grindvíkinga, er meðal þeirra sem koma til greina skv. heimildum blaðsins, en annar sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur möguleiki er Pétur Pétursson, fyrr- um leikmaður KR sem í sumar var við stjómvöl- inn þjá 2. deildarliði Víkings. Skv. heimildum úr herbúðum KR er ekki komið að endapunkti í raálinu, skiptar skoðanir séu með- al fory stumanna, þrir innlendir þjálfarar séu tald- ir koma til greina og einnig sé verið að athuga með þjálfara erlendis frá. Það ætti þó að skýrast innan tíðar hver verði eftirmaður Guðjóns. Seeler fljótur að reka Möhlmann UWE Seeler, sem tók við sem forseti þýska félags- ins Hamburger SportVerein í gær, lét það verða sitt fyrsta verk að reka Benno Möhlmann þjálfara félagsins. Seeler, sem lék með HSV og þýska landsliðinu á sínura tíma, hefur heitið því að gera HSV aftur að stórveldi, eins og það var á sjöunda og áttunda áratugnum. Möhlmann, sem er 41 árs gamall hefur goldið fyrir hræðilega byijun HSV, en Iiðið er nú i fallsæti, hefur aðeins fengið sex stig úr fyrstu átta leikjum sinum. Cantona ekki val- inn í landsliðið ERIC Cantona var ekki i 18 manna landsliðshópi Frakka sem Aime Jacquet landsliðsþjálfari til- kynnti í gær, en Frakkar leika nyög mikilvægan leik gegn Rúmenum í 1. riðli undankeppni Evrópu- keppninnar í knattspyrnu á miðvikudaginn. Jacqu- et segist ekki vi(ja velja menn nema þeir séu í ny'ög góðri æfingu og hann telur Cantona ekki í nægilega mikilli leikæfingu og sömu sögu er að segja af Jean-Pierre Papin sem hefur ekki komist í byxjimarlið Bayern Milnchen. í þeirra stað valdi þjálfarinn tvo menn sem hafa ekki verið í liðinu bjá honum áður, þá Michael Madar frá Mónakó og Marc Keller frá Strasborg. Rúmenar munu leika án framheijans Florin Raducioiu en hann er í leikbanni. Hins vegai' mun Gheorghe Hagi leika með liðinu að nýju eftir þriggja landsleikja hvíld vegna meiðsla. Sigurður áfram með Völsung SIGURÐUR Lárusson verður áfram með knatt- spyrnulið Völsungs á Húsavík, en undir hans stjórn sigraði iiðið í 3. deildinni og leikur því í 2. deild næsta sumar. KIMATTSPYRNA: ÞRÍR NÝIR KR-INGAR í LANDSUÐSHÓPINN GEGN TYRKJUM / C4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.