Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
jnorgnttfrlt&fö
■ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER
BLAÐ
Kínverjar líkleg-
irtilafreka
KÍNVERJAR eru taldir líklegir til
afreka á Heimsmeistaramótinu sem
fer fram í Japan þessa dagana.
Keppnin í skylduæfingum liða stend-
ur sem hæst og myndin af Finnanum
Jani Tanskanen í stökki var tekinn
af henni í gær. Kínveijar þykja lík-
legir til afreka í fijálsu æfmgunum
sem hefjast í dag og því veðja marg-
ir á þá í samanlögðu.
■ JORGE Valdano, þjálfari
spænsku meistaranna í Real
Madrid, varð fertugur í fyrradag.
Leikmenn liðsins færðu honum
óskemmtilega afmælisgjöf; töpuðu
3:4 gegn Valencia á útivelli.
■ FLORIN Raducioiu verður ekki
með landsliði Rúmeníu gegn Frökk-
um á miðvikudaginn kemur í Evr-
ópukeppninni. Framheijinn er meidd-
ur, en miðvallarleikmaðurinn Ghe-
orghe Hagi kemur hins vegar inn í
liðið á ný eftir meiðsli. Rúmenar eru
efstir í riðlinum og nái þeir í eitt
stig tryggja þeir sæti sitt í úrslita-
keppni EM í Englandi næsta sumar.
■ COLIN Montgomerie, besti evr-
ópski kylfingurinn í ár, hætti í gær
keppni á þýska meistaramótinu eftir
að hafa farið fyrsta hringinn á 76
höggum — fjórum yfír pari. Hann
hefur átt við meiðsli í vinstri úlnlið
að stríða síðustu mánuði, náði að
leika í Ryder-bikarkeppninni á dög-
unum en kvaldist í gær og ákvað
cið h cetta,
■ MONTGOMERIE stefnir að því
að verða efstur á peningalistanum
þriðja árið í röð — þ.e. að vinna sér
inn mest verðlaunafé allra kylfinga
í Evrópu. Nokkur mót eru eftir en
fýrir mótið í Berlín hafði þessi snjalli
Skoti þénað um 100 þúsund krónum
meira en landi hans Sam Torrance
og Þjóðvetjinn Bernhard Langer
var einnig skammt undan.
■ WILLEM van Hanegem þjálfari
hollenska liðsins Feyenoord var rek-
inn frá félaginu í vikunni eftir slæma
byrjun á keppnistímabilinu.
■ GVUS Hiddink, landsliðsþjálfari
Hollands, valdi Glenn Helder, út-
heijann sem leikur með Arsenal í
Englandi og Clarence Seedorf frá
Sampdoria á Ítalíu, í hópinn fyrir
Evrópuleikinn gegn Möltu í næstu
viku. Það vakti hins vegar athygli
að Wim Jonk, sem leikur stórt hlut-
verk í sterku liði PSV Eindhoven,
kemst ekki í hópinn.
FRJALSIÞROTTIR
Péturmeðeitt
kastyfir20m
Pétur Guðmundsson kúluvarpari kastaði
vel á þremur mótum sem Alabama
háskólinn, þar sem hann er við nám, hélt
í lok september. Lengsta kasti sínu náði
hann í síðasta mótinu, 20,13 metrar, og
virðist Pétur því í fínu formi.
Fyrsta mótið var 22. mars og þar var
lengst kast Péturs 18,57 en þá átti hann
tvö köst yfir 18 metra. Annað mótið var
haldið 25. september og þar flaug kúlan
19,45 metra lengst og öll köstin voru yfir
18 metra og.raunar mjög nærri 19 metrun-
um (18,84-18, 84-19, 36-19, 45-19, 09 og
síðasta kastið var ógilt). Það var síðan á
síðasta mótinu sem Pétur náði kúlunni yfir
20 metrana, en mótið var haldið 29. septem-
ber. Fyrst kastaði hann 19,13 metra, síðan
19,55 en gerði ógilt í þriðja kasti og lengst
kastið kom á eftir því. Næst síðasta kastið
var 18,91 metri og það síðasta ógilt.
Sigurður Einarsson spjótkasti keppti á
tveimur fyrstu mótunum og kastaði lengst
75,50 metra. Pétur keppti einnig í kringlu-
kasti og kastaði þar lengst 55,98 metra.
Langt ferðalag
Aftureldingar
AFTURELDING leikur í Makedóníu i Evrópu-
keppninni í handknattleik á morgun og er liðið
komið til Nekotíno, þar sem leikurinn fer fram.
Ferðalagið tók alls 22 klukkustundir og að sögn
leikmanna eru allir leikmenn heilir og tilbúnir í
leikinn, en áhorfendur í þessum 13 þúsund manna
bær eru sagðir með þeim hressustu og því má
búast við miklu fjöri á leiknum.
Mosfellingar sejast hafa séð flottari hótel en
það sem liðið býr á en hins vegar segja þeir gest-
risnina með mUdum ágætum og við fystu sýn virð-
ist allt eins og það eigi að vera. Eftir leikinn mun
liði halda til Búlgaríu og búast menn við óvæntum
atburðum á landamærunum þvi búast má við að
greiða þurfi um 41 þúsund krónur fyrir leyfi til
að fara i gegnum Búlgaríu, nokkuð sem enginn
hafði liugmynd um.
Kostic kemurtil
greina sem eftir-
maður Guðjóns
KR-INGAR hafa rætt við nokkra þjálfara, sem
þykja koma til greina sem eftirmenn Guðjóns
Þórðarsonar hjá knattspyrnuliði félagsins, en
Guðjón var ráðinn þjálfari IA i fyrradag sem kunn-
ugt er.
Luka Lúkas Kostic, þjálfari Grindvíkinga, er
meðal þeirra sem koma til greina skv. heimildum
blaðsins, en annar sem nefndur hefur verið sem
hugsanlegur möguleiki er Pétur Pétursson, fyrr-
um leikmaður KR sem í sumar var við stjómvöl-
inn þjá 2. deildarliði Víkings.
Skv. heimildum úr herbúðum KR er ekki komið
að endapunkti í raálinu, skiptar skoðanir séu með-
al fory stumanna, þrir innlendir þjálfarar séu tald-
ir koma til greina og einnig sé verið að athuga
með þjálfara erlendis frá. Það ætti þó að skýrast
innan tíðar hver verði eftirmaður Guðjóns.
Seeler fljótur að
reka Möhlmann
UWE Seeler, sem tók við sem forseti þýska félags-
ins Hamburger SportVerein í gær, lét það verða
sitt fyrsta verk að reka Benno Möhlmann þjálfara
félagsins. Seeler, sem lék með HSV og þýska
landsliðinu á sínura tíma, hefur heitið því að gera
HSV aftur að stórveldi, eins og það var á sjöunda
og áttunda áratugnum. Möhlmann, sem er 41 árs
gamall hefur goldið fyrir hræðilega byijun HSV,
en Iiðið er nú i fallsæti, hefur aðeins fengið sex
stig úr fyrstu átta leikjum sinum.
Cantona ekki val-
inn í landsliðið
ERIC Cantona var ekki i 18 manna landsliðshópi
Frakka sem Aime Jacquet landsliðsþjálfari til-
kynnti í gær, en Frakkar leika nyög mikilvægan
leik gegn Rúmenum í 1. riðli undankeppni Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu á miðvikudaginn. Jacqu-
et segist ekki vi(ja velja menn nema þeir séu í
ny'ög góðri æfingu og hann telur Cantona ekki í
nægilega mikilli leikæfingu og sömu sögu er að
segja af Jean-Pierre Papin sem hefur ekki komist
í byxjimarlið Bayern Milnchen. í þeirra stað valdi
þjálfarinn tvo menn sem hafa ekki verið í liðinu
bjá honum áður, þá Michael Madar frá Mónakó
og Marc Keller frá Strasborg.
Rúmenar munu leika án framheijans Florin
Raducioiu en hann er í leikbanni. Hins vegai' mun
Gheorghe Hagi leika með liðinu að nýju eftir
þriggja landsleikja hvíld vegna meiðsla.
Sigurður áfram
með Völsung
SIGURÐUR Lárusson verður áfram með knatt-
spyrnulið Völsungs á Húsavík, en undir hans stjórn
sigraði iiðið í 3. deildinni og leikur því í 2. deild
næsta sumar.
KIMATTSPYRNA: ÞRÍR NÝIR KR-INGAR í LANDSUÐSHÓPINN GEGN TYRKJUM / C4